Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Qupperneq 6
6
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Hægt er að skila dýnunum innan 60
daga ef fólki líkar ekki við það sem það
var að kaupa. Fimm ára ábyrgð er á
öllum rúmum og dýnum.
„Við erum að þessu í alvöru,” sögöu
eigendumir, „og erum við alveg vissir
um að þetta á eftir að veröa vinsælt
hér á landl Þetta verður ekki bara smá-
bóla sem síðan springur. Viö munum
sjálfir setja upp rúmin fyrir fólkiö og
gefa þær upplýsingar sem til þarf. En í
raun er ekkert mál að eiga vatnsrúm.
Þaö þarf aldrei að skipta um vatn,
heldur þarf að setja tvær töflur, eins
konar rotvarnartöflur, inn í vatns-
dýnuna á sex mánaða fresti. Við
munum fylgjast með því og hringja í
viðskiptavinina til að minna þá á það.”
Ætlunin er aö versla með svefnher-
bergisskápa líka sem verða þá í stíl við
rúmin, en nokkur bið verður á því-
Náttborðin eru ýmist frístandandi eða
fest á hliðar rúmsins. Hægt er að
stjóma stífni dýnunnar með vatns-
magninu. Sökkull er á öllum rúmun-
um. Vínillinn á dýnunum er 15 prósent
þykkari en gerist og gengur á öðrum
dýnum.
Eigendurnir sögðu að þegar fram
Uðu tímar væri ætlunin að smíöa og út-
búa hluta hér heima, til dæmis lökin og
sökklana.
Vatnsrúm hafa löngum verið talin
góö fýrir gigtveikt fólk vegna
stillanlegs hita. Einnig eru vatnsrúmin
þannig að þau gefa eftir jafnt, sama
hve þunginn er mikill á hinum ýmsu
líkamspörtum, þannig aö nær óþarft er
að bylta sér og snúa á alla kanta.
Eins og áður sagði er verslunin til
húsa á annarri hæö í Skipholti 5 en ætl-
unin er að skipta um húsnæði þegar
þaö gefst.
Guðbrandur sagðist hafa talað viö
nokkra húsgagnasala úti á lands-
byggðinni og sýndu þeir nokkurn
áhuga fyrir þessari nýjung svo að
landsbyggöarfólkið getur unaö sér vel
á vatnsdýnum einnig.
„Já, úr því maöur eyðir nú um
þriðjungi ævinnar í rúminu — af
hverju ekki að láta fara virkilega vel
um sig,” sögðu þeir félagar að lokum-
-JI.
■<—----------------------■
Uppábúið rúm með vatnsdýnu.
Vatns-
rúmin
komin
til
lands-
ins
Fyrsta sérverslun með vatnsrúm
opnaði sl. laugardag að Skipholti 5,
annarri hæð. Rúmin eru innflutt frá
Noregi. öll rúmin eru norsk hönnun, en
þau eru smíðuð ýmist í Noregi eða í
Danmörku. Dýnumar eru bandarísk
hönnun hins vegar.
Eigendur verslunarinnar Vatnsrúm
sf. eru: Knútur Hauksson, Guðbrandur
Jónatansson og Jón Árni Rúnarsson.
„Við erum svolítið á eftir tímanum á
þessum vettvangi,” sagði Knútur.
„Vatnsrúmin eru oröin mjög algeng í
Bandaríkjunum og á hinum
Skandinavíulöndunum en þetta sést
ekki hér á landi. Ég fékk mér til dæmis
vatnsrúm fyrir fjórum árum og nú get;
ég ekki hugsaö mér annað rúm. Eg tók
eftir því í byrjun að ég þurfti ekki aö
sofa eins mikið vegna þess að maöur
hvílist svo vel á þessum vatnsdýnum. ”
Rúmin eru öll úr viði og er hann allur
massífur. Rúmin kosta frá 15.000 og
upp í 30.00 krónur og er hægt aö kaupa
þaueinsér.
Dýnurnar kosta hins vegar frá 16.000
krónum og upp í 23.000 krónur.
Dýnunum fylgir hitari, öryggisnet og
yfirlak. Hægt er að stilla hitastig
vatnsins með hitaranum upp í 37°C.
Rúmin eru öll klædd aö innan með sér-
stöku öryggisneti. Síðan er yfirlakið
notað ofan á vatnsdýnuna. Eina
gerðina af dýnunum er hægt að kaupa í
venjuleg hjónarúm.
Guðbrandur lyftír upp dýnu sem
hægt er að fá ihvaða rúm sem er —
gömlu rúmin lika.
Vatnsdýna þessi tekur afmikia vatnshreyfingu.