Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Síða 6
6
DV. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÖBER1984.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Hvað kostar
brúðkaupsdagurinn?
Aö ganga í hjónaband eöa ekki eru
vangaveltur sem flestallir þjóö-
félagsþegnar þurfa aö glíma við einu
sinni eða oftar á lífsleiöinni. Mismun-
andi er hve miklum fjármunum fólk
vill eyöa í athafnir sem þessar. Sumir
hugsa sem svo aö þeir gifti sig ekki
nema einu sinni svo aö athöfnin skuli
vera heldur vegleg á aö líta. Aðrir
kjósa aö hafa allt sem látlausast og
skreppa jafnvel inn til borgardómara í
nokkrar mínútur á hversdagslegum
degi í hversdagslegum fötum og láta
pússa sig saman.
Pomp og pragt
Að gifta sig samkvæmt uppskrift
Karls Bretaprins og Díönu prinsessu
þarfnast mikilla fjárútláta og aö
mörgu er aö hyggja, svo sem klæðnaöi,
matarföngum, keyrslu brúöhjóna,
kirkjusöng o.s.frv.
Brúöarkjólaleiga Maríu Eggerts-
dóttur leigir út kjóla á ýmist 2.000 eöa
2.500 krónur og er innifalið í veröinu
áhætta, hreinsun og breytingar ef ein-
hverjar eru. Verslunin Mariurnar,
Klappastíg 30, saumar brúöarkjóla og
er veröiö frá 6.000 krónum og upp í
14.000.Þar er líka hægt að fá keypta
hvíta skó á 1.900 krónur.
Betra er nú fyrir brúðgumann að fá
almennilegt utan á sig svo að hann falli
ekki í skuggann af brúöi sinni. Hægt er
aö fá leigða smókinga á 700 krónur í
Herrahúsinu. I kaupum kostar smók-
ing 6.900 krónur og jakkaföt eru frá
6.300 kr. og upp í 7.200 krónur. Karl-
mannaskór eru frá 1.490 kr. upp í 2.200
kr. Skyrta kostar um 1.000 krónur,
slaufa 300 kr. og lindi sem notaður er
viö smóking er á 595 kr.
Næst þarf aö hugsa fyrir hársnyrt-
ingu beggja. Brúöguminn mun
væntanlega þurfa venjulega karl-
mannaklippingu sem kostar um 300 kr.
Fyrir brúöina kostar klipping og
greiösla um 500 kr.
Hringar eru frá 4.300 kr. og upp í
13.000 krónur. Flestir munu eflaust
vilja eiga minningar brúökaupsins á
filmu. Ljósmyndarar hafa yfirleitt
svipaö verö, en eitthvað er það mis-
munandi eftir því hvort stækkanir eru
innifaldar eöa ekki. Fyrir 12 brúöar-
myndir er verö um 3200 krónur ef
myndir eru teknar um helgi en 2500
krónur á virkum dögum.
Prestur og annar kirkjukostnaöur
svo sem organisti og kirkjuvörður er
um 3.000 krónur, en söngfólk er mis-
margt viö giftingarathafnir, allt frá
einum og upp í fjóra, og tekur hver
söngmaður um 400 krónur fyrir söng-
Lincoln Continental, bíll Gylfa Pálssonar, hefur verið leigður út nokkrum sinnum fyrir brúðkaup, aðallega þó yfir sumartímann.
ínn.
Matseðill dagsins
Þá er aö huga að matseðli dagsins og
sjá til þess að þeir sem boönir eru til
brúðkaupsins haldi ekki svangir heim
á leiö. Ýmis veitingahús bjóöa
ákveðna pakka, t.d. kalt borö fyrir
a.m.k. 25 manna hóp eöa fleiri. Verð er
mismunandi, en á þeim tveimur stöð-
um sem blaöamaöur DV kannaði var
verö fyrir manninn 410 á öðrum staðn-
um en 630 á hinum. Þríréttað heitt
hlaöborð er einnig selt fyrir 25 manns
eöa fleiri á flestum þeim stöðum sem
selja út mat og er veröiö frá 500—600
krónur.
Akstur
Aö komast leiöar sinnar eftir kirkju-
athöfnina er eitt af því sem þarf aö
hugsa fyrir. Gylfi Pálsson gerir svo-
lítið að því aö leigja út sérsmíðaöan bíl
sem hann á og er honum best lýst sem
„einum meö öllu”, sagöi Gylfi. „Kunn-
ingi minn hjálpaði mér aö setja hann
saman. Þetta er gamall Lincoln sem
við tókum í sundur og lengdum um
tæpan metra. Allt er rauð-plussklætt
Borgar sig að
gifta sig?
Hvaö græði ég á því aö giftast?
Spurning sem þessi Ieitar eflaust á
flesta þá sem hafa náö sér í maka og
fara aö hugsa um hjúskaparmál.
Ymislegt kemur til viö stofnun
hjúskapar og margt breytist.
Skattamál hafa mikiö veriö í
brennidepli síðustu ár í sambandi viö
skiptingu tekna milli hjóna. Skattalög-
in eru sniöin þannig í dag aö hagkvæm-
ara er fyrir bæöi hjónin aö vinna úti
fyrir jafnmiklum tekjum.
Munu þau þá hvort um sig lenda í
lægsta skattstiganum svo lengi sem
tekjur hvors fara ekki upp fyrir
170.000. Hins vegar ef annað hjónanna
er eina fyrirvinna heimilisins og
hinn aöilinn ákveður aö vinna ekki,
lendir fyrirvinnan í hátekjuflokki ef
tekjur fara 1340.000 krónur eða meira.
Á Alþingi í fyrra settu sjálfstæöis-
menn fram tillögu um að ja&ia tekjum
hjóna á báöa einstaklingana þannig aö
heimilið yröi eins og ein heild og ekki
skipti máli hvort hjónanna ynni fyrir
tekjunum. Tillaga þessi náöi ekki fram
að ganga á þeim tíma en vonir manna
um aö hún veröi endurvakin eru
miklar.
Gestur Steinþórsson, skattstjóri
Reykjavíkur, sagöi aö meginregla
skatthliöarinnar væri sú aö ekki skipti
máli hvort maðurinn væri í sambúö
eöa ekki. Hver einstaklingur fær sína
persónuálagningu hvort sem hann er í
hjúskap eða ekki. Einnig eru sömu frá-
drættir, skattstigar, skattleysismörk
og eignarstigar.
Hins vegar gilda sérstakar reglur til
dæmis um eignartekjur, persónuaf-
slætti og vaxtagjöld. Hjá hjónum leggj-
ast eignartekjur á tekjur þess aðilans
sem hærri tekjur hefur fyrir.
Svokallaður 10 prósent frádráttur eða
fastur frádráttur er lágmark hjá
einstaklingum en ekki hjá hjónum.
Fasti frádrátturinn er 10 prósent af
tekjum hjóna en lágmark er 28.000
krónur hjá einhleypingi og 49.000 hjá
einstæðu foreldri og getur auövitaö
fariöhærra.
Ef vaxtagjöld nýtast til frádráttar
færast þau öll til þess hjóna sem hærri
hefur tekjurnar. Persónuafsláttur
getur færst á milli hjóna þannig aö
fyrirvinna heimilisins getur nýtt sér
tvo persónuafslætti ef annað hjónanna
er lítið eða ekki vinnandi og þarf því
ekki á persónuafslætti aö halda.
Eignarskattsstofninn skiptist til helm-
ingamillihjóna.
Höskuldur Jónsson, ráöuneytis-
stjóri fjármálaráöuneytisins, sagöi aö
þetta mál væri ekki á þeirra borðum
núna, en viö endurskoðun á skatta-
málum kæmi þetta mál alltaf upp.
Höskuldur sagði að eðlilegast væri að
lækka skattstigana. „Þingsályktun un
afnám tekjuskatts í áföngum var sam-
þykkt í fyrra og við þaö minnkar þetta
vandamál gagnvart tekjuskattinum en
ekki gagnvart útsvari.”
Skattastigar eru í þremur þrepum.
Af tekjustofni frá 0 og upp í 170.000
krónur reiknast 23 prósent skattur.
Frá 170.000 krónum til 340.000 króna
reiknast 32 prósent, og í hátekjuflokki
eru jjeir sem hafa yfir 340.000 krónur í
árstekjur og af þeim eru tekin 45
prósent í skatta.
Persónuafsláttur er 29.500 í dag
fyrir hvern einstakling hvort sem hann
er vinnandi eöa ekki. Hins vegar ef
annað hjónanna vinnur lítiö eöa ekki
úti getur ónýttur persónuafsláttur þess
flust yfir á þann aöila sem er fyrir-
vinna heimilisins þannig aö hann fær
tvöfaldan persónuafslátt á sínar
tekjur.