Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 3
DV. MANUDAGUR19. ÁGUST1985
3
Sjóflutningar vamarliðsins boðnir út:
Rainbow f er með
fyrir rétt
• Slökkviliðsmenn með reyk-
blásara utan á raðhúsinu á Ála-
granda.
DV-mynd: PK
Bandaríska skipafélagiö Rainbow
Navigation hefur kært þá ákvöröun
Bandaríkjastjórnar aö láta bjóöa út
sjóflutninga milli Islands og Banda-
rikjanna fyrir varnarliðiö á Kefla-
víkurflugvelli.
Máliö var lagt fram í undirrétti 12.
ágúst siöastliöinn í höfuöborginni
Washington D.C. Bandarikjastjórn
hefur brugðist við kærunni með því
aö framiengja frestinn til að skila
tilboöum í flutningana frá 22. ágúst
til 13. september næstkomandi, enda
hafi dómstólar úrskurðað i málinu
fyrir þann tíma. Rainbow Naviga-
tion mun annast sjóflutninga fyrir
varnarliöiö með óbreyttum hætti þar
til úrskurður liggur fyrir.
I kæru skipafélagsins segir aö
ákvöröun Bandarikjastjórnar brjóti
i bága viö bandarísk flutningalög frá
árinu 1904, stjórnarskrána, lög um
borgararéttindi, svo og ýmis önnur
lög og reglugeröir. Bent er á aö
Bandaríkjastjórn vilji láta bjóöa út
flutningana vegna þess aö farmgjöld
málið
Rainbow Navigation séu of há, þrátt
fyrir að farmgjöldin séu jafnhá þeim
sem íslensku skipafélögin tóku á
þeim 15 árum sem þau önnuðust
flutningana. Einnig segir aö aldrei
hafi borist kvörtun til Rainbow
Navigation vegna of hárra farm-
gjalda og að ekki sé vitað til þess aö
kvartað hafi veriö undan gjöldum ís-
lensku skipafélaganna á sínum tíma.
EA.
Eldur
í raðhúsi
Slökkvilið Reykjavíkur var kvatt
að raöhúsi við Alagranda um hádegi
á laugardag. Eldur logaöi í þvotta-
húsi á efri hæð og var mikill reykur í
húsinu.
Reykkafarar fóru inn. Gekk greið-
legaaðráðaniðurlögumeldsins sem
var minni en óttast var i upphafi.
Glas með hreinsiefni hafði brotnað
á gólfi herbergisins. Af einhverjum
orsökum, sem ekki eru ljósar, kvikn-
aði í hreinsivökvanum. Eldurinn
komst síðan í fatnaö sem þar var
nærri.
-baj.
Rally-cross við Kjóavelli:
Jón Hólm
sigraði
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavík-
ur gekkst fyrir rally-cross keppni í
gær á nýrri torfærubraut félagsins
við Kjóavelli.
Níu bílar tóku þátt í keppninni.
Sigurvegarinn var Jón Hólm sem ók
sérsmíðaöri Volkswagen-bjöllu. Jón
fór fimm hringi á brautinni, sem er
800 metra löng, á 4:52 mínútum. I
öðru sæti var Jón R. Ragnarsson á
Ford Escort og fór hann brautina á
4:59 mínútum. I þriðja sæti var
Eiríkur Friðriksson, einnig á Ford
Escort, en hann fór fimm hringi á
5:12 mínútum. I fjórða sæti var
Gunnar Vagnsson á sérsmíðaðri bif-
reið og fór brautina á 5:17 mínútum.
Var þetta i fyrsta sinn sem keppt
er á hinni nýju torfærubraut Bif-
reiðaíþróttaklúbbsins við Kjóavelli.
Fjöidi manna mætti til að fylgjast
með keppninni og er talið að um tvö
þúsund manns hafi verið þar þegar
mest var.
EA.
Helgin frá
fimmtudegi?
„Það var bara þetta venjulega
fiylliríí bænum á föstudagskvöldiö,
full fangageymsla, en minna á
laugardagskvöldið,” sagði varð-
stjóri á aðalstöð lögreglunnar í
Reykjavík.
„Annars virðist annríkið vera að
færast meira yfir á fimmtudagana
heldur en föstudaga og kemur senni-
lega til af því að mikiil fjöldi fólks er
farinn að fá launagreiðslur á
fimmtudögum, farið að vinna af sér
föstudagana, og lengir þannig helg-
ina sem síöan dreifir álaginu á lög-
gæsluna.”
Með nýja gerð af gírkassa og vél
sem hönnuð er hjá Porsche verksmiðjunum í Þýskalandi.
Þaö er okkur ánægjuefni að geta boðið upp á bíl sem fer sigurför um Evrópu.
SEAT IBIZA frá Seat verksmiðjunum spænsku.sem eru sjöundu stærstu bílaframleiðendur í Evrópu
- staðreynd sem kemur mörgum íslendingum á óvart.
SEAT IBIZA er ótrúlega rúmgóður, með lituðu gleri í stórum gluggum. Hann er framhjóladrifinn
og hærra er undir lægsta punkt en almennt gerist á bílum í þessum stærðarflokki.
SEAT IBIZA er með 63 hestafla vél og eyðir aðeins 4,8 lítrum á hundraði.
SEAT IBIZA er stórskemmtilegur, sprækur og sparneytinn spánverji - sem er kominn hingað til þess að vera.
Verð frá kr. 385.000.-.
Komdu og skoðaðu’ann og keyrð’ann.
TÖGGURHR
UMBOÐ FYRIR SAAB OG SEAT
BÍLDSHÖFÐA16, SfMAR 81530-83104
baj.