Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 5
DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985 5 Laxá í Refa- sveit full af fiski —f réttir úr 13 veiðiám „Þetta gengur þokkalega og áin hef- ur gefið 132 laxa, en hún er vatnslítil og miðað við aðstæður er þetta í lagi,” sagði Páll Þorsteinsson í Álftártungu. „Það er engin spurning að þegar rignir kemur mikil ganga, alltaf er eitthvað af lúsugum fiski að koma í ána. Þaö virðist vera mest um lax í Lambafossi og uppi í pyttum ofarlega.” Veitt er með 3 stöngum í ánni til 20. ágúst og þótti mörgum það frekar djarft að fjölga stöngum í ánni. „Frekar dræm veiði og laxinn tekur illa,” sögöu veiðimenn við Grímsá um helgina, en þeir veiddu í þrjá daga. „Það er töluvert af laxi og við fengum 30 iaxa. Veiðistaður 51 hefur gefið flesta laxa hjá okkur og þar er töluvert af laxi og víða um ána. Þetta er allt smár lax hjá okkur og hann er 8 punda sá stærsti.” Heildarveiðin í ánni er um 1100 laxar. Við náðum í Guðjón Isberg veiðivörö á Blönduósi og fengum fréttir hjá hon- um. „Vatnsdalsáin hefur gefið 615 laxa og er það með silungasvæðinu, sem er komið í 50 laxa, og mikið af silungi. Laxá á Ásum hefur gefið 1220 laxa og hafa veiðimenn fengið góða veiði. Blanda er komin í 661 lax og Svartá í 162, veiðst hefur vel þar síðustu daga. Hallá er komin langt yfir það sem hún gaf í fyrra og hafa núna 115 laxar veiðst þar. Laxá í Refasveit er í 80 löx- um. Veiðimenn segja að mikiö sé af laxi í henni og veiðimenn bjartsýnir á góða veiði næstu daga. Það lítur því vel út með veiðina hjá okkur og betri tölur í næstum öllum veiöiánum,” sagöi Guðjón að lokum. „Það eru komnir 745 laxar og fiskur- inn er alltaf að ganga svo að við erum hressir þessa dagana,” sagði Böðvar Sigvaldason á Baröi í Miðfirði. I Arn- dísarhyl í Vesturá sást vænn lax og giskuöu veiðimenn á 25—30 punda fisk. Það var ganga að koma í ána í vikunni og álitu menn að í henni væru 150—200 laxar. Sást það af Miðf jarðarárbrúnni. Fréttir af þeim stóra eru engar í bili.” „Laxá í Aðaldal hefur gefið 1710 laxa og þetta hefur verið reytingur síðustu viku,” sagði Völundur Hermóðsson í VEIÐIVON Gunnar Bender Aðaldal í gær. „Mýrarkvisl hefur gefið 215 laxa og Skjálfandafljótið 470 laxa.” G.Bender • Veiðin i Leirvogsá hefur verið góð i sumar og munu vera komnir á land 363 laxar. Á myndinni glima þeir Snœbjörn Kristjánsson og Guð- jón Hannesson við lax og hafa bet- 1 Reykjadalsá i Borgarfirði hefur gefið 41 lax og töluvert af silungi. Eitthvað er af laxi i ánni en hann tekur illa. ENN RYFUR NESCO ORION2A 33.900* XENON3CN 36.900* ORION 2A er myndbandstæki sem hefur allt sem þú þarft, úrvalsgóða mynd, fullkomna tækni og trausta byggingu. VHS-tæki á aðeins 33.900 krónur. XENON 3CN er enn fullkomnara og fjölbreyttara, með sjálfvirkri upptöku fyrir fjórar stöðvar og ólíka dagskrárliði, minni og þráðlausri fjarstýringu, auk venjulegra eiginleika. Glæsilegt tæki á aðeins 36.900 krónur. XEN0N4B 39.900 ORIONVM 47.900 XENON 4B hefur alla sömu eiginleika og 3CN tækið, auk þess, sem það hefur 12 stöðva forval, enn víðtækara móttökusvið og stjórnborð af allra nýjustu gerð. Stórglæsilegt tæki á aðeins 39.000 krónur. ORION VM fjölnota myndbandstækið er hvort tveggja í senn fullkomið heimilismyndbandstæki og ferðatæki með afnotarétti af myndtökuvél til upptöku á eigin myndefni. Bráðsnjöll frambúðarlausn, sem hittir hvar- vetna í mark, á aðeins 47.900 krónur. * Sfgr. vtri LAUGAVEG110 SÍMI27788

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.