Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 19
DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985 19 Tvö fyrirtæki í tref japlastiðnaði á Skagaströnd: Lifa betra lífi en Magnús sálarháski „Okkur liður vel, takk fyrir,” sagði Hreinn Hjartarson veðurfræðingur. þegar blaðamenn DV bönkuðu upp á hjá honum í húsi veðurathugunarfólks- ins á Hveravöllum. Hreinn er þama í nokkrar vikur í sumar við afleysingar ásamt konu sinni, Sigurbjörgu Gísla- dóttur, og dætrunum tveimur, Kristínu ogSigrúnu. Sigurbjörg sagði að dvölin þarna væri mjög afslappandi og hressandi og góð tilbreyting frá hennar venjulega starfi hjá Hollustuvernd rikisins. Dæturnar voru lika alsælar með hið nýja umhverfi, þær féllust á að það væri betra en malbikið í Reykjavík. Hreinn sagði að auk veðurathugan- anna, sem gera þarf á þriggja stunda fresti allan sólarhringinn, dundaði f jölskyldan sér við smágönguferöir og heyskap. Ég hef verið að naga blettinn hér fyrir utan með orfi og ljá,” sagði hann. „Annars er mitt „motto” að lifa betra lífi hér en Magnús sálarháski. Magnús fluttist til Hveravalla á 19. öld og ætlaði að gerast útilegumaður. Hann gafst hins vegar upp eftir þrigg ja vikna dvöl hér. Fyrstu vikuna stal Magnús lömbum og sauð þau í hver. Hitinn í hvernum var aftur á móti það mikill að allt kjöt- ið soðnaði í mauk og aöeins lungun flutu ofan á. Magnús sagðist því hafa lifað á lambalungum fyrstu vikuna, munnvatni aðra vikuna en guðsblessun þriðju vikuna. Hann sagði að það hefði verið versta vikan og sneri til byggða að henni liðinni.” Eftir því sem blaöamanni sýndist gekk Hreini ágætlega að fylgja þessari lifsstefnu sinni. JKH Yfirgáfu gamla fyrirtækið og stofnudu eigið „Þetta var ekki svo mikið átak. Við vorum búnir að hugsa um þetta nokkuð lengi,” sögðu þeir Eðvarð Ingvarsson og Ljubodrag Mark Ovic hjá Mark sf. en þeir stofnuöu eigið fyrirtæki i trefjaplastframleiöslu á Skagaströnd eftir að hafa unnið við hana í áraraðir hjá öðrum fyrirtækj- um. „Möguleikarnir i þessu plasti eru ótæmandi. Við höfum unniö viö þaö mjög lengi og hugmyndin hjá okkur er að þróa það enn frekar. Við höfum gert tilraunir með að fá nýja eigin- leika í trefjaplastið en þær eru ekki það langt á veg komnar að hægt sé að greina f rá þeim nú. ” Þeir félagar hófu framleiðsluna í febrúar síðastliðnum og framleiða jöfnum höndum báta, trillur, laxeld- iskör, fóðurkassa og fleira. Starfs- menn eru f jórir. Ætla að smíða 20 til 60 tonna báta „Þegar opnast fyrir smíði á 30 til 60 tonna bátum þá gætum við smíðaö þá úr plasti. Við ætlum að vera búnir undir það,” sagði Omar Haraldsson, framkvæmdastjóri Trésmiðju Guð- mundar Lárussonar á Skagaströnd, en stærstu trefjaplastbátar sem steyptir eru hér á landi eru 15 tonn. „Sem stendur eru verkefnaskortur í skipasmíðum. Fiskveiðasjóður lán- ar ekki til nýsmiða á bátum, en þeg- ar farið verður að smiða báta aftur þá verður það úr plasti.” Trésmiðja Guömundar Lárusson- ar er eitt af tveimur fyrirtækjum á Skagaströnd í framleiðslu á hlutum úr tref japlasti, en auk hennar rekur hún trésmiöaverkstæði, sér um við- hald á húsum og skipaviðgerðir. Fyrr á þessu ári tók hún í notkun nýja dráttarbraut og aö sögn Omars hefur brautin breytt miklu fyrir rekstur fyrirtækisins. Omar sagði aö fjárhagsstaðan væri ekki mjög góð en töluverðar breytingar hefðu verið gerðar á rekstrarforminu aö undan- förnu. 7 starfsmenn fyrirtækisins gengu inn í það með nýtt hlutafé og eiga þeir hlut upp á um helming hlutafjár, á móti frystihúsinu Hóla- nesi og Skagastrandarhreppi. „Menn eru stundum hissa á því að verið sé að basla í skipasmíðum hér norður í landi en við höfum stórt og mikið húsnæði og búum yfir mikilli reynslu í skipasmiðum,” sagði Omar Haraldsson. -JKH Hreinn Hjartarson, Sigurbjörg Gísladóttir og dœtur þeirra, Kristin og Sigrún, i húsi veðurathugunar- fólksins á Hveravöllum. „Við erum auðvitað í samkeppni við aðra að einhverju marki,” sögðu þeir að lokum, „en ekkert frekar við hitt fyrirtækið hér á staönum en önn- ur.” -JKH Ómar Haraldsson, framkvœmdastjóri Trósmiðju Guðmundar Lárusson- Ljubodrag Mark Ovic og Eðvarð Ingvarsson hjá Mark sf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.