Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Blaðsíða 15
DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985.
15
Menning Menning Menning Menning
mmWi
Skipholti 7 - Simar 26800 og 20080 Rvík.
Hinn margrómaði Empire Brass Quintet.
Gömul
gleði-
tónlist
— á tónleikum
Musica antiqua á
Kjarvalsstöðum
íkvöld
Musica Antiqua heldur þriöju tón-
leikana á þessu starfsári aö Kjarvals-
stööum í kvöid kl. 21.00. Dagskráin í
kvöld er sú viöamesta sem télags-
skapurinn hefur boöið upp á til þessa.
AUs leika 17 manns á tónleikunum.
Flutt veröur söng- og hljóðfæratónlist
frá 16. og 17. öld en Musica Antiqua
stendur sem kunnugt er fyrir kynningu
á gamalli tónUst. Meöal höfunda sem
eiga verk á tónleikunum má nefna
Montiverdi, Gastoldi, Phalése og
Verdelot.
Á tónleikunum veröa sýndir dansar
frá þessum sama tíma. Gefst þarna
tækifæri til að sjá marga forna og
fræga dansa sem Ingibjörg Bjömsdótt-
irhefuræft.
Sumar-
bóka-
flóð?
Ut er komin hjá Máli og menningu ný
bamasaga, Elsku bam! eftir Andrés
Indriðason. Bókin er skreytt fjölda
mynda eftir Brian PUkinton.
Þetta er sjötta bókin sem Andrés
skrifar fyrir börn og unglinga. Áður
hefur hann skrifað skáldsögu handa
f uUorðnum og leikrit fyrir svið, útvarp
og sjónvarp. Af ungUngabókunum má
nefna Töff týpa á föstu sem út kom
fyrir síðustu jól.
Elsku barn! gerist á einu sumri í
Reykjavík. Sagan segir frá Olafíu, sjö
ára, sem eftir talsverða eftirgangs-
muni fær leyfi hjá sívinnandi foreldr-
um sínum til að fara í sirkus. Þar heiU-
ast hún af trúðnum Tobba sem eftir-
leiðis kemur í huga stelpunnar hvenær
sem hún hefur þörf fyrir hann. I þykj-
ustunni eiga þau saman ótal skemmti-
leg ævintýri.
Síðari hluti vetrar hefur ekki tU
þessa verið talinn hentugur tími tU '
bókaútgáfu. Meö því að gefa bókina út
á þessum tíma er það von útgefanda að
hægt verði að dreif a bókaútgáfu á fleiri
árstíma en veriö hefur. Vorið er sér-
staklega vaUð með það í huga að
endurvekja þann gamla sið að gefa
sumargjafir.
Heimsveldistónar
í Austurbæjarbíói annað kvöld
Hinn frægi Empire Brass Quintet
heldur tónleika í Austurbæjarbíói á
morgun kl. 21.00 á vegum TónUstarfé-
lagsins í Reykjavík.
Kvintettinn var stofnaður árið 1971
fyrir tilstiUi Leonards Bemstein
hljómsveitarstjóra. Á ferli sínum
hefur kvintettinn unniö sér frægð sem
einn hinn besti á sínu sviði í veröldinni
og hefur unnið til margra verölauna.
A efnisskránni á morgun eru verk
frá ýmsum tímum. Þau elstu eru frá
17. öld en þau yngstu eru fárra ára.
Á miðvikudagskvöldið heldur kvint-
ettinn aðra tónleika í sal Menntaskól-
ans við HamrahUð. Er efnisskrá þeirra
sérstaklega sniðin fyrir ungt fólk enda
tónleikamir haldnir í tilefni af ári æsk-
unnar og ári tónUstarinnar.
35MM. MYNDAVEL
FYRIRUOAR
5700,- KRONUR
Hvaða kröfur
þú til myndavéla? Vllt þú geta tekið
rjölbreyttar aðstæður, a einfaldan
it T2XP er 35 mm myndavél sem fullnægir kröfum
flestra. Þú hefur í þessari vél marga þá kosti
sem einkenna mun dýrari mvndavélar, —
en þó kostar þessi vél ekki nema 5.700 krónur.
Tæknileg atriði í stuttu máli:58 mm linsa
fylgir. Ijósop f/2 — f/16, fókus frá 0,5 m,
hraoi 1/30-1/500. Innbyggður LED
Ijósmælir, tímarofi, festing fyrir þrífót
og hlífðarkassi með ól fylgir.
Sendum í póstkröfu um allt land.
kaupin.