Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Side 20
20
Nauöungaruppboð annað og síöasta á hluta í Hrafnhólum 2, þingl. eign Eyjólfs Sigurðssonar og Indiönu Eybergsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar í Pevkjavík o.fl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. maí 1985 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð annaö og síðasta á Hólabergi 64, þingl. eign Lárusar Lárussonar, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbankans og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miövikudaginn 8. mai 1985kl. 13.30. Borgarfógetaembættiö i Reykjavík.
Nauðungaruppboð annaö og siöasta á hluta í Völvufelli 50, þingl. eign Huldu Friðjóns- dóttur, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbankans, Gjaldheimtunnar i Reykjavik, Guöjóns A. Jónssonar hdl. og Valgarðs Briem hrl. á eigninni sjálfri miövikudaginn 8. maí 1985 kl. 14.00. Borgarfógetaembættiö í Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 102. tbl. Lögbirtingablaðs 1984, 2. og 8. tbl. þess 1985 á hluta í Hjaltabakka 8, þingl eign Bjarna Þórs Kjartanssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. maí 1985 kl. 16.15. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1984, 1. og 11. tbl. þess 1985 á hluta i Dúfnahólum 2, þingl. eign Halldórs Ó. Laxdal Guömunds- sonar og Þuriðar Pálsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. maí 1985 kl. 14.15. Borgarfógetaembættiö i Reykjavík.
Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Kaplask:úlsvegi 41, þingl. eign Svanbergs Ólafssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. maí 1985 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 3. tbl. þess 1985 á hluta í Suðurhólum 30, þingl. eign Svavars Marteins Carlsen o.fl., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miövikudaginn 8. maí 1985 kl. 15.45. Borgarfógetaembættiö í Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 3. tbl. þess 1985 á hluta í Hjaltabakka 14, þingl. eign Þorsteins Hjálmarssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík og Landsbanka islands á eigninni sjálfri miövikudaginn 8. mai 1985 kl. 16.30. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð annaö og siöasta á eigninni Furulundi 8, Garöakaupstaö, þingl. eign Geirs Björgvinssonar, fer fram á eigninni sjálfri miövikudaginn 8. maí 1985 kl. 13.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstaö.
Nauðungaruppboð annaö og síðasta á eigninni Laufási 3, efri hæö, Garðakaupstað, þingl. eign Agnars Guömundssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 7. mai 1985 kl. 13.00. Bæjarfógetinn í Garöakaupstaö.
Nauðungaruppboð annaö og síöasta á eigninni Látraströnd 6, Seltjarnarnesi, þingl. eign Jóns Hákonar Magnússonar, fer fram á eigninni sjálfri miövikudaginn 8. maí 1985 kl. 14.45. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
áStíi iAM .1“ HU3AUiiAtíUAil ’vd
DV. LAUGAKDAGUR 4. MAl 1985.
Á Saga-Class er leitast við að ekki sitji fleiri en tveir i þriggja sœta röð. Farrýmið er notað af þeim sem
greiða fullt fargjald.
BORG Á FJÓRTÁN HÆÐUM
Á Saga-Class til Glasgow
Farþegar á farrýminu fara inn og út um framdyr vólarinnar.
„Glasgow er byggö á fjórtán hæö-
um andstætt Róm sem státar bara af
sjö,” er eitt af því sem lesa má í
bæklingi sem blaðamenn af nokkrum
íslenskum f jölmiölum fengu í hendur
í dagsheimsókn með Flugleiðum á
Saga-Class til borgarinnar.
Auðvitaö er það snöggsoðin mynd
sem fæst á nokkrum klukkustundum
af heilli borg. Þó má eftir ferðina til
Glasgow mæla með að minnsta kosti
tveimur krám, safni sem heitir Mus-
eum of Transport og fullyrða að mið-
borgin er iðandi af mannlífi og götu-
lista.nönnum síðdegis á laugardög-
um. I borginni eru tveggja hæða
strætisvagnar, gamaldags svartir
ileigubilar og skoskur talandi inn-
fæddra getur komiö manni með gott
stúdentspróf í ensku í opna skjöldu.
Áður fyrr að minnsta kosti var það
stundað aö fara í innkaupaferðir til
Glasgow. Kaupin sem hægt er aö
gera þar eru enn nógu góð til að allir
kvenmenn í þessari dagsferð rufu
tímamörkin og tveir týndust í tutt-
ugu mínútna innkaupahléi sem gafst
þennan dag. öll komumst við þó aft-
ur heim.
Inn að framan
Þegar maður ferðast á Saga-
Class farrými er farið inn í vélina að
framan. Reynt er að miða við að ekki
sitji fleiri en tveir farþegar í þriggja
sæta röð þegar rúm leyfir. Meira er
lagt í veitingar og farþegar þurfa
ekki að borga fyrir drykki. Sérstakt
innritunarborð er fyrir farþega
Saga-Class á Keflavíkurflugvelli og
á erlendum flugstöðvum eru sömu
farþegar innritaðir við Business
Class borö þeirra félaga sem annast
innritun farþega Flugleiða.
Farþegar sem ferðast með þessum
hætti mega taka meðferðis allt aö 30
kílóum af farangri án aukagjalds.
Þetta farrými er sambærilegt við
það sem erlend flugfélög kalla
Business-Class. I Glasgow til dæm-
is er sérstakt biðherbergi fyrir far-
þega á þessu fariými með notaleg-
um hægindum og sjálfsafgreiðslu-
bar.
Þeir sem hafa nýtt þetta nýja far-
rými eru þeir farþegar Flugleiða
sem ferðast á fullu fargjaldi. Flug-
leiðir eru eina flugfélagið sem héldur
uppi beinu áætlunarflugi milli Gias-
gow og Kaupmannahafnar. Stór hluti
farþega á þeirri leið ferðast á Saga-
Class.
Flugleiðir munu í sumar hafa
Saga-Class farrými í millilandavél-
um félagsins á mun fleiri flugleiðum
en áður. Fram til þessa hefur þetta
nýja farrými einungis verið í áætlun-
arflugi til Norðurlanda og Bretlands
en nú bætast við fleiri áfangastaðir í
Evrópu og í Bandaríkjunum þar sem
þessi þjónusta er boöin fram til
þeirra sem greiða hæst farg jöld.
Farrýmisskipting verður í sumar
á flugleiöum til Glasgow, London,
Kaupmannahafnar, Stokkhólms,
Gautaborgar, Oslóar, Bergen,
Frankfurt og Salzburg en Boeing þot-
ur flugfélagsins eru notaöar í áætlun-
arflug á þá staöi. I sumar veröur ein
DC—8—63 þota félagsins einnig not-
uð til áætlunarflugs miili Islands og
Evrópulanda, auk beinna feröa milli
Islands og New York. Farrýmis-
skipting verður einnig í þeirri vél.
Fram til þessa hefur ekki verið far-
rýmisskipting í DC—8 þotum Flug-
leiða og áfram verður eitt farrými
milli Bandaríkjanna og Lúxemborg-
ar.
SGV
i Musaum of Transport f Glaagow mó finna glassllegt safn gamalla fararteakja og or safnlnu estlað að sýna
sögu flutninga ains og hún leggur sig. Þar mó finna mótorhjól, gufuknúin farartœki og heilu jórnbrautar-
lestirnar. DV-myndir SGV.