Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1984, Blaðsíða 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1984.
Mörufíutningar til landsins munu laggjast niöur og farskip liggja í ytri höfninni, meinað aö ieggjast aö bryggju. Myndin er tekin í BSRB verk-
fallinu 1977.
ÞegarBSRB ■ * ■ j
Landio lamast
Skip hlaðin vistum munu liggja í
ytri höfninni, meinað að leggjast að
bryggju. Vöruskortur í verslunum
mun gera vart við sig. Bömin kom-
ast ekki á barnaheimili og hvorki
sjónvarp né útvarp mun stytta þeim
stundir í fásinninu. Áfengisverslunin
veröur einnig harðlæst.
Landiö mun gersamlega iamast ef
og þegar af verkfalli ríkis- og bæjar-
starfsmanna verður 4. október næst-
komandi. Kjaradeilunefnd mun að
vísu reyna aö bjarga því sem bjarg-
að verður en valdsvið hennar nær
aðeins tii öryggis- og heilsugæslu.
Sjúkrahúsum verður haidið opnum
með lágmarksstarfskrafti og einn og
einn lögregluþjónn verður á ferli. Af
þeim 18000 manna hópi sem stefnir í
verkfall verða aðeins nokkur
hundruö í skylduvinnu að boði yfir-
valda. 1 síðasta verkfalli BSRB 1977
voru veittar undanþágur fyrir á
þriðja hundrað félagsmenn í tveggja
vikna löngu verkfalli. Þeirra á meðal
voru ýmsir æðstu embættismenn
þjóðarinnar, hjúkrunarlið, bruna-
liðsmenn, lögregluþjónar og veður-
fræðingar.
Þegar BSRB verkfalliö ríöur yfir
mun allt flug til og frá landinu leggj-
ast niður. Enginn innflutningur
verður á erlendum vörum þar sem
hann fæst ekki toliafgreiddur. Allir
grunnskólar hætta starfsemi, flestir
framhaldsskólar og jafnvel Háskóli
Islands vegna þess að umsjónar-
menn, sem opna og loka útidyrum
kvölds og morgna, eru félagar í
BSRB. Sundstaöir lokast, póstur
hættir að berast og símar, sem bila,
halda áfram að vera bilaðir þar til
verkfalli lýkur. A sjónvarpsskerm-
unum mun ekki sjást annaö en snjór
og útvarpið hljóðvarpar ekki öðru en
neyðarfréttum og veðurhorfum.
Strætisvagnarnir hætta ferðum svo
og leigubílar og einkabílar þegar
bensín landsmanna verður gengiö til
þurrðar. Meira aö segja hafrann-
sóknaskipin komast ekki á sjó og
ekki verður hægt að landa fiski nema
gefin verði undanþága fyrir fisk-
matsmenn til að stunda störf sín.
Og er þá fátt eitt nefnt.
„Við höfum alltaf haldið því fram
að ríkisstarfsmenn væru mikilvægur
hópur,” sagði einn af forsvarsmönn-
um BSRB í samtali við DV. „Það er
ekkert vafamál að án okkar er landiö
lamað.”
Hversu lengi ríkisstarfsmenn
treysta sér að standa í verkfalli án
launa veit enginn. 1 verkfallssjóði eru
aðeins 5 milljónir og þær duga
skammt þegar þúsundir eru um
kökuna. „Við reynum að vera með
samskot og förum væntanlega þess á
leit viö þá einstaklinga sem vinna
neyðarstörf að þeir láti eitthvað af
hendi rakna til félaga sinna,” sagði
Haraldur Steinþórsson, fram-
kvæmdastjóri BSRB. ,,Ég held að
félagsmenn geri ekki lengur mikinn
greinarmun á tómri buddu og gal-
tómri. Það er hugur í mönnum. ”
-EIR.
Sinfóniuhijómsvartin veröur óstarfhmf og það sama má segja um sund-
staði, Rikisútvarp, strætisvagna og ófengisversianir.
Útflutningsmiðstöð
r iðnaðarins:
Utflutningur
hefuraukist
um 33%
Otflutningur hefur aukist um 33 pró-
sent í janúar—júní 1984 miöaö við
sama tíma fyrir ári síöan samkvæmt
skýrslu Utfiutningsmiðstöövar iðnaö-
arins.
Otflutningur sjávarafuröa var 57
prósent meiri í ár en á sama tima í
fyrra. Otflutningur landbúnaðarvara
sýnir 37 prósent aukningu en á iönaöar-
vörum hefur orðið eitt prósent minnk-
un.
Á skinnavöruútflutningi hefur oröið
91prósent aukning.
Bandaríkin eru stærsti markaöur
fyrir uilarlopa og band og Sovétríkin
eru stærsti markaður Islendinga fyrir
fatnaðúr ull.
Otflutningur á ullarteppum hefur
minnkað á þessu tímabili frá 68,7 tonn-
umi32,3tonn. JI
Þingflokkur
Alþýðuflokks:
ÁBENDING í
ÁLMÁLINU
Þingflokkur Alþýðuflokksins varar
eindregið við því að gengið verði til
samninga við Alusuisse um undirverð
á raforku. I frétt, sem borist hefur frá
þingflokknum, segir að framleiöslu-
kostnaður á raforku í nýjum orkuver-
um sé nú talinn 18 til 20 millidalir.
„Það verð þarf að tryggja í komandi
samningum og leggja megináherslu á
verðtryggingu og endurskoðunar-
ákvæði,” segir í fréttinni.
Þingflokkurinn varar við því að
tengja raforkuverðr álverði þannig að
sveiflum í verði á áli verði veitt inn í ís-
lenskt efnahagsiíf. Þá telur þingflokk-
urinn ótækt að ríkisstjórnin hverfi frá
því að láta geröardóma úrskurða um
ágreiningsefnin í skattamálum. EA
20 ára afmæli rotary:
Afmælishátíð
Islenska rotaryumdæmið minnist 50
ára afmælis rotaryhreyfingarinnar á
Islandi með hátíð í Atthagasal Hótel
Sögu kl. 19 fimmtudaginn 13. septem-
ber. Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra verður ræðumaður
kvöldsins. Allir rotarymenn og makar
eru velkomnir á hátíðina. Á Reykja-
víkursvæðinu verða miðar seldir í
klúbbnum, en rotarymenn utan af
landi geta fengið þá við innganginn.
í dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Niðurgangur á Vellinum
Tvö af dagbíöðum höfuðborg-
arinnar birtu útsíðufréttir í gærdag
af nlðurgangspest á Keflavíkurflug-
velll. Tugir og alit upp í hundruð
manna, sem starfa hjá Islenskum
aðalverktökum, fengu slika kveisu
að algert öngþveiti skapaðlst á
salemum starfsmanna.
Velkindi þessi eru rakin til kvöld-
verðar sem borlnn var fram í
mötuneyti fvrlrtækisins og er honum
lýst svo að þar hafi menn neytt súpu
og nlðurskorins hryggjar með
kartöflum og biönduðu grænmeti.
Yfirkokkur staðarins hefur að
visu neitað að elga þátt i þessari
matareitrun og seglr svo frá að hann
hafi „til dæmls fengið pest þetta
kvöld, en borðaðl þó ekki matinn, því
að ég var í Reykjavík”.
Hlns vegar ber eftiriitsmaður
íslenskra aðalverktaka að „þetta
hafi veríð grænmetið”. „Þeir sem
borðuðu ekki grænmetið sluppu,”
seglr eftirlltsmaðurinn. „Það voru i
þessu belgbaunir og annað sem er
mjög vlðkvæmt,” segja verkstjórar í
samtali við NT í forsiðufrétt þess
blaðs og þannig heldur umræðan
íáfram og sýnist sltt hverjum.
Það verður að teljast lofsvert hjá
útbreiddum dagblöðum að upplýsa
þjóðina um jafngrafalvarlegt mái og
það er þegar tugir og hundruð
manna á Keflavikurflugvelli fá
niðurgangspest á einum og sama
timanum.
Ef það sannast að óprúttnlr
kokkar, kommar eða fjandmenn
Varnarllðsins hafa aðstöðu tll að
eltra matlnn á sjálfum Keflavíkur-
flugvelll hlýtur að koma tll kasta
utanrikisráðuneytislns og Atlants-
hafsbandalagsins. Eða hvernig ætla
menn að bregðast við þelm háska að
Varnarliðið sjálft sltjl fast á
salernum með niðurgangspest á
þeirri örlagastundu þegar Rússarnir
koma?
Það er litið gagn að vörnum með
niðurgangspest! Nú er ekki til þess
vltað að kokkurinn hjá aðalverk-
tökum sé kommi. Maðurinn er lika
nógu beiðarlegur að viðurkenna að
hann sjálfur fái niðurgaug þótt hann
borðl ekki alltaf sinn eigin mat. Að
visu getur það veríð sönnun fyrir því
að honum þykl annar matur betrl en
sá sem hann kokkar sjálfur en af-
sannar auðvitað ekki að eitra megl
matlnn sem hann býður öðrum upp
á.
Allavega er ljóst að menn hafa
þungar áhyggjur af grænmetinu,
sérstaklega belgbaununum. Ein-
hverjar grunsemdlr llggja fyrir um
súpuna en hryggurinn og kar-
töflumar eru ekki tortryggilegar.
Sennilega er hvort tveggja keypt í
Hagkaupi á frjálsum markaðl og
bragðaðlst þar að auki vel að sögn
viðstaddra. Böndin berast því að
grænmetinu.
Það verður að segjast eftlrllts-
mannl staðarins til hróss að hann
hefur greinllega haft eftirlit með því
hverjir borðuðu grænmetið og belg-
baunlrnar og hverjlr ekki. Að
mlnnsta kosti fullyrðir hann að þeir
sem slepptu grænmetlnu með kjötinu
hafi ekki sést á kiósettum. Svona
elga eftirlitsmenn að vera enda
hlýtur að vera strangt eftlrlit með
því á Keflavíkurflugvelli hverjir
borða belgbaunir og hverjir ekki, svo
ekkl sé talað um það hverjir og
hvenær menn fara á salemin.
Greinllegt er að Nato og vamar-
máladeild utanriklsráðuneytlslns
verða að halda uppi betri vöraum
gegn hugsanlegum matareitrunum á
Vellinum.
Vamarliðlð, starfsmenn, inn-
lendir sem og erlendlr, geta ekki
setið á salemum með allt nlður um
sig þegar kailið kemur. Það er að
minnsta kostl óiíkt hetjulegra að
falla fyrir Rússunum, heldur en tapa
sjálfstæðinu og landinu vegna belg-
bauna í grænmeti sem þar að auki
em innfluttar! Vonandi er að niður-
ganglnum á Vellinum slotl í tæka tíð.
Dagfari.