Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Síða 16
16
DV. MANUDAGUR19. ÁGUST1985
Spurningin
Lestu tímarit?
Arildís Magnúsdðttir filmuvörður:
Nýtt lif er mjög gott tímarit og ég les
þaö vegna þess hve efni þess er fjöl-
breytt.
Guðlaug Guðbergsdóttir ritari: Nei,
tímarit eru yfirleitt svo dýr.
Kristjaua Fjóla Sigursteinsdóttir: Nei,
ég les ekki tímarit en DV talsvert
vegna þess að ég ber það út.
Björg S. Hutton húmóðir: Já, ég les
Mannlíf og Vogue. Mér finnst
skemmtilegast að lesa viðtöl við
inerkilegt fólk og greinar um læknavís-
indi og heilsu.
Jónas Jóhannsson húsgagnasmiður:
Já, ég les Hús og híbýli.
Garðar Árnason verkamaður: Nei,
helst ekki því ég hef annað við tímann
að gera.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Gjaldheimtan:
Munur á ísfirðingum
og Reykvíkingum?
Skattgreiðandi hafði samband:
Eg var að koma neðan úr Gjald-
heimtu hér í Reykjavík. Ég sýndi
þeim sem þar vinna seðil sem ég fékk
á Isafirði hjá kunningja mínum. Þar
er um að ræða þaö sem hann fékk
borgað til baka af sköttunum sínum
ásamt vaxtum af þeirri innstæðu. Eg
bar hann saman við minn eigin seðil
héðan úr Reykjavík og sá að ég fékk
enga vexti af því sem ég á inni hjá
G jaldheimtunni. Eg fékk engar hald-
góðar skýringar á þessum mismun
og vísaði hver á annan í stofnuninni.
Því vil ég spyrja: Eru Isfirðingar
rétthærri en Reykvíkingar varðandi
vexti af innstæðum hjá ríkissjóði?
Guðmundur Vignir Jósefsson
gjaldheimtustjóri sagði að til væri
lagagrein sem segði skýrt og skorin-
ort að þeir sem heföu borgað of mikla
skatta ættu að fá vexti ofan á þá inn-
stæðu hjá ríkissjóði jafnt og hjá
bæjarsjóöum. Vextimir eru þeir
sömu og á sparisjóösreikningum
bankanna. Þetta gildir fyrir allt
landið. Umrædd útborgun til bréfrit-
ara var ekki vegna skattalækkunar
heldur hafði verið um ranga innborg-
un að ræða. Þess vegna fékk hann
ekki neina vexti.
Um verksvið
lögreglunnar
Matthías Ægisson skrifar:
Mönnum hefur orðið tíðrætt um
ágæti lögreglunnar hér í borg sem ann-
ars staðar og hafa menn skipst í tvo
flokka hvaö það varðar. Annars vegar
eru þeir sem telja lögregluna ekki
vaxna hlutverki sínu og hins vegar
þeir sem telja hana alls ekki vaxna
hlutverki sínu!
Maöur nokkur var staddur á Klapp-
arstígnum fyrr í vikunni og sér þá hvar
útlendingur nokkur gefur sig á tal við
lögregluþjón. Virtist fara vel á með
þeim félögum. Það verður ofan á aö út-
lendingurinn biður lögregluþjóninn
vinsamlegast að stilla sér upp við vél-
hjól lögreglunnar. Þjónninn tekur
þessu vel og stillir sér upp til mynda-
töku. Aö því búnu biður útlendingurinn
þarfasta þjóninn að skipta um hlut-
verk. Lögreglumaðurinn sér ekkert at-
hugavert við það að bregða sér í hlut-
verk ljósmyndara þó að hann hafi
reyndar verið kallaður út til að stjóma
umferðinni! Hann mundar því vélina
og gætir þess vandlega að vera í hæfi-
legri fjarlægö frá nýja vininum svo að
bakgrunnurinn njóti sín. Fólk var tekiö
aö streyma að til að fylgjast með í
praxís síbreytanlegu verksviði lögregl-
unnar. Mikið má þó lögregluþjónninn
þakka fyrir aö blessaður útlendingur-
inn sneri ekki lyklingum og kynnti sér
land og þjóö á kostnað ríkisins!
Furduleg auglýsing
frá Orator
4012-6899 skrifar:
Oft eru auglýsingar furðulegar og nú
ætla ég aö spyrjast fyrir um eina slíka.
I auglýsingu frá skemmtistaðnum
Borginni stendur: „20 ára aldurstak-
mark”, en ennfremur stendur: „allir
framhaldsskólanemendur og vinir
þeirra velkomnir”. Þetta stenst alls
ekki því að allir vita að framhalds-
skólanemendur eru frá 16 ára aldri og
upp úr. Því spyr ég, hvernig er með hið
rétta aldurstakmark á Borginni?
Þeir hjá félagi laganema, Orator,
sem staðið hafa fyrir þessum aug-
lýsingum, sögðu aö þeir væru hættir að
auglýsa böllin á Borginni
fyrir nokkrum vikum því alltaf væri
nóg af fólki um hver ja helgi.
Mismunur á rútugjaldi
Móöir í Garði hringdi:
Sonur minn þurfti að fara inn í
Garðabæ með rútu. Hann er 11 ára.
Daginn áður kom í heimsókn til hans
drengur úr Garðabæ. Hann greiddi 85
krónur fyrir ferðina í Garð.
Þegar svo sonur minn kemur í rút-
una í Garði er honum gert aö greiða 105
krónur fyrir sömu ferö. Hann borgar
uppsett fargjald eftir að hafa sagt bíl-
stjóranum frá drengnum sem einnig er
11 ára og borgaði aðeins 85 krónur.
Um kvöldið fer sonur minn heim úr
Garðabænum meö áætlunarbílnum og
borgar þá 85 krónur.
Eg hringdi sjálf í Sérleyfisbifreiðar
Keflavíkur og sögðu þeir þar að far-
gjald úrGarði í Garðabæ fyrir 11 ára
barn væri 80 krónur. Eg skil ekki af
hverju bílstjórarnir geta ekki haft far-
gjöldin á hreinu.
Haft var samband við sérleyfishaf-
ana og sögðu þeir að 105 kr. væri full-
orðinsfargjald á þessari leiö. Barna-
fargjald er 80 krónur. Viðkomandi bíl-
stjóri hefur ekki spurt drenginn um
aldur og því orðið þessi misskilningur.
Þeir eru fúsir aö borga honum til baka
mismuninn.
Hverjar eru reglur um
sjálfsvörn?
Væntanlegur ofbeldisþolandi skrifar:
1. ) Má saklaus maður verja sig gegn
fólskulegri árás glæpamanns?
2. ) Má saklaus maöur verja sig gegn
(fólskulegri) árás og handtöku lög-
reglumanns?
Ég sé hér engan mun á, frá sjónar-
miði þolanda. Þetta eru hliðstæður.
Vill lögreglan birta almenningi reglur
til að fara eftir í tilvikum sem þessum?
Bréfritari ar hrœddur við afleiðingar sprengingar i Áburðarverksmiðjunni i
Gufunesi og likir ábyrgðarleysi stjórnenda hennar við það sem var i Bhopal
á Indlandi.
BHOPAL?
LSKhringdi:
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi er
tímasprengja á mesta þéttbýlissvæði
landsins. Nú stendur yfir verkfall
iðnaðarmanna sem sjá um eftirlit og
viðhald í verksmiðjunni. Forsvars-
maður hennar hefur gefið út yfir-
lýsingu um það að haldið verði áfram
aö starfrækja verksmiðjuna þangað til
eitthvað bilar.
Nú er það vitað mál að ef eitthvað
alvarlegt bilar og sprenging veröur í
Aburðarverksmiðjunni geta hlutar
borgarinnar lagst í rúst. Eitthvað líkt
því sem gerðist í Bhopal gæti gerst
hér.