Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1984, Page 36
36
DV. MÁNUDAGUR 5. NOVEMBER1984.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
íslensk stúlka
til fyrirmyndar
f Ameríku
18 ára íslensk stúlka, Ragnhildur
Gunnarsdóttir, var um daginn kjör-
in „Home Coming Queen” við Chit-
ar Cliff skólann í Harrisburgh í
Pennsylvaniu. Ragnhildur er að
ljúka námi í High School sem er
skólastig, sambærilegt við íslenskan
grunnskóla og tvö ár af mennta-
skóla.
„Home Coming Queen” er eins
konar sambland af kjöri fegurðar-
drottningar og fyrirmyndarstúlk-
unnar. Þannig fá þeir sem ekki
standa sig vel í skólanum ekki að
taka þátt í keppninni. Allir
nemendur skólans, yfir tvö þúsund
talsins, kjósa síðan fyrirmyndar-
stúlkuna en áður fer fram forval þar
sem valdar eru fimm stúlkur.
Útnefningin þykir jafnan mikill
heiður og mjög sjaldgæft er að
erlendar stúlkur hljóti þennan titil.
Ragnhildur er dóttir Elínar
Tómasdóttur og Gunnars Jónas-
sonar, aðstoðarframkvæmdastjóra
hjá Iceland Seefood, dótturfyrirtæki
Sambandsins, í Harrisburgh. Eins og
Ameríkanar eru vísastir til var lítið
til sparað við hátíöahöldin í tilefni af
útne&iingunni. Aðaldagskráin fór
fram á stórum íþróttavelli og að
kjörinu loknu var ekki við annað
komandi en að foreldrar drottningar-
innar gengju hring með henni á vell-
inum. Var svo f agnaði fram haldið.
Ný sjón-
varps-
stjarna
skákar
Dallas-
genginu
Okkur berast þær fréttir utan úr hin-
um stóra heimi að ný stjama ógni nú
Daiias-genginu og öllu því ágæta fólki.
Ken Marshall heitir sá nýi og leikur
Mann minnast væntanlega hjóna-
leysanna Katrínar og Markós úr
fyrsta þætti myndafiokksins. BeiO
hún þau 24 ár sem Markó reisti um
heiminn.
Ken Marshall hefur ekki látið staðar
numið við Markó Póió. í sumar lók
hann Hamlet með bandariskum
leikhópi og lætur sig dreyma um
ftoíri Shakespeare-hlutverk.
Það var kait i Kína þann tíma sem
sjónvarpsmennirnir stóðu þar við.
En afkomendur Mongólanna kunnu
ráð viðþvl.
.
■
'
„Markó Pólo hefur fært mór mikla peninga," segir Ken Marshall, „og 6
eftir að gera enn beturþví hann hefur komið mór á framfæri í kvikmynda-
heiminum."
Markó Póló í samnefndum sjónvarps-
þáttum. Kappinn er reyndar ekki
alveg óþekktur hér á landi því fyrir
verkfallið sýndi sjónvarpið fyrstu
þættina af þessum myndaflokki sem
nú síðustu mánuðina hefur farið sigur-
för um heiminn. Og nú er Ken Marshall
aftur farinn aö birtast á skjánum.
Ken Marshali var nánast óþekktur
áður en honum bauðst hlutverk Pólós.
Hann hóf feril sinn í kirkjukór og það
hefur sjaldan oröiö upphaf mikilla vin-
sælda. Hann kom líka víða við áður en
frægðin féll honum í skaut. Eitt sinn
tróð hann upp með rokkhljómsveit og
reyndi fyrir sér í söngleikjum. Og það
var á sviðinu sem góðir menn veittu
hæfiieikum hans athygli. „Eg hafði
lesið um ævintýri Markó Póló og sagði
umsvifalaust já þegar mér bauðst hlut-
verkið,” sagði Ken og sér alls ekki eftir
ákvörðun sinni. Hlutverkið hefur einn-
ig verið ævintýri líkast fyrir hann,
sama hvernig á það er litið. Auk þess
að hafa qsreytt sig við erfitt hlutverk og
stórt, þá hafa því fylgt umtalsverð
ferðalög um Austurlönd nær og fjær.
Siðast en ekki síst hefur gliman við
Markó Póló orðið upphaf að enn meiri
frama í kvikmyndum.
Ken Marshall er annólaður hestamaður og lók sjálfur í hinum erfiðu hesta-
atriðum..