Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Side 27
DV. LAUGARDAGUR 4. MAI1985.
27
DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH
• Lið FH keppnistíraabilið 1985. Ingi Björn Albertsson þjálfari er í öftustu röð, lengst til vinstri.
DV-mynd S
„Mál númer eitt að
halda sér í deildinni”
—segir Ingi Bjöm Albertsson, þ jálfari FH-inga, og segir að
leikmenn FH komi vel undirbúnir til leiks
„Við byrjuðum að æfa um miðj-
an janúar, lyftum og hlupum og ég
held að ég geti sagt að við komum
vel undirbúnir til leiks í 1. deild-
ina,” sagði Ingi Björn Albertsson,
þjálfari FH, nýliðanna í 1. deild í
sumar. Ingi Björn er öllum hnút-
um kunnugur hjá FH, hann hefur
þjálfað liðið Í nokkur ár samfara
því að leika með liðinu og skora
mörk sem verið hefur hans aðals-
merki frá því hann hóf að leika
knattspyrnu.
„Strákarnir eru mjög óhugasamir
og ef ég hef staðiö mig í stykkinu ætt-
um við að geta gert góöa hluti. Eg er
með marga unga og efnilega leikmenn
í höndunum og líka gamla og reynda
leikmenn. Þar má nefna þá Dýra Guð-
mundsson og Viðar Halldórsson ásamt
Olafi Danivalssyni. Við höfum mann-
skap til að setja strik í reikninginn.
Spumingin er bara hvernig til tekst
þegaróreynir.”
„Markmiðið að festa
FHísessiíl. deild”
Nú hefur FH-liðið verið ó þó nokkru
ferðalagi á milli deilda undanfarin ár.
Hvert er markmiðið hjá ykkur í sum-
ar?
„Mál númer eitt, tvö og þr jú hjá okk-
ur er að halda okkur í deildinni og það
verður allt gert til'að það megi takast.
Langtímamarkmiðið er svo að gera
FH-liðið að rútíneruðu liði í 1. deild.
Festa liðið í sessi. Það er mikið af ung-
um leikmönnum í hópnum hjá okkur og
mikið af framtíðarleikmönnum ó leið-
inni. Leikmenn sem eiga að geta gert
það gott í framtíðinni. ”
„Á von á góðum
fótbolta í sumar”
Nú er keppnistímabilið framundan
og klassískt svo ekki sé meira sagt að
spyrja þig um sumarið.
„Eg hef séð mikiö af leikjum í vor og
er enn öruggari en nokkru sinni fyrr
um að fótboltinn verði mjög góður í
sumar. Liðin hafa lagt mikið á sig og
ég á von á því að fleiri lið en FH komi
vel undirbúin til leiks. Þetta verður
erfiður bardagi en maður verður bara
aðvonaþaðbesta.”
Hvaða lið heldur þú að verði í topp-
baráttunni?
„Valsmenn verða
sterkir”
„Það er erfitt að segja til um þaö. Eg
hef trú á því að Valsmenn geti skorið
sig úr í sumar. Þeir sýndu mjög góða
knattspymu seinni part tímabilsins í
fyrra og ef þeir leika svipaöa knatt-
spyrnu í sumar og þá er ég viss um að
þeir verða mjög ofarlega. Akumesing-
ar og Framarar eru spurningarmerki
og erfitt að segja til um hvað þessi lið
gera. Þau gætu veitt Valsmönnum
harða keppni. Þaö er spuming hvort
þessi lið smelli saman á réttum tíma.”
Hvaðalið falla?
„Eg vil ekki spá neinu þar um. Eg
vona bara að mitt lið veröi ekki í fall-
baráttunni. Mér sýnist í fljótu bragöi
sem mörg liö gætu staðiö í fallbaráttu
langt fram eftir Islandsmótinu.”
„Slæmt að byrja gegn
Víði”
Nú eigið þið að leika ykkar fyrsta
leik gegn Víði og það á útivelli. Hvem-
igleggstþaðíþig?
„Þetta er það versta sem ég gat
Ingi Björn Albertsson, þjálfari og leik-
maður FH.
hugsað mér. Eg heföi viljað fá öll hin
liðin í fyrsta leik. En það breytir þc^
ekki því að ég er sannfærður um að við
stöndum okkur. Allir leikir okkar í
sumar verða mjög erfiðir og allir jafn-
mikilvægir. Við munum taka hvem
leik fyrir sig og reyna að standa okkur
til stykkinu,” sagði Ingi Björn
Albertsson.
-SK.
[ "nV"STÚKA í KAPLAKmKÁ" }
I Betur ætti að fara um þá áhorf-
Iendur sem leggja lelð sina á heima-
völl FH, Kaplakrlka, í sumar en
gundanfarin sumur. FH-tngar hafa
nefnilega af miklum myndarskap
reist mikia áhorf endastúku og er hún
örugglega vei þegin af mörgum.
Stúkan tekur nokkur hundruð áhorf-
endur og svipar mjög til stúkunnar í
Kópavogl á heimavclli Breiðabliks.
Miktl framför hjá FH-lngum og er nú
vonaudi að stuðningsmenn Hafnar- m
fjarðarliðslns láti sig ekki vanta i I
nýju stúkuna i sumar á heimaleikj- ■
um liðsins. ■
-sk.
-ÐV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH