Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Síða 1
Frjálst, óháö daablað
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
235. TBL. —74. og 10.
w
'GAN
0
i
0
i
i
i
á
skotin til
banaí
morgun
öfgasikkar
segjast
ábyrgir
MYRTi
Indira Gandhi lést á sjúkrahúsi í
Nýju Delhí í dag. Tveir tilræðismenn
skutu á hana í nótt þar sem hún var á
leiö frá heimili sínu í höfuðborginni.
Hún var samstundis flutt á sjúkrahús
þar sem hún var meðvitundarlaus, þar
til lýst var yfir að hún væri látin um
áttaleytið í morgun.
Mismunandi fréttir segja að hún hafi
fengiö á milli átta og 16 skot í sig. Hún
var skotin í maga, bringu og fót. Talið
er að tilræðismennimir hafi verið
tveir.
öfgasamtök sikka hafa lýst sig
ábyrg fyrir morðinu en ekki er ljóst
hvort tilræðismennirnir voru sikkar.
Sonur Indiru, Rajiv Gandhi, sem var
á ferð í Vestur-Bengal, flaug til Nýju
Delhí um leið og hann frétti af skotá-
rásinni. Hann hefur af mörgum verið
talinn líklegur eftirmaður móöur sinn-
ar.
Miklar róstur hafa verið á Indlandi
undanfarna mánuði. 1 sumar sendi
Indira herinn inn í hið Gullna hof sikk-
anna og í þeim aðgerðum dóu hundruð
manna. Trúarbragðadeilur hafa klofið
landsmenn í margar andstæðar fylk-
ingar. Innan fjögurra mánaða var bú-
ist við aö gengiðyrði tii kosninga.
Indira var dóttir Jawaharals Nehru,
fyrsta forsætisráðherra Indlands. Hún
varð forsætisráðherra árið 1966 og hélt
„Við höfum ðtt harflan andstæöing i þassari baráttu en þegar striði er
lokið veröa menn að takast i hendur," sagði Kristjðn Thorlacius að
undirritun lokinni. „Ég hef oft undrast hve vel þið voruö skipulögð i
barðttunni," sagði „andstæðingurinn" Albert Guðmundsson fjðrmðla-
rððherra. „Eins og sagt er ð fótboltamðli sat andstæðingurinn stundum
eftir, en verið bara róleg, við höfum lært af reynslunni." Og menn tók-
ust í hendur.
DV-mynd KAE
Samið iBSRB-deilunni:
UNDIRRITUN í GÆRKVÖLDI
Undirritun samnings á milli BSRB
og ríkisins fór fram á ellefta tím-
anum í gærkvöldi í Karphúsinu. Tæp-
lega fjögurra vikna verkfalli var
frestað. „Harðri, langri og kostn-
aöarsamri deilu er lokiö og því ber að
fagna,” sagði fjármálaráðherra,
Albert Guðmundsson, eftir undir-
ritun samnings. „Ég er ánægður
eftir atvikum,” sagði Kristján
Thorlacius, formaður BSRB.
Laun hækka um rúm 16% á
samningstímabilinu sem er til árs-
loka 1985. 10% hækkun verður nú
•strax, peningagreiöslur samtals 6500
krónur, síðari greiðslan þar af
greiöist um miðjan mánuð. Síðan eru
— sjá nánar á bls. 2 og baksíðu
ákvæði um vaktaálag, endurmat á
launaflokkum og fleira. Meöaltals-
hækkun er rúm 16%. Upphaflegar
kröfur BSRB var launahækkun um
30%. Sáttatillaga rikisins, sem felld
var fyrir verkfall, var upp á 6%
kauphækkun strax og 4% um ára-
mót. -ÞG.
því embætti með stuttum hléum til
dauðadags. Indira hefði orðið 67 ára
þannl9. nóvember. -Þó.G.
— sjá ennfremur á bls. 8
Forsætisráðherra
ímorgun:
Búnirað tapa
orrustunnien
stríðið
helduráfram
„Ég fagna því vissulega að
þessu verkfalli sé lokið. Það
hefur staöið allt of lengi og valdið.
miklu tjóni,” sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra i
morgun. „Þetta er óheillaspor
sem stigíð hefur verið og ef
samningar á landinu verða
almennt í þessum dúr þá verður
erfitt að ráðá viö ástandiö. En
þetta er ekki vonlaust þótt orrust-
an hafi tapast þá heldur stríðið
gegn verðbólgunni áfram,” sagði
forsætisráðherra. -EIR.
Ólíktþvísem
viðstefndumað
— segirGuðmundur
J. Guðmundsson
um samningBSRB
„Þetta eru ákaflega ólíkir
samningar því sem viö stefndum
að og ég óttast aö þeir standi stutt
við,” sagöi Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verka-
mannasambandsins, um ný-
gerðan k jarasamning BSRB.
„Við höfum alltaf verið að
reyna að fá tryggingar fyrir því
aö það sem um væri samið yrði
ekki tekið aftur. Við vildum fá
kaupmáttartryggingu, aö hluti
samningsins fælist í skattalækk-
unum og afnema visitölukerfið á
fleiri liðum en launum. Þetta er
nú trúlega úr sögunni þegar svo
fjölmenn samtök hafa samiö um
annað. Þá gæti reynst erfitt að ná
fram betri kaupmáttartrygg-
ingu. Það virðist vera búið að
marka ákveðna launastefnu,”
sagðiGuðmundur. -OEF.