Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 2
2
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
Uppboð
verður haldið að Hótel Borg,
Gyllta sal, sunnudaginn 16. des-
embernk. ki. 15.00 e.h.
1
*
Þar verða m.a. seldar gamlar íslenskar bækur prentaðar í
Hrappsey, á Hólum, að Leirárgörðum, i Viðey, á Akureyri, Kefla-
vík og Reykjavik. í Oxford, New York, Stokkhólmi, Kaupmanna-
höfn, London og viðar.
Einnig verða seldar allmargar frumútgáfur ieikrita eftir Henrik
Ibsen.
Þá verða seld gömul Ijósmyndaalbúm með merkilegum
íslenskum Ijósmyndum, einnig „frimerkjabiokk" útgefin af Al-
þýðuflokknum árið 1938 og gömul íslandskort.
Gripirnir verða til sýnis að Hverfisgötu 52, laugardaginn 15.
desemberkl. 14.00—18.00.
V Bókai
Listaverkauppboð Sigurðar Benediktssonar hf.
Bókavarðan, Reykjavik.
ÓDÝR
KVENSTÍGVÉL
Póstsendum
Laugavegi 1 — Sími 1-65-84
Hinu nýja einkabílastæöi Alþingis i miðbænum er lokað með keðju og lás.
DV-mynd S.
FLEIRIEINKASTÆÐI
FYRIR ALÞINGI í
GAMLA MIÐBÆNUM
Mikil óánægja er hjá mörgum sem
starfa í miöbænum í Reykjavík með
að bílastæðinu bak við Oddfellowhús-
ið hefur verið lokað og það tekið und-
ir einkastæði fyrir alþingismenn og
starfsfólk Alþingis.
Bílastæði þetta hefur undanfarin
ár verið notað af fólki sem starfar í
miðbænum og öðrum. Hefur ekkert
verið fyrir það gert þar til nýlega að
tekið var tU við að malbika það. En
þegar því verki lauk var því lokað
með keðju og tUkynningu um að
þetta væri einkastæði Alþingis.
Er mikU óánægja með þetta því
stæðið stendur að mestu autt aUan
daginn. Á sama tíma þurfa aörir sem
ekki starfa við Alþingishúsið að aka
um aUan miöbæinn í leit að stæöi á
morgnana. Er vont að finna slíkt án
þess að greiða í stöðumæU eöa borga
dagleigu.
Margir hafa kvartað undan þessu
og óskað upplýsinga um kostnað við
gerð þessa nýja einkastæðis fyrir
Alþingi. Fátt virðist vera um svör og
er hiti í mörgum í miöbænum út af
þessumáUnúna.
-klp-
Flugleiðir missa Nígeríuflugið
Flugleiðir hætta flugi fyrir Kabo
Air í Nígeríu ummiöjan janúar næst-
komandi. A fundi fuUtrúa flugfélag-
anna í London fyrir skömmu varö
ljóst aö ekki yrði af endumýjun
samningsins sem geröur var
snemma árs 1981 tU f jögurra ára.
I frétt frá Flugleiðum segir að
ástæður þessa séu meðal annars þær
að núverandi stjórnvöld í Nígeríu
stefni að því aö flugvélar, sem
annast atvinnuflug í landinu, veröi
allar skrásettar þar og þeim ein-
göngu flogið af innlendum flugmönn-
um.
Flugleiðir hafa haft eina Boeing
727 þotu í Nígeríu. Henni hafa flogið
flugmenn félagsins. Flugvirkjar
þess hafa annast viðhald.
Vegna loka Nígeriuverkefnisins
kann svo aö fara aö nokkru færri
flugmenn verði ráönir til Flugleiða á
næsta ári en gert var ráð fyrir.
-KMU.
JOPPTÍU’
í TÖLVU
A Gljúfrasteini, Dyr dauðans og Fimmtán ára á föstu
eru bækumar sem standa efst á fyrsta „topptíu” bóka-
lista sem bókaútgefendur standa fyrir nú í ár. Félag
bókaútgefenda hefur nú fengið til liðs við sig tölvutækn-
ina við gerð lista yfir sölumestu bækur í yfirstandandi
jólavertíð. Þaö er fyrirtækiö Kaupþing sem sér um gerð
bókalistans. Upplýsingar eru fengnar frá 26 bóka-
veíslunum á landinu um sölumagn bóka. Líklegt er að
verslanir þessar selji um 40 prósent bóka í öllu landinu.
Bókaverslanirnar voru valdar í hlutfalli við íbúafjölda í
hverju kjördæmi.
Gert er ráð fyrir að gefðir verði tveir svona listar á
næstunni. Einn í næstu viku og annar eftir jól. Þessi listi
sem nú var birtur gefur marktækar upplýsingar um
sölu bóka vikuna 3. til 9. des.
Nú eru komnir út um 300 bókatitlar og taliö að þeir
verði um 350. Það eru færri titlar en í fyrra en þá komu
út um 475 bókatitlar.
Sala á bókum hefur verið nokkuð treg undanfarin tvö,
ár. Svo setti langt verkfall bókagerðarmanna strik íl
reikninginn. Verðlag á bókum hefur hækkað um 10—15
prósent frá því í fyrra.
Bókavinsældalistanum er skipt í þrennt: Frumsamd-
ar bækur, þýddar bækur og bama- og unglingabækur.
Bókaútgefendur vilja ekki gefa upp magn seldra bóka
þessa vikuna. Listinn gefur því engar upplýsingar um
það hvernig þessir bókatitlar standa gagnvart hver
öðrum hvað sölumagn snertir. APH
10 MEST SELDU FRUMSAMDAR ÍSLENSKAR BÆKUR
VIKUNA 3. TIL 9.12.1984.
1 A GLJÚFRASTEINI EDDA ANDRÉSDÚTTIR
2 GUDMUNDUR SKIPHERRA SVEINN SÆMUNDSSON
KJÆRNESTED NJÖRDUR P. NJARÐVÍK OG
3. EKKERT MÁL FREYR NJARÐARSON
4. JÚN G. SÚLNES HALLDÚR HALLDÚRSSON
5 VIÐ ÞÚRBERGUR GYLFI GRÖNDAL
6 MEÐ KVEÐJU FRÁ DUBLIN ÁRNIBERGMANN
7 LÍFIÐ ER LOTTERÍ ÁSGEIR JAKOBSSON
8 EYSTEINN - IBARÁTTU OG STARFI VILHJÁLMUR HJÁLMARSSON
9 ALFREDS SAGA OG LOFTLEIÐA JAKOB F. ÁSGEIRSSON
10 GEFÐU ÞIG FRAM GABRÍEL SNJÚLAUG BRAGADÚTTIR
10 MEST SELDU ÞÝDDAR BÆKUR VIKUNA 3. TIL
9.12.1984
1 DYR DAUÐANS ALISTAIR MACLEAN
2 ÁTÖK Í EYÐIMÖRK HAMMOND INNES
3 í NÆTURVILLU DESMOND BAGLEY
4 SYSTURNAR FRÁ GREYSTONE VICTORIA HOLT
5 TREYSTU MÉR ÁSTIN MÍN THERESA CHARLES
6 JÚLAÚRATÚRÍAN GÚRAN TUNSTRÖM
7 KYNEÐLIOG KYNMÖK A.K. LADAS. B. WHIPPLE OG
J.O. PERRY
8 SIGUR ÁSTARINNAR BODIL FORSBERG
9 VERTU ÞÚ SJÁLFUR WAYNE W. DYER
10 j GILDRU Á GRÆNLANDSJÖKLI DUNCAN KYLE
10 MEST SELDU BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
VIKUNA 3. TIL 9.12.1984
1 FIMMTÁN ÁRA Á FÖSTU EDVARD INGÚLFSSON
2 BRÚÐIR MINN LJÚNSHJARTA ASTRID LINDGREN
3 SJÁÐU MADDITT, ÞAÐ SNJÚAR ASTKID LINDGREN OG ILON WIKLAND
4 TÖFF TÝPA Á FÖSTU ANDRÉS INDRIDASON
5 JÚLÍUS KLINGSHEIMfJAKOBSEN
6 TRÖLLABÓKIN JANLÖÚF
7 MED VlKINGUM PEYO
8 KARL BLOMKVIST OG RASMUS ASTRID LINDGREN
9 Í RÆNINGJAHÖNDUM ÁRMANN KR. EINARSSON
10 KÁRILITLI i SKÚLANUM STEFÁN JÚLÍUSSON