Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Síða 42
42
DV. MANUDAGUR1. APRlL 1985.
MYNDBAIMDALEIGA
rótgróin, ein sú elsta, á besta stað í bænum, til sölu.'
Engin útborgun. Verð kr. 1.100.000,- sem greiða má með
fasteignatryggðum skuldabréfum til 5 ára. Áhugasamir
vinsamlegast sendi nafn og símanúmer til auglýsinga-
þjónustu DV, Þverholti 11, merkt M-50, í síðasta lagi 9.
apríl.
r k ^
THBOO
öpwki. TÖCCURhf.
SAAB UMBODIÐ
BILPSHÖFÐA 16.
SIMAR 81530 OG 83104
3
A
A
CZD
Seljum i dag
Saab 99 GL super
combi árg. 1978,
3ja dyra, hnotu-
brúnn, sanseraður,
sjálfskiptur, á nýjum
nagladekkjum, út-
varp og kassettu-
tæki. Bill i algerum
sérflokki, toppá-
stand og toppútiit
að utan sem innan.
Saab 900 GL árg.
1980, 3ja dyra,
rauður, beinskiptur,
4ra gíra, mjög fal-
legur bíll, ekinn
70.000 km.
Saab 900 GLS árg.
1982, 5 dyra,
grænn, beinskiptur,
5 gíra, ekinn 60.000
km. Skipti á yngri
Saab.
Saab 900 GLE árg.
1982. 4ra dyra, silv-
er, sjálfskiptur,
vökvastýri, topp-
lúga, litað gler og
fl., ekinn aðeins
32.000 km. Topp-
bíll.
GunnarM. Hansson
forstjóri á viðski ptaþingi:
Upplýsingabyltingin
byltir atvinnuvegunum
„Upplýsingabyltingin hefur í för
rneö sér byltingu atvinnuveganna,”
sagöi Gunnar M. Hansson, forstjóri
IBM á Islandi, í erindi á viöskipta-
þingi Verslunarráðsins. Hann kvaö
okkur hafa veriö seinni til en flestar
nágrannaþjóöimar varöandi tölvu-
væöingu en nú vera komna vel á skriö.
„Tregðulögmáliö og hleypidómamir
höföu sitt aö segja og ekki gekk
menntakerfið á undan. Reyndar má
meö nokkrum sanni halda því fram aö
menntakerfið hafi sofið á veröinum.”
Samt telur Gunnar að viö höfum náö
okkur vel á strik í sumum greinum at-
vinnulífsins. „Viö værum þó ugglaust
komin enn lengra ef menntakerfiö
hefðitekiöfyrr viösér.”
Gunnar Hansson sagöi mikinn skort
á vel menntuöu fólki á þessu sviði.,,...
um þessar mundir vantar hundmö sér-
menntaös fólks á tölvusviði,” sagði
hann.
Þá geröi hann grein fyrir hinum
margvíslegustu breytingum á sam-
skiptum í atvinnulífinu með tilkomu
tölva, jafnframt hvaöa áhrif þessi
nýja tækni myndi hafa á atvinnugrein-
ar, hagræðingu, tímaspamað og auk-
inn frítíma fólks.
Til marks um hver þróunin væri í
tölvubúnaði nefndi Gunnar dæmi. Meö
stærstu fáanlegri tölvu 1955 var tiltekið
verk unniö á klukkustund og kostaöi
sex þúsund krónur. 1965 var öflugasta
tölvan þá fimm mínútur aö vinna verk-
iö. Kostnaðurinn var 200 krónur. 1975
tók þetta 40 sekúndur og kostaði 80
krónur. Nú tekur sama verk 10 sekúnd-
ur og kostar um 30 krónur.
„Á komandi árum mun upplýsinga-
byltingin hafa veruleg áhrif á þjóö-
félag okkar. Þetta gildir jafnt um sam-
setningu atvinnuvega, hvar viö vinn-
um og á einkalíf okkar. Tölvumar
veröa þar í aöalhlutverki,” sagöi
Gunnar M. Hansson.
HERB
Ný kapella í Breiðholti
Kaþólska kapellan í Breiöholti var
vígð nýlega. Hún mun veröa í notkun
þar til kaþólska kirkjan í Breiöholti
mun rísa á lóðinni.
Kaþólski biskupinn á Islandi, herra
Hinrik Frehen, vígöi kapelluna en
kaþólski presturinn í Breiðholti er
Irinn Robert Bradshaw.
Kirkjan er að því leyti merkileg aö
hún er aö öllu leyti byggö úr timbri og
tók bygging hennar sjö mánuði.
Arkitekt er Hannes Davíðsson og reisti
Istak húsið. ÁE.
íslendingafélagið
öflugt í Ástralíu
Það berast ekki margar fréttir frá
Astralíu hingað til lands en fyrir stuttu
bárust okkur á ritstjóm DV fregnir af
starfsemi Islendingafélags þar í landi.
Félagið er starfrækt í Sydney og telur
eitthvaö á milli 50 og 60 félaga. Flestir
þeirra búa í Sydney og nágrenni.
Félagiö hefur tvo meginatburöi
árlega á dagskránni: I kringum 17.
júní hittist fólk og snæöir íslenskan
mat og þá helgi sem ber hæst 1. des-
ember er slegið upp grillveislu. Á þeim
tíma er hásumar í Nýja-Suöur-Wales,
eins og staðurinn kallast.
Stjórn Islendingafélagsins í Sydney
skipa fimm manns og er Gunnlaugur
Gunnlaugsson formaöur. Fyrir þá sem
hafa áhuga á aö komast í samband viö
Islendinga, þarna í landi andfætlinga,
er heimilisfang Gunnlaugs: Lot 10,
Mamre, Kemps Creek, 2171, New
SouthWales. JKH.
Frá fagnafli Íslendingafélagsins í Sydney.