Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Page 5
DV. FÖSTUDAGUR 25. JANUAR1985. 5 Framkvæmdir Landsvirkjunar 1985: Samdráttur um 250 milljónir — hugsanlegt að Blönduvirkjun verði frestað Landsvirkjun mun minnka fram- kvæmdir og rannsóknir á þessu ári þar sem endurskoðuð orkuspá gerir ráð fyrir minni orkuþörf en áöur var áætlað. Mun variö 250 milljónum króna minna til framkvæmda en áætlaö var, eða 950 milljónum í stað 1200 milljóna sem gert var ráð fyrir í áætlun fyrirtækisins í desember. Orkuspáin er nú í endurskoðun sem á að Ijúka fyrir voriö. Framreikningur orkuspárinnar bendir hins vegar til þess að umframorkan á landskerfinu geti numiö 450 gígavattstundum á þessu ári. Það er 200 gígavattstundum meira en sem nemur eðlilegri for- gangsorku til aö mæta vatnsskorti þegar illa árar. í ljósi þessa ákvað stjóm Landsvirkjunar á fundi sínum í gær að minnka framkvæmdir á árinu. I tilkynningu frá Landsvirkjun segir: „Miðað viö hinn nýja fram- reikning orkuspárinnar og óbreytta kröfu um afhendingaröryggið virðist mega fresta bæði 5. áfanga Kvísla- veitu um óákveðinn tíma og Blöndu- virkjun um eitt ár, ef ekki þyrfti að gera ráð fyrir nýjum orkufrekum iönaði veturinn 1988—89. Meö hlið- sjón af þessu samþykkti stjórn Landsvirkjunar á fundi sínum í dag að fella niður þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar hafa veriö á þessu ári við 5. áfanga Kvíslaveitu og Þórisvatnsstíflur. Þar sem endur- skoðun orku orkuspárinnar er enn ekki tokið telur stjómin hinsvegar ekki ráðlegt að fresta Blönduvirkjun að svó stöddu, auk þess sem hún telur mikilvægt að Landsvirkjun verði enn um sinn í aðstööu til að sjá orkufrekum iönaði fyrir verulegri orku á næstu árum. Mun stjórnin taka tímasetningu Blönduvirkjunar til frekari athugunar þegar ný orku- spá liggur endanlega fyrir í vor og horfur í stóriðjumálum hafa skýrst. Komi þá ekki til neinnar verulegrar hækkunar á orkuspánni að teknu til- liti til stóriöjumöguleika í náinni framtíð kemur mjög til álita að fresta fyrstu vél Blönduvirkjunar til 1989 eða jafnvellengur.” ÓEF REYKLAUS BEKKUR Reykingamenn eiga mjög i vök aö verjast um þessar mundir. Svokallað reykleysi þykir hin mesta dyggö meðan reykingamönnum er gnrt lífið leitt 6 alla lund. Nýlega heiðraði Krabbameinsfélag Reykjavikur S. bekk í Menntaskólanum i Reykjavik i tilafni af þvi að bekkurinn tr nú sannan- lega reyklaus. Þorvarður Örnólfsson hjá Krabbameinsfélaginu afhenti Sigurjóni Ámasyni, umsjónarmanni bekkjarins, heiðursskjal fyrir afrekið. DV-mynd KAE. Álagagil í Refasveit? Frá Birgi Árnasyni Skagaströnd: Það fer að verða betra fyrir öku- menn að fara varlega þegar þeir koma að Laxárbrú í Refasveit. Á sunnudagskvöldið lagði ungur maður af stað frá Skagaströnd og var ferðinni heitið til Sauðárkróks. Þegar hann kom að Laxárbrú hrökk annað framhjólið undan bílnum meö þeim afleiðingum að hann valt og rann þversum langt inn á brúna. Ökumanninn sakaði ekki en bíliinn er mikið skemmdur. Þetta mun hafa verið á sama stað og Sigurði Daníelssyni tónlistarkennara hlekktist á er hann rann ofan í giliö á sínum bil rétt fyrir jólin. -EH. Formadur Foreldra- og kennaraf élags Vesturbæjarskóla: Gagnslitlar hraðahindranir „Við erum mjög óánægð með hraða- hindranirnar eins og þær eru. Þær hægja að vísu á stærri bílunum. Hinir minni aka hins vegar á fullri ferö um Vesturgötuna, sumir meira aö segja flautandi,” sagði Magnús Skúlason, formaður Foreldra- og kennarafélags Vesturbæjarskóla. Ofannefnt félag, svo og íbúasamtök vesturbæjar höföu í mörg ár barist fyr- ir því aö hægt yrði á umferðinni um Vesturgötu með einhverjum ráðum. Niðurstööur uröu þær aö hámarks- hraði var minnkaður niður í 30 km. Einnig var umdeildum hraðahindrun- um komið fyrir í götunni. Magnús sagði aö markmiðið með þessari málaleitan íbúanna í vestur- bænum hefði verið að tryggja bömum öruggar leiðir í skólann. ,,En þaö hefur ekki gengið sem skyldi,” sagði Magn- ús. „Bílstjórar virða ekki mörkin um hámarkshraöa. Þrengingar hægja ekkert á minni bílunum. Við erum þvi mjög óánægð með þær. Og nú hafa vagnstjórar SVR tekið málin í sínar hendur. Ibúar hér vita ekki með vissu hvaða götur leið 2 ekur nú. Svo þetta er hálfgert ófremdarástand.” Sagði Magnús að frá því fyrsta hefðu verið uppi hugmyndir um að setja bungur á götuna og hægja þannig á umferðinni. SVR hefði eindregiö lagst gegn þeim hugmyndum. Nú myndu forsvarsmenn Foreldra- og kennarafé- lagsins, svo og íbúasamtakanna, ræða við viðkomandi aðila og freista þess að sætta sjónarmið í málinu. -JSS 169000 EF ÞETTA ERU EKKI EFNAHACSRAÐSTAFANIR. JÖFUR HF .ÞA HVAÐ? NYBYLAVEGI2 KÓPAVOGI SÍMI 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.