Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Side 8
8 DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985. Carríllo sparkað Kommúnistaflokkurinn á Spáni rak í gær fyrrverandi flokksleiötog- ann Santiago Carrillo sem tals- mann þingflokks flokksins. Miö- nefndin ákvaö þetta á fundi sínum sem Carrillo sniögekk. Fundurinn átti upphaflega aö vera til aö bera smyrsl á sárin, en mikiö rifrildi hefur veriö á milli Carrillo og flokksleiötogans Gerardo Iglesias. Carrillo hefur gagnrýnt mjög þá ákvörðun flokksins aö sækjast eftir aö mynda bandalag meö öörum vinstriflokkum, græningjum og friöarsinnum. Carrillo, sem er 70 ára gamall, hefur hvatt kommúnista allra flokka til aö ganga í lið meö Komm- únistaflokknum. Vessey hittir Ceausescu Yfirmaöur bandaríska herráös- ins hitti að máli forseta Rúmeníu, Nicolae Ceausescu, á laugardag. Ekki er vitað nákvæmlega hvaö þeim fór á milli eöa hvers vegna John Vessey, sem er hershöföingi, þurfti að hitta Rúmeníuforseta. Mjög sjaldgæft er aö bandarískir hermenn hitti þannig þjóðhöföingja sósíalista la ndanna. I tilkynningu sem gefin var út eftir fundinn í Búkarest kom lítiö í ljós. Þýskættaðir viljahurt Hópur 19 fjölskyldna af þýskum ættum stóö i mótmælagöngum í Moskvu um helgina fyrir framan hús Kommúnistaflokksins. Fjöl- skyldurnar kröföust þess aö fá aö flytja til Þýskalands. Fjölskyldurnar hafa reynt aö fá að flytja úr landi í 12 ár, en ekki tekist. Þær ætluöu aö ganga frá flokksskrifstofunum aö húsi borg- arráðsins en lögregla tvístraði þeim. Talsmaöur þeirra sagöi að fólkið myndi halda áfram mót- mælagöngum sínum í hverri viku þangaö til gengiö yröi aö kröfum þess. Kennedy langarí forsetastólinn Kennedy gaf í skyn við blaöiö Globe í Boston aö hann kynni aö bjóöa sig fram til forseta á ný áriö 1988. En hann sagðist ekki vilja tala um það vegna þess aö fólk væri orðið þrey tt á forsetakosningum. Hann sagöi þó aö hann langaði enn að veröa forseti og aö þaö sem áöur hindraði hann geröi þaö ekki nú. Fjölskylduvandamál væru úr sögunni og börnin hans væru komin áfuliorðinsaldur. Kennedy er yngri bróöir John F. Kennedy, fyrrverandi forseta og Robert Kennedy, en þeir voru báöir vegnir. Ofunglegur Breskur kaupsýslumaöur sem er aúsettur í Líbanon, Brian Levick, >agði fréttamönnum í gær frá veru iinni í fangageymslu hryöjuverka- iamtaka sem rændu honum og iélduíl5daga. Levick sagöi aö hryöjuverka- mennimir, sem líklega voru öfga- ;rúaðir múslimar, heföu talið hann /era njósnara. „Þetta hljómar skonduglega eft- ir á en þeir höföu miklar áhyggjur af þvi aö þeir voru fullvissir um að ég væri ekki nema 40 eöa 45 ára. Eg irerð í raun 59 ára í maí,” sagöi hann. Hann sagöi að þeir hefðu samt farið vel með hann, og gefið honum Eyrir leigubíl eftir að þeir slepptu honum nálægt heimili hans. DANIR ÆTLAIOLOG- LEGT VERKFALL í DAG Kristján Ari Arason, fréttaritari DV í Kaupmannahöfn: A laugardagskvöld gengu í gildi lög er stöðva vinnudeilur þær sem ríkja í Danmörku. Lög þessi mættu haröri andstöðu hjá stjórnarandstööunni. Gagnrýndi hún afskipti ríkisstjórn- arinnar af almennum kjarasamning- um og einnig hve litiö væri komið til móts viö kröf ur verkalýðsfélaganna. Forustumenn ríkisstjórnarinnar andmæltu þessu og sögöu aö þjóöar- búiö heföi ekki efni á neinni umtals- veröri hækkun launa né styttingu vinnuvikunnar. Um afskipti rikis- stjómarinnar af kjarasamningum sagöi Paul Schliiter forsætisráðherra að sá tími væri liöinn aö kjara- samningar ættu sér staö án afskipta ríkisvaldsins. Þetta væri staðreynd sem menn þyrftu aö kyngja. Þó lögin hafi þegar tekið gildi er búist viö aö einhver tími líði þar til friöur ríkir hér á ný á vinnumarkaöin- um. Margir verkalýösfuUtrúar hafa skoraö á verkafólk aö mæta ekki til vinnu og mótmæla þannig afskiptum ríkisstjórnarinnar. Póstútburðarmenn í Kaupmannahöfn munu þannig ekki mæta til starfa heldur halda áfram í verkfalli. Enn er óvíst hve víötæk verkföllin verða. Búast má viö aö þau veröi nokkuöalmenn. Á föstudaginn voru haldnir fjöl- mennustu mótmælafundir í sögu Danmerkur. Viö þinghúsiö í Kaupmannahöfn söfnuöust t.d. 125 þúsund manns. Mikil samstaða ríkti á þessum fundum og á máli manna mátti skilja aö verkfallinu yrði haldiö áfram; verkfallsrétturinnværiíhúfi. Vegna óvissunnar um áframhald verkfallanna hefur lögreglan aukið viöbúnaö sinn til muna. I Kaup- mannahöfn voru lögreglumenn kall- aöir úr fríum. Gert er ráð fyrir aö lög- reglan reyni að brjóta allar tilraunir til verkfallsaögeröa á bak aftur. Að öllum Ukindum færist aukin harka í verkföUin hér í Danmörku. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gyðingastaðir í Paris eru sprengdir. Þaö gerðist líka í ágúst 1982. Leiðtogi kenn- ara drepinn Lík þriggja manna, sem rænt var á fimmtudag og föstudag, fundust skorrn á háls þar sem þeim haföi veriö varpaö í skurð í útjaöri Santiago í ChUe. — Einn mannanna var leiðtogi kennara- samtaka landsins og annar var félagi í mannréttindasamtökum á vegum kirkjunnar. Kennaranum og kirkjumanninum hafði veriö rænt á föstudagsmorgni af vopnuöum mönnum, óeinkennisklædd- um, þar sem þeir voru á gangi fyrir utan skóla kennaraleiðtogans. — Einn starfsbróðir hans Uggur á sjúkrahúsi, skotinn í kviðinn þegar hann reyndi aö koma til hjálpar. Á fimmtudagskvöld haföi verið ráöist inn á skrifstofur kennara- samtakanna og fjórir starfsmenn þeirra numdir á brott. Þeim var sleppt í gær. Sögðust þeir hafa sætt barsmíð og yfirheyrslum. Lík þremenninganna báru þaö með sér aö þeir höföu sætt misþyrmingum. Fimm aörir voru drepnir í vikunni sem leiö í höfuðborginni. Frakkland: Sprengtíbíói gyðinga Frá Friöriki Rafnssyni, fréttaritara DVíParis: Sprengja sprakk í kvikmyndahúsi í miöborg Parísar síðastUöið föstudags- kvöld. Um 50 manns voru staddir í salnum og hlutu 18 þeirra meiðsli, þar af þrir alvarleg. Kvikmyndahúsiö sem hér um ræðir er í eigu gyðinga og þar stóö einmitt yfir hátíö tUeinkuö kvik- myndagerðarmönnum af gyðinga- ættum. Því er ljóst aö tilræði þetta á rætur sínar í kynþáttahatri. I gær, sunnudag, söfnuðust um 10.000 manns saman fyr- ir framan kvikmyndahúsið til aö mót- mæla tilræöinu, sem enn einni vísbend- ingu um vaxandi kynþáttahatur í þessu landi. Á laugardagskvöldið viöurkenndu skæruUöasamtökin „Shia Islami” í Beirút verknaöinn en lögreglan tekur ekki mikið mark á því sem stendur. Grikkland: Ihaldsmenn viðurkenna ekki nýja forsetann Stjórnarskrár- kreppa í íandinu Ihaldsmenn í Grikklandi neita að viöurkenna aö Christos Sartzetakis hafi réttilega verið kjörinn forseti landsins. Þeir héldu sig í burtu frá for- setahöHinni þegar hinn nýkjömi for- seti heilsaði upp á þingmenn og erlenda fuUtrúa. Sartzetakis var kosinn forseti með 180 atkvæðum, en það er nákvæmlega lágmarkiö sem hann varö aö fá í þriöju umferð kosninganna samkvæmt stjórnarskránni. En Nýi lýöræðis- flokkurinn, sem studdi Karamanlis, fyrrverandi forseta, heldur því fram aö atkvæðagreiðslan hafi verið ólögleg. Menn hans segja að þingfor- setinn Ioannis Alevras, sem greiddi atkvæðiö sein kom Sartzetakis í for- setastóUnn, hafi ekki átt atkvæðisrétt vegna þess að hann hafi gegnt embætti forseta eftir aö Karamanlis sagöi af sér. Leiðtogi Nýja. lýðræðisflokksins, Konstantín Mitsotakis, er þriöji æðsti maöur ríkisms, samkvæmt stjórnar- skránni. Þaö aö hann viöurkennir ekki forseta landsins orsakar alvarlega stjómarskrárkreppu í Grikklandi. Mitsotakis segir aö flokkur sinn muni þrýsta á aö málið veröi leyst á þann eina hátt sem rétt sé, að efnt verði til nýrra kosninga. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.