Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Side 37
DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985. 37 fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Frank Stapleton skoraði sigurmark Manchester United gegn Liverpool í ÞrumusKalli fra Frank Stapleton — tryggði Manchester United dýrmætan sigur á Liverpool á Anfield Road ígærdag. United sigraði, 0:1 Margir aðdáendur Manchester United voru kátir í gær eftir að félagið hafði borið sigurorð af Englandsmeisturum Liverpool á Anfield Road í Liverpool. Manchester United sigraði með einu marki gegn engu eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi, ft-0. Það var í síðari hálfleik að Manchester United gerði út um leikinn. Norman Whiteside, sem leikið hefur mjög vel í síðustu leikjum Man. Utd., gaf vel fyrir markið. Sending hans var hárná- kvæm á Frank Stapleton sem kom stormandi að knettinum og hamr- aði hann í markið framhjá „Grobba” í Liverpool-markinu. Stapleton skoraði markið á 73. mínútu leiksins og tryggði Manchester áframhaldandi vonir um meistaratitil. Erfitt verður þó fyrir liðið að berjast við Everton og Tottenham. Everton er nú með 63 stig en aðeins eitt stig skilur að Tottenham og Manchester United. Leikmenn Liverpool fá um miðjan apríl, nánar tiltekið 13. apríl, tækifæri til að hefna ófar- anna gegn United í gærkvöldi. Þá leika Liverpool og Manchester í undanúrslitum bikarkeppninnar. Leikur liðanna verður á heima- velli Everton, Goodison Park, og verður honum sjónvarpað beint hingað til lands. -SK. Öruggt hjá Barcelona 120 þúsund áhorfendur sáu Barcelona sigra Sporting Dijon, 2:0. Liðið hefur þegar tryggt sérspánska meistaratitilinn Barcelona hefur fyrir alllöngu tryggt sér meistaratitilinn i spönsku knatt- spyrnunni. Um helgina lék Barceiona á heimaveUi sínum gegn Sporting Dijon og að sjálfsögðu sigraði Barce- lona, 2—0. Nokkurt fjör var yfir leiknum í fyrri hálfleik og þá fór Bernd Schuster í Uði Barcelona á kostum. Hann meiddist síöan í síðari hálfleik og varð að fara af leikvelH. Eftir það steindrapst leikur- inn og ekkert markvert átti sér stað fyrir framan þá 120 þúsund áhorfendur sem sáu leikinn. Mikil hátíð var fyrir leikinn því þetta var f yrsti heimaleikur Barcelona frá því liöið tryggði sér. meistaratitUinn. Barcelona hefur nú hlotið 50 stig en Atletico Madrid, sem er í öðru sæti, hefur41stig. -SK. Aberdeen er nú með átta stiga forskot — aðeins einn leikur í skosku úrvalsdeildinni íknattspyrnu um helgina Aðeins einn leikur af fimm sem fyrir- hugaðir voru i skosku úrvalsdeUdinni í knattspyrnu gat farið fram um helgina. Það var leikur Aberdeen og Dundee og lauk honum með öruggum sigri Aberdeen, 4—2, eftir að staðan í leikhiéi hafði verið 2-0 fyrir Aberdeen. ReUly, sem kom inn á sem varamaður hjá Dundee Utd., skoraði síðasta mark leiksins þegar 13 mínútur voru til leiks- loka. Eftir þennan sigur hefur Aber- deen átta stiga forskot í úrvals- deUdinni með 50 stig eftir 31 leik. Celtic er í öðyu sæti með 42 stig eftir 29 ieiki. John Hewitt skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleiknum fyrir Aberdeen, það fyrra af stuttu færi en hið síðara með stórkostlegu langskoti af 25 metra færi. Þegar aðeins fjórar mínútur voru liönar af síðari hálfleik minnkaði Eamonn Bannon muninn í 2—1 en það dugöi skammt. Þeir BiUy Stark og Steven Cowan skoruðu tvö mörk fyrir Aberdeen á sömu mínútunni. John Staðan í úrvalsdeildinni er annars þannig: Aberdeen 31 23 4 4 77-23 50 Celtic 29 18 6 5 66—27 42 DundeeUnited 30 16 6 8 53—30 38 Rangers 30 11 11 8 38-31 33 Hearts 30 13 4 13 42—46 30 St. Mirren 30 13 4 13 35-46 30 Dundce 29 11 6 12 40-42 28 Dumbarton 29 6 7 16 29—50 19 Hibemian 30 7 5 18 30-53 19 Morton 30 4 1 25 24—86 9 -SK íþróttir AÐ LJÚKA UPP RITNINGUNNI erhverjun; manni hollt GÓÐ OG NYTSÖM FERMINGARGJÖF Fæst i bókaverslunum og hjá kristilegu félögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG <P>utibrantisstofii Hallgrímskirkju, Reykjavík, sími 17805, opið 3 — 5 e.h. Tcekni um csllan heim ITT ITT Ideal Color 3404, -fjárfesting í gæöum á stórlækkuöu veröi. Vegna sérsamninga viö ITT verksmiðjurnar í Vestur-Þýskalandi hefur okkur tekist að fá takmarkað magn af 22" litasjónvörpum á stórlækkuðu verði. VERÐ KR. 32.760,- Sambærileg tæki fást ekki ódýrari. ITT er fjárfesting i gæðum. SKIPHOLTl 7 SÍMAR 20080 8c 26800 íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.