Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Blaðsíða 12
12 \ Frjálst,óhá6 dagblaö Úlgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS H ARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 684611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SIMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverðá mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helaarblað28 kr. BSRB-samningurínn Samkomulag hafði tekizt um launaliði aðalkjarasamn- ings BSRB og ríkisins, þegar þetta er skrifað. Því er að vænta, að nærri mánaðarlöngu verkfalli opinberra starfs- manna sé að ljúka. Verkfallið hefur komið þungt niður á ahnenningi. Ekki aöeins með þeim hætti, sem óhjákvæmilega fylgir slíku verkfalli. Verkfallsmenn hafa í ríkum mæli beint reiði sinni gegn hinum almennu borgurum. Slíkt hefði verið ónauðsynlegt við framkvæmd verkfallsins og er svartur blettur á launþegahreyfingunni. Verkfallsmenn hafa jafnvel notfært sér neyð hinna fá- tækustu þjóðfélagsþegna, svo sem lífeyrisþega, með því að hindra, að greiðslur til þeirra skyldu reiknaðar í tæka tíð. Verkfallsmenn hindruðu háskólastúdenta og fjölda annarra námsmanna í að stunda sitt nám. Þeir fóru offari gegn farþegum í millilandaflugi. Sjómenn urðu fyrir barðinu á þeim. Verkfallsmenn yfirgáfu margir hverjir vinnustaði strax hinn fyrsta þessa mánaðar, þótt slíkt væri ólöglegt, þar sem laun höfðu verið útborguð fyrir fyrstu þrjá daga mánaðarins. Utvarpsleysið varð örygg- inu hættulegt. Hér hafa aðeins verið nefnd nokkur atriði í framkvæmd verkfallsins, þar sem almenningur var lát- inn gjalda að tilefnislausu. Skoðanakönnun, sem birt var í DV, sýndi, að mikill meirihluti landsmanna studdi BSRB fremur en fjármála- ráðuneytið, þegar könnunin var gerð fyrir rúmum hálfum mánuði. En verkfallsstjórn BSRB leit ekki á almenning sem bandamenn, heldur þvert á móti sem andstæðinga eins og dæmin sanna. Mikill léttir er, að þessu verkfalli ljúki. Af drögum að kjarasamningi, sem fréttir hafa verið af, sést, að kaup- hækkun á samningstímabilinu verður um og yfir 20 prósent, þegar sérkjarasamningar eru reiknaðir með. Áður hafa litlir hópar launþega samið um svipaðar kaup- hækkanir. Eftirleikurinn er nokkuð auðsær. Skattalækkunarleiðin virðist úr sögunni. Farin er leið hærri krónutöluhækkana í þess stað. Slíkt verður þjóðarbúinu neikvætt, þegar fram í sækir. Ef allur meginþorri launþega semur nú á þessum nótum, eins og líkur eru til, þýðir þetta gengisfellingar og nýja verðbólgusprengingu. Það þýðir, að gróði launþegans verður nánast enginn, vegna þess að þetta eru verðbólgusamningar. Fólkið í BSRB hefur engin tök á að vinna upp þær rauntekjur, sem töpuðust í mánaðarverkfalli. Því verður að harma slíka samninga, um leið og fagnað er, ef verkfallið stöðvast nú. Fyrir flestum í BSRB-forystunni hefur vafalaust vakið að bæta raunveruleg kjör félagsmanna. Niðurstaðan er, að þetta hefur mistekizt, þegar verkfallstíminn er tekinn inn í dæmið. Fyrir sumum í BSRB-forystunni hefur hins vegar vak- að að brjóta niður efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Þetta markmið hefur náðst. Mikill hiti hefur verið í þessari deilu, meiri en lengi hef- ur verið í vinnudeilum hérlendis. Ymislegt hefur týnzt í hita bardagans. BSRB-forystan einblíndi æ meir á háar kaupkröfur sín- ar og virtist líta á varnarorð um illar afleiðingar þeirra sem fjandskap einan. I hitanum gleymdist að tryggja raunverulegar kjarabætur til lengri tíma — svo sem meö skattalækkunum. Haukur Helgason. DV DV. MIÐVKUDAGUR 31. OKTOBER1984. VANTRAUST Á Alþingi hefur komið fram tillaga um vantraust á ríkisstjórnina. Hvers vegna á hún að víkja? M.a. af eftir- töldumástæðum: 1. Ríkisstjórnin hefur misboðið rétt- lætiskennd fólksins. 2. Rikisstjórnin hefur vegið að sjálfs- virðingu einstaklingsins. 3. Ríkisstjórninni hefur mistekist að höggva að rótum verðbólgunnar. 4. Rikisstjórnin undirbýr ekki nauðsynlegar breytingar á atvinnu- lífi landsmanna. 5. Ríkisstjórnin er að hrynja saman vegna skorts á vilja til samstarfs og baráttu. 6. Rikisstjórnin og einstakir ráðherrar hafa glatað trausti fólksins i landinu. Lítum nánar á þessi atriði. 1. Um róttiæti 1 húsnæðismáium er hyldýpi ójafnaðar og misréttis milli þeirra sem nú eru að leita sér húsaskjóls og hinna sem byggðu fyrir 1975. I skattamálum ríkir Hrói höttur með öfugum formerkjum þar sem vel efn- aðir skattsvikarar ræna af fátækari skattgreiðendum, með því aö láta þá eina greiða hlutfallslega alltof stóran hluta af reksturskostnaði sam- félagsins. I tryggingamálum er víða hörmulegt ástand þar sem hluta fatlaðra, sjúkra og aldraðra er haldið við hungur- mörkin. Samnefnarinn í þessum dæmum er Kjallarinn GUÐMUNDUR EINARSSON ALÞINGÍSMADUR í BANDALAGi JAFNADARMANNA óréttiæti sem þessi ríkisstjórn hefur ekki minnkað. Samt er víðtæk sam- staða á þingi um að gera úrbætur í þessum efnum. Til að kóróna skömmina leyfir ríkis- stjórnin bestu vinum sínum að sitja uppi í Garðastræti og bjóða s jálfsagðar leiðréttingar á þessum málum sem skiptimynt í samningum. Þessar leiöréttingar eiga að fást fyrir frumkvæði Alþingis án þess að til verkfalla komi. 2. Um sjálfsvirðingu Siðmenning þjóöarinnar birtist í mannúöar- og velferðarþjónustu okkar, s.s. í heilbrigðis- og mennta- kerfi. Starf fólksins í BSRB er holdi klædd sú viðleitni samfélagsins að hlúa sem best að ungum og gömlum, sjúk- um og fötluöum. Afstaða ríkisstjómarinnar til þessa fólks og yfirlýsingar ráðherra um leti- líf þess er tilraun til gengisfellingar á lífsstarfi þess. Það er vegið að sjálfsvirðingu þessa fólks meö því að neita aö meta framlag þess til sannvirðis á launamælikvarð- anum. 3. Um verðbólgu Þeir Jóhannes Nordal og Friðrik Sophusson lýstu því báðir yfir í vor að orsakir verðbólgunnar væru ósnertar. Þetta hefur birst okkur m.a. á tvennan hátt í sumar. a) Fyrri játningin fólst í samningum beggja forsætisráðherranna, Þor- steins Pálssonar og Steingríms Her- mannssonar, um verkefnahstann í sumar. Þar viðurkenndu þeir svart á hvítu að fyrsta ár stjórnarinnar hefði ekki verið notað til varanlegra aðgeröa. b) Síðari játningin birtist í yfirlýsingu þessara sömu manna um að jafnvel lítilvægustu kauphækkanir myndu strax auka verðbólgu. Þar töldu þeir m.ö.o. að ekkert hefði breyst. 4. Um framtið Raunhæfar aðgerðir til að gera far- MkisútvarpiS er dáktið fríálst Frelsi er afstœtt Um daginn voru kartöflur allt í einu orönar frjálsar í auglýsingum stór- verslana. Hvílíkt skrum! I raun fólst allt frelsið í kartöflusölunni í því að stórverslanir, sem geta undlrboðið smærri keppinauta, keyptu kartöflur framhjá samtökum grænmetisfram- leiðenda. Hafi verslanirnar svo hækkað verð á 2—3 matvörum (álagn- ing er frjáls) til að geta boðið soðning- una á 10 kr. lægra verði kg tóku neytendur ekki eftir því. Núna er tískuhugtakiö ekki „frjálsar kartöflur” heldur frjálst útvarp. I því felst ekki sú staðreynd að Ríkisút- varpið er öllum opið og nær til allra landsmanna heldur að allir skuli hafa jafnan rétt til að útvarpa. Ekki er minnst á möguleikana til sliks. Nú hafa allir hvorki jafnan rétt né möguleika á aö reka háskóla, halda uppi almannatryggingum eða reka sjúkrahús. Hið opinbera hefur ýmist einkarétt til þessa eða þá mögu- leikana, aleitt af islenskum aðilum. Hvar er þá frelsið? Ofrelsið í þessum efnum, sem varla nokkur maður mót- mælir, er um margt eölileg skipan sem er efnahagslega og sögulega skilyrt í fámennisþjóðfélagi í stóru landi. Svona afstætt er frelsið. ÖIl ofuráhersla á hugtakið „frelsi” kartaflna og útvarps er til þess eins að klúðra umræðum, afla skyndifylgis og ala á fordómum. Frelsi er sannarlega ákaflega afstætt, bæöi í reynd og vegna þess að ólíkar pólitískar skoöan- ir og mismunandi stéttarstaða manna ráða miklu um viðhorf til frelsis. Lögbrot eða neyðarréttur? Heföi ég skipulagt brennivínssölu á Lækjartorgi til stuðnings félögum mínum í BSRB og hrópað um frelsi sæti ég nú á sakborningabekknum. Litlu útvarpsstöðvamar fengu ekki að starfa vegna þess að þær voru ólög- legar, rétt eins og umrædd vínsala. Allt tal um neyðarrétt í því sambandi ber vitni um litla þekkingu á lögum, borgaralegum hefðum og þjóðarrétti. Neyðarréttur varðar vörn á lífi og lim- um, vörn á grunnþáttum stjómarskrár o.fl. skyldum atriðum. Stöðvi löglegt verkf all dagblaö og stöðvi löglegt verk- fall útvarpsstöð eða brennivínssölu getur enginn skirskotað til neyðarrétt- ar með útgáfu blaðs, útvarpssending- um eöa vinsölu; aðeins framið verk- falisbrot og reynt að verja það. Væri hins vegar dagblaö bannaö eða verk- fallsréttur tekinn af mönnum gilti neyðarréttur. Þetta hljóta allir, líka stjórnmálamenn, aðskilja. Fjölmiðlun er sjaldnast hugsjón Nú má benda á augljósa mótsögn. Ríkisvaldið hefur einkarétt á tóbaks- sölu, vínsölu og vínframleiðslu. Það hefur ekki þennan rétt á bóksölu og bókaútgáfu. Telji menn þetta réttmætt (og þaö gera flestir) má með rétti spyrja hvort útvarpsrekstur sé frá- bmgðinn bóka- eða blaðaútgáfu og hvers vegna ríkið skuli hafa þar einka- rétt? Hvort tveggja er fjölmiðlun. En bókin/blaðið er handföst vara og út- varpssendingin er stundarfyrirbrigði. Dreifikerfið og dreifingin, sjálf fjöl- miðlunin, er sem sagt frábrugðin. Og þar í liggur upphaflegur einkaréttur ríkisins. Áður fyrr var þaö eini aöilinn sem gat byggt upp dýrt útvarpsdreifi- kerfi fyrir alla landsmenn og haldið uppi alldýrri dagskrárgerð. Ný tækni hefur smám saman breytt þessari sér- stöðu ríkisins og verður svo áfram meö fullkomnun kapla (glerþráða), gervihnatta, leysitækja og sjónvarps. Þetta ber að hafa í huga þegar rætt er um að útvarp eigi að verða laust við einkarétt eins og önnur fjölmiðlun. Einnig skyldu menn ekki trúa því að fjölmiðlun sé hugsjón; að slepptu út- breiðslustarfi ýmissa samtaka. Ahugi stjómmálahópa, fjölmiðlafyrirtækja og fólks í skemmtanavinnu á útvarpi er til kominn vegna þess að útvarpið er atvinnuvegur og hugsanleg uppspretta hagnaðar. Hjá stjórnmálahópunum kemur auk þessa til baráttan um skoöanir fólksins. öflugra Ríkisútvarp Ég hefi unnið hjá Ríkisútvarpinu og tel þar margt vera í skötuliki. Hvort sem menn eru hlynntir einkarétti þess eða ekki geta þeir varla annaö en sam- sinnt því að þessi ríkisstofnun er van- þróuö. Því ræður bæði skortur á lifandi stefnumótun í stofnuninni, röng stjórn- un og fjársvelti. Eg nefni aðeins þrennt til: Breytingar á dagskrá em hug- dettur fárra fremur en niðurstaða tilraunastarfsemi og opinnar umræðu margra. Utvarpsráð tekur ákvarðanir um dagskrárliði (jafnvel útvarps- sögur!) í stað þess að vera eingöngu til eftirlits. Það er ekki til fé til að ráða menntaöa dagskrárgerðarmenn og veita leikmönnum betri aðstoð. Allir vita líka að dreifikerfið, sér- staklega FM-kerfið, er vanbyggt. Meira en þriðjungur þjóðarinnar nær t.d. ekki rás2. Einber samkeppni við annað útvarp bætir ekki sjálfkrafa úr neinu af þessu. Menntamálaráðherra ber hér skylda til að vinna að úrbótum og láta þær hafa forgang í nýjum útvarpslögum. Aðrar breytingar, sem hann vill berjast fyrir, eru svo tilefni til vand- aðrar umræðu. Leiftursókn til nýrra útvarpsstöðva, með tilheyrandi skyndiafgreiðslu, er álíka h'tið lýðræðisleg aðgerð og skipan útvarps- stjóra sem kjósendur vita nær ekkert um og þá síst hvaða skoðanir hann hefur á stefnumótun og stjómun út- varps. Fólkið í landinu vill áreiðanlega ráða einhverju um útvarpið sitt en getur það ekki svo vel sé.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.