Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 9
DV: MANUÐAGUR19. AGÚST1985 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Ríkisútvarp Suður-Afríku: Neyðariögin gagnslaus Ríkisútvarpiö í Suður-Afríku sagöi i morgun aö neyðarlög þau er ríkis- stjóm P.W. Botha forsætisráðherra ■setti fyrir mánuði hefðu ekki náð tilgangi sínum að draga úr ófriðará- standinu i landinu. A síöustu 19 mánuðum hafa yfir 620 manns fallið i óeirðum í Suður-Af ríku. Ríkisútvarpið þykir oft túlka stefnu stjómarinnar í fréttapistlum sínum. I fréttapistli í morgun sagði útvarp Suður-Afríku að lögin hefðu ekki náð tilgangi sínum og nauðsyn bæri á að endurskoða þau. „Venjulegt fólk á það enn á hættu að hús þess séu brennd til ösku og eignum þess rænt. Al- menningur á það enn á hættu að verða fyrir aðkasti á biðstöð strætisvagna eða á leið i til að versla. Hinn almenni borgari má á hverjum degi eiga von á því að verða fyrir líkamlegu ofbeldi eða vera myrtur á almannafæri.” Ríkisútvarpið útvarpaði pistli sínum aðeins þrem stundum áður en níu kirkjuleiðtogar hitta Botha for- sætisráðherra í dag tii að ræða ástand mála og leita samvinnu um friðvæn- lega lausn á ástandi mála. Desmund Tutu biskup hefur alfariö neitað boði um að taka þátt í viðræðum kirkjuleiðtoganna níu við Botha for- sætisráðherra. Ríkisútvarpið í Suður-Afríku, er þyklr oft túlka stefnu stjóraarinnar, f ullyrðir i morgun að mánaðargömul neyðarlög i landinu hafi verið gagns- laus til að stemma stigu við óróa og ofbeldi. A síðustu 19 mánuðum hafa yfir 620 manns fallið í óeirðum í Suð- ur-Afriku. YfirlOOOvín með f rostlegi V-Þjóðverjar eru nú komnir með langan lista yfir léttvín, sem efnið diethylene glycol hefur fundist í. Alls eru það 1.045 vín, flest austurrísk en 31 f ramleitt í V-Þýskalandi. Af austurrísku vínunum eru 884 tegundir átappaðar í V-Þýskalandi og hugsanlegt að þetta frostlagarefni sé sett.í eitthvað af vinunum um leið og þeim er tappað á flöskur þar. Rannsókn er enn haldið áfram á vín- hneykslinu í Austurríki og hafa 42 main úr hópi framleiðenda og útflytj- enda verið teknir fastir. Bernhard Vogel, forsætisráðherra í Rínarhéraði, hefur boðað að sett verði ný lög til þess aö takmarka innflutning víns og hafa með honum strangara eftirlit. -• W' W,- - . . - ' • - '' ' * • 'N- .’v.-'' Óperusöngur fyrir matarhjálpina Frægar óperusöngstjömur komu fram í rómverska leikhúsinu í Verona á Italíu í gær í fjáröflunarskyni fyrir matarhjálpina og sveltandi fólk í Afríku. Jose Carreras og Montserrat Caballe vom meðal þeirra sem komu þarna fram á hljómleikum er tóku mið af rokktónleikum „Láve Aid” í síðasta mánuði. — 20 þúsund aðgöngumiðar seldust. Luciano Pavarotti sá sér ekki fært að koma þarna fram, bundinn í báða skó af öðrum samningum, en breski leikarinn Christopher Lee varkynnir tónleikanna sem kallaðir voru „Opera Starsfor Africa”. Hagnaður af hljómleikunum mun renna til UNICEF og annarra góögeröarsamtaka sem vinna að matarhjálpinni við Eþíópíu og Súdan. Grískur skepnuhirðir vakir yfir hjörð sinni i skógareldunum • Skógareldará grískumeyjum Yfir þúsund dátar berjast við skógarelda sem hafa geisað nær hömlulaust í heila viku víða, á grísku eyjunni Thasos. Ikveikju af mannavöldum er kennt um. Þegar mest gekk á geisuðu skógareldar á 60 stööum, en í gær logaði á tveim stórum svæðum. — Fimm fórust í eldinum í fyrradag, þar á meðal tveir belgískir ferða- menn. Skógareldar geisa einnig eyjunum Zakynthos, Kephalonia og á Korfu. Tveir menn hafa verið handtekn- ir og færðir til Aþenu til yfir- heyrslu. Til þeirra sást fyrir tveim vikum með útbúnað í fórum sínum til íkveikju. GOþúsundára gamallmammút Hópur vísindamanna í steingerv- ingafræöum fundu nýlega filabein eða réttara sagt vígtönn úr mamm- út, sem uppi var fyrir 60 þúsund ár- um. Fannst hún skammt frá bæn- um Montbeliard í austurhluta Frakklands. Tönnin mældist 2,5 metrar að lengd og vó 200 kg. Á þessum slóðum, sem eru við landamærí Sviss, hafa steingerv- ingafræöimenn unnið við uppgröft heilan mánuö í sumar en 1983 fannst þarna beinagrind úr nas hyrningi sem hefur vafrað þarna um á beit fyrir 40—60 þúsund ár- um. Charles Bretaprins og rikisarfi í fullum skrúða en i viðtali við „Sun- day Times" um helgina er hann opin- skárri en venjulega. PRENTSMIÐJUR- PRENTARAR SEM VÆNTA MÁTTI ERU HINAR HEIMSKUNNU @ MfimODfi OFFSETPRENTVÉLAR teknar að leggja leið sína til landsins. Ótrúlega hraðvirkar og auðveldar í notkun. Mjög hagstætt verð. Ein vél til afgreiðslu strax, annars er afgreiðslufrestur 2 1 /2 mánuður. Umboðsmenn á islandi fyrir Hamada Printing Press Ltd: JÓN BRYNJÓLFSSON H/F,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.