Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Qupperneq 44
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
síma 68-78-58. Fyrir
SIMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krénur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FOSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984.
Allt innan-
landsflug
flutt til
Keflavíkur
Starfsmenn Flugleiöa voru i
morgun í óöa önn aö undirbúa flutning
á öllu innanlaridsflugi félagsins frá
Reykjavík til Kefla víkurflugvallar.
Stóö vindur illa á brautir í Reykja-
víkurflugvelli í morgun og ekki
reiknaðmeö breytingu þar á í dag. Var
þvi ákveöið aö flytja allt innanlands-
flugiö suöur á Kefla víkurflugvöll.
Eiga yfir 1500 manns pantað far
meö vélum félagsins. Flugiö í gær gekk
nokkuð vel miðaö viö aðstæöur. Þó
þui'fti þotu félagsins til aö fljúga meö
farþega til Akureyrar í gærkvöldi.
Kom hún til baka þaðan um klukkan
þrjúínótt. -klp-
Nýrseðlabanka-
stjóri umáramót
Bankamálaráöherra, Matthias A.
Mathiesen, boösendi Seölabanka ís-
lands boö í gær. I bréfinu bað hann
stjórn bankans um aö tilnefna nýjan
barikastjóra í staö Guðmundar Hjart-
arsonar seðlabankastjóra sem lætur af
störfum nú um áramót. Stjórn Seðla-
bankans heldur fund klukkan fjögur í
dag og má vænta svars viö bréfi ráö-
herrans aö þeim fundi loknum.
Tómas Arnason alþingismaður hefur
sagt starfi sínu sem forstjóri Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins lausu. Hann
hefur veriö nefndur sem eftirmaöur
Guömundar Hjartarsonar í stól seöla-
bankastjóra.
En í stól Tómasar hefur stjórn
Framkvæmdastofnunar lagt til aö setj-
ist Gunnlaugur M. Sigmundsson, deild-
arstjóri í fjármálaráöuneytinu. -ÞG
Leiðindaveður
a morgun
— síðan batnandi
Lægö riálgast riú landið og veldur' aö
illum líkindum leiöúrdaveöri á morg-
in. Eitthvaö hlánar en aö sögn veöur-
ræöinga ekki nóg til aö snjó taki upp.
i sunnudag og mánudag er búist við
loröanátt með éljum á Noröurlandi en
ijartara á Suöurlandi. -EIR.
LOKI
Nú fara Hafnfirðingar að
fylla skottin af saiti.
Hálka og snjór á götum í morgun:
Samfelld bfla-
röð úr Kópavogi
í Haf narfjörð
Margir bílaeigendur á höfuö-
borgarsvæðinu áttu í erfiðleikum
meö að komast leiðar sinnar í
morgun. Snjóaö haföi nokkuð í gær-
kvöldi og nótt og var þæfingsfærð á
vegum, sérstaklega í úthverfum.
Snjóruðningstækjum var óspart
beitt á vegum en eins og venjulega
þannig aö snjónum var rutt upp að
bílum sem eigendur höfðu lagt viö
hús sín í gærkvöldi. Þurftu margir að
taka fram skófhirnar til að moka
ruðninginn frá í morgun og hefur
sjálfsagt þá víöa verið bölvaö í hijóði
ogupphátt.
Ekki hefur tónninn veriö mikið
betri í ökumönnum sem voru aö
koma úr Garðabæ eða sunnar á leiö
til Reykjavíkur. Saltburður í Kópa-
vogsbrekkuna fórst eitthvað fyrir
því hún var eitt glersvell. Var sam-
felld bílaröð af Kópavogshálsi og
suður í Hafnarfjörð aö sögn lögregl-
unnar um klukkan átta í morgun. -klp-
TRÖLL STiÓRNAR UMFERD
Hafnfirðingar og Garðbæingar áttu í erfiðleikum með að komast til Reykjavikur i morgun. Birtist þá allt í
einu tröll eitt mikið í fylgd jólasveins og tók ásamt honum að sér umferðarstjórn með litlum árangri þvi
snjórinn hlýddi ekki tröllinu. Hér var á ferð aðalhetjan i bók Brians Pilkingtons og átti hann heiðurinn af
gervinu en bar enga ábyrgð á ófærðinni. -EIR/DV-mynd KAE.
Salernastríð
í háloftunum
,,Ég tel þaö varða við landslög að
meina fólki að ganga örna sinna í há-
loftunum,” sagði farþegi er var á
leið frá London til Keflavíkur með
Flugleiðaþotu fyrir nokkrum dögum.
Maðurinn ferðaðist á ööru farrými
og lenti í vandræðum er honum varð
brátt í brók þar sem 15 manna biöröð
var fyrir framan þau tvö salerni sem
farþegum annars farrýmis eru
ætluð. Greip hann þá til þess ráðs að
ráðast fram í flugvélina þar sem
fyrsta farrýmis farþegar sitja og
hafa sitt einkasalemi.
„Það var engin biðröð en mér aftur
á móti tjáð að ekki væri til þess
ætlast að ég færi þar inn. Eg lét ekki
bjóða mér þessa þjónustu og fór
mínu fram þrátt fyrir áköf mótmæli.
Ekki kom til handalögmála,” sagði
farþeginn.
Aö sögn Olafs Briem hjá Flug-
leiðum er ekki ætlast til þess að
salerni á .jSaga-class” sé notað af
farþegum á ööru farrými nema
nauðsyn beri til. Farþegar á fyrsta
farrými mega aftur á móti fara allra
sinna ferða á öðru farrými og eru
salemin þá meðtalin. -EIR.
Albert örlátur:
Tvær og hálf
milljón til
hjálparstarfs
I lok umræöna um f járlög á Alþingi í
gærkvöldi tók Albert Guömundsson
fjármálaráðherra til máls. Hann til-
kynnti þar aö hann mundi gefa út
aukafjárveitingu til hjálparstarfsins í
Eþíópíu.
„Aö beiöni formanna þingflokkanna
ætla ég aö gefa út aukafjárveitingu
fyrir tveimur og hálfri milljón króna til
hjálparstarfsins í Eþíópíu,” sagöi fjár-
málaráöherra.
Ríkisstjórnin hafði áöur ákveöiö aö
veröa við beiðni Rauöa kross Islands
fyrir skömmu um tvö hundruð þúsund
króna framlag til hjálparstarfsins.
-ÞG.
Vaxtabreyting
um áramótin:
Vextir af
sparifé
hækkaum7%
Ríkisstjórnin samþykkti í gær
tillögur Seölabankans um vaxta-
breytingar sem taka munu gildi 1.
janúar næstkomandi.
Vextir af óverötryggöum útlánum
munu þá lækka um 3% og veröa 4% af
lánum allt aö 2 1/2 ári og 5% af lengri
lánum. Vextir af almennu sparifé
hækka um 7% og munu sparisjóös-
bækur þá bera 24% vexti. Vextir af
ógengistryggöum afuröalánum hækka
úr 18% í 24% og tekið veröur upp breytt
fyrirkomulag dráttarvaxta þannig aö
þeir veröa hér eftir 5% hærri en
skuldabréfavextir bankanna. Veröa
dráttarvextir framvegis reiknaðir sem
dagvextir og veröur heimilt að færa þá
mánaðarlega í staö þess að teknir séu
dráttarvextir heils mánaöar fyrir brot
úr mánuöi.
Seðlabankinn mun á nýju ári gefa
út viðmiðunarvexti fyrir almenn
skuldabréf sem gefin voru út fyrir 11.
ágúst siðastliöinn sem fylgja munu
meöalvöxtum nýrra skuldabréfa.
Innlánsstofnanir ákveöa aöra vexti.
-ÓEF.
Bankarnir opnir
— „Ríkið” lokað
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
\*
i
f
p
Áfengisútsölur verða lokaöar á
aöfangadag en bankar aftur á móti
opnir. Þó munu landsmenn hafa mögu-
leika á aö verða sér úti um jólavíniö
fram eftir degi í dag því „Ríkið”
veröur opiö til klukkan 20.30 í kvöld.
Lokaö veröur á laugardag svo og
aðfangadag.
Ymsir bankar hafa opið á laugardag
frá klukkan 22.00—00.30 og er sú
þjónusta fyrst og fremst hugsuö fyrir
kaupmenn og aöra sem þurfa aö leggja
inn stórfúlgur eöa fá skiptimynt. Aftur
á móti veröur ekki hægt aö greiða af
skuldabréfum eöa fara fram á aöra
þjónustu bankanna á þessum tíma.
-EIR.
t
i
i
Dag að lengja
Vetrarsólstööur eru í dag, 21. desem-
ber. Þetta er sá dagur ársins sem sól
er lægst á lofti. Nú fer daginn aö lengja
á ný meö hækkandi sól.
I morgun varð ekki bjart fyrr en
klukkan rúmlega tíu. Myrkur veröur
skolliö á fyrir klukkan fimm síðdegis.
-KMU.
I