Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1985, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1985, Síða 32
FRETTASKOTIÐ (68) •(78) • (58) Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsinqar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krðnur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚU 1985. Mikið ólag á símamálum Sunnlendinga: Fyrirtæki á Hellu fá sér síma í Reykjavík „Þetta kostar auðvitaö stórfé en er okkar eina úrræði. Ástandið í síma- málum á Suðurlandi hefur verið svo slæmt að staðurinn hefur jafnvel veriö símasambandslaus í marga daga,” sagði Páll Bjömsson, for- stjóri glerverksmiðjunnarSamverks á Hellu, en fyrirtækið er ásamt fleiri í byggðarlaginu að opna síma- þjónustu í Reykjavík. „Ástandið hefur verið mjög slæmt lengi en það hefur keyrt um þverbak núna undanfarið,” sagði Páll. „Það er sífellt sagt aö bæta eigi úr málum en þau hafa bara versnað að sama skapi. Þetta kemur sér mjög illa fyrir fyrirtæki eins og okkar, sem byggja viöskipti sín á allri lands- byggðinni en þetta er miklu fremur öryggisatriði fyrir alla Sunn- lendinga. Það þarf ekki að benda mönnum á hvað gerðist ef stór óhöpp yrðu hér; það væri tómt mál að reyna að ná í lækni, slökkvilið og lög- reglu. Það hefur verið sofið of lengi á verðinum.” Páll sagði að ólagið á simanum lýsti sér með ýmsu móti. I fyrsta lagi gengi erfiðlega að ná sambandi til eða firá staðnum og jafiivel milli húsa en einnig væri til í dæminu aö samband slitnaði og að fólk fengi samband við vitlaus númer. „Ef maður þarf að hringja 6 til 8 símtöl til Reykjavíkur, þá liggur við að það borgi sig að keyra þangað og hringja þaðan,” sagði Páll ennfremur, „Mér skilst að sömu sögu sé að segja um allt Suðurland. Það eina sem hægt er að gera í þessu er að flýta þeim úr- bótumsemeruígangi.” „Mér finnst þessi fyrirtæki vera nokkuð fljót á sér,” sagði Hilmar Ragnarsson, deildarverkfræðingur hjá tæknideild Pósts og sfina. „Nú eru í uppsetningu staðrænar sfinstöðvar, bæði á Hvolsvelli og Hellu, og þegar þær komast í gagnið, í september eða október, þá verða þessivandræðiúrsögunni.” -JKH. „Ekki von á því að við kaupum” — segir Hörður Sigurgestsson „Eg á ekki von á því að við hér kaupum þessi hlutabréf á því verði sem talað er um,” sagði Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, ísamtali viðDV. „Annars á eftir aö ræðaþaðhér.” Eins og kunnugt er hefur fjár- málaráðherra ákveðið að bjóða til sölu hlutabréf ríkisins 1 Flugleiðum og Eimskip. Ríkið á um 20 prósent í Flugleiðum en 5 prósent í Eimskip. „Það eru einkum tveir hlutir í þessari verðlagníngu sem vekja undrun. I fyrsta lagi er þetta verð mat fjárfestingafélagsins. Þaö segir ekkert til um verðmæti bréfanna þar sem matið var byggt á eignum og skuldbindingum Eimskipafélagsins. Þetta er mjög óvenjulegt þegar verið er að selja hlutabréf i fyrirtæki. 1 öðru lagi kemur mér á óvart að markaður- inn skuli ekki vera látinn ráða í verðlagningu bréfanna heldur gefið upp lágmarksverð.” -KÞ. Lucille frá Nigeriu i frystihúsinu á Djúpavogi. DV-mynd: PK. Frá Nígeríu í fisk TALSTÖÐVARBÍLAR UM ALLA BORGINA SÍMI 68-50-60. l0lB I L A S 7-Q —----------* ÞR0STUR SiÐUMULA 10 Það hefur verið mikið rætt um manneklu í frystihúsum landsins og slæm kjör fiskvinnslufólks. Búlands- tindur á Djúpavogi er fyrirtæki sem hefur þurft að þola manneklu. Brugðið hefur verið á það ráð að fá útlendinga til starfa þar. Um tíma starfaði fólk þar frá 13 þjóðlöndum. Hún Lucille frá Nígeríu er í þessum hópi. Blaðamenn DV hittu hana nýlega á Djúpavogi þar sem hún var önnum kafin í aðgerð. Hún ætlar að vinna hér í fimm vikur. 1 Nígeríu starfa hún sem flugfreyja og mun að öllum líkindum starfa seinna i sumar hjá Flugleiðum í sambandi við pílagrimaflugið. Henni sjá einnig á bls. 5 Uppsögn Júlíusar: Mótmæli er- lendis frá Á ritstjóm DV bárust þrjú skeyti frá Danmörku, Frakklandi og Spáni. Skeytin voru frá Flokki mannsins í þessum þjóðlöndum. Þar sagði orðrétt: „Við mótmælum pólitískum ofsóknum á hendur formanni í Flokki mannsins á Islandi”. Tilefni þessara skeytasendinga mun vera uppsögn Júlíusar Kr. Valdi- marssonar úr starfi framkvæmda- stjóra Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna, en Július kallaði hana pólitíska aðför. -ÞJV. Nauðgunarmálið í Norðurmýrinni: Báðirmenn- irnirfundnir Sá mannanna sem kærður var fyrir nauðgun aðfaranótt sl. sunnudags og leitað var í gær er fundinn. Hann var í gær úrekurðaður i gæsluvarðhald til 7. ágúst nk. Eins og skýrt var frá í DV í gær kærði kona, liðlega tvítug, mennina tvo fyrir að ógna sér með hníf og nauðga. Mennimir eru báðir um fertugt. Annar var handtekinn á heimili sínu í N orður- mýrinni þar sem atburðimir gerðust aðfaranótt sunnudags. Hann var einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. ágúst. Var sá dæmdur árið 1980 fyrir hlutdeild í nauðgun. Hlaut hann 18 mánaða fangelsisdóm i það skiptið, samkvæmt upplýsingum frá Sakadómi Reykjavíkur. -EH Varnarmáladeild: AUKAFUNDUR UM BR0TT- REKSTURINN líst vel á landið og hún kann ágætlega við fiskvinnuna. „Það má vel vera að ég reyni að giftast Islendingi,” segir Lucille og brosiralsæl ífiskvinnuáDjúpavogi. -APH. Sérstakur fundur verður hjá vamar- máladeild eftir verelunarmanna- helgina, þar sem meðal annars verður rætt um mál skrifstofustjóra fjár- málastofnunar Vamarliðsins, sem fyrirvaralaust var vikið úr starfi á dögunum. I DV fyrir skömmu var sagt frá þessu máli. Skrifstofustjóranum var sagt að hætta uppsagnarinnar. uppsögnina. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust engin svör við spum- ingum um ástæður uppsagnarinnar. FISK, Félag íslenskra stjórnunar- manna á Keflavíkurflugvelli, þingaði um málið og ákvaö stjórnin að óska eftir fundi með forstöðumanni vamar- máladeildar vegna þessa máls. -KÞ. LOKI A Hellu tekur það víst allan daginn að fá að skreppa í síma! SETTUR SAKLAUS A SVARTAN LISTA — nafn og nafnnúmer víxluðust Maður nokkur í Reykjavík varð fyrir þeim óþægindum fyrir skömmu aö hann var kominn á svartan lista yfir vanskilamenn frá Reiknistofu Hafiiarfjarðar án þess að hafa nokkuð til saka unniö. I ljós kom að nafnnúmer mannsins haföi verið sett á annan mann með svipuöu nafni og átti sá réttilega heima á listanum. Fyrrgreinur maður, Guðbjöm Þórðarson, sagði í samtali við DV að upphaflega hefði þetta byrjað meö því að hann skrifaöi upp á víxla fyrlr kunnlngja sinn. „Það var hlegið að þeim í bankanum, sagt að ég hefði á mér dóm síðan 1982. Eg fór í bank- ann og þar var haft samband við Reiknistofu bankanna sem svo benti á Reflmístofu Hafnarfjarðar. Ég fór þangað og kvaöst ekki vera neitt hrifinn af svona löguðu en það var gert lítiö úr málinu og mér sagt að ég hlyti að vera búinn að gleyma þessu. Síðar fékk ég ljósrit af dómnum, eöa öllu heldur áskorunarstefnunni, og þar var mitt nafnnúmer en nafii ann- ars manns sem liktist mjög mínu. Þetta hefur misritast í Lands- bankanum á sínum tíma og síðan farið í gegn hjá Reiknistofu Hafinar- fjarðar.” Guðbjörn sagði að enn hefði ekkert verið gert til að leiðrétta mál hans þvi nýlega var honum synjað um lán í banka út á það að hann skuld- aðL „Þetta eru mistök hjá Reikni- stofu Hafiiarfjarðar að vinna ekki betur úr gögnum frá Landsbankan- um. Það þarf aö bera saman nafn og nafnnúmer og vinna þetta betur,” sagðiGuðbjöm. Samkvæmt upplýsingum Skúla Böðvaresonar hjá Reiknistofu Hafnarfjarðar er búið að taka nafii Guöbjöms út af skránni með yfir- lýsingu frá Landsbankanum. Skúli sagði aö tilfelli af þessu tagi væru ekki nema tvö til þrjú á ári en tug- þúsundir nafiia fara i gegn hjá reiknistofunni árlega. -pá. !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.