Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Drap leyniþjónustan
78 ára gamla konu?
Breski þingmaðurinn Tom Dalyell
hefur ásakað breska leyniþjónustu-
menn um að hafa myrt 78 ára gamla
konu. Dalyell sagði að þeir heföu
drepið konuna, sem var frænka fyrr-
verandi foringja í sjóhernum, í leit
að leyniskjölum er varöa atvikið
þegar breskur kafbátur sökkti arg-
entínska orrustuskipinu Belgrano
hershöfðingja viö Falklandseyjar.
Dalyell hefur lengi haldiö því fram
að skipinu hafi verið sökkt jafnvel þó
sjóherinn og stjórnvöld hafi vitað að
breskum skipum stafaði engin hætta
af því.
Sjóherforinginn fyrrverandi, Ro-
bert Green, vann í leyniþjónustu
hersins. Þaö var hann sem sendi
skipunina til kafbátsins um að
granda skipinu. Hann sagði síöar af
sér vegna andstöðu sinnar viö Falk-
landseyjastríðiö.
Að sögn Dalyell töldu leyniþjón-
ustumenn aö Green kynni aö hafa
stoliö leyniskjölum og geymt þau hjá
frænku sinni, Hildu Murrell. Þeir
hafi brotist inn í ibúö hennar á með-
an hún var úti að versla. Hún hafi
síðan komið að þeim.
,,Þá fór allt úrskeiðis,” sagði Dal-
yell í þingræðu.
„Þeir ætluðu alls ekki að meiöa,
hvað þá drepa, 78 ára gamla rósa-
ræktarkonu. En af því að hún var
kjarkmikil kona og aösópsmikil, eins
og konur á hennar aldri eru oft, þá
lagði hún til atlögu gegn þeim. Þeir
urðu aö taka á móti og meiddu hana
alvarlega.”
I.ögregla segir aö frú Murrell hafi
veriö keyrð sex kílómetra út í skóg,
st’'ngin með hnifi og skilin eftir til
að deyja úrkulda.
Eldflauga-
málið i
Belgíu
Talsmaður Belgíustjórnar ber til
baka blaðafréttir um aö Wilfried Mart-
ens forsætisráöherra. og samstarfsfé-
lagar hans í ríkisstjórninni hafi gert
leynilegt samkomulag innbyrðis um að
setja ekki upp skotpalla fyrir banda-
rísku stýriflaugarnar á vegum NATO.
— Fyrstu eldflaugamar áttu að koma
til Belgíu í mars nk. en stjórnin hefur
frestaö ákvörðun um hvort viö þeim
veröurtekið.
KLOFNING-
URÍSAM-
TÖKUM KOLA-
NÁMUMANNA
Klofningur er nú orðinn innan lands-
samtaka kolanámumanna í Bretlandi
en félagsdeildin í Nottinghamshire hef-
ur losað sig undan framkvæmdastjórn
landssamtakanna (NUM).
Um 30 þúsund námamenn í Notting-
hamshire hafa aldrei lagt niður störf
þessar 40 vikur sem kolanámuverkfall-
iö hefur staðiö í Bretlandi. Deilt hefur
verið um það hvort einstakar félags-
deildir í héruöum þyrftu ekki aö lúta
ákvörðun framkvæmdaráðs landssam-
takanna um verkföll.
Forysta NUM hafði leitað úrskurðar
dómstóla um aö Nottinghamshire-
deildin gæti ekki skorist úr leik, en
dómstóll hefur nú úrskurðað héraðs-
deildinnii vil.
Af 185 þúsund kolanámumönnum
Bretlands eru nú um 115 þúsund í verk-
falli.
Kolanámumenn í Ukraníu hafa sent
verkfallssjóði breskra starfsbræðra
sinna um 5 milljónir króna til styrktar
vinnudeilunni.
S-iti
Fuiltrúar réttvísinnar mættir á vett-
vang og ráða ráðum sínum yfir líki Pi-
etro Busetta.
Mafían
hef nir sín
Einn frænda mafíuforingjans
Tommaso Busetta var myrtur í Napólí
í vikunni. Hinn 62 ára gamli Pietro
Busetta var skotinn fyrir utan heimili
sitt í útjaöri borgarinnar.
Tommaso lenti upp á kant viö mafíu-
foringja Sikileyjar og Napólíi og hóf
samstarf við lögregluna fyrr á þessu
ári. Fyrir ábendingar hans og vitnis-
burö hefur lögreglan nú meiri vitn-
eskju um skipulag mafíunnar og starf-
semi. Ákærur hafa verið gefnar út á
hendur 350 mafíubófum en aðeins hafa
náðst um 100 þeirra. 250 er leitaö.
me^11
Frábært verð og greiðslukjör
sem hæfa heimiliim.
Aðeins kr. 9.950.- stgr. eða
3.500.-út og eftirstöðvar
á 6 mán. (11.020.-)
Samsung svíkur engan.
SAMSUNG
Umboðsmenn
um aUt land.
LÁGMÚLA 7.
REYKJAVÍK - SÍMI 685333.
SJÓNVARPSBÚÐIN