Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1985, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1985, Síða 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR 24. JULI1985. Menning Menning Menning Bjöminn á Gauknum Gaukur é Stöng — Lystauki. bjOrninn eftir Anton Thekov. Þýfling: Kári Halldór Þórsson. Beint undir nefinu á Bimi Jónssyni ráðherra og ströngum bindindis- postula á sinni tíð er þessa dagana að renna sitt skeið sýning þriggja ungra leikara á einum af stuttu þáttunum hans Thekov. Síöustu vikurnar hafa Baröi Guðmundsson, Rósa Guðný Þórs- dóttír og Þór Tuliníus leikið þarna fyrri hluta vikunnar, sem betri helm- ing af pakkadíl er Gauksungamir bjóöa uppá sem síðasta bragð sitt í menningarstríðinu. Það er gleðilegt að Gaukurinn skuli hafa áttaö sig á töframagni leiklistarinnar, en jafn- framt slæmt að þeir skuli ekki bjóöa listamönnum sínum uppá skárri að- stööu: ómyrkvaðan sal, senu úti homi, en ekki á miðju gólfi, spjall undir sýningunni í eldhúsinu — slík smáatriöi eiga að varða unga verta sem vilja fitja uppá nýjungum. Sú var að vísu tíðin, svona um það leyti sem Thekov og Bjöm Jónsson voru að ganga fyrstu sporin inní þessa öld, að kaffi og veitingahús í Reykjavík buðu uppá smáþætti gestum sínum til skemmtunar. Kaffihúsaleikhús eru virtar stofnanir erlendis, rétt eins og pöbbaleikhúsin. Megi vertar lands- ins átta sig á þeim möguleika ungum og öldnum leikurum til atvinnubóta. Farsar Þátturinn um bjöminn, geðrikan og bráðan landeiganda, sem kemur aö innheimta skuld hjá ekkju nokkurri, er kailaður farsi af höfund- inum, en er nánast útspekuleruð karakterstúdía sem gefur lengri og alvarlegri verkum Antons ekkert eftir. Hér er sem sagt færst mikiö í fang, persónur hæfa betur marg- Leiklist Páll B. Baldvinsson reyndum leikurum og eldri en ung- viðinu. Þegar svo bætist á að leikaramir hafa kosið sér eigin verk- ‘ stjóm án þess að hafa með sér leið- beinanda, eins og leikstjórar voru kallaðir hér á landi á timum Antons og Bjöms Jónssonar, þá ér enn hættara að gjarðir vanti á fatið og úr þvígusist. En það gerist sem oft áður, eins og sjá má í Draumleik Stúdentaleik- hússins, að góð leikrit er fjári erfitt að höndla svo á sviði að ekki megi hafa af þeim nokkra skemmtan. Herra, frú og þjónn Ekki vil ég rekja þráðinn fyrir gestum Gauksins annaö kvöld. Ungu leikendunum vildi ég gefa holl ráð ef ég mætti. Verið gagnrýnin á hlutverk sem ykkur bjóöast eða þið af sjálfs- björg ykkar og vinnusemi verðið ykkur út um. öll ráðið þið yfir ágætum líkamsburðum sem ykkur gefast vonandi tækifæri á næstu árum til að þroska jafnt og þétt. öll skortir ykkur á vald yfir rödd ykkar sem kemur ekki nema meö slípun. Rasið ekki um ráð fram í leik, jafn- vel farsinn virkar betur ef hann er leikinn á lágum nótum, ég tala nú ekki um i litlum sal sem þessum. Þaö er islenskur ósiöur að leika sífellt með miklum bægslagangi og gróf- leika þegar skemmta á áhorfendum. Þetta er arfur frá áhugamennsku sem ekki á að iíðast. Ekki hjó pró- fessional fólki eins og ykkur. Tiltækið að koma þessari sýningu á (sem ég efast ekki um að þið eigið upptökin að — Gauksungarnir fá bara hrós fyrir kurteisissakir, þar til þeir láta myrkva salinn hjá sér) til- tækið er gott og blessað. Finnið annað stykki næst er hentar betur þroska ykkar og röddum — ef næmi og rík réttlætistilfinning finnst ekki hjá ykkur, hvar finnst hún þá? Eru engin litil leikrit til sem endurhljóma þá tilfinningu betur en þetta? Leikhópurinn Lystauki: Þór Tuliníus, Rósa Guflný Þórsdóttir og Barfli Guflmundsson. DV-mynd: KAE „Verð á veiði- leyfum orðin della” — segir Guðlaugur Bergmann... Guðlaugur Bergmann er meðal þekktustu veiðimanna hérlendis og þykir hann fengsæil mjög og hafa margar veiðisögur orðið til um veiði- skap hans. Við fengum smáspjall við hann, en hann var aö fara út úr bænum til aö veiöa, fyrst í Norðurá í Borgarfirði í einn dag og svo í Laxá í Aðaldal í þrjá daga. I Norðurá veiddi hann 6 laxa á maðk og kona hans 4 laxa, alla á fransis rauða. Fyrsta daginn veiddu þau 4 laxa í Aðaldalnum og einn þeirra var 14 pund. Ertu búinn afl veifla mikifl i sumar? „Eg er búinn að fara í nokkra veiðitúra, fjórum sinnum í Norðurá og ef frátalinn er þessi nýjasti, einn dagur, gekk best á undan honum, fékk þá 26 laxa og veiddi i þrjá daga en Magnús Jónasson veiddi lengur en ég og þess vegna með fleiri laxa. Fór fyrst í Norðurá 9. til 12. júní og fékk þá 5 laxa með fjaðrafoki, fór svo 21. til 24. júní og fékk sjálfur 4 laxa og gestir sem fóru með mér fengu 10, var að gæta þá mest. Svo veiddum við í Langá, ég og Ingvi Hrafn, og það gekkvel.” Maggi hefur þá ekki veitt fleiri laxa en þú? „Nei, hann var búinn að veiða flesta laxana þegar ég kom. ” Hvafl finnst þér um hifl hóa verfl á veiðileyfum? „Verðið er orðið della og það hlaut að koma að þessu fyrr en seinna að menn gætu ekki keypt veiðileyfi eins mikiðogáður.” G. Bender. VEIÐIVON GunnarBender í dag mælir Dagfari í daa mælir Daafari í ___________________________: Uppskurðurinn jók vinsældiraar Vestur í Bandarikjunum þykja for- setakosningar skemmtilegasta sportið ef frá er talið golf og base- baU. Skemmtunin felst í þvi, að framkvæma lýðræðið með þeim hætti, að það er algjört lotterí hver sigrar. Bandarikjamenn hafa nefni- lega gaman af aUri áhættu og óvænt- um uppákomum. Fyrir tæpum sex árum hafði þetta lýðræði þær afleið- ingar að nýr forseti var kjörinn í Hvita húsið, sem þekktastur var fyr- ir kvikmyndaleik í þriðja flokks kú- rekamyndum. Sá hév Ronald Reagan. Þótti umheiminum litið tU þessa Ameríkumanns koma, og héldu flestir að Sam gamU frændi væri nú endanlega búlnn að spUla þvi Utla sem eftir væri af þeirri virðingu, sem lýðræðið þyrfti á að halda í versnandi heimi. Fyrir utan deUumakaríið í bíó- myndunum var klínt upp á Reagan ýmsum öðrum ávirðingum, svo sem byssugleði striðsglæpamannsins, heimsku og leti og vanþekklngu sem næði hámarki í póUtik. Eftlr að Bandaríkjamenn höfðu boðið umheiminum upp á svlka- hrapp á borð við Nixon og tvístigandi blauðmennl eins og Carter, var ekki að undra þótt kalt vatn rynnl á milU hryggjarliða þelrra „besser viss- era” um heim aUan, sem sifeUt eru að hafa vit fyrir öðrum um heim aU- an. Nú eru sem sagt tæp sex ár síðan Ronald bíóleikari Reagan náði kosn- ingu í fyrsta skipti. En ennþá hefur ekki bólaö á vanþroskanum eða van- stUlingunni og sagt er að aldrei hafi áður búið jafnástsæU forseti í Hvita húsinu, síðan Roosevelt leið. Þelr sem gleggst fylgjast með máium for- setans, segja að Reagan hafi litið fyrlr hlutunum og leggi sig gjaman bæðl kvölds og morgna. Hann hefur jafnvel tekið upp á þvi að leggja sig á fundum og hefur meira gaman af þvi að horfa á gamlar biómyndir með sjáUum sér, heldur en að velta fyrir sér vandamálunum sem sérfræðing- arnir eru að troða upp á hann. Á siðasta ári var þessl maður end- urkjörinn sem forseti með meirl mun, en áður hefur þekkst í guðs elg- in landi. Nú er hann orðinn 74 ára gamaU og vinsældir hans aukast með hverju árinu. Það bar hinsvegar vlð i síðustu viku, að Reagan var lagður inn á sjúkrahús tU uppskurðar á æxU einhvers staðar innvortis. Var þessi uppskurður helsta heimsfréttin í nokkra daga, jafnvel þótt hann bæri upp á sama tima og stórslysið á ttalíu, þar sem á annað hundrað manns fórust. Um tíma var haldið að forsetinn væri með krabba, en þegar sú frétt var borin tU baka, brutust út mikU fagnaðarlæti í Bandaríkjunum og var honum fagnað sem stríðshetju heimtri úr helju þegar hann rels úr rekkju. Nú mætti halda, að ekki væri óeðU- legt að maður, hátt á áttræðlsaldri væri farinn að láta á sjá og aðdáend- ur hans þökkuðu fyrir meðan hann legðlst ekki í kör, hrumur og eUiær. En það er nú eitthvað annað, þegar Reagan á i hlut. Það þótti tilhlýða að halda blaðamannafund með læknum forsetans að uppskurðinum loknum, og þar var upplýst að innyfli forset- ans væru eins og i fertugum mannl. Og ekki nóg með það. Forsetinn hefði jú haft snert af krabbamcinl, en það innanmeln væri að mestu horfið vegna kimnigáfu og jákvæðs hugar- fars forsetans. Mun þetta síðasta vera nýtt í læknavísindunum. Upp- skurðurinn hefur nú haft þau áhrif að vinsældlr Reagans forseta hafa auk- ist melra en dæmi er um áður. Og af því að Bandaríkjamenn eru fljótir að tUelnka sér kosningabreUur i sinu lýðræðislega lotteríi, kæmi manni ekki á óvart, þótt tUvonandi fram- bjóðendur tækju upp á þvi, að leggja sig lnn á spitala til uppskurðar i von um meiri árangur i kosningum tU Hvita hússins. - Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.