Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Síða 10
10
DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
100 milljónir bama umkomu-
lausar
á götunni
----£j4!a@.'Sl£«ij3í rjgj
<*• '
Þau eru talin í tugum milljóna,
strokubörn, fallnir skólaunglingar eða
yfirgefin börn, eða sem sé þau börn er
segja má að þekki götuna sem eina
heimili sitt.
„Þeim virðist fara f jölgandi eftir því
sem byggðin þéttist í löndunum og
stórborgir eins og Kalkútta, Nairobi,
Marseilles, New York og Bogota eru
ljós dæmi um þetta vandamál,” segir í
nýbirtri skýrslu Sameinuðu þjóöanna.
Peter Tacon hjá barnahjálp
Sameinuöu þjóðanna sagöi f jölmiðlum
í tilefni skýrslubirtingarinnar að þessi
börn mynduöu oft þriggja, fimm eða
tíu bama hópa sem væru þeim eins og
fjölskylda. Böndin milli þeirra væru
oft sterkari en tengsl þeirra við eigin
bræður eða systur.
Barnahjálpin hefur síðari árin gefiö
meiri gaum að umkomuleysi barna
öngstræta stórborganna; barna sem
virðast ekki eiga neina að. Það er aö
segja enga fullorðna. Tacon, sem er
einn af sérfræðingunum er aö þessum
athugunum hefur starfað, segir að í
löndum þriðja heimsins (þróunar-
löndunum) megi ætla að séu um 90
milljónir slíkra barna (upp aö 18 ára
aldri) sem séu algjörlega á götunni. 1
iðnaðarlöndunum megi telja um tíu
milljónir þar til viðbótar.
Mest virðist bera á þessu í Suður-
Ameríku. Barnahjálpin hefur skýrslur
frá Brasilíu þar sem götuböm af
þessu tagi eru talin vera allt að 30
milljónir. — Þar eru talin bæði börn,
sem þekkja ekkert heimili annaö en
götuna, og svo böm sem starfa á
götunum en halda enn nokkram
fjölskyldutengslum.
„Oft mynda þau hópa sem eru svo
samheldnir og vinafastir og ómann-
blendnir við aðra að líkist helst sér-
dvergsamfélögum. Félagarnir í
hópnum finna samstöðu og öryggi sem
þeir hafa ekki kynnst annars staðar,”
segir Tacon. Nefnir hann sem dæmi
Rio de Janeiro þar sem götu-
grislingarnir eru um allar trissur. Þeir
eru í hópum í almenningsgörðunum,
hanga í þyrpingum við götusjoppumar
og á hverju kvöldi má finna eitthvað
kvikt, tvífætt, í hnipri undir plasti eða
krossviðarplötu á ströndinni í fasta-
svefni.
Meirihluti þessara bama er ekki
algerir umkomuleysingjar heldur
starfandi á götunni til þess að leggja
lið viö aðdrátt heimilisins.
En æðimörg eru yfirgefin og sett á
guð og gaddinn. Þau eiga engan að
eftir að hafa flúið ofbeldið á heimili
þeirra í fátækrahverfinu eða beinlínis
molnar þá heimilið niður.
Tacon, sem er Kanadamaður og
hefur alið upp sex munaðarleysingja
til viðbótar sinum eigin þrem bömum,
segir að það versta fyrir þessi böm
götunnar sé hvernig þau vaxi upp
innan um hættur, misnotkun og
hrakning. „Árum saman finnst þeim
þau séu lokuð í gildru, og geti ekkert
annað farið. Vonleysið blasir við og
afkvæmi þess er síöan örvæntingin. ”
Börnin öngla að sér einhverjum
aurum með smáviðvikum. Þau safna
pappír, þvo bíla, pússa skó eða
leggjast í betl og vændi. Sum flýja í
draumheim fíkniefnanna, þefa þynni
eða uppleyst skóaralim. Það er mikil
sala í skóaralími í Suður-Ameriku.
Mörg þessara barna líða næringar-
skort og eru kvellisjúk. Þau eiga engr-
verið sparkaö að heiman af
fullorðnum sem ekki gátu séö þeim
farborða.
Tacon segir að kreppan og fólks-
flóttinn til borganna séu meginástæður
þess að Suður-Ameríka sé á leið með
að veröa „eldistöð Olivera Twista
tuttugustu aldarinnar”. — „Ljós stór-
borganna lokka til sín þá snauðu sem
dreymir um aö lifa mannsæmandi lífi
og flykkjast þúsundum saman úr dreif-
býiinu til þéttbýlisins,” segir hann.
Reynslan sýnir aö við þetta rask,
þegar tengslin við upprunalegt
umhverfi rofna, vilji fjölskylduböndin
rakna. Slíkt fólk sest jafnan að í
fátækrahverfum í örbirgð og að því
rekur að fyrirvinnan hrekst í at-
vinnuleysinu á vergang í tekjuleit og
hverfur árlangt eða lengur. Venjulega
ar menntunar von og eru dæmd til ævi-
langrar fátæktar.
Barnahjálp Sameinuðu þjóöanna
hefur á prjónunum ýmsar áætlanir
sem miða að því að liðsinna slíkum
börnum. Farkennarar blanda geði viö
börn götunnar, bjóða upp á almenna
kennslu og verktilsögn í handiðn ýmiss
konar. Tilraunir eru hafnar í Brasiliu
til þess að hjálpa þessum munaðar-
leysingjum á legg.
Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna
telja að það muni taka margar kyn-
slóðir að hemja þennan vanda, þótt
ekki væri hærra stefnt en stemma
stigu við fjölgun götugrislinganna.
Minna ber á þessu vandamáli í
iönaöarlöndunum þar sem börn
götunnar eru í flestum tilvikum
krakkar sem hafa hlaupist að heiman.
Framtíðaruppbygging Japan Air Lines:
Setur flugslysið strik
í reikninginn?
* Einn fjögurra er lifði af flugslysið hifður á brott af slysstað. 520 manns
fórust með þotunni.
Flugslysið hörmulega, er japönsk
Boeing 747 risaþota steyptist til jarðar
í fjalllendi viö Tókýó, gæti haft alvar-
legar afleiðingar í för með sér fyrir
flugfélagið Japan Air Lines. Flugfélagið
er eitt hið stærsta í heimi og hefur á
síðustu mánuðum haft á prjónunum
miklar áætlanir um aukin umsvif og
aukna þjónustu. Flugslysið á mánu-
daginn var sjötta flugslys í sögu Japan
Air Lines á þeim 32 árum er liMn eru frá
því flugfélagið var sett á laggirnar.
Slíkt þykir ekki slæmur árangur hjá
einu stærsta flugfélagi veraldar.
Síöasta flugslys i sögu félagsins átti
sér stað árið 1982 þegar DC-8 þota brot-
lenti í Tókýóflóa örfáum mínútum áður
en hún átti að lenda á Haneda alþjóða-
flugvellinum viö Tókýó. Þar gerði flug-
stjórinn sig sekan um hroðaleg mistök
í aðflugi. Af 174 farþegum létu 24 lífið.
Viö rannsókn slyssins kom í ljós að
flugstjórinn átti við andlega erfiðleika
að etja og reyndist bilaður á taugum.
Hann var síðar úrskuröaður í meöferð
á spítala fyrir geðveika. Andleg. óheil-
brigði flugstjórans varð til þess að
margar spurningar vöknuðu um hvort
iil staðar væri nægilegt eftirlit með
áeilsu og þjálfun starfsmanna, ekki
síst flugmanna. Ekki bætti það úr skák
fyrir stjómendur flugfélagsins þegar
við rannsókn kom í ljós að flugstjórinn
hafði, aðeins tveim árum áður, verið í
meðferð vegna taugabilunar sinnar
og bannað að fljúga í eitt ár.
1 kjölfar þessa hneykslis settu
japönsk flugmálayfirvöld strangari
reglur um eftirlit með heilsu flug-
manna og læknum var fjölgað er sér-
staklega skyldu fylgjast með heilsu
þeirra. I kjölfar flugslyssins á Tókýó-
flóa upphófst mikið fjöimiðlafár í
Japan þar sem umræða um öryggis-
mál var í deiglunni. Afrakstur um-
ræðunnar varö mikið tap félagsins á
fjárhagsári 1982-’83. Forsvarsmenn
félagsins opinberuðu 34 milljón dollara
rekstrartap á móti 50 milljón dollara
hagnaöi áriö á undan.
Ljóst er að forsvarsmenn japanska
flugfélagsins hafa nú af því miklar
áhyggjur að sagan frá 1982 geti endur-
tekið sig. Enn er allt óvíst um orsakir
slyssins á mánudag og sá möguleiki
ekki verið útilokaður að vanræksla á
eftirliti á flugflota félagsins ge ti verið
orsökin. Japan Air Lines er það
flugfélag í heiminum er hefur flestar
Boeing 747 risaþotur í þjónustu sinni,
alls 49 stykki, auk tveggja Boeing 727
þotna og eirrnar Boeing 767 sem er ný
flugvélategund á markaðnum og óðum
að hasla sér völl. Yasumoto Taragi,
forseti Japan Air Lines, hefur opinber-
lega beðið aðstandendur þeirra 520 er
fórast á mánudag afsökunar á slysinu.
„Það er ómögulegt að ímynda sér hvað
getur hafa valdið slysinu,” sagði for-
setinn í ávarpi á Haneda flugvelli. „Eg
trúi því ekki að ástæöan hafi verið ein-
hvers konar skortur á eftirliti með vél-
umokkar.”
Það er haft eftir sérfræöingum í
flugmálum að rekstur Japan Air Lines
og allt eftirlit á jörðu niðri hafi fram að
þessu verið talið með því besta er
þekkist.
Alþjóöasamtök flugfélaga, IATA,
reikna út samkvæmt sérstökum staðli
það magn af vörum og farþegum er
flugfélög bera á hverju ári. Samkvæmt
þeim staðli var Japan Air Lines í fyrsta
sæti bæði árið 1983 og 1984. Magn flutn-
ings er fundið út með því að reikna út
vissan tonnafjölda vöru og farþega á
tiltekinni vegalengd. Á síðustu tveim
árum hefur Japan Air Lines flogið
lengsta vegalengd með flest tonn allra
flugfélaga.
Aftur í sókn
Eftir áfallið 1982 er flugfélagið aftur
í sókn. Forráðamenn þakka það fyrst
og fremst lægra heimsmarkaðsverði á
flugvélabensíni, bættri skipulagningu
og efnahagsbatanum í Banda-
ríkjunum, helsta áfangastað flug-
félagsins á alþjóðaleiðum. I mars
síðastliðnum sýndi félagið fyrst
hagnaðíþrjúár.
Á síðasta ári flutti félagið yfir níu
milljón farþega á innanlandsleiöum, 8,5
prósent aukning frá fyrra ári. I
alþjóðaflugi jókst farþegafjöldinn um
11 prósent og metfjöldi farþega, alls 4,5
milljónir. Sjö prósent aukning varð á
fraktflugi félagsins.
Fyrir slysiö á mánudag voru
forráðamenn félagsins bjartsýnir á
framtíðina og höfðu uppi miklar
áætlanir um útvíkkun starfseminnar
og auknar fjárfestingar í nýjum flug-
vélakosti. Umræða um flug og flug-
öryggismál eru nú mál málanna í
Japan. Enn er allt óvíst um orsakir
flugslyssins voveiflega á mánudag en
ljóst er að þaö kemur til með að setja
strik í reikninginn fyrir Japan Air
Lines og seinka áætlunum um fram-
tíðaruppbyggingu.
Boeing 747 frá Japan Airlines af sömu gerð og sú er fórst við Tókýó.