Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 8
DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985 Utlönd Utlönd Útlönd Útlönd Indverskir hermenn mar- sóra...ef til vill á leið til átaka við Pakistana á Siachen-jökli. Felustríðið áSiachenjökli staðfest Meira en hundrað hermenn hafa fallið eða særst í átökum á Siachen-jökli á landamærum Pak- istans og Kashmír, að því er pakistanskir embættismenn segja. Þeir segjast hafa misst átján menn og tuttugu og tveir hafi særst en milli sjötíu og áttatíu indverskir hermenn fallið eða særst. Stórstríðgegn eiturlyfjum Tíu þúsund manna her- og lög- regluliði var teflt fram til að eyða valmúa- og maríjúanaökrum í Norður-Mexíkó fyrir helgi. 40 þyrl- ur, 11 flugvélar og fjöldi ökutækja var notaöur í þessa aðgerð, sem er sú stærsta er yfirvöld hafa gripið til gegn eiturlyfjaframleiðendum í Ameríku. Þessi herör var skorin upp í Sina- loa, Durango, Sonora og Chihuahua og í samvinnu viö bandarísk fíkni- efnayfirvöld, en Bandaríkin veita Mexíkó 11 milljóna dollara efna- hagsaðstoð á þessu ári gegn fíkni- efnasukkinu. — Obbinn af eiturlyf j- unum, sem framleiddur er í Mexíkó, fer á svarta markaðinn í Bandarikjunum. Umsjón: Guðmundur Péturssonog Hannes Heimisson Kaþólska og islam hittast — Páfinn hittir Hassan konung, afkomanda spámannsins Múhameðs Jóhannes Páll páfi lýkur í dag heimsókn sinni til sjö Afríkulanda með sögulegum fundi í Marokkó, fyrsta múhameöstrúarríkinu sem ríkjandi páfiheimsækir. f Þar mun leiðtogi rómversk- kaþólskra, sjálfur arftaki Páls postula, hitta að máli Hassan Marokkó-konung, sem sagður er afkumandi spámannsins, Múhameös. Þeirra fundur verður í konungshöllinni í Casablanca. Eftir á mun páfinn þylja bænir með 50 þúsund kristnum íbúum landsins og ávarpa tugi þúsunda múhameðs- trúarmanna á ólympíuleikvanginum. Það eru nær þúsund ár síðan kaþólski presturinn Gebert kom til Marokkó til náms við hinn foma Kairy- ouaneháskóla í Fez. Síðar varð hann Sylvester páfi sem ríkti frá 999 til 1003. Páfinn kemur til Marokkó frá Kenya þar sem hann í gær veittist aö aðskiln- aðarstefnunni, sem hann sagði þröskuld í vegi mannkynsins. En aðal- ræða hans beindist samt gegn getn- aðarvörnum, fóstureyðingum, hjóna- skilnuðum og fjölkvæni. Rainbow Warrior-málið: Frakkar verða sóttir til bóta — efJeyniþjónusta þeirra verður uppvís að skemmdarverkinu á skipi grænf riðunga Nýja-Sjáland hyggst sækja Frakk- land til skaðabóta ef staðfest verður að franska leyniþjónustan eigi hlut að skemmdarverkinu á Rainbow Warr- ior, skipi grænfriðunga, sem sökkt var í höfn í Auckland. David Lange forsætisráðherra sagöi fréttamönnum að Nýja-Sjáland mundi þá krefjast bóta fyrir hönd grænfrið- unga og fjölskyldu ljósmyndarans sem fórst með skipinu í sprengingunni. Óveður íAusturríki Þrumuveður með hagléli og snörp- um vindrokum gekk yfir vesturhluta Austurríkis fyrir helgi og olli flóði í Dóná og öðrum ám. Hlaust af mikið tjón í Týróla-héraðinu þar sem nú úir og grúir af ferðafólki. Músíkhátíöin stendur yfir í Salzburg og þar komst fólk varla leiðar sinnar vegna vatns- elgs á götum og gangstéttum, Franska ríkisútvarpið hefur haldið því fram, að maður og kona, sem hand- tekin voru á Nýja-Sjálandi með fölsuð svissnesk vegabréf, væru í rauninni foringjar í franska hernum. — Francois Mitterrand Frakklandsfor- Kynþáttaerjur á eyjunni Sri Lanka mögnuðust um helgina. Yfirvöld í höfuðborginni Colombo segja að fréttir um mannvíg hafi borist frá fjöl- mörgum héruðum landsins. Skæruliöar aðskilnaðarhreyfingar tamíla hertóku í gær lest með yfir 500 farþegum, ráku fólk frá borði og leituðu verðmæta. Yfirvöld segja að á síðustu 3 dögum hafi meira en 70 manns fallið í átökum en aöskilnaðar- hreyfing tamíla fyllyrðir að fleiri en 250 manns hafi fallið. Ríkisstjórn seti fyrirskipaði opinbera rannsókn og er búist við niðurstöðu hennar ein- hvern næsta daginn. Rainbow Warrior átti að vera flagg- skip flota, sem sigla skyldi til Kyrra- hafsins á þær slóðir þar sem Frakkar Júníusar Jayerwardene hefur hert neyðarlög er í gildi hafa verið i landinu frá 1983 og fyrirskipað öryggissveitum að vera í viðbragðsstööu. Anandatissa, upplýsingamálaráð- herra Sri Lanka, sagði í gær að skæru- liðar tamíla hefðu í vikunni myrt með köldu blóði 37 fiskimenn í Trincomalee héraöi þar sem andstæðingar tamíla, sinnhalar, eru í meirihluta. Oeirðimar á Sri Lanka fylgja í kjölfar slita á samningaviðræðum tamíla og sinn- hala er fram hafa fariö í konung- eru með tilraunir með kjarnavopn. Ætlunin var að mótmæla tilraununum. Mitterrand hefur nú lýst því yfir að tilraununum á Mururoa-eyjum verði haldiö áfram hvað sem líði mótmæl- um. dæminu Bhútan í Himalayafjöllum síöustu vikur. Yfirvöld á Sri Lanka hafa fullyrt að viðræðum verði haldið áfram en fulltrúar tamila segja engan fót fyrir slíku. Fulltrúar tamíla slitu viöræðunum og kváðu þær árangurs- lausar. Tamílar krefjast sjálfstæðis á eyj- unni til handa 2,5 milljónum tamíla en á Sri Lanka búa alls 16 milljónir manna. Tamila eru hindúar en af- gangur íbúanna er að mestu búdda- trúarmenn. Blóöbaö á Sri Lanka Prinsinn af Wales tekur sór stundum fri fró opinberum skyldum og bregflur sór út í sveit.... Krónprinsinum falla vel Charles prins, rikisarfi bresku krún- unnar, létti ögn mesta hátíðleikanum og alvörusvipnum í opinskáu viötali við breska blaðið „Sunday Times” núna um helgina. Umræðuefniö var dauðinn, indversk heimspeki, örbirgð í stórborgum, geðveiki og efnishyggja Vesturlandabúa. Honum þykir mikiö til um hugmynd- ir hagfræöingsins og heimspekingsins E.F. Schumacher heitins, sem var höf- undur slagorösins „Smátt er smekk- legt”. Schumacher hafði imugust á nú- tímatækni og hvatti til einfaldari lifshátta. Fyrir tveim áratugum stofnaði Schu- macher góðgerðarsamtök, sem lítið hefur farið fyrir, en prinsinn af Wales er verndari þeirra. Þessi samtök hafa á stefnuskrá sinni aö leita einfaldari og ódýrari lausna á vandamálum fátæk- ari þjóðfélagshópa. — Að áliti prinsins eru hin stóru alþjóðlegu hjálparsam- tök komin ögn á skjön við markmið þeirra. „Þau hafa ekki nægilega gefið gaum fjósverkin ... þar sem hann unir sór vel i nónari snartingu vifl nóttúruna, hvort sem ar vifl hvild efla stritandi vifl einföld búvark. að aöstoð við fólk í minna umfangi og á meðan það þarf ekki nema smáhand- tak til þess að rétta sig sjálft viö, en það skiptir mestu máli,” sagði prins- inn í viðtalinu. Hann sagðist oft þrá það fábrotna og einfalda, en það færi ekki vel saman við stöðu hans sem meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar. Stundum tæki hann sér þó frí frá hinum opinberu skyldum og brygði sér þá upp í sveit til þess að taka þar til hendi. „Það er gott fyrir sálina að strita ögn við hin jarðbundnari störf, eins og að moka flór, gera við túngarð, mjólka kýr eða sem sé að komast í nánari snertingu við náttúruna og grundvöU lífsins,” segir Charles prins af Wales. Hann segist viöbúinn ýmsum furðu- viðbrögðum vegna þessara skoðana: „Ætli ég hafi svo sem ekki lesið um mig að ég sé á leið að verða búdda- munkur, eða einsetumaður einhvers staðar uppi í f jalli, étandi ekkert annað en gras. En ég er nú ekki alveg svo slæmur,” segir hann glottandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.