Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Qupperneq 12
12 DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984. Frjátetróháð dagbiað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stiórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf. Áskriftarverð á mánuði310kr. Verö í lausasölu 30 kr. Helgarblaö 35 kr. Útibúin sinni fólkinu Afangasigur hefur unnizt í langri baráttu fyrir frjálsum afgreiðslutíma verzlana. En nátttröll eru í vegi, að liðkað verði til um afgreiðslutíma bankanna. Samband banka- manna snerist í haust gegn starfsfólki í útibúi Utvegs- banka Islands í verzlunarmiðstöðinni Hólagarði í Efra Breiðholti. Starfsfólkið hafði samþykkt rýmkun af- greiöslutímans. Utvegsbankinn opnaði þarna nýtt útibú í júní. Af- greiðslutíminn var annar en svonefndur samræmdur af- greiðslutími banka hefur verið. Utibúið var opið frá klukkan tólf á hádegi til klukkan sex á kvöldin. Þessi tími hæföi því fólki, sem býr í Breiðholti og öðrum úthverfum. Bankarnir hafa yfirleitt hundsað tilmæli um að hafa af- greiðslutíma sinn í einhverjum takt við tímann. Ekki hefur skort, að bankarnir hefðu fjármagn til að fjölga úti- búum, eins og allir þekkja. En þeir hafa verið opnir á tím- um, sem þýöa, að almenningur kemst þangað nánast ekki nema í vinnutíma, þegar um úthverfin ræðir. Fólk sækir vinnu í önnur borgarhverfi og yfirleitt vinna hjón bæði úti. Sparisjóður vélstjóra var eina undantekningin. Bankar eru yfirleitt opnir frá klukkan fimmtán mínútur gengin í tíu til fjögur og á fimmtudögum frá klukkan fimm til sex. Sparisjóöur vélstjóra hefur opið til klukkan fjögur á fimmtudögum en síðan til klukkan sex á föstudögum. Þetta hefur verið mikið hagræöi fyrir viðskiptavini spari- sjóösins og gott skref í rétta átt. „Tölvubanki” Iðnaðar- bankans er líka til bóta. Breyttur afgreiöslutími hjá útibúi Utvegsbankans í Hólagarði var með fullu samkomulagi við starfsfólk úti- búsins. En Starfsmannafélag Utvegsbankans í heild og Samband íslenzkra bankamanna hindruðu, að þetta stæði áfram. I september var sá kostur tekinn að hverfa frá þessu nýmæli og taka aftur upp hinn óhagkvæma „sam- ræmda” afgreiðslutíma. „Staðreyndin er sú, að fólk er sáróánægt og kvartar mikiö yfir þessum afgreiðslutíma,” segir útibússtjórinn í Hólagarði nú. „Það líður varla dagur án þess að við- skiptavinir spyrji hvort eða hvenær við ætlum að breyta afgreiðslutímanum aftur.” Barátta um afgreiðslutíma verzlana í Reykjavík hefur staðið um langt árabil. Almenningur átti þar viö ramman reip að draga, sameinað lið stærri kaupmanna og félags verzlunarmanna. Sú sveit naut baktryggingar borgar- stjórnar. Þetta breyttist nú í ár. Fyrir forgöngu nokkurra stærri kaupmanna var ráðizt gegn ríkjandi kerfi. Bak- trygging borgarstjórnar var að bresta. Nú hefur verið komið til móts við vilja almennings, þótt takmarkaö sé. Verzlanir í Reykjavík mega hafa opið til klukkan hálfsjö virka daga og lengur á föstudögum og til klukkan fjögur á laugardögum. Þó er enn haldið í laugardagslokun um sumarmánuðina. Nú er svo komið, að jafnvel þeir kaupmenn, sem lengi börðust gegn frjálsari afgreiðslutíma verzlana, viður- kenna flestir, að þetta hafi verið hagstæð breyting. Rétt væri að sjálfsögðu, að verzlanir væru opnar eftir því sem ráðamenn einstakra búða vildu í samkomulagi við starfsfólk á staðnum, sem sagt afgreiðslutíminn yrði alveg frjáls. Vonandi knýr almenningur nú á um, að afgreiðslutími bankanna verði frjálsari en verið hefur. Gott er, að frum- kvæði hefur komið bæði frá útibúinu í Hólagarði og Spari- sjóði vélstjóra. Því þarf að fylgja eftir. Haukur Helgason. Enn um einingahús og úthlutun húsnæðislána Byggingameistari Orn Ingólfsson, Breiðdalsvík, sá sig tilneyddan til að mótmæla ágætri grein sem Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Kvenna- listans, skrifaöi í DV og birtist 23. nóv. sl. I þessari grein f jallar Kristín um þá þróun sem er að gerast í íslenskum byggingariðnaði og bendir á þá þjóðfélagslegu hag- ræðingu sem felst í því að færa byggingariönaðinn að hluta til inn í verksmiðju. Þetta veröur þó aldrei nema að hluta því alltaf eru bygging- ar sem ekki veröa byggðar í verk- smiðju. Það ætti að vera óþarfi að benda byggingameistaranum á hversu hagkvæmara þaö er að geta steypt inni í húsi alla daga jafnt sumar sem vetur, gengið frá gleri í gluggum og sett í hurðir. Vinnan verður jafnari og unnin við betri aðstæður. Nóg um það, þetta sjá allir sem ekki eru á móti framförum. örn talar um hróplegt ranglæti við úthlutun lána. Mig langar til að segja frá því hvers er krafist af einingahúsaframleiöendum þegar þeirra hús eru talin fokheld. Húsin þurfa að vera fullbúin aö utan undir málningu, þar með tahð þak, þak- kantar, þakrennur og niðurföll. Utihurðir, gler og opnanleg fög íkomin og frágengin, og húsið að fullu einangrað. Það þurfa að fylgja teikningar bæði burðarþois og arkitekts, listi yfir meistara, kaup- samningur, og þar að auki þurfa verksmiðjurnar að vera viðurkennd- ar af tæknideild Húsnæðisstofnunar. Fokheldisstig Nú skulum við athuga hvemig hús sem byggt er á hefðbundin hátt þarf að vera til aö fá lán út á fokheldis- stig. Það þarf ekki að vera múrað að utan, ekki jám á þaki, ekki þakkant- ar, ekki þakrennur eöa niðurföll, ekki gler í gluggum, ekki opnanleg fög, ekki útihuröir, ekki einangrun, hvorki í loftum né veggjum, ekki múraö að innan. Ekki er krafist teikninga, ekki lista yfir meistara, ekki kaupsamnings og bygginga- meistarinn þarf enga viðurkenningu frá húsnæöisstjórn. Svo tala menn um aö keppa á jafnréttisgrundvelli. öm talar um að það sé ekki þjóðhagslega hagkvæmt að byggja eingöngu úr timbri hér á Islandi. Þarna er ég honum alveg sammála. Þetta á að spara eins og allt sem flutt er til landsins. En eitt virðist Örn ekki vita, og það er að hér á landi eru 9 verk- smiðjur sem framleiða einingahús úr eins íslensku efni og mögulegt er, þar á ég við steinsteyptar einingar. Tvær af þessum verksmiðjum eru með óeinangraöar einingar en hinar sjö framleiða svokallaðar samloku- Kjallarinn KONRÁÐ ANDRESSON. FRAMKVÆMDA- STJÓRI LOFT- ORKU SF.f BORGARNESI þeir frá greiösluskuldbindingum. Nú fara þeirra víxlar og skuldabréf öll í vanskil, og þá vaknar sú spurning hverjum eru vanskilin að kenna, hverjir gefa út yfirlýsingar sem ekki er staðið við? Svari svo hver fyrir sig. Hverjum til óheilla I lok greinar sinnar skorar örn á Kristínu að draga þessa óheillatil- lögu til baka. Enn vakna spurning- ar fyrir hverja er hún til óheilla, er það fyrir þá sem framleiða eða kaupa einingahús, hverjir fá lánin, eru það framleiðendur eða kaupendur? Eg held að öm og hans líkar sjái ekki að það eru að eiga sér stað framfarir í íslenskum byggingariðnaði. Það er aö fara fyrir þeim eins og hafnarverkamönnunum fyrr á öldinni þegar þeir mótmæltu kolakrananum og töldu hann taka vinnu frá þeim. Þeir virðast ekki vita að það er komið árið 1984 og um 100 ár síðan byrjað var að byggja hús hér á landi með þeirri sömu aðferð og þeir nota enn þann dag í dag. Nei, A „... við sem vinnum við byggingariðnað- ^ inn eigum að standa saman, við eigum að berjast við sameiginlega andstæðinga, fáfræð- ina og fordómana, og snúa bökum saman til hagsbóta fyrir þá sem við vinnum fyrir.” einingar, en þær eru þannig uppbyggðar að innst er 13 cm þykk járnbent steinsteypa, síðan 10 cm þykk einangrun og yst er 7 cm járn- bent steinsteypa, sem kölluö er veðurkápa. Þessar sjö verksmiðjur framleiddu 97 hús á þessu ári. Sem dæmi um hvað hús- byggjandinn hagnast á auknum byggingarhraða ætla ég aö segja frá því að Loftorka sf. í Borgarnesi hefur reist frá því í september 9 hús á höfuðborgarsvæðinu. Nú þegar þetta er skrifaö er flutt inn í 5 af þessum, húsum. Þessi hús hafa verið, frá því byrjað var á grunni þar til flutt var inn í þau, 4—6 mánuöi í byggingu. Þeir sem þurfa á fjármagni að halda vita hvað það kostar og hver sparnaður er í því að geta farið að hafa gagn af fjármagninu í stað þess að láta það standa mánuöum saman óarðbært. En ekki er allt búið enn í samanburöinum. Fimm eru fluttir inn en aðeins tveir hafa fengiö hús- næðisstjómarlán, hinir þrír gerðu fokhelt í nóvember og fá væntanlega lániö í febrúar, segir sá er svarar fyrir húsnæðisstjórn. Þessum aðilum- var sagt að lán yrðu, að uppfylltum áöur upptöldum skilyrðum, afgreidd 1/2 mánuði eftir svokallað fokheldis- stig, og í samræmi við það ganga við sem vinnum við byggingar- iðnaöinn eigum aö standa saman, viö eigum aö berjast við sameiginlega andstæðinga, fáfræöina og for- dómana, og snúa bökum saman til hagsbóta fyrir þá sem viö vinnum fyrir. Eg vil að lokum koma með tillögu sem ég þykist vita að allir sem keppa vilja á jafnréttisgrundveili geta fallist á að sé sanngjöm. Hún er um lánveitingu úr Byggingasjóði ríkisins og hljóðar svo: Bygginga- sjóður láni 60% af verði staðalíbúðar og færi lánsfjárhæö eftir fjölskyldu- stærð. Lán veröi afgreidd þannig að 1/3 hluti greiðist 1/2 mánuði eftir að eftirfarandi skilyrðum er fullnægt. Húsin tilbúin að utan undir málningu og fulleinangruð að innan; 1/3 hluti komi 1/2 mánuði eftir að allar lagnir, þ.e. rafmagn, vatn og hiti eru komnar svo og gólfílögn og málning á veggi og loft; 1/3 hluti komi síðan 1/2 mánuði eftir aö flutt er í húsin fullbúin. Ef eftir þessu eöa öðru svip- uðu yrði farið væru allir jafnir, bæði þeir sem byggja úr einingum svo og þeir sem kjósa að byggja eftir gamla laginu. Um annað bað Orn ekki og um annað biðjum við ekki. Konráð Andrésson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.