Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Qupperneq 4
4
DV. MÁNUDAGUR1. APRlL 1985.
Eskfirðingar og Héraðsbúar björguðu manninum í Kverkfjöllum:
„ÞEIR FISKUÐU HANN
UPP ÚR SPRUNGUNNI”
„Þetta var eins einfalt og þaö gat sprungunni, létu spotta síga niöur til um sig og svo var híft,” sagöi Páll inni, einn þeirra er stjómuöu
orðið. Þeir fiskuöu manninn upp úr hans sem maðurínn batt sjálfur utan Steinþórsson hjá Flugbjörgunarsveit- björgunaraögerðum á Vatnajökli um
Þyrluflugmann Landhelgisgæslunnar á Reykjavikurflugvelli i gærdag. Til vinstri aru leitarmenn úr Hjálparsveit skáta og Flugbjörgunarsveitinni en
þeir höfðu veriö að störfum í allt að tvo sólarhringa. DV-mynd S.
Vamarliðsmenn í hrakningum
Björgunarmennirnir á Vatnajökli
biðu á jöklinum aöfaranótt sunnudags
þar til ljóst var að varnarliðs-
mönnunum, sem þar voru í vegvillum,
haföi verið bjargað.
Tveir vamarliðsmenn sigu niður á
jökulinn úr herþyrlu nóttina áður og
hugðust taka þátt í björguninni. Voru
þeir settir niður 7 mílur frá slysstað.
En þeir komust ekki langt
Afspymurok hefti för þeirra og svo fór
aö lokum að þeir villtust.
Aö sögn íslenskra björgunarmanna
vom vamarliðsmennirnir ekki vel'
búnir til þessarar ferðar, höfðu
meðferðis allt of mikinn farangur og
gengu svo á þrúgum. Færi til slíks mun
ekki vera gott á jöklinum.
Um hádegisbilið í gær hóf SIF, þyrla
Landhelgisgæslunnar, sig á loft og stóð
til að ná í mennina. Þá var þyrla frá
Varnarliðinu einnig lögð af stað, tók
hún mennina upp og flaug með þá til
Keflavíkurflugvallar. -EIR.
helgina.
Það voru þrír Eskfirðingar og 2 Hér-
aðsbúar er fyrstir komu að sprungunni
í Kverkfjöllum á Vatnajökli þar sem
akureyrskur flugbjörgunarmaður
hímdi 15 metra niðri í jökulsprungu. Á
barminum biðu félagar hans tveir og
höfðu beðið hjálpar í rúman sólar-
hring.
„Það liðu aðeins 20 mínútur frá því
að aðstoð barst þar til maöurinn var
kominn upp úr sprungunni,” sagði Páll
Steinþórsson. „Fimmmenningamir að
austan komu að sprungunni nákvæm-
lega klukkan 21.36 í gærkvöldi, fiskuðu
manninn upp og allir voru þeir komnir
iiiður af jöklinum rúmlega hálftíu í
morgun. Mér skilst að þeir hafi komið
niðurviðSnæfell.”
Mikill viðbúnaður var vegna
björgunarínnar alla helgina. Að
norðan komu Akureyringar, Mý-
vetningar og björgunarmenn f rá Húsa-
vík. Sunnan úr Reykjavík hélt rúmlega
60 manna hópur og auk þess tóku þyrla
Landhelgisgæslunnar, flugvél Flug-
málastjórnar og Herkúlesvél frá
Vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli
þáttíaðgerðum.
„Þegar Eskfirðingarnir og Héraðs-
búamir komu á vettvang áttu björgun-
armennimir úr Reykjavík aðeins 3
kílómetra ófarna að sprungunni.
Þarna uppi var ansi napurt, 20 stiga
gaddur og skafrenningur gerði
mönnum erfitt fyrir. Kom snjóbíll
austanmanna sér vel þama, enda mun
hann vera sá besti og fullkomnasti á
landinu,” sagði Páll Steinþórsson.
Akureyringarnir, sem bjargaö var,
eru allir við góða heilsu, enda þaul-
vanir fjallamenn og vel búnir. Voru
þeir í æfingagöngu á jöklinum, höfðu
lagt af stað á sunnudaginn í síðustu
viku frá Esjuf jöllum og hugðust ganga
yfir jökulinn þveran.
„Það er mikið af sprungum í jöklin-
um núna vegna þess hve lítið hefur
snjóað þarna í vetur,” sagði Páll
Steinþórsson.
-EIR.
í dag mælir Dagfari
j dag mælir Pagfari
I dag mælir Dagfari
Pólitísk aprílgöbb
Þjóðin hefur haft það fyrir sið að
hiaupa april fyrsta dag þess
mánaðar og hefur það oftast verið
saklaust gaman og græskulaust.
Verður vonandi margur maðurinn
gabbaður upp úr skónum á þessum
drottings degi, sér og öðrum til
skemmtunar.
Hins vegar verður að segja það
eins og er að stjórnmálafiokkarnir
sýnast hafa tekið f orskot á sæluna og
em undir það búnir að hlaupa sjálfir
apríl.
Sjálfstæöisflokkurinn efnir til
stærsta aprílgabbsins. Flokkurinn
efnir til landsfundar í aprilmánuði.
Ef að líkum lætur munu rúmlega
eitt þúsund flokksmenn hvaðanæva
af landinu hópast saman í Reykjavík
í þeirri trú að þar muni eitthvað
gerast. Það verður dýrðleg stund
þegar allur sá hópur uppgötvar að
flokkurinn þeirra er í nýju fötum
keistarans. Það verður stærsta apríl-
gabbið í ár.
Alþýðubandalagiö efnir lika til
aprílgabbs. Flokkurinn ætlar að
sækja um aðild að alþjóðasambandii
jafnaðarmanna. Nú er sem sé
meiningin að hafa alla þjóðina að
fífli með því að telja henni trú um að
íslenskir kommúnistar séu orðn-
ir alþjóðlegir jafnaðarmenn. Alþýðu-
bandalagið hefur sér það til
afsökunar að það hefur áður brugðið
yfir sig sauðargærum og komist upp
með það. Fyrst var Kommúnista-
flokknum breytt í Sameiningarflokk
alþýðu-Sósíalistafiokkinn og síðar í
Alþýöubandalagið, hvort tveggja í
þeim tilgangi að sigla undir fölsku
flaggi og gabba kjósendur til
fylgilags. Nú á sem sagt að taka
eina dýfuna enn og stimpla það inn
að hér sé ekki lengur kommúnista-
flokkur á ferðinni heldur saklaus
krataflokkur. Þessu aprílgabbi hefur
verið fylgt eftir með því að tilkynna
opinberlega að marxisk-leninisk
byltingarsamtök hafi lagt sig niður.
Er þaö liður í því að afmá komma-
stimpilinn af vinstri fylkingunni og
hlýtur brátt að koma að því að
Alþýðubandalagið gangi í heilu lagi í
Alþýðuflokkinn. Það aprílgabb bíður
næsta árs.
Framsóknarflokkurinn hefur
einnig efnt til aprílgabbs. Æðsta
ráðið í flokknum hefur ályktað að
Framsóknarflokkurinn ætli sér að
sitja sem fastast í ríkisstjórninní og
sé ánægður með sinn hlut í stjórnar-
samstarfinu.
Þetta er óskaplega sniðugt april-
gabb og þá fyrst og fremst vegna
þess að með því tekst nokkrum hópi
manna, sem kalla sig Framsóknar-
flokk, að sitja við stjórnvölinn í
landinu, löngu eftir að þennan flokk
hefur dagað uppi. Skoðanakannanir
benda til þess að kjósendur Fram-
sóknarflokksins séu innan við 6% á
höfuðborgarsvæðinu en eitthvað
meira í kjördæmum þar sem eitt
atkvæði á móti fjðrum dugar til að
koma manni á þing. Flokkurinn er
nánast dáinn út, nema ef vera
skyldi þingmennirnir sjálfir, ráö-
herrarnir og nánustu ættingjar
þeirra.
Þetta aprílgabb Framsóknar-
flokksins mun þess vegna geta staðið
látlaust næstu tvö árin og má það
teljast einsdæmi í lýðræðisríki að
andvana flokkar stjórni í mörg ár
eftir dauða sinn.
Af Kvennalistanum er það að segja
að fylgi hans virðist nokkuð stöðugt
og er það óneitanlega vel heppnaö
aprílgabb. Bandalag jafnaöarmanna
hefur komist upp með þaö aprílgabb
að kalla sig jafnaðarmenn, þótt eng-
um detti í hug, allra síst þeim sjálf-
um, að þeir séu jafnaðarmenn. Ekki
hefur þeim flokki til að mynda dottið
í hug að sækja um aðild að alþjóöa-
sambandi jafnaðarmanna, sjálfsagt
vegna þess að menn vita sem er að
aprílgöbbin eru íslensk fyrirbæri
sem ekki er tekið mark á í útlöndum.
Aprílgabb Flokks mannsins er í því
fólgið að segjast vera til, þótt flokk-
urinn sé ekki til. Af þessari upptaln-
ingu sést aö pólitísk aprílgöbb eru
vinsæl á Islandi. Og vel heppnuð ef
marka má ástandið. Dagfari.