Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Side 24
24
DV. LAUGARDAGUR 4. MAl 1985.
/
LISTIN
AÐ vim
HYLLI
KVEMA
Heimurinn tekur sífelldum stakka-
skiptum en samt er þess alltaf, og mun
alltaf verða, vænst af þér að þú sért
karlmannlegur. Karlmannlegur, jafn-
vel þótt þú hafir ekki vöðva eins og Jón
PáU eða sjarma eins og Jón Baldvin.
Nú á dögum er almennt litið svo á að
karlinn sé jafningi konunnar. Enda
þótt þessi kenning komi heim við sjálf-
stæðiskennd þína má ekki taka hana of
bókstaflega. HeUbrigð skynsemi segir
þér aö þú megir ekki aUtaf hafa jafnt
frumkvæði á viö konuna.
Þessari grein er ætlað það hlutverk
aö veita þér nokkra leiösögn á hinum
hálu vegum ástarinnar. Við lestur
hennar muntu fá nokkra innsýn í sálar-
Uf konunnar og fá leiðbeiningar um
hvemig hægt sé að láta dást að sér fyr-
ir góða siði og prúða framkomu.
Einkenni kvenna:
Við skulum byrja á því að virða með-
alkonuna fyrir okkur og Uta á helstu
einkenni hennar og hneigðir:
1. Henni geðjast vel aö ungum mönn-
um og er hún aUtaf á hælum þeirra.
Henni Uður ekki vel nema í návist
þeirra. Hvers vegna? Vegna þess aö
það er eðU hennar — fyrsta og stærsta
hneigð hennar sem konu.
2. Hún metur frelsi sitt mikils og viU
njóta kunningsskapar viö menn án
þess að bindast þeim um of.
3. Henni er minningin um föður sinn
ákaflega hugstæö og dýrmæt hvort
sem hún býr í föðurgaröi eður ei. Mað-
urinn sem hún elskar þarf aö Ukjast
fööur hennar á einhvern hátt, elda
jafngóðan mat o.þ.h.
4. Rf hún hefur um nokkra hríð ein-
göngu umgengist karla, t.d. unniö á
verkstæði eða veriö á sjó, er hún venju-
lega hispurslaus í umgengni viö karl-
menn og Utt gefin fyrir óþarfa vafn-
inga og málalengingar. Þar með er
ekki sagt aö hún sé laus við aUa tUfinn-
ingasemi, heldur er átt við aö hún gefi
sér engan tíma fyrir slíkt.
Þar með látum við útrætt um sam-
eiginleg einkenni og framkomu
kvenna. Við skulum nú beina athygl-
inni að konunni sem þú hefur lagt sér-
- ' stakan hug á. Það er ekki nóg að þú
þekkir hana eins og þú þekkir konur
yfirleitt heldur verður þú að kynna þér
vandlega aUt sem henni viðkemur. Því
betur sem þú þekkir hana, þeim mun
meiri Ukur eru tU þess að val þitt
heppnist vel.
Kynntu þér með öUu mögulegu móti
aUt sem auðið er um hana svo sem
hvaöa starf hún stundar, hver fortíð
heirnar er, hvaöa menntun hún hefur
hlotið, hvemig hún eyðir frístundum
sínum, hverjar stjómmálaskoðanir
hennar eru, hvaöa matur henni þykir
^ bestur o.s.frv.
Gefðu gaum aö öUu sem þú kemst á
snoöir um, henni viðvíkjandi, aUt frá
skónúmerinu hennar upp í bankainni-
stæðuna. ömgg vissa um þetta og ann-
að þvíumlíkt mun verða þér dýrmætt
leiðarljós i umgengni við hana.
Stefnumót
Þú getur ekki ætlast tU þess af nokk-
urri stúlku að hún bjóði þér út ef hún
þekkir þig ekkert. Láttu ekki deigan
síga og reyndu að koma þér i kynni við
hana með einhverju móti. Þú kynnist
ekki mörgum stúlkum meö því að sitja
aUtaf heima yfir videoinu. Þú verður
að fara á þá staði þar sem ungra
stúlkna er von. Tækifærin kunna að
bíða þín í skrifstofunni eða verksmiðj-
unni þar sem þú vinnur og skaltu ekki
láta þau ónotuð. Mættu á V.R. fundina
eða gakktu í stjómmálaflokkinn henn-
ar. Geföu kost á þér tU nefndastarfa,
taktu þátt í námskeiöum eöa gakktu i
kirkjukór. Ef þú starfar í stað þess aö
sitja auöum höndum hljóta margar
ungar stúlkur að verða á vegi þínum.
Skemmtanir
Einsettu þér að láta stúlkuna þína
aldrei eyða meira fé en hún hefur ráð
á. Þú getur gert henni kvöldið ógleym-
anlegt þó þú setjir hana ekki á hausinn
fjárhagslega. Hafðu það hugfast að
þeir menn sem eru „dýrir í rekstri”
missa oft vinstúlkuna sína fyrr en þá
grunar. Konum geöjast ekki að eyðslu-
sömum karlmönnum.
Einu sinni þótti alveg sjálfsagt að
stúlkur byöu vinum sinum til veglegra
veisluhalda eða skemmtu sér aleinar.
Þar sem menn hafa nú orðið jafnhá
eða jafnvel hærri laun en stúlkur er
alls kostar eðlilegt að bæði beri kostn-
aðinn af skemmtuninni. Samt skaltu
ganga úr skugga um álit vinkonu þinn-
ar áður en þú stingur upp á slíkri til-
högun því að hún kann að vera gamal-
dags í því efni.
Þegar hún hefur fylgt þér að húsdyr-
um þinum eftir einhverja skemmtun-
ina, getur þú boðið henni inn í fáeinar
mínútur ef ekki er orðið of áliöiö.
Standiö ekki úti á götu eða í tröppum
meðan þið skiljið. Slikt sæmir ekki
fólki sem annt er um mannorð sitt.
Gleymdu aldrei að þakka henni fyrir
ánægjulega samveru. Ef hún er ánægö
bæði með þig og sjálfa sig fer hún strax
að hugsa um að bjóða þér út aftur.
Gullhamrar
Og hvernig getur þú sýnt konu
áhuga þinn? Talið er að karlmenn séu
veikir fyrir gullhömrum en hið sama
gildir óvéfengjanlega um konumar,
jafnvel þær sem mest álitið hafa á
sjálfum sér. Að vísu getur þú ekki
sagt við hana: „0, hvað þú ert dá-
samleg og mikið kvenmenni”, en þú
getur gefið henni eitthvað áþekkt i
skyn með öðrum orðum. Annars eru
þaö gullhamrar fyrir hana að þú skul-
ir eyða frístundum þinum með henni
og vera hrifinn af henni, en það er
samt ekki nóg.
Þú verður að beita gullhömrum, en
beita þeim það vel að þú kitlir hé-
gómagimi hennar.
Eins og þú veist eru þeir gullhamr-
ar jafnan kærkomnastir sem lofa okk-
ur fyrir þá eiginleika sem við óskum
helst að vera búin. Konur þreytast
aldrei á að heyra vikið að kvenleg-
heitum sínum og em þær flestar
sama marki brenndar í því efni.
Komdu þeirri trú inn hjá henni að |
hún sé sterk og faðmlög hennar ómót-
stæðileg. Segðu henni það á þann hátt
að hún trúi að þér sé alvara. Flestar
konur halda að þær séu ómótstæðileg-
ar.
Ein tegund gullhamra er sú að
spyrja hana um álit hennar á ein-
hverju, leita ráða hjá henni eöa óska
aðstoðar hennar. Þetta er auðvitað
þaö sama og viöurkenna aö hún sé
þér meiri. Biddu hana að opna glugg-
ann ef hann er fastur í karminum —
hún hlýtur a.m.k. aö vera nógu mikið
kvenmenni til þess. Láttu hana að-
gæta útvarpstækiö — hún er kannski
snillingur i viögerð slíkra tækja. Ef
hún er greind gætir þú rætt við hana
um uppáhaldsbækur hennar. Ef hún
fylgist með tiskunni (slíkar konur em
til) þá biddu hana að hjálpa þér að
velja nýjan frakka.
Ef þú hefur augu og eyru hjá þér
hlýtur þú að finna fjölda aöferða til
að slá henni óbeina gullhamra.
Óvissan
Fyrr á öldum þegar maðurinn var
álitinn óæðri vera en konan og skap-
aður fyrst og fremst henni til
skemmtunar, varð daðurbósinn til í
hópi þess fólks sem ekkert eða litið
þurfti að hafa fyrir lifinu.
Hann var tiðast af heföarfólki kom-
inn, hafði notið nokkurrar menntunar
og var vel í efnum. Þar sem hann var
útilokaöur frá virkri þátttöku i störf-
um þjóöfélagsins, helgaði hann sig
unaöi heimsins.
Ástir voru leikur hans og hann fór
eftir leikreglum sem konan var upp-
hafsmaður að. Samkvæmt léttúðug-
um og rangfærðum hugmyndum „fyr-
irfólksins” voru ástir nokkurs konar
veiöar þar sem konan var veiðimað-
urinn. Hún valdi sér bráö, elti hana
uppi og „sigraðist” aö lokum á henni.
Konur nutu oft eltingaleiksins betur
en lokasigursins.
Margar nútimaskáldkonur sem
gera ástamál að viðfangsefni sínu
leggja mikla áherslu á daðurshneigð
karia, en almenningsálitið hefur mjög
snúist gegn þeirri skoöun á síðari ár-
um. Karlmanninum hefur farið fram
síðastliðna öld. Hann hefur tekið sér
stöðu við hlið konunnar i hvaða störf-
um sem vera skal og nú efast enginn
um greind hans eöa hæfileika. Konan
hefur líka breytt um viðhorf gagnvart
karlmanninum. Henni kann að finnast
með sjálfri sér að konan sé, þrátt fyr-
ir allt, karlmanninum að ýmsu
fremri, en engu aö síöur hefur hún
neyðst til að viðurkenna að kariinn sé
allt að því jafningi hennar. Láttu
hana samt aldrei vera í óvissu um
þaö hvort ykkar er sterkara.
Fjölskylda hennar
Ef stúlkan þín býr enn hjá foreldr-
um sinum eða er bundin sterkum fjöl-
skylduböndum mun hún áreiðanlega
einhvern góðan veðurdag bjóöa þér
heim meö sér til aö kynna þig foreldr-
um sínum. Sennilega mun þér ekki
geðjast að þeim í fyrstu því allir hafa
óbeit á að vera til sýnis.
Reyndu að umbera og vera vin-
gjamlegur við fjölskyldu hennar jafn-
vel þótt þér veitist þaö erfitt. Stattu
aldrei uppi i hárinu á fjölskyldunni
hversu mjög sem hún gefur tÚefni til
þess.
Leggðu þig í framkróka við að
koma þér vel við hvem einstakling,
sérstaklega innan fjölskyldunnar, og
reyndu að stofna til vináttu og aflaöu
þér trausts.
Ef pabbi hennar býr til góðan mat,
skaltu láta þaö i ljósi við hann. Þú
verður einnig að láta í ljósi áhuga á
gigtarköstum hans. Spyrðu hann allt-
af um liöan hans þegar þú hittir hann
og hlustaöu á kveinstafi hans án þess
að láta á þér sjá aö þér leiðist slikur
vaðall. Gleymdu ekki að koma þér vel
við bömin á heimilinu þvi þau gætu
gert þér lífið leitt.
Þótt þú farir að verða tíður gestur
á heimilinu máttu ekki ganga aö því
sem gefnu aö heimafólkiö sýni þér
alltaf fulla gestrisni. Mundu að þú
kostar þaö tíma, peninga og fyrir-
höfn. Sýndu að þú kunnir aö meta það
sem fyrir þig er gert. Borðaöu jóla-
kökuna brosandi þótt þú hafir and-
styggð á rúsínum. Komdu aldrei á
heimili hennar tómhentur. Færðu
þeim köku, sælgæti eða jafnvel video-
spólu með allra nýjasta Dynasty-
þættinum.
Ef faðir stúlkunnar hefur haft mik-
ið fyrir að matbúa handa þér, skaltu
ekki telja fyrir neðan virðingu þina
að hjálpa honum með uppþvottinn.
Prjónaðu trefil á mömmu gömlu eöa
gerðu hvaöeina sem þér dettur í hug
til aö þóknast þessum ófreskjum.
Eftir nokkrar heimsóknir mun þér
vera orðið að fullu ljóst hvort fjöl-
skyldan veitir þér viðtöku eða hafnar
þér. Reyndu að vera þolinmóöur
áfram að koma þér vel við alla þó þér
sé sýndur kuldi. Þau bera ekki endi- ,
lega til þín kala, kannski hefðu þau
kosið aöra framtíð dóttur sinni til
handa en aö giftast á unga aldri. Ef
einhver munur er á þjóðfélagsaöstöðu
ykkar getur þú ef til vili vegið þann
mun að einhverju leyti upp með ynd-
isþokka þínum. Þú skalt aö minnsta
kosti alltaf vera kurteis og vingjam-
legur.
Hjónabandið
Ef allt hefur gengið að óskum hjá
ykkur ættuð þið aö vera trúlofuö eöa
jafnvel gift innan nokkurra mánaða
frá fyrstu kynnum. Þó að hún hafi
beðiö þin er ekki þar með sagt að þú
getir hagað þér eins og þér sýnist. Sí-
vaxandi fjöldi skilnaða milli hjóna
sannar það best aö margir karlar
fara að haga sér að eigin geöþótta
strax eftir giftinguna. Það er ekki
nauðsynlegt að færa konunni sinni
morgunverð í rúmið áður en hún fer í
vinnuna eða bíða meö inniskóna upp-
hitaða þegar hún kemur heim á kvöld-
in en þaö hjálpar. Það þarf aö hlúa að
konunni sinni heima og reyna að
skemmta henni. Ef hún er nútíma-
sinnuð hjálpar hún þér eflaust annað
slagiö við heimilisstörf og gleymdu
aldrei að sýna henni þakklæti þitt.
Þaö er ekki eðli konunnar að vinna
lýjandi heimilisstörf og slepptu henni
algjörlega viö þau ef hún á von á
barni. Hugsaöu fyrst um hana, þú
kemur á eftir. Mörgum konum finnst
yndislegt að ganga i heimaprjónuöum
peysum og sýna oft stoltar i vinnunni
eða á fundum og segja: „Sjáðu hvað
maðurinn minn er góður í höndun-
um.” Þetta ætti hverjum eiginmanni
að finnast sjálfsagt að gera, en til eru
þeir eiginmenn sem vinna úti og í því
tilfelli er i lagi að láta konuna ganga i
búöarpeysu. Mundu bara að þú ert
ekki kominn í örugga höfn þó hringur-
inn sé á fingri þér. Þú veröur að
vinna að því með ráðum og dáð aö
hjónabandið gangi vel og aö konan
þin haldi áfram að elska þig.
Niðurlag
Vonandi hafa þessar leiöbeiningar
orðið einhverjum ungum manni aö
gagnl Þær eru urmar upp úr bók sem
nokkuð er komin til ára sinna og
þurfti ýmislegt að færa i stílinn. Á
þessum tímum jafnréttis var ekki
hægt aö birta allt óbreytt en flest í
þessari góðu bók stendur enn fyrir
sinu. Konur eru og veröa konur og ef
þú beitir lagni, ennþá betri konur.
GHar.
Ur bókinni „Listin að vinna
hylli karlmanna”
(með örlitlum breytingum).