Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Page 48
92
Jólagjafahandbók
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
Þú gerir góð kaup í Hamraborginni
Er þetta
gosbrunnur?
Það mætti vissulega halda
það en þetta er þó bara
lampi sem lítur út eins og
glæsilegur gosbrunnur í
útlöndum. Lampinn er
með styttu og blómum og
þegar olía er sett í hann
fer hún upp eftir vissu
kerfi og lekur síðan niður
eftir þráðum og lítur þá
lampinn út eins og gos-
brunnur. Hann kostar
2.117 krónur og fæst í Raf-
tækjaverslun Kópavogs,
Hamraborg, sími 43480.
Handklæði með stjörnumerkjum
Verslunin Inga, Hamraborg 4, sfmi 43812, og í Þor-
lákshöfn, býöur upp á falleg gjafahandklæði meö
stjörnumerkjum. Þau eru í sérlega sniðugum
gjafapakkningum og kosta 260 kr. Einnig eru til ít-
ölsk leöurveski sem kosta frá 1.150 kr. og jóladúk-
ar í mjög fjölbreyttu úrvali. Inga býður einnig allt
til heimilisins: rúmteppi á tveggja manna rúm,
Ijós með munstri og kögri á aðeins 1.535 kr. í Ingu
færöu rúmfatasett og jafnvel gluggatjöld og kon-
fektkassa. Líttu inn og skoðaðu úrvalið.
Nytsamar gjafir
í Blómahöllinni, Hamraborg, færðu fleira en fall-
eg blóm og skreytingar því þar er úrval af fallegri
gjafavöru. Má þar benda á þessa skemmtilegu og
nytsömu hluti á heimilið. ísfata kostar 882 kr„
salt- og piparkvörn 341 kr. stk., bakki með boxum
fyrir salt, pipar og dressingu 405 kr. og bakki með
ílátum fyrir salt, pipar og kryddolíur 450 krónur.
Fyrir þær litlu og þær eldri
í Skóverslun Kópavogs í Hamraborginni, sími
41754, er mikið úrval af skóm á litlu dömurnar og
ekki síður á þær eldri. Er hér á myndinni aðeins
lítið brot af öllum þeim ósköpum sem þar eru á
boðstólum. Reimaðir dömuökklaskór kosta 1.827
krónur, jólaskór á stelpurnar í stærðum frá 28—34
með tveimur ristarböndum 798 kr. svartir eða
gráir, dömuökklaskór með krossbandi 1.675 kr. og
leðurstígvél á þær litlu í st. 28—34 1.098 kr.
i
Herraskór úr góðu leðri
Hér eru á feröinni mjög góðir og vandaðir þýskir
herraskór úr mjúku leðri og fást þeir í Skóverslun
Kópavogs í Hamraborg 3. Heilir spariskór fást
brúnir í stæröum frá 40—46 á 2.360 kr„ svartir,
reimaðir spariskór á 895 og mokkasínur í st. 40—
46 á 1.195 kr. Margar fleiri geröir eru til af karl-
mannaskóm.
Spariskór og inniskór
í Skóverslun Kópavogs í Hamraborg er hugsað
fyrir skóm á konur á öllum aldri. Þar er til dæmis
boðið upp á þessa fallegu inniskó sem eru tilvaldir
til jólagjafa. Þeir eru úr ekta leðri, mjúkir og
þægilegir, og kosta 1.175 kr. Þá eru á myndinni
spariskór á 1.575 kr. sem fást í þremur litum og
gráir ökklaskór sem kosta 1.795 kr.
Fallegt fyrir jólin
Verslunin Mólý, Hamraborg 12, sími 44340, býöur
upp á margar fallegar jóla- og gjafavörur nú fyrir
jólin. Má þar nefna jólalöbera eins og á myndinni
á 198 kr„ jólastjörnur á 82, 148 og 285 kr. og fyrir
jólapóstinn á 225 kr. Auk þess er mikið úrval af
fallegri hannyrðavöru i'Mólý, garni og jólaefni.
Gamlir massífir úr kopar
Þeir eru alveg einstakir, þessir gömlu koparhlutir
sem fást í Blómahöllinni, Hamraborg, og enginn
þeirra er alveg eins. Þetta eru allt gamlir kopar-
hlutir sem pússaðir hafa verið upp og koma þeir
frá Danmörku. Á myndinni er kanna sem kostar
3.328 kr„ potturinn kostar 4.475 kr. og minni pott-
urinn kostar 2.754 kr.
ítalskar styttur
Þær eru glæsilegar, ítölsku stytturnar f Blómahöll-
inni, Hamraborg 3 í Kópavogi. Þær eru til í mörg-
um útfærslum og ættu allir aö geta fundiö ein-
hverja við sitt hæfi. Styttan til vinstri er af tveimur
stúlkum að gefa fuglum og kostar hún 1.119
krónur. í miðið er rómantískt par sem kostar 4.121
kr. og til hægri er móðir að gefa barni sínu brjóst.
Súkostar 2.472 kr.
Kertastjakar með glerkúpu
Þeir hafa verið mjög vinsælir í Blómahöllinni,
Hamraborg, þessir kertastjakar. Þeir sóma sér
líka hvar sem er og sérstaklega þegar búið er aö
kveikja á kertinu því þeir lýsa mjög fallega. Þeir
kosta 400 kr„ sá með háa fætinum 663 kr. og með
tveimur 1.325 krónur.
Niotio
'Jcmmnu
tmnttaj
• •
BLOMAHOLLIN
HAMRABORC1-3 200K0PAVOCI SÍMI40380
Skreytingar í
Blómahöllinni
Skreytingarnar í Blóma-
höllinni eru löngu lands-
þekktar og þær eru ekki
síöur góð jólagjöf en gjöf
handa heimilinu fyrir jól-
in. Hægt er að fá margs
konar skreytingar fyrir
jólin og þú getur beöiö um
aö hafa þær eftir þínu
eigin höfði. Fallegu jóla-
skreytingarnar í Blóma-
höllinni eru vissulega á
öllu mögulegu veröi en
þessi á myndinni kostar
395 krónur og hún stendur
á hvftum postulfnsdiski.
Falleg olíuljós
Það má með sanni segja
að þau séu falleg, olíuljós-
in hjá Blómahöllinni,
Hamraborg 3, sfmi 40380.
Ljósin eru með gylltum
fæti og glerkúpu. Á mynd-
inni má sjá fjórar gerðir
og kosta þau 175, 286, 500
og 572 krónur. Hjá Blóma-
höllinni eru margar aðrar
gerðir af slíkum olíuljós-
um sem tilvalin eru til
jólagjafa.