Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Síða 40
FRETTASKOTIÐ (68)*(78) • (58) Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gœtt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. . FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1985. 5 4 5 4 4 5 4 4 4 4 4 4 4 í í i í 4 í í í Bensínverð lækkar í Rotterdam—hækkar hér: FOLKIHEITTIHAMSI .J'ólk er mikiö búið aö hringja í okkur hjá FIB. Fólk vill aðgeröir vegna bensínhækkunarinnar. Fólki er heitt í hamsi. Því finnst eins og veriö sé aö taka nýumsamda launa- hækkun af því,” sagöi Jónas Bjarna- son, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra bifreiöaeigenda. Stjórn FlB kemur saman til fundar i kvöld til aö ræöa um bensín- hækkunina í gær. Lítrinn hækkaði um 16,5 prósent, úr 26,70 krónum upp í 31,10 krónur. „Þaö er ekki alveg ljóst á þessari stundu hver viöbrögö FlB verða,” sagði Jónas. Hann sagöi aö í janúar síðast- liðnum heföi FlB beitt nýjum vinnu- brögöum þegar olíufélögin lögöu fram beiöni um sex prósent bensín- haritkun. Þeirri hækkunarbeiðni var hafnaöífebrúar. „Við öfluðum okkur þá upplýsinga um markaðsverö á Rotterdam- markaði. I ljós kom aö í tíu mánuöi þar á undan haföi verið fariö lækkandi og því var spáö aö þaö færi ennþá meira lækkandi. Viö tókum lika inn i dæmiö innlendar verö- hækkanir og gengisþróun dollarans. Niðurstaöan var sú aö ekki væri þörf á að hadcka bensíniö. A þetta var fallist. Núna eru ekki sambærilegar for- sendur. Bensínverð á Rotterdam- markaöi hefur hækkaö mjög mikið og náði nýju hámarki fyrr í þessum mánuði, hærra en nokkru sinni á síöastliönu ári. Einnig hefur krónan lækkaö. Hins vegar er toppnum náö og bensínverö á Rotterdammarkaöi er aftur á hraðri niðurleið,” sagði Jónas Bjamason. -KMU. Davíð Oddsson: „ Verður gert við völlinn” „Þaö veröur gert viö völlinn, það er óhjákvæmilegt aö láta lagfæra þetta eitthvaö,” sagöi Davíð Oddsson borgarstjóri í morgun um þaö hvort gert yrði viö hlaupabrautina í Laugar- dal, Valbjamarvöll, fyrir EB mótiö í frjálsum íþróttum. „Því miöur óttast ég aö þaö sé veriö að kasta peningum á glæ meö viðgerð- inni, þetta er ekki varanleg viögerö, en málið er komiö í slikan hnút aö þaö er ekki hægt annað en leysa það, laga völlinn.” Og borgarstjóri bætti við: „Annars finnst mér þaö umhugsunarefni aö frjálsíþróttamenn skyldu hafa boöist til aö halda svona stórmót sem þetta, vitandi aö völlurinn stæðist hugsan- legaekkikrifur.” — Hvaö im aö setja gerviefnið á hlaupabrau aöalleikvangsins, á þaö ekkihrimal arfrekar? ,,Ég vil endilega láta skoöa þann möguleika og hef rætt þaö. Eg held aö Valbjarnarvöllur verði aldrei sá leik- vangur sem til stóö. En tíminn er of naumur til Evrópumótsins, þaö veröur gert viö Valbjarnarvöll.” -JGH TALSTÖÐVARBÍLAR UM ALLA BORGINA SÍMI 68-50-60. QlB 1 u A s rf -------:4t> ÞR0STUR SÍÐUMÚLA 10 Hvernig væri að mót- mæla benslnhækkun- inni með Davíðslaginu — og aka I hestvögn- um? „Þá er aO taka til hendinni hér í grunni íþróttaleikhússins. Hór þýflir ekkert slór frekar en á göngunni." Reynir Pétur i grunninum góða á Sólheimum. íþróttaleikhúsið á að vera risið i haust. Sjá heimsókn til Reynis Péturs á Sólheima á bls. 4. -KÞ/DV-mynd S Alþingispóstur Rangæinga: „Mlstök” - segir Arni Johnsen sem setti bréfin í póstíþinginu „Það voru mistök aö frímerkis- stimpill Alþingis skyldi vera á þess- um bréfum. Hins vegar get ég staö- fest með kvittun aö ég greiddi sjálfur burðargjöldin,” sagöi Ámi Johnsen alþingismaöur í samtali við DV. Arni var forsvarsmaður Rangæ- ingakynningar sem haldin var um helgina á Kjarvalsstöðum. Var aug- lýsingaspjaldi um kynningu þessa dreift í pósti meö sérstökum stimpli Alþingis. Voru send út 400 bréf meö þessum hætti. Voru umslögin á eng- an hátt auðkennd kynningunni eða Rangæingum heldur aöeins meö kirfilega áprentuðum póststimpli Al- þingis. Því leit svo út sem Alþingi ætti einhvern þátt aö kynningunni, þótt þaö kæmi þar hvergi nærri. „Þetta var í mestu önnum Alþing- is, þegar þetta gerðist,” sagöi Ámi. „Mitt hlutverk var aö sjá um dreif- ingu þessara bréfa, ganga frá þeim og setja í póst. Eg komst ekki út fyrir önnum og baö því einn sendil Al- þingis aö gera þetta fyrir mig. Ég geröi mér ekki grein fyrir fyrr en eft- ir á, aö bréfin vom öll merkt á þenn- an hátt. Þetta voru því hrein og klár mistök,” sagöi Arni Johnsen. -KÞ Tjarnarskóli — einkaskóli fyrir 13-16 ára nemendur: „SÆKJUM FYRIRMYND TIL NESKAUPSTAÐAR” „Tjamarskóli á aö veröa leiö fyrir nemenduma út í þjóölífið. Viö tengj- um skólann nútímalif i í landinu í staö þess aö sitja föst í fortíðinni, eins og opinberri grunnskólinn hefur lent í, aö margra mati,” segir Maria S. Héðinsdóttir kennari. I haust tekur tii starfa nýr einkaskóli í Reykjavik fyrir 13—16 ára unglinga, í Miö- bæjarskólanum. verður 3.200 krónur á mánuöi, eöa um 30 þúsund fyrir veturinn. Ríkiö mun greiöa laun vegna tæplega fimm kennarastaöa. Kennarar verða hins vegar mun fleiri. „Viö ætlum að hafa sérfróöa kennara í hverju fagi og skipta meö okkur verkum eins og unnt er,” segir María. Hundrað nemendur veröa í þess- um skóla næsta vetur, í fjórum bekkjum og deildum. Skólagjald Hún og Margrét Theodórsdóttir kennari munu reka skólann. Auk skólagjalda og ríkisgreiddra kenn- aralauna, samkvæmt kjarasamning- um, fær skólinn liklega stuðning frá borginni. „Davíö hefur veriö okkur afar vinsamlegur, borgin lánar okk- ur húsnæöiö, en um samstarf viö borgina hefur enginn samningur ver- iö gerður ennþá.” Aðalbreytingin frá venjulegum grunnskóla verður að Tjarnarskóli verður beinlínis tengdur atvinnulif- inu allan skóiatímann, svo og þjón- ustu hins opinbera og leiöum til framhaldsmenntunar. Einn morgun í viku verða nemendur fóstraðir í stofnunum og fyrirtækjum eftir fyrirfram samkomulagi og skipu- lagi. Síöan koma ýmsir í skólann með fræðslu. Um allt þetta halda nemendur dagbók og fjalla sin á milli um reynslu hver annars. „Aö sumu leyti sækjum við fyrir- mynd til Framhaldsskólans í Nes- kaupstað sem hefur reynt svipaö þessu. Og fjölmargir hafa lagt okkur til hugmyndir, þaö taka þessu allir feikivel. Það hafa strax borist fýrir- spumir jafnt um kennarastööur og skólavist,” sagöi María Hreinsdótt- ir. HERB i i i I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.