Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 57
DV. FIMMTUDAGÍJR13. DESEMBER1984. Jólagjafahandbók 101 Guðmtindiir sktpheira Kjæmested fyrra bindi skráð ef Sveini Sæmundssyni Hver er eiginlega þessi commander Kjærnested? Hver er þessi maður sem berst við ofureflið eins og það sé ekki til og gefst aldrei upp? Þannig spurðu erlendir blaðamenn sem voru hér staddir um það leyti sem baráttan um 50 og síðar 200 mílna fiskveiðilögsögu íslendinga stóð sem hæst. Það voru fleiri en blaðamenn sem spurðu um Guðmund Kjærnested. Sjóliðarnir á freigátunum, sem ekki gátu orða bundistyfiráræðni Guðmundar, þreki hans og staðfestu. Hann gafst aldrei upp við að verja fiskveiðilögsöguna. Þetta var þeim undrunarefni. Það er ekki Qarri sanni að segja að Guðmundur hafi á þessum árum verið átrúnaðargoð æði margra, sem áttu í baráttu við kúgunaröfl, því fregnir um athafnir hans fóru víða. En hver er þá þessi maður, sem vakti virðingu og aðdáun þeirra sem studdu málstað íslendinga og ýmissa þeirra sem háðu baráttu við ofurefli og magnstola reiði þeirra, sem níddust á lítiimagnanum? Saga Guðmundar er baráttusaga allt frá barnæsku. Saga sem hann segir skrásetjara sínum, Sveini Sæmundssyni, og iesendum án allrar tiigerðar og tæpitungu, hvort heldur það snertir hann sjálfan eða helstu ráðamenn þjóðarinnar. SVEINÉÍ SÆMUNDSSON ERLENDtB JÓNSSON Útgerð og aflamenn í Eyjum slðan 1906 eftir Guðlaug Qíslason fynverandi alþingismann Vélbátaútgerðin í Eyjum, og annars staðar á landinu, var nokkurs konar iðnbylting íslands. Þá lauk aldalöngum þrældómi sjómanna undir árum, og í kjölfar þessarar atvinnubyltingar fylgdi þéttbýlismyndun. Á tveim áratugum fjöigaði íbúum Vestmannaeyja úr 600 í 3.500. Guðlaugur Gíslason er gjörkunnugur sögu Vestmannaeyja. í þessari bók rekur hann sögu útgerðar í Eyjum frá því vélbátar komu fyrst til sögunnar 1906 og birtir ítariegt formannatal frá sama tíma. Laufíð grænt eftir Erlend Jónsson Viðburðarík saga Vesturbæjardrengs Jenna Jensdóttir Morgunbl. 5. des. 1984: „/ sögunni þræðir höfundur myrkvuð einstigi sálarlífs persónanna og stundum verður úr slæmt fólk. Hann sýnir því enga vorkunn og teflir sjálfum sérjafnvel í tvísýnu. Sagan er hrikaleg og í henni ríkir viss spenna. Mörg högg eru slegin og eflaust hitta þau flest í vaxandi ógn örvilnaðs samfélags. Kápumynd er skemmtileg. Og bamsmynd af höfundi sjálfum setur spumingamerki í hug lesandans." Arbók íslands Hvað gerðist á tslandi 1983? eftir Steinar J. Lúðvíksson Áður eru komnar bækur fýrir árin 1979, 1980, 1981 og 1982. Þessar bækur eiga sér enga hliðstæðu. Þær bjóða ekki yfirborðslega og handahófskennda afgreiðsiu mála heidur er efni hverrar bókar flokkað niður í efnisþætti og auðveldar það mjög notkun þeirra. í hverri bók eru mörg hundruð ljósmyndir af mönnum og atburðum, sem teknar eru af fremstu ljósmyndurum lands okkar. BÓKAÚTGÁFAN ÖRN & ÖRLYGUR Síðumúla 11, sími 84866
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.