Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 13
DV. MÁNUDAGUR19. AGUST1985 13 Rómantík og jafnrétti Nú á tímum er þaö svo sannarlega ekkert grín að vera haldinn róinan- tík. Þaö að vera uppfullur af róman- tískum hugmyndum á tímum hinna geysilegu framfara, hraða, streitu, kvenréttinda- og jafnréttisbaráttu getur næstum því flokkast undir þjáningu nútímamannsins. Þessu til sönnunar getum við tekið ótal dæmi. Og þessi dæmi fáum viö á auðveldan hátt með því að líta vand- lega í kringum okkur, hvar og á hvaða tíma sem er. Auðvitað með vel opin augu og opnum huga. Þá líður ekki á löngu þar til ýmislegt blasir viö sem kemur hinum „ólæknandi rómantíska” til þess að fá gæsahúð umallankroppinn. I göngugötunni blasir fjölskrúðugt borgarlíf við og dreifist þaðan í allar áttir, upp Bankastræti og þaðan til hliðar. Konurnar (eða kvenmennimir) sýna sig á frjálslegan hátt í allavega litum síðbuxum og tilheyrandi bolum eða skyrtum sem teygjast í ólík- legustu áttir. Þetta er þægilegur búningur, því verður ekki neitað. Og um leið stór bylting í klæönaði kvenfólksins ef miðað er við hina gömlu, góðu daga. Einnig undirstrikar þessi nútíma- búningur vel hina ótæmandi jafn- SIGRÚN SCHNEIDER RITHÚFUNDUR réttisbaráttu, sérstaklega þegar klippingin er þannig að varla er hægt að greina hvort um karlmanns- eða kvenhöfuð er að ræða... Hvar eru fallegu rósóttu kjólarnir úr þunna efninu, með þröngum bol og víðu pilsi sem bærist fagurlega um granna fótleggi í golunni? Kjólarnir sem undirstrika grannt mitti, hvelfdan barm og fallega fót- leggi? Karlmenn hafa löngum haft ánægju af að horfa á fallega kvenfót- leggi og heyrst hefur að þeir hafi í blindni elt slíka leggi um borgina þvera og endilanga með þeim ásetn- ingi að bjóða eiganda þeirra til veislu og veita honum tilhlýðilegt viðmót og virðingu. Minna má það ekki vera fyrir shka fegurð, sem höfðar þannig til manns, og er þetta ekki rómantík eins og hún gerist best? Ef til vill heyrir slíkt athæfi fortíðinni til, rétt eins og víðu, kven- legu sumarkjólarnir og girnilegir öklar á götum úti í sumarblíðunni. Hefur dæmið kannski snúist við og hefur kvenfólkið tekið við hinu gamaldags hlutverki karlmannsins? Er konan farin að líta rannsakandi augum á karlmanninn með það í huga hvort hún eigi að elta hann með væntanleg kynni í bakhönd? Hnippa svo í lok eltingar- leiksins í öxlina á honum, bjóða honum til veislu og veita vel? Því að konur eru rausnarlegar og veita vel, sérstaklega ef þessi litla veisla á sér stað á vettvangi heimilisins. Þá er konan nefnilega í essinu sínu, eins og sagt er, og getur sýnt hvað í henni býr. . . og þá er vafamál hvort hefði betur. En, nei, þannig gengur dæmiö ekki heldur upp og þessi tilhugsun hlýtur að sveima eins og grýla fyrir augunum á hinum „viðkvæmu rómantísku” sem í huga sínum dreymir um þá tíma þegar kveneðlið er hvað elskulegast og karlmaðurinn sterkur. En hvað um það, þegar öllu er á botninn hvolft er þetta núverandi ástand alls ekki svo slæmt. Við stefnum að jafnrétti, ekki for- réttindum og er það vel. Jafnrétti táknar auðvitaö sömu réttindi til alls fyrir bæði kynin, hvernig svo sem tilfinningum og rómantík er háttað hjá hvoru fyrir sig. Það er nú önnur saga, eflaust viðkvæmog löng. Nú þarf t.d. karlmaðurinn ekki lengur aö opna dyr fyrir konu eða hleypa henni fram fyrir sig á skemmtistað eða götu, svona fyrir kurteisissakir. Ekki þarf hann heldur að standa upp fyrir henni í strætisvagninum og bjóða henni sæti sitt. Það er úrelt og gamaldags. Nú standa konur upp fyrir karl- mönnum og bjóöa þeim sæti sín, rétt eins og þeir gera. Jafnvel snúast þær í kringum þá, opna dyr, hjálpa þeim úr yf irhöfnunum o.s.frv. Aumingja tilfinningasama róman- tík... En þrátt fyrir allt er ég viss um að það er jafnánægjulegt og indælt að vera kona eins og karlmaður. Heill þeim báðum í baráttunni. Sigrún Schneider. £ ,,Jafnrétti táknar auövitaö sömu réttindi til alls fyrir bæöi kynin, hvernig svo sem tilfinningum og rómantík er háttaö hjá hvoru fyrir sig.” Afhvökm 1 síðustu viku voru tvö skip í Reykjavíkurhöfn, bæði sérstaklega gerð út til þess að trufla hvalveiðar. Á öðru skipinu grænfriðungar, sem eru þekktir fyrir ólöglegar aðgerðir sínar gegn hvalveiðum fyrir nokkr- um árum, en á hinu skipinu önnur samtök manna og hafa þau samtök sökkt hvalbátum og tekið sér opin- bert vald og beitt því ótæpilega. Af blaðafréttum er ljóst að grænfrið- ungar hafa orðið hálfhvumsa við að fá sprengjumennina á sama tíma enda varð þá berar en fyrr hversu málstaöur þeirra hefur fjarlægst upprunaleg stefnumið samtakanna. Það er vitanlega rétt sem einn grænfriðunga sagði í viðtali við Morgunblaðið að hann hefði talið að Islendingar ættu samleið með græn- friðungum um að vernda höfin fyrir mengun og því að hættulegum úr- gangsefnum sé kastað í þau. Undir þessi sjónarmið grænfriðunga hafa Islendingar tekið heils hugar og hafa verið harðir andstæðingar þess að höfin yrðu gerð að allsherjar sorp- tunnu fyrir eiturverksmiðjur. Meðal annars þess vegna hafa Islendingar gerst aðilar að alþjóöasamþykktum um varnir gegn mengun hafsins og sett hafa verið lög til þess að auð- velda eftirlit með skipum sem sigla innan efnahagslögsögunnar. Og ekki má gleyma því að ein af ástæðum þess að efnahagslögsagan var sett var einfaldlega sú að menn vildu hafa í hendi sér að geta fylgst með siglingum skipa og geta skorist í leik- inn ef menga átti sjóinn með því að henda hættulegum efnum í hann. Islendingar eru einnig sammála því sjónarmiði grænfriðunga að koma verði í veg fyrir aö einstakar dýrategundir deyi út. Islendingar Kjallarinn HARALDUR BLÖNDAL HÆST ARÉTT AR LÖG M AÐU R urðu sjálfir þess valdandi að geir- fuglinn dó út, a.m.k. var það íslensk- ur maður sem drap síðasta fugl þeirrar tegundar. Og Islendingar hafa lært af þeirri sögu. Við skulum hafa hugfast að Islendingar settu þegar á 19du öld lög til þess að friða hvalastofnana hér við land þegar þeir voru hætt komnir vegna ofveiði og þaö er m.a. vegna þessa að Norð- mönnum tókst ekki að útrýma hvala- stofnunum hér við land. Frá því að hvalveiðar hófust eftir seinni heimsstyrjöldina hafa þær verið takmörkunum háðar og Is- lendingar hafa alltaf hlotið viöur- kenningu alvöru-hvalvísindamanna fyrir skynsamlegar hvalveiðar. Og það er ekki fyrr en ofstækismenn hefja innrás sína í Alþjóöahvalveiði- 0 „Kenningar grænfriðunga um að hvalveiðar megi ekki stunda í hagnaðarskyni standast ekki — ein- faldlega vegna þess að þeir miða við sjálfsþurftarbúskap af þrengstu gerð.” ráðið og fylla vísindaráðiö þar af mönnum, sem jafnvel vita ekki hvernig hvalir líta út, svo að notað sé oröalag eins þeirra erlendu vísinda- manna sem nú vinnur við rannsóknir uppi í Hvalfirði, að mótmælt er hval- veiðum íslendinga og þær lagðar að jöfnu við ofveiðina í Suðurhöfum. Rétt er að undirstrika að vísinda- lega hefur verið sýnt fram á að stofn- arnir hér við land eru staðbundnir. Grænfriðungar segja að Islending- ar megi ekki stunda hvalveiðar í hagnaöarskyni og alls ekki selja af- urðirnar úr landi. Þeir segja að hval- veiðar í vísindaskyni séu alls ekki á dagskrá. Lítum nánar á þaö. Ef ætlunin er að veiða hvali til rannsókna þarf til þess skip og vinnslustöð. Jafnframt þarf til þess sérhæföa sjómenn og verkamenn. Allt þetta er fyrir hendi hjá Hval h/f og hjá því fyrirtæki hafa unnið fjöl- margir sem vel kunna til þessara verka. Er þá óeðlilegt að leitað sé til þessara aðila um aö stunda hinar vísindalegu veiðar? Geta vísinda- menn og grænfriðungar ætlast til þess í alvöru aö keypt séu ný skip og reist sérstök landstöð til þess að vinna þessi vísindastörf og síðan ráðnir til starfanna nýir menn. Vit- anlega dettur ekki nokkrum einasta manni í hug aö gera slikt. Einfaldast og eölilegast er aö nota þá aðstöðu sem fyrir er í landinu. Er þetta enda mjög eðlilegt og algengt um allan heim. En þá kemur að afurðunum. Græn- friðungar segja að það sé veriö að stunda veiðar í hagnaðarskyni ef hvalafurðir eru seldar upp í kostnað. En ætlast þeir til þess að hvalimir séu urðaðir að lokinni rannsókn? Er þá ekki verið að berjast gegn grund- vallarsjónarmiðum samtakanna ef dýrunum er hent engum til gagns? Gott og vel, kunna grænfriðungar að segja. Þið megið nýta ykkur af- urðirnar en ekki selja þær úr landi. Og kemur nú til sögunnar dæmalaus heimska um land og þjóð. Svo mikið fellur til af hvalafurðum að útilokað er aö selja þær á innanlandsmarkaöi og þessi stefna yrði til þess eins að takmarka hvalarannsóknir við þær þjóðir einar sem búa við svo stóra markaði innanlands að ekkert þurfi að selja til útlanda. Er heldur enginn munur á því að selja nágranna sín- um eða útlendingi vöruna. Kenningar grænfriðunga um að hvalveiðar megi ekki stunda í hagn- aðarskyni standast ekki — einfald- lega vegna þess að þeir miöa viö sjálfsþurftarbúskap af þrengstu gerð. Selveiðimaður má veiða sel ef hann étur hann. Hann má hins vegar ekki selja selinn og kaupa meðul handa börnum sínum nema því aö- eins að hann hitti á lækni og lyfsala sem vilja borða selkjöt í staðinn fyrir læknishjálp og meðul. Vitanlega settu grænfriðungar þessi sjónarmið fram á þingi Al- þjóðahvalveiðiráðsins og Svíar, sem alltaf reyna að vega aftan að íslensk- um hagsmunum, sbr. Loftleiðir í gamla daga, lögöu fram tillögu í þeirra dúr. Halldór Ásgrímsson tætti hins vegar í sig þessi rök þeirra og hinir skynsamari menn í ráöinu sáu aö tillaga Islendinga var skynsamleg og í fullu samræmi viö samþykktir ráðsins. Grænfriöungar hafa komið til landsins í kynnisferð. Við skulum vona aö þessi ferð þeirra verði til þess að opna augu þeirra fyrir því að Islendingar eru alls ekki að brjóta lög og reglur með veiðum sínum né heldur aö útrýma hvölum. Viö höfum einfaldlega ekki efni á því að missa notin af þeim. En við verðum að gera okkur ljóst að í hópi þessara manna eru þeir sem eru á móti öllum hvalveiðum. Við þá er einfaldlega ekkert hægt að tala. Hótanir þeirra mega hins vegar ekki veröa til þess að við látum und- an þeim. Við skuluin minnast þess sem einn þeirra sagði í sjónvarpinu: „Hver veit nema við ákveðum að vernda þorskinnnæst?” Haraldur Blöndal. ,,En við verðum að gera okkur Ijóst að i hópi þessara mann eru þeir sem eru á móti öllum hvalveiðum. Við þá er einfaldlega ekkert hœgt að tala."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.