Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Síða 13
DV. FIMMTUDAGUR 27. JUNI1985. 13 BORNUM EINSTÆÐRA FORELDRA MISMUNAÐ Kjallarinn Nú sem endranær uröu það örlög margra mála frá stjómarandstöð- unni á Alþingi að fá annaðhvort ekki afgreiðslu úr nefnd eða að vera vísað til ríkisstjórnarinnar. Slík málsmeð- ferð er lítils virði og í raun aðferð til aðvisamálifrá. Slik uröu örlög frumvarps um breytingu á barnalögum, sem undir- rituð flutti á sl. þingi, og tryggja átti að böm sem aðeins eiga annað for- eldra á lífi hafi sömu möguleika og böm annarra einstæðra foreldra til menntunar og starfsþjálfunar. Framlag vegna menntunar og starfsþjálfunar I bamalögum, sem samþykkt voru á Alþingi í apríl 1981, em ákvæði sem kveða á um heimild til þess að ákveða framlag frá meðlagsskyld- um aöila til menntunar og starfs- þjálfunar bams til 20 ára aldurs, svo og ákvæði um að heimilt sé að úr- skurða framfærsluskyldan aöila til að inna af hendi framlag vegna sér- stakra útgjalda við skim barns, fermingu, vegna sjúkdóms eöa af öðm sérstöku tilefni. Ljóst er að þessi ákvæði barnalag- anna eru mjög mikilvæg og geta oft ráðið úrslitum, t.d. um framhalds- menntun eða starfsþjálfun bama einstæðra foreldra. Þegar ofangreind ákvæði voru lög- fest var ekki hugað að því að tryggja sambærilegan rétt eöa stuöning við einstæða foreldra eða böm þeirra, ef meðlagsskyldur aðili er ekki lengur á lífi eða af öörum ástæðum reynist ókleift að innheimta greiöslu skv. ákvæðum þessarar greinar bama- laganna. Hér var því um aö ræða augljóst ranglæti og mismunun í að- búnaöi og k jörum einstæðra foreldra ogbarnaþeirra. Viðbótar- framfærsla viðurkennd Tryggingastofnun ríkisins greiðir framfærslueyri til 18 ára aldurs barna einstæöra foreldra ef ekki er til neins meðlagsskylds aðila aö leita. Löggjafinn hefur með sam- þykkt bamalaganna viðurkennt og heimilaö viöbótarframfærslueyri til einstæðra foreldra, sem leitað geta til meðlagsskylds aðila í sérstökum tilfellum, svo sem vegna menntunar og starfsþjálfunar barna til 20 ára aldurs. Með því hefur löggjafinn við- urkennt þörfina á viðbótarfram- færslueyri til einstæðra foreldra í sérstökum tilfellum. En löggjafinn hefur einungis gengiö hálfa leiðina í þessu efni, þ.e. heimilað með lögum viðbótarframfærslueyri til hluta ein- stæðra foreldra en skilur eftir þann hlut einstæðra foreldra sem ekki get- ur leitað til meölagsskylds aðila um framlag vegna menntunar barna. Löggjafarvaldið er hér að mis- muna bömum einstæöra foreldra og skapa þeim mismunandi aðstöðu og möguleika til menntunar. Eymdarleg afstaða Meirihluti allsherjarnefndar neöri deildar, sem skipaður var fulltrúum stjórnarliða, lagði til aö frumvarp- inu, sem leiðrétta átti þann mismun, yrði vísað til ríkisstjórnarinnar. Rök meirihlutans vom vissulega léttvæg. Þau voru að hopa í þaö skjól aö þar sem almannatryggingalöggjöfin væri í endurskoðun bæri að vísa mál- inu til ríkisstjómarinnar. Það er í raun óþolandi að hvenær sem reynt er að koma fram réttarbótum, hvort heldur er á lífeyrisréttindakerfinu eða almannatryggingalöggjöfinni, þá sé Alþingi Islendinga meinað að taka afstöðu til mála af því að stjórn- skipaðar nefndir em að fjalla um málin, nefndir sem setið hafa á rök- stólum í fjölda ára eins og lífeyris- réttindafiefndin, eða frá árinu 1977, og a.m.k. tvær eða þrjár stjómskip- aðar nefndir á undanförnum 10 árum til aö endurskoða almannatrygg- ingalöggjöfina. Þeim mun eymdar- legri var þessi afstaða meirihluta allsherjarnefndar að hér var ekki verið aö leggja til breytingar á al- mannatryggingalöggjöfinni, heldur bamalögunum. Tryggingastofnun ríkisins hefði ekki haft með fram- kvæmdina aö gera skv. ákvæðum fmmvarpsins að öðru leyti en því að vera greiösluaðili. Fmmvarpið kvað á um að ef meðlagsskyldur aðili væri ekki lengur á lífi eða af öðrum ástæð- um reyndist ókleift, samkvæmt úr- skurði valdsmanns, aö innheimta framlög, vegna menntunar eða starfsþjálfimar, skyldi lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins greiða framlögin til 20 ára aldurs barns. Rökrétt framhald I raun og sannleika fólst í afstööu meirihluta allsherjarnefndar að skipta einstæðum foreldrum upp í tvo hópa og viðurkenna viðbótar- framfærslu annars hópsins vegna menntunar og starfsþjálfunar barna þeirra en ekki hins sem allt eins get- ur búið við erfiðar aöstæður ef ekki verri aðstæður. Hver eru rökin fyrir slíkri mismunun? Eru rökin t.a.m. þau að einstæð móðir með 4 börn, sem ekki getur leitað til meðlags- skylds aðila um. viðbót á fram- færslueyri vegna menntunar barna sinna, sé í minni þörf fyrir aðstoð en einstæð móðir með tvö böm sem skv. ákvörðun Alþingis getur fengið slíka fyrirgreiðslu af því aö hún getur leit- að til meðlagsskylds aðila. Þegar Al- þingi hefur viðurkennt þörf og nauð- syn á viðbótarframfærslueyri til hluta einstæðra foreldra og barna þeirra þá er það rökrétt framhald að Alþingi tryggi einnig sambærilegan rétt þeirra sem ekki geta leitað til meðlagsskylds aðila og sem Trygg- ingastofnun ríkisins hefur nú skyldu við végna framfærslu bama þeirra til 18áraaldurs. 834 einstæðir foreldrar 1167 börn Samkvæmt upplýsingum Trygg- ingastofnunar ríkisins fengu 834 ein- stæðir foreldrar greiddan bamalíf- eyri meö bömum sínum yngri en 18 ára vegna andláts annars hvors for- eldris. Að mati Tryggingastofnunar ríkisins má gera ráð fyrir að þessir 834 einstæðu foreldrar hafi að með- altali 1,4 börn á framfæri sínu. Sam- kvæmt þessum upplýsingum eru 834 einstæðir foreldrar með 1167 böm á framfæri sínu sem ekki njóta réttar samkvæmt ákvæðum barnalaganna þar sem þeir hafa ekki til neins með- lagsskylds aðila að leita. Það er ljóst að þeir sem að því áliti meirihluta allsherjamefndar stóðu að vísa mál- inu til ríkisstjómarinnar höfðu síður en svo góðan málstað að verja þegar þeir lögðu til að Alþingi Islendinga legði blessun sína yfir óréttlátan mismun í aðstöðu einstæðra foreldra og bama þeirra. Enda voru rökin einkennileg í málflutningi meirihlut- ans þegar mælt var fyrir þeirri af- stööu að vísa málinu til ríkisstjórnar- innar. Fram kom hjá framsögu- manni að varhugavert væri að taka eina grein út úr bamalögunum og krefjast breytinga á henni. Spyrja JOHANNA SIGURÐARDÓTTIR ÞINGMAÐUR FYRIR ALÞÝDUFLOKKINN má með sama hætti hvort þessi rök eigi að gilda líka um aöra lagabálka sem iðulega er verið að breyta á Al- þingi. Rökin mótsagnakennd I ljósi þess að meirihluti allsherj- amefndar lagði til að haldiö yröi áfram að mismuna bömum ein- stæðra foreldra þá sést þversögnin best í röksemdafærslu meirihlutans þegar framsögumaður hans hafði eftirfarandi fram að færa: „Það dylst engum að barnalögin gengu í þá átt að halda fram rétti barnsins, svo og jafna rétt barna. Um það veröur ekki deilt.” Svona voru nú rökin mótsagna- kennd og máliö greinilega lítið ígrundað af hálfu meirihlutans ef þeir telja sig hafa verið að jafna rétt bama einstæðra foreldra með af- stöðusinni. En máliö verður lagt fram á nýjan leik á þingi í haust. Þá verður fróð- legt að fylgjast með hvort orð og at- hafnir fara saman. Barnalögin eiga jú að jafna rétt bama, eins og fram- sögumaður allsherjamefndar sagði um leiö og hann lagði til viö neðri deild Alþingis að greiða atkvæði með því gagnstæða. Jóhanna Sigurðardóttir. Ekkilinast kommakreppan Þá er blessuð löggjafarsam- kundan okkar farin í fríið eftir lang- ar og strangar setur. Sjálfsagt á tím- inn eftir aö leiða í ljós hvert gagn varð að löngum fundum hennar í lok- in en ég held að óhætt sé að fullyrða að vegur hennar hafi lítið vaxið síð- ustu vikur þinghaldsins. Skal hér ekki farið út í það að vega eða meta hverjir hafi átt þar mesta sök en skylt er að taka það fram að ekki er hægt aö áfellast stjómarandstööuna sem sh'ka, miklu fremur einstaka þingmenn, jafnt úr liði stjórnar- flokka sem stjórnarandstöðu. Merkustu atburðirnir utanþings En þrátt fyrir að þingmenn hafi setið sveittir undanfamar vikur viö að afgreiða marga lagabálka og klúöra öðrum hafa merkustu atburðir þjóðlifsins gerst utan þing- sala. Þar á ég við samningana á vinnumarkaönum sem ég fjallaði raunar nokkuð um í siöustu grein. Horfur er á því að flest eða öll aðildarfélög ASI muni samþykkja samningana, i það minnsta þegar þetta er skrifað. Vafalítið er þó ánægjan mismikil, eins og gengur og gerist, einkum þó í ónefndu stóru verkamannafélagi. Það hefur verið býsna fróðlegt að fylgjast með ýmsum hræringum í sambandi við þessa samninga. Mest hefur ólgan verið í vesalings Alþýðu- bandalaginu sem virðist engjast af innanmeinum í hvert skipti sem eitt- hvað gerist í tengslum við verkalýðs- hreyfinguna. Fyrirfram var vitað að hóflegir samningar væru ýmsum þeim öflum sem flokksforystan hefur gengið undir og jafnvel eflt lítt að skapi enda hefur óneitanlega skorist í odda í bandalaginu. Liösstjórar órólegu deildarinnar í verkalýðsráði flokks- ins héldu fund þar sem hvatt var til þess að samningarnir yrðu felldir. Forseti ASI lét samstundis hafa eftir sér að það fólk vissi harla lítið hvað verkalýðsbarátta væri og hefði lík- lega ofan i kaupiö lítið kynnt sér samningana. Þetta kom ef til vill ekki sérstak- lega mikið á óvart því lengi hefur verið grunnt á því góða á milli for- ystumanna Alþýðubandalagsins í ASI og þess fólks sem nú hefur tekið völdin í verkalýðsmálaráði flokks- ins. Hitt kom hins vegar talsvert á óvart að formaður flokksins gekk í fyrsta skipti opinberlega á móti verkalýðsmálaráðinu og gaf yfirlýs- ingu um að hann teldi óráðlegt að samningamir yrðu felldir þótt hann teldi þá til lítillar fyrirmyndar. Ljóst er að talsvert hlýtur að hafa gengið á áður en formaöur sá sig knúinn til að gefa slíka yfirlýsingu þar sem hún hlýtur að hafa komið illa við kaunin á því fólki sem kennt hefur verið við órólegu deildina í flokknum. Verður fróðlegt að fylgj- ast með hvort formaðurinn er nú að kúvenda í afstöðu sinni til arma fbkksins eða hvort þetta hefur átt að vera smyrsl á þau sárindi sem hann hefur valdið helstu verkalýðsleiðtog- um flokksins undanfariö með stuðn- ingi sínum við órólegu deildina. Hvorn kostinn sem hann tekur virðist óhjákvæmilegt að kreppan innan flokksins haldi áfram að magnast og líkumar aukist á alls- herjaruppgjöri sem gæti leitt til klofnings. A meðan þessi ólga varir heldur flokkurinn áfram að minnka að því er skoðanakannanir herma okkur enda virðist straumurinn liggja enn til hægri í stjórnmálum hérlendis. Ábyrgir kratar Það hefur einnig vakið mikla athygli, eins og ég gat um í síðustu grein, að kratar í verkalýðshreyfing- unni gengu f ram fyrir skjöldu til þess að liðka fyrir samningum. Ymsum kom það nokkuö spánskt fyrir sjónir þar sem ætla hefði mátt að kratar vildu fá kosningar í haust, á meðan dýrðarsól foringja þeirra skín enn hátt á himni, og vísasta leiðin til að knýja þær fram hefði einmitt verið aö stofna til verkfalla og fá verulega verðbólgusamninga í gegn. Margir hafa leitað skýringa á þessari hegðun krata. Sumir hafa látið aö því liggja að ekki sé allt of MAGNÚS BJARNFREÐSSON gott í raun og vem milli foringjans og gamla krataarmsins í verkalýðs- hreyfingunni og mönnum þar sé ekk- ert óljúft þótt dálitlu lofti sé tappaö af leiðtoganum áður en kosningar verði. Aörir telja aðkratar hafi fund- iö að enginn vilji hafi verið fyrir vinnudeilum og því hafi það verið vinsælasta leiðin að semja. Vera kann að þetta síðarnefnda sé rétt að hluta en ég held þó að hvomg þessara skýringa sé hin raunveru- lega. Eg held að kratar hafi einfald- lega tekið ábyrga og þjóðholla af- stöðu og látið það ráða gerðum sinum hvað þeir teldu launþegum og þjóðinni allri fyrir bestu. Augu allra hinna skynsamari manna í verka- lýðshreyfingunni hafa opnast fyrir þvi að verðbólga er fyrst og fremst tilfærsla á fjármunum frá þeim fá- tækari og áhrifaminni í þjóðfélaginu til hinna ríkari og valdameiri. Eina leiðin til þess að tryggja batnandi lifskjör alls launafólks er að kveða verðbólgudrauginn eins langt niður og unnt er þótt því fylgi sársauki um sinn á ýmsum vettvangi. Engu að síður er þessi framganga kratanna mjög virðingarverö og ætti að geta orðið næstu stjómarand- stöðu, hver sem hún nú verður, gott leiðarljós þegar stundarhagsmunir flokks og varanlegir hagsmunir f jöldans kunna að rekast á. En þótt þungu fargi hafi verið létt af mörgum með samningunum er varasamt að búast við miklum efna- hagsbata á næstunni. Framundan eru miklir erfiöleikar í sjávarútvegi og fiskiðnaði. Þar hafa fyrirtæki lengi verið á heljarþröm og sí- harðnandi samkeppni og undirboð helstu keppinauta okkar á helstu mörkuðum okkar bætir ekki úr skák. Enginn vill væntanlega gefa eftir á þessum vettvangi og er vandséö hvaöa leið er fær. Enginn atvinnu- vegur hér getur létt undir með sjávarútveginum þegar á móti blæs eins og hjá fjandvinum okkar á mörkuðunum þvi viö höfum sett nær allt okkar traust á þennan eina at- vinnuveg á undanförnumáratugum. Sjálfsagt má kenna ýmsum ytri aðstæðum um ástandiö í sjávarút- veginum, svo sem ofveiði og sjávar- kulda. En þaö eru ekki einu ástæðumar. Þær alvarlegustu eru að þar, eins og annars staðar, hefur ver- ið bannað að græða, fyrirtækin hafa verið mergsogin til að fjármagna ýmiss konar félagslegar fram- kvæmdir sem eru allra góðra gjalda veröar ef þjóðin hefur efni á þeim. Það er næsta grátbroslegt að sjá nú fjálglegar skilgreiningar æðstu postula þessarar stefnu á því hvern- ig fjármagn hafi verið fært úr sjávarútvegi. Bragð er að þá bamið finnur stendur einhvers staðar og á vel við þama. En það er ekki nóg fyrir bamiö aö finna bragð ef það kemst aldrei að því af hver ju það er. Magnús Bjamfreðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.