Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1985, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1985, Side 2
2 DV. MIÐVKUDAGUR 24. JUU1985. Hæstu skattgreiðendur meðal einstaklinga í Reykjavík: Guðmundur í Klausturhólum efstur Guðmundur Axelsson í Klaustur- hólum er skattakóngur Reykjavíkur þetta árið. Hann greiðir tæpar níu milljónir í skatta. Næstur honum kem- ur gamalkunnugt na£n af listanum í gegnum árin, Þorvaldur Guðmunds- son í Síld og fiski. Hann greiðir rétt rúmarfimmmilljónir. ÞriðjierHerluf Clausen forstjóri með tæpar fimm milljónir. Hér fer á eftir listi yfir tólf hæstu skattgreiðenduma í Reykjavík meðal einstaklinga: Reykjavíkurböm greiða rúmar þrjár milljónir Börn undir 16 ára aldri í Reykja- vík greiða samtals 3.270.899 krónur i skatta. Fjöldi gjaldenda er 2.140. Alagn- ingin skiptist svo að i tekjuskatt greiöa börnin 2.175.140 krónur, í út- svar 1.073.230 og í kirkjugarösgjald 22.529 krónur. -KÞ. Skattskrá Reykvíkinga: Heildargjöldin rúmirfimm milljarðar Áiagningarskrá Reykjavíkur árið 1985 hefur verið lögö fram. Em heildargjöldin samtals 5.394.686.811 krónur. Heildartalan skiptist svo að á einstaklinga nemur upphæðin 3.695.365.593. Er fjöldi gjaldenda 67.421. Alögaðila nemurálagningin 1.696.050.319. Þar er fjöldi gjald- enda 4.927. Og á börn undir 16 ára aldri nemur álagningin 3.270.899 krónum. Kæmfrestur vegna þeirra gjalda sem birtast í álagningarskránni er 30 dagar frá og með 24. júlí er álagningu Iauk. -KÞ. 1. Guðmundur Axelsson, frkvstj., Skólavst. 6b 2. Þorvaldur Guðmundss., forstj., Háuhlið 12 3. Herluf Clausen, forstj., Hólavallagötu 5 4. Gunnar B. Jensson, húsasmiður, Suðurlbr. Selásd. 5. Birgir Einarsson, lyfsali, Melhaga 20 6. Sigmar Pátursson, veitingamaður, Hrisateig 41 7. Valdimar Jóhannss., útgefandi, Greniml. 21 8. Kristinn Sveinsson, byggingameistari, Hólast. 5 9. Ingólfur Guðbrandss., forstjóri, Laugarásv. 21 10. Ragnar Traustason, tannlœknir, Mýrarási 12 11. Christian Zimsen, lyfsali, Kirkjut. 21 12. Þorsteinn Axelss., Hvergisgötu 32 B kr. 8.877.178 kr. 5.083.576 kr. 4.951.996 kr. 4.719.851 kr. 3.744.234 kr. 3.559.070 kr. 3.262.181 kr. 3.035.703 kr. 2.803.032 kr. 2.681.642 kr. 2.557.315 kr. 2.222.262 -KÞ. Millisvæðamótið: Mikil taugaspenna Frá Jóni L. Áraasyni, fréttaritara DVíBiel: Ahorfendur fengu sitthvað fyrir snúö sinn á 16. umferð millisvæöa- mótsins í Biel, sem tefld var í gær. Nokkrar skákir urðu æsispennandi í lok setunnar er tíminn var tekinn að styttast. „Gutman komst að því að skákklukkan var ekki til skrauts,” sagði Vlastimil Hort, senv skýrði skákirnar fyrir áhorfendum eftir umferðina. Gubman féll á tíma í jafnteflisstöðu gegn Vaganjan, sem viö þaö komst aftur einn upp í efsta sæti. Vaganjan var með yfirburða- stöðu eftir afglöp Gutmans í byrjuninni — „hefði undir eðlilegum kringumstæöum átt að vinna skákina í 25 leikjum,” sagði Hort. ,,En svona eru millisvæðamót; taugaspennan setur svip sinn á skákimar.” Urslitlö. umferðarurðuþessi: Vaganjan—Gutman 1—0 Sókolov—Short jafnt Torre—Seirawan jafnt Lí—Sax jafnt Van der Wiel—Margeir jafnt Pólúgaévskí—Ljuboievic 1—0 Jansa—Rodriguez 0—1 Andersson—Partos 1—0 Martin—Quinteros biðskák Umferðin lofaði ekki góðu framan af því að eftir aðeins 14 leiki voru Torre og Seirawan famir aö stilla mönnunum upp á nýtt. Þeir sömdu jafntefli eftir að hafa hermt hvor eftir öðrum fyrstu leikina — tefldu samlokuskák. Skák Sókolov og Shorts lauk einnig með jafntefli eftir fremur fáa leiki en þar var þó barist upp á líf og dauða. Short, sem hafði svart, tefldi drekaafbrigðið af Sikileyjarvörn enda þurfti hann helst að vinna til að eiga raunhæfa möguleika á að komast áfram. Staöa hans leit vel út um tima en þá lagöist Satolov undir feld og hristi fram úr erminni framhald sem lauk eftir miklar fórnir með þráskák. Short var hrifinn af því hvemig Sókolov bjargaði sér úr erfiðleikunum; sagöi hann Sókolov hafa einkar næmt auga fyrir leikfléttum. Ljuboievic var í sömu aðstöðu og Short fyrir umferðina, þurfti helst að vinna Pólúgaévskí til að eiga möguleika, þó að með jafntefli væri ekki öll nótt úti. Skák þeirra var æsi- spennandi. Pólú náði sterkri sóknar- stööu eftir slavneska byrjun Júgóslavans en fór illa með tímann. Hann átti aðeins 5 mínútur eftir á 15 Ieiki í stöðu þar sem allt var í háa- loftL Báðir voru óstyrkir í tíma- hrakinu. Pólú lék síðustu leikina með eldingarhraöa og er skákin fór í biö hafði hann heldur betra tafl. Ljúbó tapaði síöan biðskákinni og var i miklu uppnámi eftir tapið. önnur spennandi skák var milli Jansa og Rodriguez. Báðir voru fallnir úr leik í baráttunni um efstu sætin en hafa gaman af þvi að tefla. Jansa var tveimur peðum yfir en í tímahraki að vanda. Áhorfendum sýndist Rodriguez leika af sér drottningunni en vera má að mistök hafi orðið á sýningartöflunni. Jansa tók a.m.k. ekki drottninguna og lék sigímát. Og Margeir og Van der Wiel tefldu mikla skák. Svonefndur Maróczy- bindingur af Sikileyjarvörn varð uppi á teningnum og náði Hol- lendingurinn undirtökunum. Mar- geir notaði gamalkunnugt meðal til aö losa sig úr klípunni, fórnaði peði og náði þar með að skipta upp í endatafl með mislitum biskupum, sem var jafnteflislegt. Þeir þæfðu skákina rúman tug leik ja eftir bið en hvomgur komst áleiðis og því var samið jafntefli. Athygli vakti einnig að Svíinn Andersson vann sína aðra skák i röð, nú gegn Partos. Andersson hefur þá loksins skipt yfir í sigurgirinn en of seint. Fróðlegt verður að sjá skák hans og Margeirs í síðustu um- ferðinniá fimmtudag. En lítum á skák Shorts og Sókolovs. Hvítt: AndreiSókolov. Svart: NigelShort. Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rd3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf65. Rc3g6 Short teflir drekaafbrigðið! Auðvitað hlýtur það að hafa komið Sókolov á óvart eins og áhorfendum. Sókolov hefur áður mætt drekanum í mótinu; það var gegn Sax og hann vann þá glæsilega. Short telur sig haf a eitthvað til málanna að legg ja. 6. Be2 Bg7 7. 0—0 0—0 8. Bg5 Rc6 9. Rb3a5 Sax lék a-peðinu einum reit skemur i áðurnefndri skák og reynd- ar gerði Martin hinn spænski hið sama gegn Short í 13. umferð. Vinsælt afbrigði á millisvæðamótinu. 10. a4 Be611. f4 Hc812. Khl Rb413. Bh4Rd7! Þessa leiks er hvergi getið í fræðiritum en hann mun fyrst hafa sést í skák Nunn við Watson á skák- móti á Englandi í fyrra. Short sagöist hafa farið yfir skákina með Nunn og þeir komist að því að svartur mætti vel við una. Þar með er kominn skýringin á byrjanavali hans gegn Sovétmanninum. 14 f5 Bxb3 15. cxb3 Bxc3 16. bxc3 Hxc3 Ef til vill var Sókolov of bráður á sér aö leika f-peðinu fram í 14. leik því nú stendur hann frammi fyrir erfiðum vandamálum. Ekki gengur 17. Bc4 vegna 17. — Rc2! og hótar 18. — Re3 ásamt hróknum á al. Aðrir leikir virðast einnig gefa svörtum góða stöðu. Eftir að hafa legið yfir stöðunni í eina klukkustund og tiu mínútur lék Sókolov loks og hver veit nema hann hafi reiknað framhald skákarinnar til enda. 17. fxg6! hxg6 18. Dd2 Hc219. Dh6! Hxe2 20. Hf3 De8. Nauösynlegt svo hann megi svara 21. Hh3 með 21. —f6 og g-peðið er valdað. Leikimir eru þvingaðir á báða bóga. Hvítur þvingar fram jafntefli. 21. Bf6! Rxf6 22. Hh3 Rh5 23. Hxh5 gxh5 — og hér sömdu þeir um jafntefli. Hvítur þráskákar. Fyrir svona jafntefli þarf enginn að skammast sin. Aö lokinni næstsíðustu umferö er Vaganjan efstur með 11,5 vinninga, Seirawan er í öðru sæti með 11 og þeir Sókolov, Torre og Van der Wiel saman í þriðja sæti með 10,5. Short hefur 9,5 og Ljuboievic 9. I síðustu umferð tefla saman Vaganjan—Partos, Torre—Sax, Sókolov—Seirawan, Van der Wiel— Short. Ef einhverjir verða jafnir í 4. sæti þarf aukakeppni til að skera úr um hver kemst áfram, minnst sex skákir samkvæmt reglum FIDE og ef það gerist verður fyrsta umferð tefld hér í Biel á sunnudag. -JLÁ/-IJ. Fyrirtækin sem greiða hæstu skattana í Reykjavík: SÍS hefur vinninginn Samband islenskra samvinnufélaga greiðir hæstu heildargjöld lögaðila samkvæmt álagningarskrá 1985, eða rúmar 56 milljónir. Næst kemur Reykjavikurborg með tæpar 37 milljónir og þá Húsasmiðjan með rúmar 32 millj ónir. Hér fer á eftir listi yfir 20 hæstu fyrirtækin: 1. Samband islenskra samvinnufólaga kr. 56.131.224 2. Reykjavíkurborg kr. 36.935.924 3. Húsasmifljan hf. kr. 32.039.603 4. Eimskipafélag Íslands hf. kr. 31.579.088 5. Flugleiflir hf. kr. 30.351.002 6. IBM World Trade Corp. kr. 28.334.524 7. Landsbanki íslands kr. 24.995.103 8. Oliufélagið hf. kr. 24.781.037 9. Hagkauphf. kr. 20.310.068 10. Oliuverslun islands hf. kr. 19.881.438 11. Heklahf. kr. 16.101.184 12. Slóturfélag Suðurlands svf. kr. 15.710.580 13. Skeljungur hf. kr. 14.278.563 14. Vífilfell hf. kr. 11.354.707 15. Tryggingamiðstöðin hf. kr. 11.033.496 16. Búnaflarbanki islands kr. 10.398.668 17. Samvinnutryggingar g.t. kr. 9.915.297 18. Þýsk-islenska verslfél hf. kr. 9.031.820 19. Hafskip hf. kr. 9.138.592 20. Hildahf. kr. 9.109.622 -KÞ. Kærði lögregluna fyrir ofbeldi: Tók átta tíma að fá að gefa kæraskýrslu „Máliðof magurt” að mati ríkissaksóknara „Hann sagði mér að málið væri of magurt og ekkert vit væri að halda því áfram,” sagði Hólmfríður R. Árna- dóttir en hún kærði lögregluna fyrir hrottafengnar aöfarir við handtöku sem hún varð vitni að af tilviljun á Austurvelli sL haust. „Sá handtekni var bæði ódrukkinn og óbrjálaður og meðferð lögreglu- mannanna á honum var hrottaleg og ástæðulaus,” sagði hún ennfremur. „Nú, ég heimtaöi aö fá aö fara niður á stöð með manninum og gefa skýrslu. Eftir langt þóf tóku þeir mig með í lög- reglubíl. Er komið var niður á stöð bað ég um að fá að sjá manninn vegna þess að ég hélt að hann væri meiddur en fékk það ekki. Loks var mér ekiö til Rannsóknarlögreglu ríkisins í Kópa- vogi og þar var tekin af mér nákvæm skýrsla, Heim var ég ekki komin fyrr en klukkan eitt eftir miðnætti en atburðurinn skeöi á milli klukkan sjö ogáttaumkvöldið. Síðan leið og beið og ég heyrði ekkert meira. Þá hafði ég samband við rannsóknarlögregluna en hún sagði mér að það væri löngu búið að senda málið til lögreglunnar í Reykjavík. Það þótti mér skrýtið þar sem það var hún sem ég var að kæra. Hjá lögreglu- stjóraembættinu fékk ég þær upplýsingar að málinu væri lokið. Þá hringdi ég til ríkissaksóknara og talaði við Braga Steinarsson vararíkissak- sóknara og hann sagði mér að málinu væri ekki lokið. Loks tókst mér að ná tali af Þórði Bjömssyni rikissaksókn- ara en hann sagði orðrétt að „máliö væri of magurt” og lauk því þarna á stundinni.” Hólmfriður Árnadóttir á Austurvelli þar sem hún varfl vitni afl hrotta- fanginni handtöku afl þvi er henni fannst. -EH. DV-mynd: S.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.