Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1984, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1984, Blaðsíða 17
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984. 25 þróttir fþróttir Iþróttir (þróttir (þróttir ff & tir yf irol k! ku ir spu irr lir igi im og h rc ISI ” World Cup keppnin í golfi stöðvuð vegna rigningar: Ötrúlega góður árangur hjá þeim Sigurði Péturssyni og Ragnari Ólafssyni í gær „Þaö er búiö að rigna hér stanslaust í langan tíma og því miður varð að stöðva keppnina í gær á hádegi vegna rigningarinnar. Þeir Sigurður og Ragnar höfðu þá leikiö níu holur af 18 og voru á mjög góðu skori. Ragnar var einu höggi undir pari og Sigurður einu höggi yfir pari. íslenska sveitin var því á pari vallarins,” sagði Björgúlfur Lúðvíksson, fararstjóri hjá þeim félögum Ragnari Ólafssyni og Sigurði Péturssyni sem taka þátt í World Cup keppninni í golfi í Róm á ítalíu. Þeir Ragnar og Sigurður eru einu áhugamennirnir sem keppa á mótinu og voru þeir með efstu mönnum á hádegi í gær þegar keppnin var stöðvuð. Þá var ekki hægt að spila lengur vegna vatnselgs á golfvellinum. Þess má geta að þeir Lanny Wadkins og Tom Kite frá Bandaríkjunum náðu einnig að leika níu holur fyrir stöðvun og voru þeir á sama höggafjölda og Ragnar og Sigurður. Svíarnir Magnus Person og Anders Forsbrand voru einnig búnir með níu holur og höfðu leikið samanlagt á einu höggi undir parinu á fyrstu níu holunum sem er 35 högg. „Þessi frammistaða Ragnars og Sigurðar vakti feiknalega athygli hér í gær. Menn komu úr öllum áttum og spurðust fyrir um þá félaga og það rigndi yfir þá hrósyrðum. Völlurinn er mjög skemmtilegur fyrir utan bleytuna og þeir félagar kunna vel við hann. Samt er hann nokkuö annars eðlis en þeir vellir sem þeir leika á heima á Islandi,” sagði Björgúlfur. Það er sárgrætilegt að þessi frábæri árangur Islendinganna skuh ekki gilda í keppninni. Það er hins vegar vonandi aö áframhald veröi á þessari spila- mennsku kappanna og verður fróðlegt að sjá hvort þeir halda áfram á sömu braut. -SK með tilboð IVednesday ög vel á allar aðstæður hjá félaginu „Ég er sérstaklega spenntur fyrir því að leika á Englandi. Mun spenntari fyrir Englandi en Skotlandi,” sagði Sigurður í samtali við DV í gær. Á landsleiknum í gær voru njósnarar frá 14 enskum 1. deildar félögum. Einnig njósnari frá Glasgow Rangers r I I I I I i. sem hefur gert Sigurði þrjú tilboð. Njósnarinn frá Rangers var ágengur í gær við Sigurð þegar hann frétti að hann væri á leið til Sheffield og ætluðu þeir Sigurður og Gunnar aldrei að losna viðmanninn. -SK. » ff I segir Tony Knapp landsliðsþjálfarí ■ um Sigurð Jónsson. Hafði Skaga-1 maðurinn ungi grelnilega vakið I áhuga þeirra sem annarra sem séð ■ hafa pilt leika knattspyrnu. I „Fannst ykkur Siggi góður í kvöld? Þið hefðuð þá átt að sjá hann leika ef | þeir Asgeir, Janus og Atli hefðu leik- . ið með honum á miðjunni,” sagði | Tony Knapp. ■ -SK. I Frá Sigmundi O. Steinarssyni, hlaða I manni DV í Englandi: ! „Ég á mjög auðvelt með að skllja I þennan mikla áhuga sem allir hafa á I Sigurðl Jónssyni. Hann er stórefni- I legur knattspyrnumaður,” sagði | Tony Knapp eftir landsleikinn gegn Wales. I Breskir fréttamenn hópuðust að J^Knapp eftir leikinn og spuröu hann Kristinn í Fylki Eftir stutta veru í Víkingi hefur knatt- spymumaðurinn Krlstinn Guðmundsson ákveðið að ganga aftur til liðs við sina gömlu félaga í Fylki. Kristínn var fastamaður í Vikingsliðinu í sumar og átti marga mjög góða leíki. Er ekki að efa að hann mun styrkja iið Fylkis mikið. Eins og kunnugt er vann Árbsejarliðið 3. deild- ina í sumar og leikur í 2. deild næsta keppnis- tímabil. Svo getur farið að Guðmundur Magnússon, sem lék mcð ísfirðingum í sumar, gangi einn- ig í Fylki. Hann hefur æft með liðinu að undanfömu en ekki er enn ákveðið hvað hann gerir. -SK. Kristinn Guðmundsson. Ragnar Ólafsson. Sigurður Pétursson. Liverpool vill Bett — honum er ætlað að fylla skarð Greame Souness á miðjunni hjá meisturunum Frá Sigmundi 0. Steinarssyni, blaða- manni DV í Bnglandi: Ensku meistararnir Liverpool vilja nú kaupa Skotann James Bett sem leikur með Lokeren i Belgíu. Liverpool er tilbúið að greiða 250 þúsund pund fyrir Bett sem er ætiað að fylla skarðið sem Greame Souness skyldi eftir sig þegar hann fór til ítalíu. Bett er 25 ára gamall og hefur meðal annars leikið hér á landi. Hann er giftur ísienskri konu. Bob Paisley, fyrrum framkvæmda- stjóri Liverpool, sér nú um að njósna um nýja leikmenn og hann hreifst mjög af Bett í landsleikjum Skota gegn Islandi og Spáni. Bett fór frá Islandi til Lokaren, síöan til Glasgow Rangers og síðan enn á ný til Lokaren þar sem hann leikur nú. -SK. PETUR SLAPP MEÐ SKREKKINN Frá Sigmundi 0. Steinarssyni, blaða- manni DV í Euglandi: „Ég get ekkert um þetta sagt. Ég sá ekki þetta atvik,” sagði Tony Knapp, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, við breska blaðamenn eftir landsleikinn gegn Wales þegar þeir spurðu hann hvort Pétur Pétursson hefði ekki átt afl fá rauða spjaldið fyrir að ýta við línu- verðinum eftir að Wales skoraði fyrra mark sitt í fyrradag. öll bresku blöðin eru á því að Pétur hafi átt að fá rauða spjaldið. Segja má að Pétur hafi þarna sloppið með skrekkinn því ef hann hefði fer.gið rauða spjaldið hefði hann fengið tveggja leikja bann með landshði. -SK. Valur—Ystad — Valsmenn í Evrópuslag á sunnudaginn gegn sænska liðinuYstad Valsmenn verða heldur betur i eld- linunni á sunnudaginn er þeir leika fyrri leik sinn gegn sænska liðinu Ystad í Evrópukeppni félagsUða í haudknattlcik. Leikurinn hefst kl. 20.30. Möguleikar Valsmanna ættu að vera fyrir hendi. Leikmenn Ystad hafa ekki náö sér vel á strik það sem af er keppn- istímabilinu í Svíþjóð. Valsmenn hafa ávallt staðið sig vel í Evrópukeppni og er skemmst að minnast þess er Valur komst í úrslit í Evrópukeppni meist- araliöa árið 1980. AUir handknattleiks- unnendur eru hvattir til að hvetja Vals- menn á sunnudagskvöldið. -SK. „Aldrei séð annað eins” „Eg hef aldrei á ævi minni séð aðra eins rigningu. Dropamir eru á stærö við nögl þumalfingurs. Þetta er ótrú- legt,” sagði Björgúlfur Lúövíksson, fararstjóri Ragnars og Sigurðar, í samtali við DVínótt. „Italir vonast til að hægt verði að halda keppninni áfram á morgun (í dag) en það er ljóst að keppnin veröur ekki 72 holur heldur 54. ” _____________________ -SK. Kylfingur hætt kominn Utlu munaöi að stórslys yrði í gær á golívellinum blauta í Róm þar sem World keppnin fer fram. Vestur-Þjóðvcrjinn Karl Heinz Gögele var að ganga af vcHinum þegar eldingu laust niður í regnhlíf hans. Gögele sakaði ekki. „Ég veit ekki af hverju ég fékk ekki taugaáfaU. Ég var mjög hræddur en er sem betur fer ómeiddur,” sagði hann eftir atvikið. ________________________-SK. Tólf marka KR-sigur — KR vann Þrótt, 24-12, il.deild íhandknattleik KR-ingar náðu sér vel á strik í gær- kvöldi er þcir sigruðu Þrótt með 24 mörkum gegn 12 í 1. deild íslandsmóts- ins i handknattlelk i LaugardalshöU. Staðan i leikhléi var 12-7 KR í vU. Þessi stóri sigur KR kom á óvart eft- ir slakan leik liðsins og góða frammi- stöðu Þróttar gegn FH á dögunum. Leikurinn sem slíkur var þó frekar slakur og sérlega voru Þróttarar sein- hcppnir. Brotnuðu þeir niður í byrjun leiksins er dómarar leiksins dæmdu KR-ingum boltann hvað eftir annað að ástæðulausu. Var engu likara langtim- um saman en að tveir KR-ingar stjórn- uðu dómgæslunni. Jakob var frískur hjá KR og Páll Björgvinsson átti ágætan leik. AUir jafnslakir hjá Þróttl. Mörk KR: Jakob 7, Jóhannes 5, Páll 5, Ólafur 2, Hörður 2, Haukur G. 1, Haukur Ottesen 1 og Friðrik 1. Mörk Þróttar: Birgir 4, Sverrir 3, Konráð 2, Páll 1, Lárus 1 og Sigurjón 1. Dómarar Gunnar Kjartansson og Rögnvald Erlingsson. Þeir voru mjög slakir. Maður leiksins: Jakob Jónsson, KR. _______________________-SK Berglind heiöursgestur Frá Sigmundl 0. Steinarssyni, blaða- manni DV í Englandi: BergUnd Johansen, sem dvelur nú í Englandi í tengslum við Miss World keppnina, mun verða heiðursgestur á leik Astou VUla Southampton á laugar- daginn. Þar mun fegurðardrottning Is- lands afhenda stuðningsmannaklúbbi Aston VUla gjöf frá stuðningsmönnum Aston VUIa á Islandi. Mun sá hópur vera einir fjórir menn. -SK þróttir íþróttir fþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.