Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Blaðsíða 1
Óánægja íHafnarfirði með „Reykjavíkurvaldið”: Tollgæslan í Firöinum í hendur Reykvíkinga Tollverðir frá Reykjavík hafa yfirtekið tollskoðun á skipum sem koma til Hafnarfjarðar. Þessi breyting tók gildi um áramótin og hefur hún valdið furðu manna í Hafnarfirði því að tollverðir frá Hafnarfirði hafa séð um tollskoðun á skipum sem koma þangað og til Straumsvíkur. „Það hefur lengi verið þyrnir í augum valdsins í Reykjavík hvað mikill uppgangur hefur verið í toll- afgreiðslu í Hafnarfirði síðan Toll- vörugeymslan tók til starfa," sagði einn Hafnfirðingur í samtali við DV í gær. Hafnfirðingar, sem blaðamaður ræddi við, eru ekki ánægðir með það sem þeir kalla yfirgang toll- gæslunnar í Reykjavík og segja að tollgæslan hafi verið tekin úr höndum þeirra með einhliða valdi. Fjármálaráðuneytið hafi beitt sér fyrir því að bæjarfógeti Hafnar- fjarðar léti „ Reykjavíkurvaldinu“ eftir tollskoðun á skipunum. „Þetta er aðeins fyrsta skrefið í yfirtökunni," sagði einn Hafnfirð- ingurinn. „Þetta er aðeins hagræðing í rekstri og sparnaður. Það er skipa- vakt allan sólarhringinn í Reykja- vík. Tveir til þrír menn á vakt. Með því að senda þá til Hafnar- fjarðar þarf ekki að kalla út menn frá Hafnarfirði til að tollskoða skip. Þessar breytingar hafa staðið til lengi, eða eftir að veruleg aukn- ing varð á afgreiðslu í Hafnar- firði,“ sagði Sigurgeir Jónsson hjá fjármálaráðuneytinu. „Þetta er aðeins tilfærsla í störf- um,“ sagði Kristinn Ólafsson, toll- stjóri í Reykjavík, sem vildi ekki tjá sig nánar um málið. Hafnfirðingar, sem blaðamaður DV ræddi við, eru ekki sammála Sigurgeiri. Þeir segja að það séu stór útgjöld að senda menn frá Reykjavík til Hafnaríjarðar og Straumsvíkur til að tollskoða. í gær fóru t.d. þrír tollverðir frá Reykjavík til að tollskoða togara í Straumsvíkurhöfn. Hafnfirðingar segja að þegar beðið hafi verið um fjölgun manna í tollgæslu í Hafnar- firði hafi það ekki verið hægt. „Þetta er ekkert annað en vald- níðsla. Hafnfirðingar þurftu ekki á neinni aðstoð frá valdinu í Reykja- vík að halda,“ sagði Hafnfirðingur einn um þetta mál sem mikið er rætt um í Firðinum þessa daga. - sos —sjá einnigbls.5 Á röntgendeild Landspítalans „fer ástandið að verða bölvað" eins og yfirlæknir deildarinnar segir í frétt inn í blað inu. Átta röntgentæknar hættu þar störfum um áramót vegna launamismunar. Sjá frétt á bls. 2. DV-mynd: KAE titríngur hjá okkur” - segir Finnur Ingotfsson „Ég finn ekki fyrir þessum tauga- titringi í okkar herbúðum. Hins vegar er ljóst að áframhald stjórnarsamstarfsins á eftir að ráðast mikið af því hvernig til tekst i kjarasamningunum næstu vikurnar. Ég tel að það sé ekki þrýstingur að ljúka þessu stjórn- arsamstarfi núna. Þeim mark- miðum sem ríkisstjórnin setti sér hefur ekki verið náð eins og t.d. að koma verðbólgunni niður," sagði Finnur Ingólfsson, formað- ur Sambands ungra framsóknar- manna. „Óánægja framsóknarmanna er ekki meiri nú en endranær. Ég hef heyrt að margir séu óánægðir með vinnubrögð Sverrirs Her- mannssonar í sambandi við Lánasjóðinn. Það eru undarleg vinnubrögð þó engin efist um réttmæti þeirra. ' Aðalatriðið núna er hvernig tekst til í kjarasamningunum. Ef tekst að ná samkomulagi milli ríkisvaldsins og aðila vinnu- markaðarins á þessi stjórn eftir að sitja út kjörtímabilið. En ef það tekst ekki er hætta á ferð- um,“ sagði Finnur Ingólfsson. APH — Sjá einnig bls. 4 Víkingar Lesenda- með 1 bréfí : aðra I DV hönd á leiddi til íslands- : handtöku bikarnum falsarans — sjábls. 16-17 — sjá bls. 3 **IÉÉÍÉ^ÍÍÍÍÉÍIÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÉÉ^ÉÍÉÍÉÍÍÉÉÍÉÉIÍÉMÍÉÍ h Ingvar B. Friðleifsson íDV-viétali — sjábls. 11 M Hvar er hagstæðast að tryggja? — sjá bls. 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.