Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Síða 26
38 DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984. Ljósmyndabókin FÓLKIÐ í FIRÐINUM er Hafnf irðingum góð jólagjöf. Bókin fæst aöeins hjá útgefanda ad Austur- götu 25, Hafnarfirdi, ádur Gunnlaugsbúö. Opiö i dag til kl. 19, laugardag frá kl. 10-23 og aðfangadag kl. 10-12. Sími 50270. Bókin heimsend þeim, sem þess óska. UTGEFANDI. 'Jjlómaslíál'inn Opið frá kl. 10-22, þorláksmessu frá kl. 10-24, aðfangadag frá kl. 10-16, jóladag lokað, annan dag jóla frá kl. 10-22. Jólatrjáasalan er opin frá kl. 10-22. Mikið úrval af hýasintuskreytingum, kerta- skreytingum og gjafavörum. Greinar og krossar á leiði. Útikerti og leiðisluktir. Grýtupottakertastjakarnir kosta aðeins 25 kr. stk. hjá okkur. Blómaskálinn, kr( diikort_______ Kársnesbraut 2, sími 40980. Opið frá kl. 10—22. 1 Áttu: VASADISKÓ n s | FERÐAKASSETTUTÆKI7 d 2 FJARSTÝRÐAN BÍL " i u. > eða annað tæki fyrir rafhlöður sem þú 2 •“ notar mikið. ^ ^ Ef svo er þá eru Sanyo-cadnica Q •g rafhlöðurnar og hleðslutækið fyrír þig. ^ SPARNAÐUR - ÞÆGINDI FÆST í VERSLUNUIVI UM LAND ALLT Meira en 900 hleðslur. t Dieselvélar hf., Suðurlandsbraut 16. Sími 35200. Bsjumynd eftir Ásgrim Jónsson boðin upp hjá Arne Bruun Rasmussen iKaupmannahöfn. Mál verkauppboðið í Kaupmannahöf n: íslensku málverkin langt yfir matsverði Uppboöið, sem haldiö var hjá Arne Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn á dögunum, vakti ekki nærri eins mikla athygli meðal Dana og fyrri uppboö uppboöshaldarans, þar sem lítiö var boöið upp af málverkum eftir þá fræg- ustu meöal danskra málara. Hins vegar þótti dönsku blöðunum þaö helst fréttnæmt af uppboðinu hversu mörg íslensk verk voru í boði. Ekki síst fyrir þaö að flestar mynd- anna seldust þónokkuö yfir matsveröi. Ekki Ameríkanar heldur íslensk björgunarsveit Nokkur uggur er í þjóöhollum Dön- um vegna áhuga erlendra listsafnara á dönskum málverkum. Einkum þykja svokallaðir Skagamálarar eftirsóknar- verðir og þegar verk eftir þá hafa verið boöin upp hjá Rasmussen aö undan- förnu hafa þau selst fyrir himinhátt verö og kaupendumir hafa aöallega veriö Bandaríkjamenn. Verk eftir þessa menn, sem ekki alls fyrir löngu voru seld á 350 til 750 þúsund, eru nú seld á 7 og allt upp í 10 milljónir. Engin verk eftir þessa Skagamálara voru hins vegar boðin upp aö þessu sinni. En íslensku málverkin voru hins vegar áberandi. Þaö voru þó ekki Ameríkanar sem áhuga höföu á dýr- gripunum heldur björgunarsveit frá Islandi og var þar einn maður fremst- ur í flokki, Guðmundur Axelsson í Klausturhólum. Myndir Kjarvals, sem í uppboös- skránni voru metnar á 60 til 480 þúsund Tvær Errómyndir voru i boði og höfðu ísiendingarnir ekki áhuga á þeim og se/dust þær undir matsverði. D V-myndir Nanna Buchert krónur, voru seldar á 600 til 680 þúsund og keypti Guðmundur þær allar. Hann eignaöist líka flest hin íslensku málverkin, þar á meöal Þingvalla- mynd eftir Jón Stefánsson, sem hann borgaöi 270 þúsund krónur fyrir, en myndin sú var metin á 100 þúsund krónur af uppboðshöldurunum. Þetta er nokkuð hærra verö en al- mennt þekkist á íslenska markaönum og er líklegt að margir vilji nú fá meira fyrir Kjarvalinn sinn ef fram heldur semhorfir. örn Jónsson. „Sárt að sjá af kjötskrokkunum” Hversu mörg tonn af óunnu kjöti eru flutt frá Ámes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslum til vinnslu í Reykjavík. Þetta er önnur tveggja spuminga sem Margrét Frímannsdótt- ir, þingmaöur Alþýðubandalags, hefur lagt fyrir landbúnaðarráðherra, Jón Helgason, á Alþingi. Hin spumingin er um hvort ráðuneytið hafi einhverjar áætlanir um að stuðla aö frekari full- vinnslu þessara afuröa i viökomandi héruðum eða hvort færa eigi úrvinnslu landbúnaöarafuröa í auknum mæli út til framleiðslusvæðanna. Á þriðjudögum er fyrirspumum, sem borist hafa, svaraö á þingfundi í sameinuöu þingi. I fyrirspumatíma í fyrradag gerði Guömundur J. Guö- mundsson, þingmaður Alþýöubanda- lags, athugasemd við þingsköp. Sagði hann aö þriöji þriðjudagurinn ætlaöi að líöa áður en landbúnaðarráðherra svaraöi áöurgreindum spurningum. Kvaö hann ráöherra sýna óvirðingu meö því aö færast undan því aö svara einföldum spurningum. Jón Helgason landbúnaöarráöherra sagöi aö ekki lægju fyrir hversu mörg tonn af óunnu kjöti væru flutt frá viðkomandi héraðum. Hann hefði þegar sent bréf til sláturhúsa í héruöunum en svör ekki borist enn. Tölur þessar sagöi hann aö væri flestum ljóst að lægju ekki í land- búnaöarráöuneytinu. Honum væri ekki fært aö svara fy rir- spumum þingmannsins fyrr en upplýsingar lægju fyrir. Fyrirspum Margrétar Frímanns- dóttur er m.a. borin upp vegna viðvar- andi atvinnuleysis á Selfossi. „Það er sárt aö sjá af atvinnunni með flutningi kjötskrokka úr héraöi til Reykja- víkur,” eins og þingmaöurinn komst að orði. -ÞG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.