Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 20
20
DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984.
ÚTSÖLUSTAÐIR
Vörumarkaöurinn Ármúla
Fjarðarkaup Hafnarfirði
Kjöt og Fiskur Breiðholti
Valgarður Breiðholti
Kaupgarður Kópavogi
Matvörubúðin Grímsbæ
JL húsið Hringbraut
Kjötmiðstöðin Laugalæk
Garðakaup Garðabæ
Verslunin Brynja Laugavegi
Mosraf Mosfellssveit
Sendum í póstkröfu um land allt
IMilSÍHS lll*82%5
SEXTIU OG SEX NORÐUR
NYR. .
léttur og hlýr
„KK" KAPP-kuidajakkinn
(poplin / polyester)
FÆST UMALLT LAND.
Sjóklæðagerðin hf.
Skúlagata 51, aimi 11520.
Mjög er vandað ti/ umbúnaðar hestsins enda líður honum greiniiega mjög vel igrindinni.
Snældu-Blesi fær
endurbætta spelku
Fljótlega upp úr áramótum ætti aö
sjást hvernig til hefur tekist meö aö
græöa fótbrotiö á Snældu-Blesa (985)
frá Argerði í Eyjafiröi. Hesturinn fót-
botnaði 1. október sl. og var settur í
gifs tveimur dögum síðar, eftir að hafa
veriö hengdur upp í grind sem venju-
lega er notuð til aö klippa klaufir á
kúm. Vandaö var sérlega vel til alls
umbúnaöar svo hestinum liði sem best,
enda kemur í ljós aö þrátt fyrir allt
líður honum greinilega mjög vel.
Vakaö er yfir Snældu-Blesa dag og
nótt. Hann er kjörgripur sem
eigendurnir, Magni Kjartansson og
Þórdís Sigurðardóttir, leggja allt í
sölurnar fyrir. Blesi er stóðhestur,
fimm vetra, undan Snældu (4154) frá
Árgeröi. Á landsmótinu á Þingvöilum
1978 stóö hún efst í flokki sex vetra og
eldri. Faöirinn er Hrafn (802) frá
Holtsmúla í Skagafiröi. Hann var hins
vegar efstur í keppni stóöhesta meö
heiðursverðlaun á landsmóti á Vind-
heimamelum 1982.
Snældu-Blesi er því vel ættaður og
þótti sérlega efnilegur en þá varð
slysið. Hann féll ofan í gryfju heima í
Argerði og brotnaði ofarlega á hægra
afturfæti.
Haft var samband við Ármann
Gunnarsson, dýralækni í Svarfaöar-
dal, og tókst samvinna milli hans og
tveggja beinasérfræðinga á Fjórö-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri um að
reyna að bjarga Snældu-Blesa. Þeir
heita Július Gestsson og Ari Olafsson.
Gifsið var á hestinum til 3. nóvember
en þá setti össur Kristinsson gervi-
limasmiöur á hann spelkur sem hann
hafði útbúið. Eftir þrjár vikur kom í
ljós sár undan spelkunum. Þær voru þá
teknar og fóturinn settur aftur í gifs.
Stefnt er að því að taka það af innan
tíðar, jafnvel fyrir jól, og setja í
staðinn nýjar spelkur sem össur
Eigandi Snældu-Blesa, Magni Kjartansson, vakir yfir honum dag og nótt.
smíðaði. Þær eru mun opnari en þær
fyrri og ættu ekki að særa hestinn.
Þegar í spelkumar veröur komið ætti
ekki að líða langur tími þar til Snældu-
Blesi fær aö reyna að stiga í fótinn.
Fáir gera ráö fyrir að hann verði jafn-
góður og fyrir slysið en menn eru samt
bjartsýnir.
Hjónin í Árgerði hrósa mikið þeim
mönnum sem hafa lagt þeim lið. „Það
er virkilega gaman að sjá hvað þessir
fjórir menn standa allir saman til að
gera sitt besta. Við erum þeim ákaf-
lega þakklát,” sagði Magni
Kjartansson.
JBH/Akureyri.
Akureyri:
FASTEIGNASKATTARNIR
VERÐA STÓRHÆKKAÐIR
Sjálfstæðismenn í bæjarstjóm Akur-
eyrar hafa hótað að taka ekki þátt í
gerð næstu fjárhagsáætlunar vegna
samþykktar meirihlutans að hækka
álögur á fasteignagjöld í bænum um
9,5%, eða í 25%. Sú aukning ein gefur
11 milljónir í tekjur. Heildartekjur
bæjarins af fasteignagjöldum verða
því 122 milljónir á næsta ári en hefðu
orðiö tæpar 112 milljónir með óbreyttu
álagi á fasteignaskattinn. Milli ára
hækka þessir skattar um 40%. Telur
meirihlutinn hækkunina nauösynlega
vegna aukinnar verðbólgu á næsta ári.
Hækkunin mun þýða 1000—2000 krónur
á hverja meöalíbúð.
Sjálfstæðismenn lögðu til að engar
álögur yrðu á fasteignaskattinn sem
hefði þá orðið 105 milljónir. A bæjar-
stjórnarfundi á þriðjudag gagnrýndi
Gunnar Ragnars bæjarfulltrúi þeirra
meirihlutann harölega og sagði engin
rök fyrir hækkuninni, hvorki aukna
verðbólgu né verri stöðu bæjarsjóös.
„Mér finnst þaö óvirðing við gjald-
endur á Akureyri ef þeir eiga að vera
með hæstu fasteignaskatta á landinu,”
sagðiGunnar.
JBH/Akureyri.