Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Page 32
32 DV. FIMMTUDAGUR 27. JUNl 1985. Andlát Wilhelm Norðfjörö, Víðimel 65 Reykja- vík, lést í Borgarspítalanum þann 25. " júní. Guðmundur Jakobsson bókaútgefandi, Reykjavíkurvegi 27 Reykjavík, er lést 20. júní, verður jarðsettur frá Foss- vogskirkju föstudaginn 28. júní kl. 13.30. Sigurpáli Steinþórsson, frá Vík í Héð- insfirði, Framnesvegi 54 Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 28. júní kl. 13.30. Ágúst Helgason, Þorfinnsgötu 6 Reykjavík, verður jarösunginn frá Bú- staöakirkju laugardaginn 29. júní kl. 10.30. Jarðsett veröur frá Selfoss- kirkju. Ingveldur Magnúsdóttir fyrrum ljós- móðir, Vorsabæ Skeiöum, verður jarð- sungin frá Olafsvallakirkju laugardag- inn29. júnikl. 14. Margrét V. Sigurðardóttir, Hrafnistu Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 28. júní kl. 15. Sigurlaug Finarsdóttir, ölduslóð 46, veröur jarösungin frá Hafnarfjarðar- kirkju föstudaginn 28. júní kl. 15. Magnús S. Snæbjörnsson, I,öngufit 14 Garðabæ, andaöist i St. Jósefsspítalan- um í Hafnarfiröi þann 26. júní. Tilkynningar Tónleikar í Borgarnesi Tónlistarfélag Borgarfjaröar gengst fyrir tónleikum í kirkjunni í Borgarnesi fimmtu- dagskvöldiö27. júní og hefjast þeir kl. 21. Jónas Ingimundarson píanóleikari kemur og flytur verk eftir B. Galuppi, J.S. Bach, L.v. Beethoven, F. Liszt og nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Aö ósk Tónlistarfélagsins mun flytjandinn kynna verkin. Jónas lék þessa sömu efnisskrá fyrr í þessum mánuöi aö Kjarvalsstöðum fyrir þátttakendur á organistanámskeiði á vegurn söngmálastjóra þjóökirkjunnar. Páfagaukur týndist frá Njálsgötu A mánudagskvöldið sl. varö fulloröin kona fyrir því óláni aö tapa litlum, ljósum páfa- gauki frá Njálsgötu 78. Páfagaukurinn er meö gráum yrjum og aöeins blár fyrir neöan bringu. Þeir sem hafa orðiö hans varir eru vinsamlegast beönir aö hringja í síma 12413 eöa 16184. Nýjar vísitölur að gangaígildj: Mæla um 30% , verðbólgu undanfarið Byggingavísitalan hækkar úr 200 í 216 stig 1. júlí, eða um 8%, en það er hækkun frá 1. apríl. A sama tíma hækkar Iánskjaravísitaian um rétt tæp 3% frá þessum mánuði, í 1178 stig. Miðað viö þróun beggja vísi- talnanna síðustu þrjá mánuði hefur verðbólgan veriö um 30%; verð- hækkanir mældar á árskvarða. Þetta er 5% meiri verðbólga en talsmenn ríkisstjómarinnar hafa , haft á orði síðustu vikumar. Hins vegar spáir Seðlabankinn því aö verðbólgan fari hjaðnandi og meðal- hækkun „verði talsvert lægri”. HERB i VIGDÍS KOMIN HEIM FRÁ FRAKKLANDI Forseti Islands, Vigdís Finnboga- dóttir, kom til Islands í fyrradag úr Frakklandsför. Meðan hún var er- lendis fóru forsætisráðherra, forseti sameinaðs þings og forseti hæsta- ' réttar meö forsetavald. Vigdís var í Frakklandi í vikutíma í einkaerindum. Hún dvaldi meöal annars í París, Lyon og Grenoble, þar sem hún var sæmd heiðurs- 3 doktorsnafnbót við háskóla húmanískra fræða. Með forsetanum í för var Vigdís Bjamadóttir, deildarstjóri á forseta- f skrifstofunni. -KMU. Grafíska meyjafélagið og Magnús sýna í Gallerí salnum 1 dag, þann 27. júní, verður opnuö i „flotta galleríinu” samsýning fimm ungra mynd- listarmanna sem útskrifuðust úr grafíkdeild MHI nú í vor. Þar sýnir Anna Lindal dúkrist- ur sínar og er myndefnið forn og ný fjöl- skyldudrömu. Guðný Björk sýnir málaðar myndir eins og henni einni er lagið. Magnús Þór sýnir einnig málaöar myndir en hins vegar eins og honum einum er lagið. Margrét verður með blandaö sjónlistarefni í anda Grafíska meyjafélagsins og Magnúsar. Sig- rún birtir myndir er fjalla um samspil manns og hljóöfæris, ennfremur máiaðar grafískar mannamyndir. Þreytt verður opnun í kvöld kl. átta og lesa þá upp ungir ljóðmeistarar úr verkum sinum og kannski heyrum viö blásiö í klarínettu. Sýningin stendur til 17. júlí og er galleriið opið frá kl. 13—18. alla daga nema mánudaga. Frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Fataúthlutun verður fimmtudaginn 7. júní frá kl. 15—18e.h. aðGarðastræti 3. Mæðrastyrksnefnd. Húsmæðrafélag Kópavogs Orlof húsmæíra í Kópavogi veröur á Laugar- vatni vikuna 8.—14. júlí, fáein pláss laus. Vin- samlegast hafiö samband viö okkur sem fyrst. Helga s. 40689, Katrín s. 40576, Steinunn s. 42365, Jóhanna s. 40725 og Sæunn s. 41352. Tekiö veröur á móti greiðslum á þátttöku- gjaldi í félagsheimili Kópavogs, 2. hæö, þriðjudag- inn2. júlímillikl. 17ogl9. Kynning á útgáfustarfsemi íslensku þjóðkirkjunnar íslenska þjóökirkjan er aö hefja sérstaka kynningu á útgáfustarfsemi sinni nú í sumar. Eins og kunnugt er hefur útgáfan Skálholt veriö starfrækt í nokkur ár sem forlag kirkj- unnar. Vmis rit og bækur hafa komiö út undanfarin ár frá Skálholti auk tónlistar á plötum og snældum. Skálholt er þjónustu- fyrirtæki viö kirkjuna og söfnuöi landsins en tekur auk þess aö sér prentun og allt er henni tengist fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofn- anir. I sambandi viö þessa kynningu mun koma út sérstakt kynningarblað af Víöförla sem er fréttablaö og málgagn þjóökirkjunnar, en rit- stjóri þess er séra Bernharöur Guömundsson. Mun þessu kynningarblaöi, sem kemur væntanlega út í ágúst, veröa dreift á ÖU heimili í landinu. Starfsmenn útgáfunnar Skálholts vinna nú aö þessu verkefni og leita stuðnings hjá fyrirtækjum og stofnunum um land allt. Kirkjan vill leitast viö að þjóna söfnuöum og heimilum í landinu meö því aö gefa út myndarlegt frétta- og fræðslublað sem fari sem víðast meö boöskap kirkjunnar sem hefur um aldir veriö grundvöllur aö menn- ingu íslendinga. I ráöi er að auka barnaefni í Víöförla í framtíöinni og koma þannig til móts viö foreldra sem vilja gefa börnum sínum hollt og gott veganesti fyrir lífiö. Útgáfan Skálholt gerir sér vonir um aö fyrirtæki og stofnanir um land allt taki þessu máli vel og styöji kirkjuna í þessu mikilvæga útbreiöslustarfi. Opið hús í Norræna húsinu 1 dag fimmtudag hefst árviss sumardag- skrá Norræna hússins undir nafninu OPIÐ HÚS. Þessi sumardagskrá hefur verið fastur liöur í starfsemi hússins undanfarin ár og jafnan veriö vel sótt, bæöi af erlendum feröa- mönnum og íslendingum. Dagskráin er eink- um sett saman meö tilliti til norrænna feröa- manna og flutt á einhverju af Noröurlanda- málunum. Leitast er viö að kynna ýmsa þætti íslenskrar menningar, svo sem sögu landsins og náttúru, bókmenntir og listir, og hafa feng- ist til þess færir menn, hver á sínu sviöi. Tvisvar á sumrinu kemur Hamrahlíöarkór- inn fram undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur og ávallt er sýnd ein af kvikmyndum Ösvalds Knudsen. Á fyrsta „Opna húss” -kvöldinu, í kvöld, flytur Finnbogi Guömundsson landsbóka- vöröur erindi, sem nefnist: „Snorri Sturlu- sons skildring af dei nordiske folk”, en síðan syngur Hamrahlíöarkórinn íslensk þjóölög. Eftir kaffihlé veröur sýnd kvikmyndin „Eldur í Heimaey”. Bókasafn Norræna hússins og kaffistofa verða opin til kl. 22.00 alla fimmtudaga i sumar eöa svo lengi sem „opið hús” veröur á dagskrá. Það síðasta veröur 22. ágúst. Aögangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Kynningarbæklingur yfir hótel og veitingastaði Samband veitinga- og gistihúsa hefur gefið út kynningarbækling yfir hótel og veitingastaði á landinu. Er þetta í þriðja sinn sem slikur bæklingur er gefinn út og nú í mjög endur- bættri mynd. Með táknmáii er getið um alla þá þjónustu og aðstöðu sem viðkomandi hótel og veitingastaðir hafa upp á að bjóða. Enn- fremur er í bæklingnum kort af bæði Reykja- vík og landinu öllu og staðirnir merktir inn á. Er útgáfa sliks bæklings til mikilla hags- bóta fyrir þá sem notfæra sér þjónustu hótela og veitingastaða og þá sérstaklega ferða- menn, hvort sem þeir hyggjast dvelja í Reykjavík eða ferðast um landið. Bæklingur þessi liggur frammi á SVG- hótelum og veitingahúsum viðs vegar um land- ið, ferðaskrifstofum og ennfremur fæst hann i upplýsingaturni fyrir ferðamenn sem er á Lækjartorgi. Safnaðarfélag Ásprestakalls Sumarferðin ákveðin sunnudaginn 7. júlí. Farið verður að Reykholti í Borgarfirði. Sóknarprestur og kór Áskirkju messa þar kl. 14. Farið veröur frá Áskirkju kl. 9. Hafið með ykkur nesti. Upplýsingar í símum 81742, Þuríður, 685970, Hilmar, 31116, Bryndís. Vinsamlegast látið vita um þátttöku í siðasta lagi fyrir föstudaginn 5. júlí. Undirskriftasöfnun undir friðarávarp Friðarhreyfing íslenskra kvenna, í samvinnu við '85 nefndina, gengst fyrir geysivíðtækri undirskriftasöfnun í júní undir friðarávarp ís- lenskra kvenna. Sjálfboöaliðar eru hvattir til að hafa samband við miðstöð Friðar- hreyfingarinnar sem hefur aðsetur á Hall- veigarstöðum, Túngötu 14 (gengið inn frá Oidugötu), Reykjavík. Siminn er 91-24800. Háskólafyrirlestur Enrique Bernárdez, lektor í germönskum málvísindum viö Madridháskóla, flytur opin- beran fyrirlestur í boöi heimspekideildar Há- skóla Islands mánudaginn 1. júli 1985 kl. 17.15 í stofu 423 í Árnagaröi. Fyrirlesturinn nefnist „Translations of Old Icelandic Literature into Spanish and Other Romance Languages: Main Problems”, og veröur fluttur á ensku. Enrique Bernárdez hefur þýtt mikiö af forn- bókmenntum Islendinga á spænsku. I þýöingu hans hafa m.a. komiö út Egilssaga, Skáld- skaparmál, Gylfaginning, Hrafnkels saga og Gunnlaugs saga ormstungu og núna er hann langt kominn meö aö þýöa Njálssögu. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Norrænt vísnamót á Laugarvatni Nú um helgina standa Vísnavinir á Is- landi fyrir norrænu vísnamóti á Laug- arvatni og er þetta í fyrsta sinn sem slík samkoma fer fram hérlendis. Til mótsins koma margir þekktir vísna-og farandsöngvarar frá Noröurlöndunum og er ætlunin að nýta krafta þeirra aö mótinu loknu og verður þaö gert meö tónleikahaldi dagana 30. júní til 3. júlí víöa um land. I Reykjavík veröa hljómleikar í Iönó á sunnudagskvöldiö og hefjast þeir kl. 21, þá veröa einnig haldnir tónleikar í Norræna húsinu. Bubbi Morthens á ferð um landiö Bubbi mun leika á eftirtöldum stöö- um um helgina: Föstudagskvöld, 28. júní, Vogalandi — Króksfjarðarnesi, laugardagskvöld, 29. júní, Félagsheimili Patreksfjarðar, — Patreksfiröi, sunnudagskvöld 30. júní, Dunhaga — Tálknafiröi. Sigurjónsvöku lýkur um helgina Á morgun, laugardaginn 29. júní kl. 15, veröa haldnir tónleikar á sýning- unni á síðustu verkum Sigurjóns Olafs- sonar í Listasafni ASI, Grensásvegi 16. Siguröur Ingvi Snorrason klarínettu- leikari og Anna Guöný Guömundsdótt- ir píanóleikari munu flytja verk eftir Jón Nordal, Penderecki, Lutoslawski, Poulenc og Dráskovczy. Sunnudaginn 30. júni kl. 15 ætla skáldin Einar Bragi, Matthías Johannessen, Thor Vil- hjálmsson og Þorsteinn frá Hamri aö lesa úr eigin verkum. Aðgangur að ö!l- um dagskrám á Sigurjónsvöku er ókeypis en fólki er bentáaðtekiðverð- ur á móti fjárframlögum til Styrktar- sjóðs Listasafns Sigurjóns Olafssonar. Sýningunni lýkur á sunnudagskvöld kl. 22. Happdrætti Ungtemplarar með happdrætti Islenskir ungtemplarar efna í ár til happ- drættis, sem þeir kalla Byggingarhappdrætti IUT 1985. Með þessu happdrætti er stigið fyrsta skrefið í að koma upp varanlegum samastað fýrir starfsemi samtakanna. Ætiun- in er að samastaður þessi verði félagsmiðstöð sem rúmi bæði félagsstarfið og skrifstofu IUT. Aðalvinningur er bifreið af gerðinni Toyota Corolla 1600 DX aö verðmæti um 450 þúsund. Aðrir vinningar eru tvær IBM-PC 256 k tölvur, tvær Apple IIC 128 k tölvur, tvö myndbandstæki frá NESCO og þrettán sóleyjarstólar frá EPAL hf. Heildarverðmæti vinninga er tæplega 900 þúsund og dregið verður 20. ágúst. Hér er í mikið ráöist af félagssamtökum ungs fólks. Því er leitað til landsmanna um stuðning í formi happdrættis. Miðar eru ein- göngu seldir í lausasölu. Frekari upplýsingar fást á skrifstofu samtakanna að Eiríksgötu 5 i Reykjavík (simi 91-21618) á skrifstofutíma og á kvöldin hjá Árna í síma 91-611208. Skyndihappdrætti handknattleiks- deildar Víkings Dregiö hefur veriö í skyndihappdrætti hand- knattleiksdeildar Víkings. Dráttur fór fram hjá borgarfógetanum í Reykjavík. Vinningar komu á eftirfarandi númer: 1. vinningur: Ferö í leiguflugi meö Samvinnuferðum-Landsýn aöverömæti 15.000. nr.1030 2. vinningur: Tölva frá Radíóstofunni aö verömæti kr. 5.000. nr. 469 3. vinningur: Tölva frá Radíóstofunni aö verömæti kr. 5.000. nr. 446 4. vinningur: Vöruúttekt frá Sportbúö Omars aö veröm. kr. 2.500. nr. 625 5. vinningur: Dansnámskeiö hjá Dansnýjung Kollu aö verömæti kr. 2.000. nr. 83 6. vinningur: nr. 1116 Ljósatimar frá Sólarlandi, kr. 1.000. 7. vinningur: Hljómplötur frá Fálkanum að verðmæti kr, 1.000. nr. 751 8. vinningur: Hljómplata frá Fálkanum að verðmæti kr. 500. nr. 760 9. vinningur: Hljómplata frá Fálkanum að verömæti kr. 500. nr. 251 10. vinningur Hljómplata frá Fálkanum að verðmæti kr. 500. nr. 152 11. vinningur: Hljómplata frá Fálkanum að verðmæti kr. 500. nr.1200 12. vinningur: Hljómplata frá Fálkanum að verðmæti kr. 500. nr. 934 13. vinningur: Hljómpiata frá Fálkanum að verðmæti kr. 500. nr.1011 14. vinningur: Bolti f rá Isspor að verðm. kr. 500. nr. 874 15. vinningur: nr. 16 Bolti frá Isspor, kr. 500. Upplýsingar um vinningsnúmer eru veittar í síma 91-03245. Hafi komið vinningur skal hafa samband í síma 91-30859. Ferðalög ÚTI VIST 1 0 Á R A Útivistarferðir Helgarferöir 28.—30. júní: 1. Vestmannaeyjar. Bátur — flug. Göngu- ferðir um Heimaey. Sigling. Svefnpoka- gisting. 2. Þórsmörk. Gist í Útivistarskálanum góða í Básum. Gönguferðir við allra hæfi. 3. Selvallavatn—Tröllaháls: Gengið um gaml- ar þjóðleiðir á norðanverðu Snæfellsnesi. Siglt um Breiðafjarðareyjar. Tjaldferð. Miövikudagsferð i Þórsmörk 3. júlí. Sumar- dvöl í skála Utivistar í Básum er ódýrasta sumarleyfið. Viðeyjarferðir um næstu heigi. Uppi. og far- miðar á skrifst., Lækjarg. 6a, simar 14606 og 23732. Sjáumst. Utivist. Útivistarferðir Sumarleyfisferðir: .. . „. . Hornstrandir — Aðalvík 4.—13. juli. Gist í tjöldum og húsi. Homstrandir — Homvík 11.—20. júlí. Tjöld. Gönguferðir frá tjaldstað. Hesteyri — Aðalvík — Homvík 11,—20. júlí. Bakpokaferð. 2—3 hvildardagar. I Fjörðum — Flateyjardalur — Náttfaravík, 8 dagar, 13.—21. júlí. Ný bakpokaferð. Tjöld. Uppl. og farmiðar á skrifst., Lækjarg. 6a, símar 14606 og 23732. Sjáumst. Utivist. Helgarferðir Ferða- félagsins 28.—30. júní: 1. Skeggaxlargata, gengin gömul gönguleið milli Hvamms í Dölum og Skarðs á Skarðs- strönd. Gist í svefnpokaplássi á Laugum. Fararstjórar: Árni Bjömsson og Einar Gunnar Pétursson. 2. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála. Göngu- ferðir við allra hæfi. Sumarleyfi í Þórs- mörk er eftirminnilegt. Þægileg aðstaða, rennandi vatn, sturtur og tvö eldhús. 3. 29,—30. júní: Söguferð um slóðir Eyr- byggju. Gist í húsi. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni, öldugötu 3. Helgarferðir 5.-7. júlí: 1. Hagavatn — Brekknafjöll — Leyni- fossgljúfur. Gist í húsi og t jöldum. 2. Hagavatn — Hlööuvellir — Geysir — gönguferö. Gist í húsum. 3. Landmannalaugar. Gist i sæluhúsi Fl. Gönguferöir um nágrenni Lauga. 4. Þórsmörk. Gönguferöir um Mörk- ina. Gist í Skagfjörösskála. 5. Hveravellir — uppselt. Farmiöar og allar upplýsingar á skrifstofu FI: Feröafélag Islands. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins: 1. 4.—14. júlí (11 dagar): Homvík og ná- grenni. Gönguferðir daglega frá tjaldstað, m.a. á Hombjarg, Hælavíkurbjarg, Látra- vík og víðar. Gist í tjöldum. Fararstjóri: Vemharður Guðnason. 2. 4.—14. júlí (11 dagar): Homvik — Reykja- fjörður. Gengið með viðleguútbúnað frá Hornvík í Reykjafjörð. Fararstjóri: Jón Gunnar Hilmarsson. 3. 5,—14. júlí (10 dagar): Austurlandshring- ur. Skipulagðar öku- og gönguferðir um Hérað og Austfiröi. Gist í svefnpokaplássi. Fararstjóri: Sigurður Kristinsson. 4. 5.—10. júlí (6dagar): Landmannalaugar — Þórsmörk. Gist í húsum. Fararstjóri: Vig- fús Pálsson. Allar upplýsingar á skrifstofu Fl, Öldugötu 3. ATH.: Sumarleyfisferðir í Þórsmörk og Landmannalaugar. Ferðafélag Islands. Neskirkja — Vestfjarðaferð dagana 4.-8. júti. Nánari upplýsingar gefur kirkjuvörður í síma 16783 milli kl. 17 og 18 næstudaga. 50 ára afmæli á í dag, 27. júní, Gnnnar Guðnason, starfsmaður hjá Essó Keflavíkurflugvelli, Smáratúni 36 Keflavík. Hann og kona hans ætla aö taka á móti gestum á Víkinni í Kefla- vík nk. laugardagskvöld eftir kl. 20. 80 ára afmæli á í dag, 27. júní, frú Laura Proppé, Austurbrún 6 hér í borg. Maöur hennar var Garöar Jóhannesson útgeröarmaöur frá Patreksfiröi er lést áriö 1970. Hún verður að heiman í dag. 70 ára afrnæli á í dag, 27. júní, frú Aðal- heiöur Halldórsdóttir fyrrum kennari og skólastjórafrú frá Siglufiröi, Engi- hjalla 1 Kópavogi. Eiginmaöur hennar var Jóhann heitinn Jóhannsson, skóla- stjóri Gagnfræöaskólans á Siglufirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.