Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985 Reyðarfjörður: Rúss- nesk hlust- unar- bauja Sæþór SU 175 rakst á rússneska hlustunarbauju rétt utan við Reyðar- f jörð á fimmtudag. Skipið var á siglingu við Skrúð, rétt utan við Reyðarfjörð, þegar skipver jar sáu svokallaða sónarbauju á reki rétt við skipið. Tóku þeir baujuna um borð. Reyndist hún rússnesk og mjög nýleg. Baujum þessum varpa Rússar í sjóinn úr flugvélum. Er þeim ætlað að hlusta eftir kafbátum. Samkvæmt upplýsing- um DV er ekki ljóst hvar baujan hefur upphaflega verið staðsett Getur hana þess vegna hafa rekið mörg hundrúð kílómetra. Mun Varnarliðið taka bauj- una til handargagns og kanna hana. -KÞ • Þótt enginn vœri eldurinn sýndu slökkviliðsmenn hvernig þeir mundu fara að með froðuna ef eldur vœri í prammanum. Fjölmenni á Ingólfshátíð við Reykjavíkurhöfn í gær • Gafl húss Slysavarnafélagsins var notaður til að sýna björgun manns i körfu. Það ríkti hátíðarstemmning við Slysavarnahúsið við Reykjavíkurhöfn í gær þegar Slysavarnadeildin Ingólfur hélt Ingólfshátíð. Tilefni hátíðahald- anna var að Ingólfur var að taka í notk- im nýjan björgunarbát og torfæru- jeppa sem kvennadeildin gaf. Mikill mannfjöldi kom niður á bryggju og munu hafa verið þar nálægt þúsund manns á meðan hátíðahöldin stóðu yf- ir. „Bryggjumar voru fullar og fólk var hvar sem það komst að,” sagði ör- lygur Hálfdánarson, formaður Slysa- vamadeildarinnar Ingólfs. Það var Davið Oddsson borgarstjóri sem gaf bátnum nafnið Jón E. Berg- sveinsson, en Jón var einn af aðal- hvatamönnum þess að SVFI var stofn- að. Nýi báturinn er þannig útbúinn að hann á ekki að geta sokkið og ef honum hvolfir er sérstakur útbúnaður sem sér til þess að hann fer aftur á réttan kjöl. Þessi bátur á að þjóna Reykjavíkur- höfn og Faxaflóasvæðinu en sams kon- ar bátur er einnig til i Grindavík. Séra Sigurbjöm Einarsson biskup vígði bát- inn en hann var fyrsti formaður Ing- ólfs. Gréta María Siguröardóttir af- henti síðan glæsilegan torfærubil frá Kvennadeild SVFI. Loks voru þrír björgunarmenn heiðraðir. Að dagskránni lokinni sýndu félagar í Ingólfi ýmsar æfingar eins og að síga með mann í körfu niður klettavegg en þar sem enginn er klettaveggurinn við Reykjavíkurhöfn þá notuöu þeir húsið sitt til aö síga utan i. Þeir köfuðu líka í höfninni og skutu upp neyðarblysum og gerðu það líka frá þaki Slysavama- hússins. „Bara eins og á gamlárs- kvöld,” sagði einn viðstaddur. Félag- arnir sýndu áhorfendum hvernig snúa á við gúmmíbjörgunarbátum og loks leyfðu þeir yngstu borgurunum að renna sér í björgunarstól. Það var ekki annaö aö sjá en krakkarnir væm óhræddir enda í öruggum höndum hjá vönum mönnum. Ekki má gleyma heimsókn slökkviliðsins sem sýndi tæki sín. Björgunarhundar sveitarinn- ar voru líka á svæðinu og var þeim mikiö klappað og kjassað, enda hin fallegustu dýr. SJ Fegurst allra í borginni I tilefni afmælis Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst hefur umhverfismála- ráð afmælisbarnsins veitt viðurkenn- ingu fyrir fegrun og snyrtingu á staðn- um. Tvær starfsnefndir hafa unnið að því að safna gögnum um hvar best hefur verið unnið að bættu útliti og síðan lagt fyrir umhverfismálaráð. Niðurstaðan er að fegursta gatan í Reykjavik er Lá- land í Fossvogi. Rafmagnsveitur Reykjavíkur fá viðurkenningu fyrir virðingarvert framtak við hönnun mannvirkja og umhverfis, Kirkjugarð- ar Reykjavikur fyrir sérstaklega fall- egan og vandaðan frágang umhverfis nýju kapellurnar, verslunin Company fyrir smekklegt umhverfi við verslun- argötu, höggmyndagarður við Lista- safn Einars Jónssonar fyrir vel heppn- aða nýmótun gróins og lokaðs garðs, Rauði kross Islands fyrir umhverfi sem hefur verið mótað að þörfum hreyfihamlaðra, og er þar átt við Nóa- tún 21, IBM fyrir snyrtilegt umhverfi við fyrirtækið og Borgartún 17 fyrir snyrtiiegan frágang á lóð þar sem áhersla er lögð á þægilega aðkomu. Verðlaunaafhendingin fór fram í Höfða síðdegis á afmælisdegi Reykja- víkurborgar þann 18. ágúst að við- stöddum Davíð Oddssyni borgarstjóra, umhverfismálaráði, starfsnefndunum, að ógleymdum fulltrúum þeirra er verðlaun fengu árið 1985. ba j Hjénin ögmundur Guðmundsson og Halldóra Pálmarsdóttir, aldursforset- ar í Lálandinu, voru fulltrúar íbúanna við afhandinguna. Þau standa þama við fegurstu götu borgarinnar þetta árið og ofar trónar hoiðursmerkið frá umhverfismálaráði. DV-mynd: PH. • Um borð i Jóni E. Bergsveinssyni. Björn Jönsson, sonur Jóns, tók dúkinn af nafnspjöldum bátsins. Fyrir aftan hann stendur Kristján Magnús- son, fálagi i Slysavarnadeildinni tngólfi. • Björgunarsveitarmenn sýna hvernig á að koma gúmmibjörgunarbátum ó réttan kjðl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.