Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Page 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER1984.
3
Ríkið stór-
skuldugt við
Sauðárkróksbæ
Ríkissjóður skuldar Sauðárkróksbæ
liðlega 14 milljónir króna. Hafa bæjar-
yfirvöld kallað þingmenn kjördæmis-
ins til fundar um það mál og einnig
hefur veriö rætt við mennta- og fjár-
málaráðherra. Þetta er stór hluti af
tekjum bæjarins. Áætlaðar tekjur í ár
eru 53 milljónir króna.
,,Skuldin myndaðist vegna bygg-
ingar heimavistar f jölbrautaskólans,”
sagði Þórður Þórðarson bæjarstjóri.
Ríkið greiddi 85% af kostnaði en
bærinn 15%. I febrúar 1983 var gerður
samningur þar sem fleiri sveitarfélög
urðu rekstraraðilar og var hann
staðfestur af þáverandi ráðherrum
mennta- og fjármála. Við þá breytingu
varð kostnaðaraðild ríkisins 100% og
skuldin nú myndaðist þá að megin-
hluta.
Hluta skuldarinnar sagði bæjarstjóri
vera vegna þess að nauðsynlegt
reyndist að leggja til búnaö í fjöl-
brautaskólann hraðar en ríkið lagði
fram fé.
-JBH/Akureyri.
Athugasemd:
Ekki leitað eftir
vilja starf sf ólks
Trúnaðarmaður starfsfólks
Búnaöarbankans á Akureyri vill fyrir
hönd þess gera eftirfarandi athuga-
semd: „I frétt DV föstudaginn 26. októ-
ber sl., um ráðningu útibússtjóra
Búnaðarbankans á Akureyri, er sagt:
„Samkvæmt heimildum DV var
nánast einhugur um að ráða hann og
stuðningur hjá starfsfólki útibúsins.”
Vegna þessarar fréttar vill starfsfólk
taka fram að ekki var leitað eftir
afstöðu þess né heldur lýsti það yfir
stuöningi við einn umsækjanda fremur
en annan. Umrætt atriði þessarar
fréttar er því ekki á rökum reist.”
Afrakstur verkfallanna
léttur í pyngjunum
— bókagerðarmenn
fá ekkert,
BSRB-fólk tapar
Það er nú orðið fullljóst að
afrakstur þeirra verkfalla sem
lengst hafa staðið að undanförnu
verður léttur í pyngjum þeirra sem í
þeim hafa staðið. Niðurstaðan er
16—17% meðaltalshækkun launa á 14
mánaða samningstíma en verkfalls-
fólk hefur tapað af 7—10% launa sé
töpuðum launum dreift á sama tíma-
bil.
BSRB-fólk felldi sáttatillögu um
launahækkun sem hefði gefiö nærri
10% hækkun á 7 mánuðum. Nú fá
þeir um 16,4% meðaltalshækkun á 14
mánuðum. Frá fyrra boðinu hafa
þeir verið í verkfalli í fjórar vikur og
tapað á því 6,8% af þessu 14 mánaða
kaupi. Hver verkfallsvika kostar
‘ nefnilega 1,7% í töpuðum launum ef
tapinu er dreift á samningstímann.
Það fer því varla á milli mála að
BSRB-fólk sligast ekki undan
umsömdum kauphækkunum. Þó fá
þeir 6.500 krónur upp í tapið með sér-
stökum greiðslum sem vissulega er
nokkur sárabót. Aðrir fá ögn minna
Bókagerðarmenn höfðu fyrir
samninga um 6% launahækkun
næstu 7 mánuði. Þeir sömdu nú um
16,9% meðaltalshækkun launa á 15
mánuðum eða sem er nálægt 15% á
14 mánaða samningstíma BSRB.
Fyrir 10,9% meiri meðaltalshækkun
launa en þeir höfðu nú á 15 mánuðum
Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemjarí rœðir viO Krístján Thoríacius, formann BSRB, i karphúsinu i gær.
Þegar staOiO er upp úr löngum verkföllum tekur langan tíma aO vinna upp tekjutapiO. DV-mynd KAE
greiddu þeir 10,4% í töpuðum
launum í sex vikna verkfalli.
Starfsmenn Kópavogsbæjar, sem
áttu kost á 10% hækkun á sjö
mánuðum, fengu svo til sömu
samninga og BSRB fær nú. Þeir voru
hins vegar ekki nema níu daga í
verkfalli og hafa þvi samanboriö við
hina kannski um 3,5% upp úr krafs-
inu, þó fyrir 14 mánaöa samning í
staðsjömánaða.
I þessum samanburði er ekki
reiknað með verðbólguáhrifum svo
hárra krónutölusamninga. Varlegt
er að tala um að þeir hleypi verðbólg-
unni upp um einhver prósent á
samningstímanum. Það rýrir þá enn
afrakstur verkfallanna, ef hægt er að
kalla niðurstöðuna því nafni.
-HERB.
HJÁ AGLI
VIÐ BJÓÐUM NOTAÐA BÍLA
Á LÆGRA VERÐI EN ÞEKKIST
Á HINUM ALMENNA MARKAÐI
MAZDA 626 2000 1982 FIAT131 SUPER MIRAFIOR11982 VOLKSWAGEN PICK-UP 1982
Kr. 270.000.
Kr. 205.000.
Kr. 310.000.
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
AÐ AUKI ER
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Allt á sama stað — Sífelld bílasala — Sífe/ld þjónusta
1929
notodir bflor í eigu umbodssins
EGILL.
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944—79775
1984