Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Síða 19
DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985. 19 Menning Menning Menning Menning Góðir tón- leikar í brunagaddi Tónlist EyjólfurMelsted Tónleikar Sinfónkihljómsveitar íslands f Hóskóla- bfói 28. mars. Stjórnandi: Arthur Weisberg. Einleikarar: Anna Málfríöur Sigurðardóttir og Bernharöur Wilkinson. Efnisskrá: Magnús Blöndal Jóhannsson: Atmos I; Bóla Bartók: Píanókonsert nr. 3, Paul Hindemith: Matthlas málari, sinfónía. Dálítiö er það misjafnt hvernig menn taka nýrri tækni og framförum í hljóðfæragerö. Tökum sem dæmi Mozart, hversu eldsnöggur hann var að átta sig á möguleikum og karakter Stein píanósins sem hann komst í kynni viö, fullskapað, árið 1777. Og hljóðfæri verða ekki smíðuð í eitt skipti fyrir öll. Með gluggann opinn upp á gátt t>að mega popparamir eiga aö þeir eru langtum fljótari en flestir aðrir músíkantar að taka nýjungar í brúk, þótt meðal þeirra ríki yfirleitt harðara músíkalskt afturhald en hjá nokkurri annarri grein músíkurinnar. En svo eru líka til menn eins og Magnús Blöndal Jóhannsson sem opna glugga sinn upp á gátt fyrir nýjungum — hleypa ferska loftinu inn. Og hjá Magnúsi Blöndal koma nýjungamar ekki í staðinn fyrir eins og hjá þeim sem trúa í blindni heldur hefur hann komist upp á lag með að aðlaga nýj- ungarnar því sem fyrir er. Hann sem- ur bullandi rómantískt verk fyrir hljóðgervil og hljómsveit í stereo. Ein- leiksflautan syngur fallega yfirrödd með hljómsveitinni meðan hljóðgervill- inn af segulbandi gefur effekt sem minnir á náttsöngva Astralíufrum- byggja. Ef þetta er ekki opinn hugur aiAum REYKJAVIK: AKUREYRI: BORGARNES: VÍÐIGERÐI V-HÚN.: BLÖNDUÓS: SAUÐÁRKRÓKUR: SIGLUFJÖRÐUR: HÚSAVÍK: EGILSTAÐIR: VOPNAFJÖRÐUR: SEYÐISFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: HÖFN HORNAFIRÐI: 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent Mikið úrval vinnupalla úti sem inni. c Leiga — sala. þá veit ég ekki hvað það er. Spila- mennskan var líka einstaklega ljúf, f rá frábærum flautuleiknum til hins vélræna undirtóns. Eftir rómantík Magnúsar Blöndals kom þriðji píanókonsert Béla Bartóks, eitt af hans alfallegustu verkum. Anna Málfríður lék af miklu öryggi. Hún spilaöi fyrsta kaflann, allegretto, frísk- lega, teygði mjög á adagio kaflanum og keyrði svo á fullu síðasta kaflann, allegro vivace. Hljómsveitin fylgdi henni vel eftir í sínum flóknu svörun- um og útkoman varð stórglæsilegur flutningur. Engin málamiðlun Matthias málari er líkast til það verka Hindemiths sem mestri almenn- ingshylli hefur náð og gildir þá einu hvort um er að ræða óperuna, eða sinfóniuna sem samin er upp úr forleik og millispilum og gjaman er litið á sem eins konar pólitíska málamiðlun. En ekki var samt að finna neinn mála- miðlunarbrag á flutningi sinfóníunnar undir stjórn Arthurs Weissberg. Þar var allt tekið föstum tökum. Og dæmiö gekk upp (utan smáósamræmis milli blásara og slagverks í þriöja kaflan- um). Arthur Weissberg er á sinn hátt svolítið þurr í stjórn sinni. En þaö er öllum hollt að starfa undir svo styrkri stjórn sem hann veitir. Um hæfni hans til að fá hvem mann til að gera sitt besta höfum við kannski gleggstu dæmin frá töfrastjórn hans á norrænu æskulýðshljómsveitinni, en það sýndi sig líka að þeim töfrum má einnig beita við sinfóníuhljómsveit skipaða at- vinnumönnum. Vonandi sjá allir þeir sem heima sátu og treystu sér ekki í brunagaddinum eftir að hafa ekki komið á svo ágæta tónleika. EM. KÍNVERSKT BLEK Á JAPÖNSKUM PAPPIR Sigrún Gudjónsdóttir segirfrá sýningu sinni íGallerí Langbrók Rúna, eða Sigrún Guðjónsdóttir eins og listakonan heitir fullu nafni, opnaöi sl. laugardag sýningu á teikn- ingum og akrílmyndum í Galleríi Langbrók við Amtmannsstíg. Á sýningunni eru m.a. myndir teiknaðar með kínversku bleki á japanskan pappír auk blýantsteikn- inga. „Eg komst yfir kinverska blekið á ferð þar eystra fyrir nokkru,” sagði Sigrún um þessar óvenjulegu teikn- ingar. „Kínverska blekiö er selt í föstu formi og verður að leysa það upp áður en það er notað. Þetta hefur þann kost að hægt er að ráða meiru en ella um þykkt þess og áferð. Myndirnar hér á sýningunni eru flestar unnar á þessu ári en nokkrar eru þó frá því fyrir jól. Undanfarin 2—3 ár hef ég lagt meiri áherslu á teikningar en ég gerði til skamms tíma. Áður gerði ég mikið af því að mála á postulín. Það byggist líka mikið á teikningu þannig að teikning- ar siðustu ára koma í beinu fram- haldi af því. Mér finnst afskaplega mikilvægt að breyta svolítiö til og skipta um efni. Að vísu er japanski pappírinn mjög efnismikill og því ekki svo ólíkur leirnum aö því leyti. Eg hugsa að ég sé nokkuð á sömu slóðum og áður þrátt fyrir áherslumun.” — Þú átt margar sýningar að baki, erþaðekki? „Jú, ég hef haldið nokkrar einka- sýningar og tekið þátt í allmörgum samsýningum bæði með manni mín- um og öðrum. Fyrir tveimur árum gekk ég í hópinn sem stendur að Galleríi Langbrók. Við erum nú 24 í þeim félagsskap. Húsnæðið sem við höfum við Amtmannsstíginn notum við bæði fyrir eigin sýningar og leigj- um það út. Þetta er ákaflega sam- stæður hópur þótt ólíkur sé. Þaö má segja að allar greinar myndlistar eigi þar fulltrúa. Salurinn við Amtmannsstíginn er lítill en þægi- legur. Það má segja um sýninguna núna aö þetta sé lítil sýning í litlum saL” — Þú selur þínar myndir, hvemig hefur gengið að selja? „Það gengur nú svona upp og ofan, en ég get ekki kvartað. Það er nú einu sinni þannig að litlar myndir seljast betur en stórar. Það er erfið- ara fyrir þá sem vinna stór verk að selja sitt. Ef til vill á það þó eftir að breytast á næstu árum. Fyrir þrem- ur árum var bundið í lög að verja skuli einu prósenti af byggingar- kostnaði opinberra bygginga til list- skreytinga. Áður átti þessi regla ein- ungis við um skólahús. Þessi regla gæti skapaö mikla möguleika fyrir höfunda stærri verka til að koma sinni vinnu á framfæri. Eg á sæti í stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins og er því með hugann við þetta. Um árangurinn skiptir miklu aö gott samstarf takist við arkitekta og að þeir hugsi fyrir því við hönnun bygg- inga að hægt verði að koma lista- verkumfyrir.” GK. Rúna, Sigrún Guðjónsdóttir, á vinnustofu sinni í Hafnarfirði. DV-mynd KAE. Bílaleiga C Reykjavík - Borgartúni 24 (horni Nóatúns) Sími 11015 Akureyri - Glerárgötu 34 (gegnt Lindu) Sími 96-24838 Sœkjum - sendum Aðeins að hringja Nýir og sparneytnir bílar LADA 15001600 STATION GCYS1R GTíSIR QfXSffi ‘Jvf fl IUZtVEL FOSSMALSI 27 - SlMI 687160 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.