Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 1
IDAGBLAÐIЗVÍSIR 186. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 1985. nóttu, „Like a Virgin," syngur Madonna og gifti sig um helgina. Madonna gengin út Rokkstjarnan Madonna gekk í það heilaga með filmstjörnunni Sean Penn á 27 ára afmælisdegi sínum á laugar- dag. Mikil leynd hvíldi yfir öllu brúð- kaupsstandinu er fór fram undir berum himni í húsakynnum kvik- myndaframleiðandans Kurt Unger í Malibu, útborg Los Angeles. Um 250 nánir vinir og ættingjar brúðhjónanna voru viðstaddir athöfnina. Þar má fræga nefna leikarana Diönu Keaton og Christopher Walken og rokk- stjörnurnar Cher og Andy Warhol. Svo mikil leynd hvíldi yfir öllu ráða- brugginu að brúðkaupsgestir fengu að vita um stað og stund með aöeins einnar klukkustimdar fyrirvara. Madonnu þekkja flestir fyrir þokka- fullt útlit og fallega söngrödd auk þess sem hún hefur að undanförnu átt lög í toppsætum vinsældalista í Bretlandi og Bandaríkjunum. Brúðguminn Sean Penn er tveim árum yngri en Madonna og þykir efnilegur leikari. Islendingar kannast viö kappann úr kvikmyndunum Fálkinn og snjó- maðurinn og Fast Times at Ridgemont High. hhei. Innbrotaalda um helgina Fjölmörg innbrot voru framin um helgina. Brotist var inn í íbúðarhús í Garðabæ á föstudagskvöld en litlu stolið. Ungur piltur var fljótlega hand- tekinn og játaði hann innbrotið. Tilkynnt var um innbrot í einbýlis- hús í Fossvogi síðdegis í gær. Þar höfðu húsráðendur aðeins brugðið sér frá örskamma stund. Þaö var litlu í hestaíþróttum í Svíþjóð: DÆMDIR UR LEIK í GÆÐINGAKEPPNI sjáfréttábaksíðu Ásgeir með stórleik Frá Sigmundi Ó. Steinarssyni, tíðinda- manni DV, stöddum í Miinchen: Ásgeir Sigurvinsson virðist vera að ná fyrra formi ef dæma má af leik hans með Stuttgart gegn Bayern Miinchen á laugardaginn. Þrátt fyrir stórt tap Stuttgart, 4—1, átti Ásgeir stórleik og fékk bestu einkun í blöðunum Bild og Welt am Sontag. Hann var í Uði vik- unnar hjá síðarnefnda blaðinu. Ásgeir var vel tekið af rúmlega 45 þús. áhorf- endum á ólympíuleikvanginum í Miinchen þar sem hann lék einu sinni meðBayern. Sjá nánar á íþróttasiðum blaðsins í dag. SigA/SOS Síríusfarínn Tveir fertugir taka sporio i af- mælisveislu sem þeir héldu í Viðey sl. laugardag. Þetta eru féiagamir Kari M. Karisson og Eyj- ólfur Brynjólfsson en þeir buðu nálægt tvö hundruð manns tíl afmælisveislu í Viðey. Þar var slegið upp tjaldi og tvær hljóm- sveitir léku fyrir dansi fram eftir DV-mynd PK. Síríus, skip grænfriðunga, lét úr höfn héðan rétt eftir hádegi á laugar- dag. Grænfriðungar segja að verk- efnum þeirra hér á landi sé lokið að sinni. Líklegast var talið að Síríus færi til Amsterdam héöan. Ekki var ákveöið enn hvert næsta hlutverk skipsins yrði. Þó var taUð sennilegt að það færi í Norðursjóinn til að reyna að hindra að eiturefnum yrði varpað i hafið þar. APH FLAUG Á RAFSTRENG Það óhapp varð laust eftir hádegi á laugardag að litil eins hreyf ils flug- vél með tvo menn innanborös flaug á rafstreng við bæinn Hrísholt í Biskupstungum. „Við vorum að búa okkur undir lendingu á Einholtsmelum,” sagði flugmaðurinn, Þorsteinn Scheving Thorsteinsson tannlæknir, i samtali við DV í gær. „Þegar við flugum yfir brautina til að kanna aðstæður kom skyndilega hnykkur á vélína en viö héldum bara áfram og lentum. Þegar á jörðina var komið sáum við svo hvað hafði gerst.” Þorsteinn sagðist ekki hafa komið auga á strengínn úr lofti enda félU hann mjög inn í landslagið í kring. Strengurinn sUtnaði við áreksturinn. Að sögn Þorsteins urðu hvorki hann né farþeginn fyrir meiðslum við óhappið og vélin, sem er af gerð- inni M5 Moule, er lítið sem ekkert skemmd. Þorsteinn flaug henni til Reykjavíkur síðar um daginn. Það mun hafa oröið mönnum til bjargar að strengurinn skyldi slitna viðáreksturinn. -EA stoUð, aðallega vínföngum. I gærkvöldi var framið innbrot í íbúðarhús í Kópavogi og stolið tveimur sjónvarpstækjum og myndsegulbands- tæki. Einnig var framið innbrot í efna- laug í Hafnarfirði um helgina. Samkvæmt upplýsingum rannsóknarlögreglunnar eru síðast- nefndu innbrotin óupplýst að undan- skildu því í Garðabæ. Fólkið sem situr í gæsluvarðhaldi vegna innbrota um verslunarmannahelgina, alls átta manns, hefur játað á sig sjö innbrot, aðallega frá þeirri helgi. Þó var eitt innbrotanna framið fyrir þann tíma. -EH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.