Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Qupperneq 36
36
DV. LAUGARDAGUR 4. MAl 1985.
KNATTSPYRNA UNGLINGA - KNATTSPYRNA UNGLINGA - KNATTSPYRNA UNGLINGA
URSLIT LEIKJA
- HRINGIÐ TIL DV
AUKIN umfjöllun DV um íþróttir þeirra yngri er
þarft verkefni. Því er óskandi að undirtektir verði
góðar, og þá ekki síður úti á landsbyggðinni en á
Reykjavíkursvæðinu. Hafi menn frá einhverju frétt-
næmu að segja er varðar knattspymu unglinga í við-
komandi héraði þá er íþróttasíða DV ávallt til reiðu.
Hafið samband og munið að viðtalstímar em á mið-
vikudögum kl. 18—20 og símanúmerið er 686618. Einnig
er hægt að senda myndir og fréttnæmt efni í pósti til
DV, merkt:
Dagblaðið-Vísir
Knattspyrna unglinga
Síðumúla 12—14
Reykjavík
miisnfs
3. flokkur KR ásamt þ jálfara sínum, Lárusi Loftssyni, lengst til vinstri.
DV-myndir HH.
UMSJÓN
«se,*
HALLDORi i >
HALL- I k 7 i
DÓRSSON
Urslit
leikja
— á Reykjavíkurmótinu
Urslit leikja í Reykjavíkurmóti
yngri flokka sem síðunni hafa borist:
5.n.
engin úrslit borist.
4.0.
Valur-Fylkir 6—2
B-lið 10-0
3.n.
Valur-KR 0—10
Fylkir-Valur 0-6
KR-Víkingur 2-0
B-liö 5—0
2. n.
Valur-Fram 0—1
B-Uð 1—2
KR-Valur 0-0
B-Iið 2—2
Valur-Fylkir 6-1
Ul-Valur 0-7
Urslit vantar í nokkra leiki. Gerum
betur næst.
Pósturinn
Lesendadálkur, þar sem reynt
verður að svara spurningum ykk-
ar um allt er varðar íþróttir, inn-
anlands sem utan.
Vissuð þiö t.d. að Island sigr-
aöi eitt sinn í þrem landskeppn-
um sama daginn. Hvenær var
þetta? Hugsið um þetta en næsta
laugardag fáið þið svarið.
Verið forvitin og látið spum-
ingamar dynja á „POSTINUM”.
Munið, látið nafn ykkar fylgja.
Þagmælska ef óskaö er. Utaná-
skriftin er:
Dagblaðið-VIsir
Pósturinn
Knattspyrna unglinga
Síðumúla 12—14
Reykjavík.
Heimir Guðjónsson.
Þriðji f lokkur KR sóttur heim:
Bedið eftir að
þeir komi upp
Það var gott hljóðlð í Lárusi Loftssyni, þjálfara 3. flokks KR, þegar ég leit á æf-
ingu hjá þeim sl. þriðjudag. — Þetta er mjög góður hópur, góð breidd. Láms kvað
þetta vera einhvem efnllegasta yngri flokk sem komlð hefur fram á tslandi. —
Drengirnir eru búnir að halda hópinn, allflestir, frá þvi í 6. flokki. Samheldni
þeirra er alveg einstök. Reglusemi algjör. Raunveralega er beðið eftir að þeir
komi upp, svo miklar vonlr era bundnar þeim. — Vonandi fer allt sem horfir, bæt-
ir Láras hugsi við. — Láras er óþarfl að kynna, en hann hefur þjálfað hina ýmsu
flokka mörg undanfarin ár með góðum árangri. Hann er elnnlg þjálfari drengja-
landsiiðslns.
Já, það voru hressir og föngu-
legir KH-ingar, sem mættu á
æfingu hjá 3. flokki sl. þriðjudags-
kvöld. Drengirnir léku við hvern
sinn fingur. Veðrið fallegt, bjart
og þurrt.
Gáskafull hlátrasköll ungling-
anna, blönduð röggsömum skipun-
um Lárusar um næsta verkefni,
færðu mér heim sanninn um það
að hér væri allt með felldu. Gleöi
og ánægja drengjanna leyndi sér
ekki.
Þeir hafa leikið tvo leiki í
Reykjavíkurmótinu og unnið
báða. Val unnu þeir 10—0 og Vík-
ing 2—0. Þeir eru bjartsýnir á
framhaldið drengimir og lofa því
að verða erfiðir andstæðingar.
Eftir góða stund tók ég tali
nokkra af drengjunum.
HEIMIR Guðjónsson hefur ver-
ið í KR síðan í 5. flokki. I 3. flokki
er Heimir miðvallarspilari.
Setur þú takmarkið hátt,
Heimir?
— Ég ætla að leggja mig allan
fram. Það er öruggt. Takmark
mitt nú er að komast einhvemtím-
ann í meistaraflokkslið KR, ef það
tekst, hlýt ég að endurskoða stöð-
una varðandi ný markmið.
Átt þú fyrirmynd?
— Já. Sokrates. Það er sko leik-
maður að mínu skapi.
Verður þetta létt keppnistíma-
bil fyrir ykkur?
— Við verðum harðir andstæð-
ingar, það er klárt. Enginn leikur
Ásgelr Jónsson.
vinnst fyrirfram. Ég lít á alla leiki
sumarsins sem erfiða leiki.
Næst sný ég mér að STEINARI,
markakóngi hópsins frá því þeir
byijuöu í 6. flokki.
Steinar, hvernig stendur á því
að sumir em óstöðvandi marka-
maskínur, eins og þú virðist vera?
— Ég skora náttúrlega ekki mörk
nema með hjálp félaganna. Við
erum samhentir. Búnir að vera
lengi saman og þekkjum orðið
hver á annan. En auðvitað er allt-
af gaman að þenja möskvana. Eg
veit ekki. Boltinn kemur fyrir
markið, eða þá stungubolti og
maður gerir bara sitt besta.
Uppáhaldsleikmaður?
— Amór Guðjohnsen er frábær
leikmaður.
Ég vind mér að GUNNARI haf-
sent og spyr hvort honum finnist
nógu mikið gert fyrir yngri flokk-
anaíKR.
— Ég held að það sé gert eins
mikið og hægt er. Það eina sem ég
kvarta yfir er að við mættum
kannski vera meira á grasinu.
Átt þú þinn uppáhaldsleik-
mann, Gunnar?
— Lawrenson hjá Liverpool er
frábær. Getur leikið allar stöður
og vinnur vel fyrir liðsheildina,
svaraði hinn stæðilegi hafsent.
GUÐJON framherji er á fyrra
ári í flokknum. Ég spyr hann
hvemig honum lítist á nýhafið
ÍtSÉlS ' >
Gunnar Gíslason.
keppnistímabil.
— Mér líst vel á það. Við höfum
frábæran þjálfara og 3. flokkur er
skipaður góðum einstaklingum og
á að gera gert góða hluti í sumar.
Ert þú ánægður hjá KR?
— Já, svo sannarlega, ég mundi
hvergi annars staðar vilja vera.
Uppáhaldsleikmaðurinn?
— Bryan Robson hjá Manch.
Utd.
Setur þú markið hátt, Guðjón?
— Ég ætla að gera eins og ég
get, svaraði Guðjón um hæl og
brosti.
ÁSGEIR Jónsson er á fyrra ári
eins og Guðjón. Er þetta ekki
mikil breyting frá 4. flokki í fyrra?
— Jú, það er mikil breyting.
Hér er mjög hörð keppni um sæti í
A-liðinu, sérstaklega fyrir okkur
sem erum á fyrra ári. En okkar
tími kemur. Bara að sýna þolin-
mæði.
Hver er uppáhaldsstaðan?
— Mér finnst mest gaman að
leika framherja.
Ég minnist Ásgeirs í úrslita-
keppni 5. flokks 1982 í Keflavík. En
þá lék hann framherja í KR-liðinu
og skoraði grimmt.
Eg tek undir það með Lárusi að
hér fer góður k jarni sem KR-ingar
geta verið stoltir af. Ég óska
drengjunum alls hins besta á
knattspymuvellinum.
Eg kvaddi og þakkaði fyrir
ánægjulega stund. Og þegar ég
fjarlægðist hið glæsta KR-svæði,
barst mér til eyrna kliður — það
voru þessi sígildu hróp: — Nei,
nei. — Góður bolti. — Skjóttu. —
Hingað. — Frábært.
Mikið var veðrið annars gott.
HH.
Steinar Ingimundarson.
Þjálfara-
hornid
Annað slagið verður þjálfara-
hornið ó ferðinni. Rætt um leiðir
tll árangurs...
Þegar rætt er um knattspyrnu-
þjálfun og alhliða uppbyggingu
leikmanna er um mjög víðfema
þætti að ræða. „Lengi býr að
fyrstu gerð”, og þau spor sem
eitt sinn era mörkuð í meðvitund
unglings verða seint afmáð. Þvi
er það mikilvægt að þær hug-
myndir sem hann fær í uppvexti
séu uppbyggjandi og virki já-
kvætt á alla framþróun á ferli
hans sem knattspyrnumanns og
sem einstaklings, andlega sem
líkamlega.
Það má spyrja í framhaldi:
Hvað er rétt þjálfun og uppbygg-
ing? — Menn greinir á um þessa
þætti og er það vel. Flelri en ein
leið era færar tii að ná settu
markL
Þjálfarar, komið með ykkar
hugmyndir. Hafið innskot ykkar í
HORNIÐ stutt en laggott. -HH.
möfssr
leynd
Alltof mikil leynd hefur hvílt yfir
vormótum yngri flokka í knattspyrnu,
ekki bara í Reykjavík, heldur einnie
úti á landsbyggðinni. Hugmyndin er sú
að hér verði breyting á. Vorleikir era
ekki síður mikilvægir en aðrir lelkir og
gefa kannski ákveðnar hugmyndir um
styrkleika liða á komandi keppnis-
timabili.
Reykjavíkurmótið í yngri flokkum
er komið á fullt skrið og er hugmyndin
að í hverju laugardagsblaði DV verði
fjallað um úrslit leikja allra flokka
ásamt leikdómum eftir mætti.
Úrslit leikja
Úrslit allra leikja yngri flokka
þurfa að berast i síðasta lagi mið-
vikudag í viku hverri milli kl. 18
og 20 í síma DV, sem er 686618.
Lótið fylgja með nafn mesta
markaskorara félagsins á hverj-
um tíma og fjölda marka.
Vonandi kemst á gott samstarf
við unglingaráðin er varðar allt
fréttnæmt sem á döfinni er innan
félaganna.
Guðjón Kristinsson.