Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Síða 11
DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985
11
NÝ LÍNA í KÆLI OG FRYSTISKÁPUM FRÁ VESTUR —ÞÝSKALANDI.
Þessir vönduðu skápar og kistur eru leiðandi hvað varðar hagkvæmni og frágang.
• Sérlega orkusparandi vegna sérstakrar
einangrunar.
• Stillanlegar hillur og grindur til að
nýta plássið sem best.
• Sjálfvirk afþýðing með eimingu.
• Viðvörun fyrir hitastig og hurð.
• Super frost kerfi fyrir hraðfrystingu.
• Látlaus, falleg tæki — og alveg ein-
staklega hljóðlát.
• Mjög sanngjarnt verð — góðir greiðslu-
skilmálar.
Kristjön Þorbjörnsson, lögreglu-
maður ö Blönduósi.
Lögreglan á Blönduósi:
„Tek stundum
ritvél með mér
og yfirheyri
menn úti
í sveit”
„Þaö má segja að þetta sé rólegt
líf,” sagði Kristján Þorbjömsson, lög-
reglumaður á Blönduósi, þegar blm.
DV hitti hann á lögreglustöðinni. Ekk-
ert markvert hafði gerst þann daginn
og þannig er því líka best f arið.
Eitt lögreglustjóraembætti er fyrir
báðar Húnavatnssýslur og eru fjórir
lögreglumenn í föstum stöðum á svæð-
inu. Tveir eru á Blönduósi, einn á
Skagaströnd og einn á Hvammstanga.
Kristján sagði að venjulega væri einn
þeirra á vakt á morgnana en tveir eftir
hádegi. „Ef bílslys yrði á Hvamms-
tanga núna þyrfti ég að fara þangað og
ef annað yrði 5 mínútum seinna á
Vatnsskarði, þá væri líka í mínum
verkahring að fara þangað.”
Kristján sagði aö verkaskipting lög-
reglumanna úti á landi væri engin, þeir
sinntu jöfnum höndum rannsóknum,
eftirliti og umferöargæslu. „Eg er tals-
vert á feröinni; leita til dæmis að
mönnum í skýrslutöku. Það er erfitt aö
boða menn hingaö á einhverjum
ákveðnum tíma því að það getur alltaf
eitthvað komið upp á og maður þurft
að rjúka burt. Þess vegna fer ég stund-
um með ritvélina meö mér og yfirheyri
menn úti í sveit ef með þarf.”
JKH
Leiðrétting:
Erla ekurekki
Nokkurs misskilnings gætti við
samningu myndatexta viö frétt frá Sel-
fossi undir fyrirsögninni „Fyrsta kon-
an á sjúkrabíl” sem birtist í DV þann
14. ágúst sl. Þar segir orðrétt: „Ekki
líður á löngu þar til Selfyssingar fá að
sjá Erlu brunandi á sjúkrabíl um bæ-
inn.”
Þetta stenst hins vegar ekki vegna
þess aö enginn sjúkrabíll er á heilsu-
gæslustöðinni þar sem Erla vinnur og
annast lögreglan alla sjúkraflutninga.
I öðru lagi þarf sjúkrabílstjórinn að
hafa meirapróf. Á námskeiðinu sem
Erla Bára Andrésdóttir fór á fékk hún
þjálfun í að taka á móti slösuðu fólki,
ekki í að aka sjúkrabíl.
DV vill biðja Erlu Báru velvirðingar
á þessu.
-EH.
Eðlisávísun
Kj örbókareigendur nj óta góðra kj ara hvenær sem þeir leggj a inn.
Þeir sem safna rata á Kjörbókina.
LANDSBANKINN
Græddur er geyntdur eyrir