Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Page 5
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
Jólagjafahandbók
Vörumarkaðurinn M.
ÁRMÚLA t A • REVKJAVlK
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Hitakönnur
í Vörumarkaönum í Ármúla er nú komin stór og
mikil gjafavörudeild þar sem auðvelt er að finna
jólagjafirnar. Hitakönnur eins og þessar á mynd-
inni eru úr plasti en líta þó út fyrir að vera úr
postulíni. Þær eru til hvítar, svartar, Ijósbleikar og
Ijósbláar. Slíkar könnur sem þessar, sem halda
kaffinu vel heitu, kosta 718—978 krónur.
Ekki bara til skrauts
Nei, þessir bakkar eru ekki bara til skrauts þó út-
litið segi annað. Þeir eru einkar glæsilegir en þó
vel nýtilegir. Til dæmis er ekki amalegt að bera
fram rjúkandi kaffiö á slíkum bökkum. Þeir eru
fáanlegir í þremur stærðum á 349 kr., 450 kr. og
500 krónur. Litirnir eru svartur, hvítur og vínrauö-
ur. ÞeirfástíVörumarkaðnum.
Ódýr pottalína
Þessir glæsilegu emaleruöu pottar, sem fást í
Vörumarkaönum í Ármúla, eru ekki bara góðir
heldur einnig á mjög góðu verði. Pottarnir á
myndinni eru í rauðum lit og kosta 332 kr., 508 kr.
og 627 krónur. Þeir eru einnig til stærri. Litli pott-
urinn, sem er á korkbakka, er sérlega hentugur
fyrir feiti eöa annaö sem lítið þarf að hita af í einu.
Hann kostar 244 krónur. Fatið kostar 206 krónur
og bakkinn í stíl 111 krónur.
Jólatœkið í ár frá
Toshiba
L—J
Litlar en fullkomnar
Þær þurfa ekki að vera stærri, Canon-vélarnar, þó
þær hafi allt það til að bera sem góð myndavél
þarf að hafa. Þær eru allar sjálfvirkar, með 35
mm linsu og innbyggðu flassi. Vélin til vinstri
kostar með tösku 9.844 kr., sú við hliöina 7.330 kr.
og sú efsta 5.655 krónur. Þessar vélar fást f Týli,
Austurstræti 3, sími 10966.
Þrífætur
Týli, Austurstræti 3,
og í Fókus, Lækjar-
götu, er úrval af góðum
og vönduðum þrífótum,
bæði Manfrotto og
SLIK. Þrífótur er gjöf
sem kemur Ijósmynd-
aranum að gagni og
sem hann verður
ánægður með. Verð á
SLIK þrífótum er frá
aðeins 1.200 krónum.
Fyrirunga fólkið
Þessar skemmtilegu gjafavörur fást í Vörumark-
aðnum í Ármúla og eru bara lítiö brot af öllu úr-
valinu sem hentar fyrir unga fólkiö. Bókastoðir úr
leir kosta 168 krónur stykkið, hjólavagn, sem er fá-
anlegur rauður, blár, hvítur og er mjög vinsæll
núna, kostar 198 krónur. Sparigrísinn, sem er meö
lykli, kostar 335 krónur og kertastjaki í gamal-
dags stíl kostar 91 krónu.
Smávara í Vörumarkaðnum
Þaö má sannarlega segja að ýmislegt leynist í
gjafavörudeild Vörumarkaðarins. Fjögur glös í
pakka eins og þessi á myndinni, sem eru með
svörtum eða hvítum röndum, kosta 365 krónur.
Krukkur með korki kosta 163 og 190 krónur og
olíuljós, sem eru til í þremur stærðum, kosta frá
399 krónum.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Blómapottar úr leir
í Vörumarkaönum er gífurlegt úrval af ódýrum
leirpottum fyrir stofublómin. Slíkir pottar eru
ódýr jólagjöf og mundu sóma sér vel utan yfir
jólarósina. Þeir eru fáanlegir hvítir, svartir, rauð-
ir, bleikir og beis og kosta allt frá 45 krónum, þeir
minnstu,oguppí!90krónur. >
Glæsilegt tæki á jólatilboðsverði, kr. 6.995. 4 bylgj-
ur, 4 hátalarar, stereo-wide-stilling, 12 vatta
magnari, soft stillingar og fleira og fleira. Fæst í
silfruðum og svörtum lit. Greiösluskilmálar — árs
ábyrgð.
RT—70
Ódýrt og gott tæki,
jólatilboðsverð,
kr. 5.890.