Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Qupperneq 28
28
DV. MÁNUDAGUR19. AGÚST1985
Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir
Leicester gjörsigraði
lélegt lið Everton
—3-1 á Filbert Street—Man. Utd. ogTottenham vinna bæði 4-0
Gary Liniker mun vilja gleyma
heimsókn sinni til fyrrum félaga sinna
í Leicester sem fyrst. Hans nýja lið,
Everton, var leikiö sundur og saman af
spræku liði Leicester sem margir hafa
spáð falli. Miðvörðurinn marksækni,
Derek Mountf ield, náði þó forystu fyrir
Englandsmeistarana á 23. min. En
tveimur minútum fyrir hlé hafði
Bobby Smith jafnað fyrir heimamenn
og í síðari hálfleik tók Leicester völdin.
Það var Mark Bright sem gerði bæði
mörkin i seinni háifleik og þegar upp
var staðiö var staðan 3—L Bright var
keyptur frá Port Vale fyrir rúmu ári en
lék lítiö með í fyrra vegna þess að
Liniker hélt honum út úr liðinu. Fyrra
mark hans var gert með lausu, hnit-
miðuðu skoti af 15 metra færi og seinna
markið gerði hann með því að leika á
Neville Southall í Everton markinu.
Ekki vel af stað farið hjá meisturunum
en það má minna á að liðið tapaði
einnig fyrsta leik sínum í fyrra, 4—1,
fyrir Tottenham á heimavelli. Fall er
fararheill.
Man. Utd féll ekki í fararbyrjun.
Liðiö skildi Aston Villa eftir í rúst, 4—0
var staöan þegar upp var staöiö. Til að
byrja með rikti jafnræði með liðunum
en eftir að Colin Gibson þurfti að fara
út af hjá Aston Willa, lenti í samstuöi
við Gary Baily, hrundi leikur liösins
saman og aðeins eitt lið var eftir á vell-
inum.
United náði forystu í fyrri hálfleik
ÚRSLIT 1
1. DEILD
Birmingham—West Ham 1—0
Coventry—Man. City 1—1
Leicester—Everton 3—1
Liverpool—Arsenal 2—0
Luton—Nott. For. 1—1
Man. Utd —Aston Villa 4—0
Q.P.R.—Ipswich 1—0
Sheff. Wed.—Chelsea 1—1
Sou thampton—N e wcastle 1—1
Tottenham—Watford 4-0
WBA—Oxford 1-1
2. DEILD:
Brighton—Grimsby 2—2
Carlisle—Bradford 1-2
Charlton—Barnsley 2—1
Fulham—Leeds 3—1
Huddersfield—Millwall 4—3
Hull—Portsmouth 2—2
Norwich—Oldham 1-0
Stoke—Sheff. Utd. 1-3
Sunderland—Blackburn 0-2
Wimbledon—Middlesbrough 3—0
3. DEILD:
Bolton—Rutherham 1—1
Brentford—Wolves 2—1
Bristol—Walsall 2-3
Chesterfield—Bury 4—3
Derby—Bournemouth 3—0
Lincoln—Gillingham 1—0
Newport—Doncaster 2—2
Notts. C.—Cardiff 1—4
Reading—Blackpool 1—0
Swansea—Wigan 0—1
York—Plymouth 3—1
4. DEILD:
Burnley—Northampton 3—2
Cambridge—Hartlepool 4—2
Chester—Halifax 1—1
Colchester—Stockport 3—1
Crewe—Southend 1—1
Exeter—Port Vale 1—0
Mansfield—Hereford 4—0
Orient—Tranmere 3-1
Preston—Peterborough 2—4
Rochdale—Aldershot 2-0
Scunthorpe—Torquay 4—0
Swindon—Wrexham 0—1
meö marki Norman Whiteside eftir
undirbúning Frank Stapleton og Mark
Hughes. Hughes gerði sjáifur tvö mörk
í seinni hálfleik og Jesper Olsen bætti
því f jórða við fyrir United.
Tottenham hefndi ófaranna í lok
síðasta leiktímabils er liðið tapaöi, 5—
1, á heimavelli fyrir Watford. Núna
sigraöi Spurs, 4—0, og nýju leikmenn-
irnir Paul Allen og Chris Waddle komu
mikið við sögu. Waddle náði forystu í
f.h. sem var frekar jafn. En í síðari hálf-
leik tók léttleikandi Tottenham-liðið al-
gerlega völdin. Paul AUen skoraöi
fljótt og Mark Falco kom stöðunni í 3—
0. Það var svo Waddle sem innsiglaði
sigur Uðsins sem sýndi virkilega góðan
leik gegn Watford.
„Ég er ekkert vonsvikinn, bjóst frek-
ar við því að ég yrði ekki með. Það hef-
ur verið sex vikna æfingaprógramm fyr-
ir keppnistímabilið og vegna meiðsla
hef ég aðeins getað verið með í tvær og
hálfa viku,” sagði Sigurður Jónsson í
samtali við DV á laugardaginn en hann
var hvorki með né á bekknum í leik
Sheffield Wednesday gegn Chelsea.
„Ég er hins vegar ákveðinn í að kom-
ast í liðið á næstu vikum og ætla að
berjast fyrir því,” sagði Sigurður.
Á meöan Glasgow risarnir Celtic og
Rangers sigruðu mótherja sína í
skosku knattspyrnunni gerðu litlu ris-
amir Dundee Utd og Aberdeen jafn-
tefli sín á milli. Leikið var á Tanna-
dice, velli Dundee. Leikurinn, sem end-
aöi 1—1, einkenndist af miklum spenn-
ingi og taugaóstyrk leikmanna liðanna
tveggja. Það var Stuart McKimmie
sem náði forystu fyrir meistara Aber-
deen á 35. mín. f.h. en Paul Sturrock
jafnaði fyrir Dundee Utd áður en kom
að hálfleik.
Á meðan komst Rangers á toppinn
með góðum sigri á Hibernian. Ally
McCoist, Dave McPherson og Bobby
Manchester City var óheppið aö
sigra ekki Coventry í fyrsta leik liðs-
ins í 1. deildinni í tvö ár. Gamli United
kappinn, Sammy Mclrgy, náði forystu
fyrir City með skoti af 20 metra færi
snemma i leiknum en Neil McNab
jafnaði er hann skoraöi í sitt eigið
mark. McNab átti lánlausan leik, var
bókaður og þurfti að lokum að yfirgefa
völlinn vegna meiðsla.
Oxford, sem leikur nú í fyrstu deild í
fyrsta sinn í sögu félagsins, gerði jafn-
tefli á útivelli við WBA. Hinn nýi leik-
maður heimamanna, Garth Crooks,
sem keyptur var frá Tottenham, átti
mjög góöan leik. Hann var sífellt
ógnandi en að lokum þurfti hann aö
yfirgefa völlinn vegna meiðsla.
Tony Grealish kom inn á en hann
Leikur Sheffield Wed. og Chelsea var
frekar slappur. Hann endaði 1—1 og
voru bæði mörkin gerð í f.h. Fyrirliði
Wednesday, Mick Lypns, náði foryst-
unni en David Speedie jafnaöi fyrir
Chelsea. Tveir af nýju leikmönnum
Sheff. Wed., Gary Thompson (frá
WBA) og Paul Hart (Nottingham For-
est), léku með, en Glyn Snodin, sem
keyptur var frá Doncaster, var ekki
með.
Williams gerðu mörk Rangers en Gor-
don Durie mark Hibs.
Leikmenn Hearts eiga ekki eftir að
hlakka til þeirra þriggja leikja sem
þeir eiga eftir að leika við St. Mirren í
vetur. Þeir fengu sex stig á sig í fyrra-
dag og í lok síðasta leiktímabils töpuðu
þeir með fimm.
Urslitin í skosku úrvalsdeildinni
urðu annars sem hér segir:
Celtic—Motherwell 2-1
Clydebank—Dundee 4-0
Dundee Utd—Aberdeen 1-1
Hibernian—Rangers 1-3
St. Mirren—Hearts 6-2 SigA
sneri sig á ökla og þurfti að fara út af,
þ.e. leikmenn WBA þurftu að leika 10
síðasta kortérið.
Þetta tókst Oxford ekki að nýta sér
og jafntefli, 1—1, varð raunin. Hinn ný-
liðinn hjá WBA, Imre Varadi, skoraði
fyrir heimamenn en bakvörðurinn
Bobby McDonald jafnaði eftir horn-
spyrnu.
David Puckett náði forystu fyrir
heimamenn í leik Southampton og
Newcastle. Markið gerði hann í f.h. en
eftir hlé jafnaði Peter Beardsley úr víti
fyrir framkvæmdastjóralaust New-
castle. Luton byrjaði vel gegn Notting-
ham Forest á nýja gervigrasinu sínu.
Brian Stein náði forystu fyrir liðið í
upphafi leiks en i s.h. jafnaði nýliði
Forest, Neil Webb. Hann var keyptur
frá Portsmouth í sumar. Nýi stjórinn
hjá QPR, Jim Smith, byrjaði með sigri
er lið hans vann Ipswich. John Byrne
gerði eina mark leiksins í síðari hálf-
leik.
I annarri deild fóru þau lið sem spáð
var velgengni i vetur misjafnlega af
stað. Nýi stjórinn hjá Sunderland,
Lawrie McMenemy, fékk frábærar
Enskir knattspyrnu„aðdáendur”
eru byrjaðir aftur þar sem þeir hættu í
fyrra. Á leik Liverpool og Arsenal á
Anfield Road í Liverpool hófu „stuðn-
ingsmenn” Liverpool-liðsins stríðs-
söngva sína í miðri minningarathöfn
um fórnarlömb Brusselharmleiksins.
Það var kaþólski biskupinn í Liverpool
sem leiddi söng á sálminum Abide
With Me sem sunginn er fyrir lelki á
Wembley. I miðju laginu byrjaði lítill
hópur Liverpool-aðdáenda að öskra að
Arsenal-aðdáendum sem létu ekki sitt
eftir liggja og svöruðu í sömu mynt.
Orslitin urðu þau að ekki heyrðist í
biskupnum eða öðrum sem sungu
sálminn. Þaö er ekki einleikið hvað
sumt fólk getur verið heimskt og vís-
vitandi vont.
„Ég held að við séum öll fegin því að
vera byrjuð að spila knattspyrnu aft-
ur,” sagði Kenny Dalglish, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, eftir leikinn
við Arsenal. „Ég vonast til að knatt-
spyrnan drekki þeirri neikvæðu um-
ræðu sem farið hefur fram í sumar,”
sagði Dalglish, vel þess meövitandi aö
allur heimurinn fylgdist með hverju
fram yndi í fyrsta leik Liverpool.
Þrátt fyrir þessa framkomu
„stuðningsmanna” Liverpool í upphafi
leiks urðu engin ólæti á meðan á leikn-
um stóð eða eftir hann og litið bar á
ölvun.
Á leikvellinum hafði Liverpool öll
völd. Meira að segja Ian Rush fór illa
meö tvö góð tækifæri áður en Ronnie
Whelan náöi forystu fyrir liðið. Það
gerðist eftir undirbúning frá Jan
Mölby sem stjórnaði miðju Liverpool
eins og hann væri alvanur. Stuttu síðar
átti Alan Kennedy að skora eftir að
Dalglish hafði lagt fyrir hann en mis-
tókst. Liverpool réð öllu um gang mála
í seinni hálfleik og Steve Nicol tryggði
liðinu sigur um miðjan hálfleik.
Leikur Birmingham og West Ham
fór fram um morguninn vegna hræðslu
við ólæti. Birmingham vann, 1—0, með
marki Robert Hopkins sem var besti
maður leiksins. West Ham þarf þó ekki
Chris Waddle gerfli tvö mörk i
sinum fyrsta leik mefl Tottonham.
móttökur í upphafi leiks gegn Black-
burn en eftir að sýnt þótti að gestimir
færu með sigur af hólmi púuðu áhorf-
endur og þótti knattspyrna Sunderland
æði lík þeirri sem kom liöinu niöur í
aðra deild í vor. Jálkurinn Peter Lori-
mer kom Leeds yfir gegn Fulham en í
síðari hálfleik tók Lundúnaliöiö völdin
og gerði þrjú. Þaö verður nóg aö gera
hjá Mick Mills, hinum nýja fram-
kvæmdastjóra Stoke. Lið hans réð
ekkert við góðan leik Sheff. Utd og
tapaöi, 3—1. Norwich kramdi sigur
gegn Oldham með eina marki leiksins.
Þess má geta að lokum að Frank Worth-
ington, sem nú situr við stjómvöllinn
hjá Tranmere í fjórðu deild, gerði
mark liðsins gegn Orient. Það dugði
skammt þar sem leikmenn Orient
skoruðu þrjú.
að örvænta, liðið lék skínandi knatt-
spyrnu og nýliðamir Frank McAvinnie
og Mark Ward, sem keyptur var í vik-
unni frá Oldham, komu vel út og Ward
var nærri því að skora er hann sendi
boltann rétt yfir af 30 metra færi.
Hopkins var hins vegar í banastuöi og
aðeins stórmarkvarsla Phil Parkes
kom í veg fyrir að hann skoraði fleiri.
Hollendingurinn Dan Hoekman, sem
West Ham keypti frá NEC Nijmegen,
lék ekki með.
Miklar varúðarráðstafanir voru
gerðar á völlunum í Englandi og öll
félögin hafa komið sér upp sjónvarps-
myndakerfi til að geta myndað þá
óróaseggi sem standa fyrir ólátum. Á
leikjunum í Liverpool og Birmingham
var lögreglan með bíla búnum mynda-
vélum með öflugum aðdráttarlinsum
til að geta fylgst náið með gangi mála.
SigA.
Kenny Dalglish og félagar yfir-
spiluðu leikmenn Arsenal og
sigruðu, 2—0.
Leikmenn Man. Utd fagna sigrinum í FA bikarnum i mai sl. Þeir voru í
banastuði gegn Aston Villa og sigruflu, 4—0.
„Er ákveðinn að
komast í liðið”
— sagði Sigurður Jónsson sem lék ekki með
um helgina
Jafntef li litlu risanna
ískosku deildinni
SigA
Trufluðu minningar-
athöfn um Brussel
„Stuðningsmenn” Liverpool sitja fast
viðsinnkeip