Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 40
40
DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984.
Andlát
Um helgina
Um helgina
Jón Hlíöberg, Leifsgötu 12 Reykjavík,
sem lést 21. ágúst verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag, 3. september,
kl. 15.00. Hann fæddist 6. febrúar 1894 í
Njarðvik, Borgarfiröi eystra. Foreldr-
ar hans voru hjónin Sigþrúður Bjarna-
dóttir og Jón Hallgeirsson. Jón hóf
ungur smíðanám og starfaöi við
smíðar allar götur síöan eða þar til
fyrir tveim árum er hann veiktist. Árið
1920 kvæntist hann Kristínu Stefáns-
dóttur og eignuðust þau fimm börn.
Aðalheiður N. Einarsdóttir, Freyju-
götu25b, er látin.
Garðar Páli Brandsson tannlæknir,
Hólavangi 1 Hellu, veröur jarðsunginn
frá Háteigskirkju þriðjudaginn 4.
september kl. 10.30.
Helga Marteinsdóttir, Bólstaðarhlíö
42, veröur jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju í dag, 3. septembei.kl. 11.30.
Anna Ása Þórarinsdótíir frá
Sanddalstungu, Noröurárdal, ser.i lést
á Elliheimilinu Grund 25. ágúst.verður
jarðsungin frá nýju kapellunni i Foss-
vogi þriðjudaginn 4. september kl.
15.00.
Þórunn Jónsdóttir, Eskihlíð 16b, er lát-
in. Utförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 4. september kl. 13.30.
Tilkynningar
Yogakennari í
heimsókn
Hér á landi dvelur nú indverski yogakenn-
arinn Ac. Vimalananda Avt. á vegum Ananda
Marga hreyfingarinnar. Hann mun halda tvo
fyrirlestra um heimspeki og hugræktarað-
ferðir yoga. Fyrirlestramir verða haldnir
þriðjudaginn 4. og miðvikudaginn 5. septem-
ber kl. 21 í Aðalstræti 16,2. hæð. Aðgangur er
ókeypis.
J.C. Nes, Seltjarnarnesi
J.C. Nes,sem er með starfssvæði í vesturbæ
og á Seltjarnamesi.er nú að hefja starfsemi
sína.
Fyrsti félagsfundur vorður haldinn í
Félagsheimili Seltjarnamess mánudaginn 3.
september og hefst hann kl. 20.30.
Gestur fundarins verður Jón Magnússon,
formaður Neytendasamtakanna.
Eitt af markmiðum stjómar J.C. Ness
þetta starfsár er að fá nýja félaga inn í
félagið. Allir sem áhuga hafa á því að kynna
sér starfsemi J.C. félags eru velkomnir á
félagsfundinn.
Ályktun:
Ráðstefna á vegum Skólameistarafélags
Islands í samvinnu við Hið íslenska kennara-
félag og Kennarasamband tslands, haldin að
Borgartúni 6 í Reykjavík þann 30. ágúst 1984
um efnið „Er framhaldsskólinn úreltur?”
ályktar:
Magn og gæði þeirrar menntunar sem feng-
m er í skólum fer fyrst og fremst eftir því
hvort þar eru til staðar hæfir og vel menntaðir
kennarar.
Slíkir menn fást ekki í bráð né lengd, nema í
boði séu viröing og laun i samræmi við gildi
og ábyrgð starfsins.
Launakjör kennara hafa af ýmsum
ástæðum „úrelst" mjög á undanfömum miss-
erum og eru nú i engu samræmi við flest
annað sem tíðkast í þjóðlífinu og er greini-
legt að til stórvandræða horfir í skólum
landsins af þeim sökum.
Ráðstefnan teiur það því mjög áríðandi og
raunar lykilatriði, að laun kennara verði
leiðrétt og bætt tafarlaust.
MILTON OG MARILYN
Milton Friedman og Marilyn
Monroe voru toppurinn á dagskrá
helgarinnar en þó hvort meö sínu
móti.
Eg held aö flestir sem horfðu á
Milton Friedman og félagana Olaf,
Birgi og Stefán rífast á föstudags-
kvöldiö hafi fengiö eitthvað fyrir
afnotagjaldið sitt. Og þó aö ég hefði
verið með poppkom (eins og ég hafði
ætlað, því að Friedman fer víst ágæt-
lega með mat) þá held ég svei mér
þá að ég hefði gleymt að stinga upp í
mig á köflum.
Mér finnst eölilegast að skoöa
deilur af því tæi sem fram fóru í
þættinum út frá tækni miklu fremur
heldur en málefnum. Eg hafði ekki
lesið mikið af þeim ritum sem vitnað
var til í þættinum en dáðist hins veg-
ar að deiluaðferðunum. Friedman
fannst mér nota þaö skemmtilega að
segja flestar tilvitnanir í verk sín
rangar og tók einnig einfaldar og
alþýölegar líkingar máli sínu tfl
stuðnings sem vafalaust eru þraut-
reyndar á löngum þrætuferli. Einnig
tókst honum ágætlega upp í því aö
halda orðinu og „byrja á byr juninni”
sem kom kannski dálítið á undan
kjamanum. Mér fannst íslending-
arnir sækja vel í sig veörið þegar líða
tók á þáttinn og þeir unnu meistara-
lega í lokin úr spumingunni um
aðgangseyrinn á fyrirlestur Fried-,
mans. Það var mál sem var hæfilega
einfalt og áþreifanlegt. Lélegasti
leikur Friedmans hugsa ég samt að
hafi verið þegar hann reyndi að gera
grín að ensku Olafs Ragnars. Bæði
sneri Olafur vel út úr því og svo held
ég að fæstir íslendingar hlæi þegar
útlendingur reynir aö gera grín aö
enskulandaþeirra.
Pósturinn hringir alltaf tvisvar
var þokkaleg en ekki meira. Petulu
Clark sleppti ég og nýja breska
framhaldsmyndaflokkinn reyndi ég
að laða inn um augun en varð að
hleypa honum aftur út með löngum
geispa. Þau straumhvörf hafa orðið
aö þaö fer í taugamar á mörgum
karlmanninum líka að sjá miðaldra
Breta setjast slyttislega við matar-
borðið og bíða eftir því að konan hans
nokkurn veginn mati hann.
En snúum okkur aö aðalatriðinu:
Marilyn Monroe. Þaö var alveg
sama þó aö handritið væri slappt og
annar aöalkarlleikarinn með eitt
væmnasta kúkabros sem sést hefur í
kvikmynd. Þegar dúndurgellan
Marilyn skók velþroskaöan lik-
amann og kurraði eins og köttur var
myndin góð. Ef íslenskar vaxtar-
ræktarkonur eru á sömu leið óska ég
þeimvelfarnaðar.
Sunnudagskvöldið var átakalítið
enda talsvert búið að skemmta
manni svo ég slökkti bara eftir frétt-
ir. Utvarpið hlustaöi ég ekki á um
helgina utan einhverra frétta.
Takk fyrir spjallið.
Sigurður G. Valgeirsson.
Rúrik Haraldsson:
Fjölbreytt og
gott útvarp
Ég horfi yfirleitt á sjónvarpið
þegar ég hef tækifæri til þess. Af því
sem ég sá t.d. í gær var tónlistarþátt-
urinn frá Sviss og fannst mér hann
nokkuð góður. Það var gaman að sjá
allar þessar stjörnur þama saman
komnar. Það efni sem ég reyni
annars helst að sjá í sjónvarpinu eru
fréttir og einnig eru breskir fram-
haldsþættir í miklum metum hjá
mér. Þýski þátturinn margfrægi,
Berlin Alexanderplatz, féll mér líka
vel í geð. Dagskrá útvarpsins finnst
mér í heildina mjög góð og þar ríkir
mikil fjölbreytni. Eg hlusta nú ekki
reglulega á útvarpið en mér finnst
gaman að hafa opið fyrir það, t.d.
þegar ég er í bílnum.
Síðdegisútvarpið sem Sigrún
Björnsdóttir sér um ásamt fleirum
finnst mér vera ágætisþáttur.
Ég hef svo einnig gaman af þjóð-
legum fróðleik ýmiss konar og ferða-
þáttum. Rásina númer 2 hlusta ég
svo til ekkert á. Hún er meira fyrir
yngra fólkiö.
M y ndmenn takennarar
harma
sparnaðarráðstafanir
Á fundi myndmenntakennara sem haldinn
var 30. ágúst sl. var samþykkt eftirfarandi
ályktun:
Myndmenntakennarar harma spamaðar-
ráöstafanú- rikisstjórnarinnar í skólamálum.
Fundurinn tekur undir áskorunarbréf for-
manns Kennarasambands Islands til ráð-
herra, sem birst hefur í fjölmiðlum og kveður
á um skeröingu kennslustundafjölda sam-
kvæmt viðmiðunarstundaskrá.
Fundurinn varar emdregið við að sífellt sé
verið að skerða kennslu i myndmennt. Félag
íslenskra myndmenntakennara.
Áætlun Akraborgar
Frá Akranesi
KI. 8.30*
kl. 11.30
kl. 14.30
kl. 17.30
Frá Reykjavik
kl. 10.00* '
kl. 13.00
kl. 16.00
kl. 19.00
Kvöldfcrðir. 20.30,22.00
Á sunnudögum í apríl, maí, september og
október.
Á föstudögum og sunnudögum i júní, júlí og
ágúst.
* Þessar ferðir falla niður á sunnudögum,
mánuðina nóvember, desember, janúar og
febrúar.
VEXTIR BANKA OG SPARISJÚDA
ALÞÝOU BANKINN BÚNAÐAR BANKINN IÐNAÐAR bankinn' LANDS BANKINN SAMVINNU BANKINN ÚTVEGS BANKINN VERSLUNAR BANKINN SPARI SJÓDIR
Innlán
SPARISJÚÐSBÆKUR 17.0% 17,0% 17,0% 17.0% 17,0% 17,0% 17,0% 17,0%
SPARIREIKNINGAR 2ja mán. uppsögn 18,0%
3ja mán. uppsögn 19,0% 20,0% 20,0% 19,0% 20% 19,0% 19,0% 20,0%
4ra mán. uppsögn 20,0%
5 mán. uppsögn 22,0%
6 mán. uppsögn 24,5% 24,5% 23,0% 23,5%
12 mán. uppsögn 23,5% 21,0% 21,0% 21,0% 23,0% 24,0%
18 mán. uppsögn 25,0% 1
INNLÁNSSKÍRTEINI 6 mánaða 23,0% 24,5% 24,5%' 24,5% 23,0% 23,0% 23,0%
VERÐTRYGGÐIR REIKN.3’ 3ja mán. uppsögn 2,0% 3,0% 0,0% 4,0% 2,0% 3,0% 2,0% 0,0%
6 mán. uppsögn 4,5% 6,5% 6,0% 6,5% 5% 6,0% 5,0% 5,0%
SAFNLÁN. HEIMILISLÁN 3-5mánuðir 19,0% 20,0%
6 mán. og lengur 21,0% 23,0%
STJÖRNUREIKNINGAR 11 5,0%
KASKÖ REIKNINGAII21
TÉKKAREIKNINGAR Ávísanareikningar 15,0% 10,0% 12,0% 9,0% 12% 7,0% 12,0% 12.0%
Hlaupareikningar 7,0% 10,0% 12,0% 9,0%. 9% 7,0% 12,0% 12,0%
GJALDEYRISREIKNINGAR.Bandarikjadollarar 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9,5%
Sterlingspund 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9.5% 9,5% 9,5% 9,5%
Vestur þýsk mörk 4,0% 4,0% 4,0% 4,0% 4;0% 4,0% 4,0% 4,0%
Danskar krónur 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9,5% 9,5%
Útlán
ALMENNIB VÍXLAR (forvextir) 22,0% 22,0% 22,5% 22,0% 23% 20,5% 23,0% 23,0%
VIOSKIPTAVÍXLAR (forvextir) 23,0%
ALMENN SKULDABRÉF 24,5% 25,0% 25,0% 24,0% 26,0%' 23,0% 25,0% 25,5%
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 28,0%
HLAUPAREIKNINGAR Yfirdráttur 22,0% 21,0% 22,0% 21,0% ,25% 26,0% 23,0% 22,0%
VERÐTRYGGÐ LÁN Allt að 2 112 ári 8,0% 9,0% 7,0% 8,0%' 8,0% 8,0% 8,0%
Allt að þrem árum 7,5%
Lengri en 2 1/2 ár 9,0% 10,0% 9,0% 10,0% 9,0% 9,0% 9,0%
Lengri en þrjú ár 9,0%
FRAMLEIÐSLULÁN V. sölu innanlands 18,0% 18,0% 18,0% 18,0% 18,0% 18,0% 18,0% 18,0%,
V. söiu erlendis 10,25%: 10,25% 10,25% 10,0% 10,0% 10,25% 10,25% 10,0%
11 Stjöfmjreiknmgar Aiþföubankans eru fyrír yngri en 16 ára eða eldri en 64 ára, verðtryggöir.
21 Kaskö reikningar Verstunarbankans tryggja með tibeknum hætti hæstu innlánsuexti I bankanum huerju sinni.
3 Hjá Sparisjóði Bolungarvlkur eru vextir ð verðtryggðum innlánum með 3ja máneða uppsögn
4,0% og með 6 mánaða uppsögn 6,5%.
Dráttarvextir eru 2.75% á mánuði eða 33.0% á ári.
Kvenfélagið Fjallkonurnar
Haustferð í Þórsmörk helgina 14.—16.
september. Upplýsingar gefa Agústa súni
74897, Brynhildur súni 73240, Hildigunnur
sími 72002.
Rauk úr
orgeli á
Bessastöðum
Skyndilega fór að rjúka úr orgeli
Bessastaðakirkju viö upphaf skírnar-
athafnar klukkan 1530 í gær. Slökkvilið
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur héldu
þegar að forsetasetrinu.
Er slökkviliö Hafnarfjarðar kom á
vettvang voru kirkjugestir komnir út.
Eldur var ekki laus en reykur kom frá
rafmótor sem knýr blásara orgelsins.
Virtist um að ræða minniháttar rafút-
leiðslu og dugði að beita kolsýrutæki.
Slökkviliði Reykjavíkur var snúið
við er það var komið að Bessastaöa-
afleggjara.
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, var ekki í kirkjunni er þetta
gerðist. Engar skemmdir urðu af völd-
um reyksins. -KMU.
Með kúbein
í poka
um miðja nótt
Hvað skyldi náungi ætla aö bauka
sem er með kúbein, töng og stálþynnur
í poka í skúmaskoti um miðja nótt í
miöborg Reykjavíkur?
Lögreglumönnum á eftirlitsgöngu á
Klapparstíg aðfaranótt laugardags
þótti eitthvað grunsamlegt viö náung-
ann þegar þeir sáu kúbeinið gægjast
upp úr pokanum. Þeir fóru því að
kanna máliö nánar.
I ljós kom að hér var 17 ára piltur á
ferð sem var að reyna að brjótast inn í
videoleigu á Klapparstíg. Sáust um-
merki á dyrakarmi.
Kauði var handtekinn og færður í
fangageymslu. Við yfirheyrslu kvaðst
hann einu sinni áður hafa komiö við
sögu lögreglunnar. -KMU.
Stolið
úr sportbát
Brotist var inn í sportbátinn Mána
þar sem hann lá við bryggju Snarfara í
Elliðavogi aðfaranótt laugardags.
Stolið var talstöð og dýptarmæli. Ekk-
ert hef ur spurst til þjófsins né þýfisins.
___________________-KMU.
Árekstur
á 75 metra
langri brú
Tveir menn slösuðust í hörðum
árekstri á Hnausabrú yfir Vatnsdalsá í
Húnavatnssýslu um klukkan 15 á
laugardag. Talið er að bílbelti hafi
bjargað ökumönnum og farþegum frá
alvarlegum meiðslum.
Brúin er 75 metra löng og ein akrein.
Áreksturinn varö við vesturenda
brúarinnar. Fernt var í öðrum bílnum
en þrennt í hinum. Bílamir skemmd-
ust báðir mikið. -KMU.
Afmæli
80 ára er í dag, 3. september, frú Jóna
Guðrún Þórðardóttir, Skeggjagötu 6
Reykjavík. Hún er á Landspítalanum
um þessar mundir. Eiginmaður henn-
ar er Sigurjón Jóhannsson.