Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Side 39
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn
Kemur allrí þjóðinni við
Er hægt aö kalla framleiðslu á
Atlantis-tölvunni íslenskan iönaö? Er
ekki bara veriö aö púsla saman hlutum
sem framleiddir eru erlendis?
„Þetta er aö sjálfsögöu samsetning-
ariðnaður. Þaö er alltaf spurning hvar
á að byrja. Eg tel aö þaö sé hagkvæm-
ast aö gera þetta á þennan hátt núna.
Ef framleiðslan gengur vel er hugsan-
legt að hægt verði aö byrja að fram-
leiöa „komponenta”,” segir Leifur
Steinn.
Þannig er nefnilega mál með vexti
aö flestir hlutir tölvunnar eru fram-
leiddir erlendis. Þeir koma úr mörg-
um áttum. Þetta er reyndar algengt í
háþróuðum iðnaði þar sem sérþekking
annarra aöila er notuð. Og varla mun
vera til sá iðnaður sem framleiðir alla
hlutifrárótum.
„Við erum ekki að kaupa vörumerki.
Við ráðum algjörlega okkar fram-
leiöslu og hvaða hluti við notum í tölv-
una. Viö notum innlent hugvit og verk-
lag. Kassinn utan um tölvuna er búinn
tilhérálandi.”
Skjárinn sem fylgir tölvunni er ílutt-
ur hingaö til landsins í heilu lagi. Hann
kemur frá Bandaríkjunum en er
reyndar framleiddur á Taiwan. Leifur
Steinn segir aö þaö séu aðeins um f jór-
ir aðilar í heiminum sem framleiði
skjái fyrir tölvur. Skjárinn sem fylgir
Atlantis er mjög góður, m.a. vegna
Leifur Steinn sýnir okkur móðurborð töivunnar sem mun vist vera „hjarta tölvunnar
þess að stafirnir eru gulir. Þeir sem
vinna við þá þreytast ekki eins mikið.
En hvað segir Leifur Steinn um
framtíðina?
„Við ætlum okkur ekki að stoppa við
þessa framleiðslu. Nú ráðgerum við að
hefja framleiðslu á ýmsum hlutum
sem tengjast tölvum.”
Leifur getur hins vegar ekki upplýst
í hverju þessi áform felast því málið er
ekki komiö á lokastig.
Er þetta ekki bara óþarfa bjart-
sýni? Eiga íslendingar einhverja
framtíð fyrir sér á sviði tölvufram-
leiðslu og tölvuútflutnings?
„Hvers vegna ekki við? Við eigum
oröið mikið af færum vísindamönnum
og þaö er ekkert sem hamlar því aö við
getum flutt út þessa þekkingu.
Það þyrfti að breyta „strúktúmum”
á islenskum sendiráðum. Þar eiga að
sitja gallharðir bisnessmenn en ekki
uppgjafa pólitíkusar. Þessir menn eiga
að greiða götu íslensks iðnaðar erlend-
is.
Þetta fyrirtæki var stofnað af áhuga-
mennsku og við bindum vonir við vax-
andi skilning stjórnvalda á þessum
iðnaði. Eg tel að þetta sé ekki lengur
einkamál okkar sem stöndum á bak viö
þetta fyrirtæki heldur mál allrar þjóð-
arinnar,” segir Leifur Steinn Elisson,
markaðs- og sölustjóri ATLANTIS.
APH
ATLANTIS-tölvan virðist vera snotur og þægileg tölva. Hægt er að nota allan hugbúnað sem ætiaður er
m.a.lBMPC.
ATLANHS
— íslensk tölva
Atlantis er eina íslenska fyrirtækið
sem framleiðir einkatölvur. Það var
stofnaö í byrjun sumars 1983.1 janúar í
ár hófst síðan sölustarfsemi. Frá þeim
tíma er búið að selja um 70 tölvur og
allmargar eru í pöntun. Um þessar
mundir er talið að fyrirtækið skapi at-
vinnu fyrir um 12 manns. Vonir standa
til að sú tala eigi eftir að hækka í nán-
ustu framtíð.
Mikið úrval er af hugbúnaöi fyrir
tölvuna. Allur hugbúnaður sem ætlað-
ur er fyrir einkatölvu IBM er nothæfur
fyrir Atlantis-tölvuna. Þannig aðmenn
geta gert sér í hugarlund að enginn
skortur er á þessu sviði.
Þá er vert að minnast þess að allar
handbækur sem fylgja með íslensku
tölvunni eru á íslenskri tungu. Annað
væri að sjálfsögðu óeðlilegt. Algengt er
að erlendir leiðarvísar fylgi með tölv-
um af erlendu bergi brctnum.
Lyklaborð tölvunnar er þægilegt. Is-
lensku stafirnir eru staðsettir sam-
kvæmt staðli sem iðntæknistofnun gef-
ur út. Broddstafirnir koma rétt á
skerminn. Komman kemur fyrir ofan
bókstafinn. Hún er á tveimur hæöum
eftir því hvort sleginn er lítill eða stór
stafur.
Við skulum ekki fjölyröa meira um
þessa íslensku tölvu. Hún virðist vera
svipuðum eiginleikum búin og aðrar
einkatölvur. Hún kostar um 90 þúsund
krónur og er ákaflega snotur útlits.
„Þeir sem hafa sest niður við Atlant-
is-tölvu og skoðað hana fordómalaust
hafa komist að þeirri niðurstöðu að
hún stenst fyllilega samanburö viö er-
lendar tölvur,” segir markaðsstjóri
fyrirtækisins.
Þá má geta þess að mörg forrit sem
gerð hafa verið hjá Atlantis eru mjög
vinsæl. Þar má nefna íslenskt rit-
vinnsluforrit sem hefur náð miklum
vinsældum. Sérfræðingar og leikmenn
hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun fjár-
málaráðuneytisins hafa ákveðiö að all-
ar opinberar stofnanir, sem eru með
Atlantis eða IBM einkatölvu eigi að
nota þetta forrit. ^PH
1AR OG BESTÁ'*
TÆKIFÆBISGJOFIE'
HAFTDA ÖLLUM SEM
Á AWUAÐ BORÐ
FTOTA RITVÉL.
ER ÞETTA
BYLTING?
NEI, ÞETTAER
BROTHER BP 50
pappírs'breidd 241 mm. BP 30 hefur 3 leturstærðir,
fjóra liti og 8 gerðir af linuritum. Leiðréttingar ma
gera eftir 15 stafa skjá, sem sýnir allar stillingar
vélarinnar. Breyting leturstærðar og lita fæst með
pví að ýta á takka. Ótrúlegt en satt. PB 30.
Komið og skrilið á Brother BP 30 hjá Borgarfelli
strax í dag!
Brother BP 30 er
fyrsta ritvél sinnar
tegundar í heiminum.
Stærð 337x266x67
mm, þyngd 2,7 kg,
BORGARFELL
Skólavörðustíg 23, simi 11372.