Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 44
44 DV. MANUDAGUR19. AGUST1985 fi Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið ÉG VEIT UM FLEIRI LEIKARA SEM ERU MED ONÆMISTÆRINGU DYNASTYLIÐIÐ ÓTTASLEGIÐ Leikarar og starfsliö viö Dynasty framhaldsmyndaflokkinn góökunna er óttaslegiö vegna fréttarinnar um sjúk- dóm Roek Hudson. Hann lék í níu þátt- um í Dynasty þrátt fyrir aö hann vissi aö hann væri meö ónæmistæringu. Linda Evans er sérstaklega óttaslegin því hann kyssti hana í nokkrum senum í þáttunum. Sögur um aö Rock væri meö ónæmis- tæringu voru komnar á kreik á meðan hann lék í þáttunum en þeim sögum — Rock lék í níu þáttum var alltaf neitaö staöfastlega. Þegar fréttin kom fylltust menn skelfingu jafnframt sem Rock voru sendar sam- úöarkveöjur. Samstarfsfólk hans á samt erfitt með að skilja hvers vegna hann starfaöi með því ef hann vissi aö hann væri haldinn þessum hættulega sjúkdómi. Þaö eru fleiri en Dynastyliðið sem er óttaslegiö vegna veikinda Rock, Doris Day, gömul vinkona hans, er einnig í öngum sínum. Hún var aö vinna meö honum viku áöur en opinbera til- kynningin kom um aö Rock Hudson væri haldinn ónæmistæringu. „Getur einhver sagt mér aö þaö sé fullkom- lega útilokaö aö ég sé með ónæmistær- ingu? Auövitað ekki,” sagöi Doris og hún bætti viö: „Þaö væri ekki svo slæmt ef hægt væri aö lækna sjúkdóm- inn en eina lækningin sem ég hef heyrt um hingaö til er dauðinn,” sagöi Doris. '■ ff, • Linda Evans og Rock Hudson i einu atriði úr Dynasty en Rock lék i niu þáttum þrátt fyrir að hann vissi að hann vœri með ónæmistæringu. • Aumingja Brookie Shields fór að hágráta þegar hún braut nögl í spiiaklúbb í Beverly Hills. Hún var aö spila rúllettu og var aö snúa hjólinu þegar nöglin brotnaöi, en rúilettan var spiluð aö þessu sinni í góðgerðarskyni. Sagt er aö Brookie hafi ákveðið á stundinni aö snúa sér að hættuminna tómstunda- gamni og vill nú mikiu frekar spila Svarta-Pétur. Erlendu blööin sem okkur berast láta gjaman spámenn og -konur spá fyrir um helstu atburöi hvers árs. Til aö vera nákvæmari í spá- dómum sínum skipta þeir árinu í tvennt og spá sérstaklega fyrir sinn hvorn helminginn. I nýiegum spá- dómi sem við höfum undir höndum eru ýmsir spádómar sem eru vá- legir fyrir viökomandi persónu. Söngvarinn Prince er einn þeirra því spáin segir aö í haust muni hann fá einhvern dularfullan sjúk- dóm í hálsinn sem verði til þess að hann þurfí að gangast undir mikla aðgerð. Utlitiö er samt ekki eins svart og þaö viröist í fyrstu því honum er spáö skjótum bata og góðri endurkomu í poppheiminn. Rokksöngkonan Madonna mun hafa ráðgert að ganga í þaö heilaga sl. föstudag. Eiginmaður hennar er leikar- inn Sean Penn sem fór með annað aöal- hlutverkið í myndinni FáQdnn og snjó- maöurinn. Viö vitum ekki annað en aö hjónavíglsan hafi farið fram en allur undirbúningur og staðsetning vígslunnar var leyndarmál, jafnvel gestirnir fengu ekki aö vita hvar vígslan ætti að fara fram. Á boös- kortunum stóð ekki annaö en „Vertu velkomin(n) i afmælisveislu Madonnu og Sean Penn þann 16. ágúst. Veislan byrjar kl. 18.00. Vinsamlega mættu á réttum tíma annars missir þú af brúö- kaupinu.” Aöstandendur Madonnu voru vægast sagt undrandi á þessu boös- korti og vinir hennar furöuöu sig á þessum asa hennar við að gifta sig. Hún og Sean hafa aöeins þekkst í nokkra mánuöi og ganga þær sögur nú f jöllunum hærra aö Madonna sé ófrísk. Sögur herma aö hún hafi gifst í svörtu sem sé einmitt vegna þess aö hún sé með barni. • Nancy Reagan en hún er reið út í Rock fyrir að hafa setið kvöld- verðarboð i Hvita húsinu. Nancy Reagan reið út í Rock Nancy Reagan forsetafrú og forset- inn sjálfur munu vera mjög áhyggju- full vegna fréttarinnar um aö Rock Hudson sé með ónæmistæringu vegna þess að fyrir rúmlega ári var hann í kvöldverðarboði í Hvíta húsinu. I þessum kvöldverði voru flestir sem máli skipta í Washington en gestir voru rúmlega 100. Þaö sem Nancy hryllir við er að ónæmistæringarsjúkl- ingur skyldi hafa setið til borös með, valdamesta fólkinu í Washington. • Boy George hélt upp á afmæliö sitt á afskaplega fínu diskóteki í New York nýíega. Þetta mun hafa verið tuttugasti og fjóröí afmælis- dagur Boys og geröi hann sér svo sannarlega glaðan dag í tilefni þess. Dyravörðurinn á diskótekinu var samt ekki mjög ánægöur meö aö veislan skyldi haldin þarna því fyrir utan voru aðdáendur Boys sem ekki komust í veisluna og æsingurinn yfir því aö vita af honum á svæðinu var mikill. Viö lá að hurðin á diskóinu yröi eyöilögð. Fyrir innan var líka allt á fullu en þar voru fleiri hundruö gestir sem geröu allt sem þeir gátu til aö hneyksla hver annan bæöi í klæða- buröi og framkomu. Kampavín var nóg og undir morgun slökkti Boy á afmæliskertunum sem höfðu logaö alla nóttina á heljarmikilli tertu. Madonna gvft? Sean lenti einmitt í slagsmálum við blaöamenn fyrr í sumar vegna þess aö hann vildi ekki að teknar væru myndir af sér og Madonnu. Sean eyðilagöi myndavélar ljósmyndaranna og kastaði grjóti í þá. Blaöamenn fengu engin svör viö spurningum um ástand Madonnu, en hún og Sean munu hafa stundaö líkamsrækt í líkamsræktar- stöö Jane Fonda í Beverly Hills. Þetta er sem sagt hiö dularfyllsta mál en vonandi skýrist þaö sem fyrst. • Kjóllinn sem Madonna er í á þessari mynd er hvítur og gæti þvi sem slíkur hentað sem brúðarkjóll en hún mun hafa ætlað að vera i svörtu í brúð- kaupinu sínu. — sagði Rock Hudson Leikarinn Rock Hudson er með AIDS eöa ónæmistæringu eins og flestir vita. Fyrst í staö dvaldist Rock á sjúkrahúsi í París en var síðan fluttur á sjúkra- hús í Bandaríkjunum. Hjúkrunarkon- an sem hugsaði um hann í París segir aö hann hafi sagt við sig að hann væri ekki fyrsti leikarinn sem fengi ónæmis- tæringu. „Eg veit um fleiri,” sagði hann. Rock sagðist vita aö hann væri fyrst- ur til aö viðurkenna sjúkdóm sinn opin- berlega en ástæðan væri einfaldlega sú aö hann væri lengra leiddur en hinir leikararnir sem hann vissi um. „Eg er í þannig aðstöðu að ég verö að viður- kenna þaö,” sagöi Rock. Hann sagðist vonast til aö veikindi sín yröu til þess áð ýta á eftir vísindamönnum með aö finna lækningu viö ónæmistæringu. Síö- an bætti hann viö: „Hvers vegna þurfti þaö aö vera ég? Eg hef ekki gert nein- um neitt og núna mun ég deyja. Þetta er ósanngjarnt — þaö eru svo margir hlutir sem ég hafði ráögert aö gera, svo mikiö eftir af mínu lífi.” Hjúkrun- arkonan á sjúkrahúsinu í París var svo elskuleg aö koma þessum orðum leik- arans til skila til réttra aðila. • Rock Hudson á sinum yngri árum, en nú dvelst hann á sjúkrahúsi i Bandaríkjunum haldinn þeim ógn- vænlega sjúkdómi, ónæmistær- Ingu. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.